Morgunblaðið - 29.06.2006, Page 14

Morgunblaðið - 29.06.2006, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÚR VERINU PALESTÍNUMENN óttuðust í gær langvinnan hernað af hálfu Ísraela eftir að þúsundir ísraelskra her- manna og skriðdreka réðust inn á sunnanvert Gaza-svæðið til að reyna að bjarga ísraelskum hermanni sem er í haldi herskárra Palestínumanna. Palestínumenn vöruðu við því að hernaður Ísraela myndi aðeins leiða til enn meiri blóðsúthellinga. Palest- ínska heimastjórnin, undir forystu Hamas-samtakanna, lýsti árásum Ísraela sem „hernaðarlegu brjálæði“ og Mahmoud Abbas, forseti Palest- ínumanna, sagði að skilgreina bæri hernaðinn sem glæp gegn mannkyn- inu. Með árásunum væru Ísraelar að refsa öllum Palestínumönnum fyrir verk fámenns hóps. Er þetta í fyrsta skipti sem Ísrael- ar hefja viðamikinn landhernað á Gaza-svæðinu frá því að ísraelskir hermenn og landtökumenn voru flutt- ir þaðan í fyrra eftir 38 ára hernám. Víða rafmagnslaust Ísraelskar herflugvélar skutu að minnsta kosti níu flugskeytum á eina raforkuver Gaza-svæðisins og starfs- menn þess sögðu að um 65% svæð- isins hefðu orðið rafmagnslaus. Óttast er að rafmagnsleysið geti leitt til skorts á drykkjarvatni á Gaza-svæð- inu vegna þess að vatnsdælur þar eru knúnar með rafmagni. Ísraelsher sagði að þrjár brýr hefðu verið sprengdar til að koma í veg fyrir að „hryðjuverkamennirnir gætu flutt hermanninn sem þeir rændu“. Palestínumenn sögðu að með sprengjuárásunum á brýrnar hefði Ísraelsher skipt Gaza-svæðinu í tvennt. Ekki var vitað um mannfall í árásunum. Neitar að semja Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði að stjórn landsins hik- aði ekki við að grípa til mjög róttækra aðgerða til að bjarga ísraelska her- manninum sem er í haldi herskárra Palestínumanna. „Öllum hernaðarað- gerðunum verður haldið áfram næstu daga,“ bætti hann við. „Við ætlum ekki að hernema Gaza-svæðið að nýju.“ Olmert áréttaði að stjórn Ísraels myndi ekki semja við mennina, sem tóku ísraelska hermanninn í gíslingu og kröfðust þess að ísraelsk yfirvöld leystu allar palestínskar konur og börn úr fangelsi. Hermaðurinn var tekinn í gíslingu í árás hóps, sem tengist Hamas-sam- tökunum, í suðurhluta Ísraels á sunnudag. Palestínska heimastjórnin hefur hvatt til þess að hermaðurinn verði leystur úr haldi, en Ísraelar segja að leiðtogar Hamas í Sýrlandi hafi fyrirskipað árásina á herstöðina. Haim Ramon, dómsmálaráðherra Ísraels, sagði að Ísraelar myndu reyna að ráða einn af leiðtogum Ha- mas í Sýrlandi, Khaled Mashaal, af dögum. Aðstoðarmaður Mahmouds Abbas sagði að palestínski forsetinn hefði hringt í Bashar Assad, forseta Sýr- lands, og beðið hann að fá Mashaal til að fyrirskipa mannræningjunum að láta hermanninn lausan. Nasser Shaer, aðstoðarforsætis- ráðherra palestínsku heimastjórnar- innar, sagði að hún væri að reyna að finna friðsamlega lausn á málinu en hann vildi ekki svara því hvort hún hygðist semja milliliðalaust við ísr- aelsk stjórnvöld. Göturnar á sunnanverðu Gaza- svæðinu voru nánast mannlausar í gær þar sem fólk hélt kyrru fyrir heima hjá sér vegna árásanna. Á norðanverðu svæðinu bjuggu íbúarn- ir sig undir langvinnan hernað, hömstruðu matvæli og aðrar nauð- synjar. Óttast langvarandi hernað og blóðbað á Gaza-svæðinu Palestínumenn for- dæma „hernaðar- legt brjálæði“ af hálfu Ísraela AP Ættingjar Palestínumanna, sem haldið er í fangelsum í Ísrael, krefjast þess að ísraelsk yfirvöld leysi öll börn og konur úr haldi á mótmælafundi í bæn- um Nablus á Vesturbakkanum í gær. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is                                  !    ""    $%$& $ '('         !! "                                      ! #!"# "$%&"#$'$ ()*(+ $%!,    #%-./. !#'$  01    2!"/.3/.#'4.$%/."56-/5, NORSKA fjölmiðlasamsteypan Orkla Media hefur verið seld breska fjölmiðlafyrirtækinu Mecom, að því er fram kom á fréttavef danska rík- isútvarpsins í gær. Orkla er fimmta stærsta fjölmiðla- samsteypan á Norðurlöndum og er með starfsemi í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Póllandi, Litháen og Úkraínu. Í fréttatilkynningu frá Orkla sagði að samkomulagið við Mecom, fyrir- tæki breska fjölmiðlafjárfestisins Davids Montgomerys, þýddi að Orkla yrði áfram með öflugan fjöl- miðlarekstur í Noregi, Danmörku og Póllandi. Að sögn fréttavefjar danska rík- isútvarpsins keypti Mecom ekki þýska fjölmiðla Orkla og ekki er víst að breska fyrirtækið eignist hluta- bréf í nokkrum dönskum fjölmiðlum sem Orkla á hlut í. Samkvæmt samkomulaginu fær Orkla hlutabréf í Mecom. Dagsbrún er á meðal nokkurra fyrirtækja sem hafa keppt um Orkla Media síðustu vikur. Breskt fyrirtæki kaupir Orkla Colombo. AP. | Allt að 18 manns féllu í átökum stjórnarhersins og uppreisn- armanna úr röðum tamílsku Tí- granna á Sri Lanka í gær. Ástandið á eyjunni hefur verið afar viðkvæmt að undanförnu og er óttast að árásin í gær sé fyrirboði frekari átaka eftir að háttsettur herforingi stjórnarinn- ar var myrtur fyrr í vikunni. Stjórnarherinn svaraði í fyrstu ekki sjálfsmorðsárásinni sem dró einn æðsta yfirmann hersins til dauða á mánudag og voru vonir bundnar við að það væri til merkis um vilja stjórnarinnar til að virða vopnahléið frá 2002. Annað var upp á teningnum í gær þegar herinn svaraði sjóárás upp- reisnarmanna með því að sökkva tveimur bátum þeirra. Allt að tólf liðsmenn Tígranna, fimm sjómenn og einn hermaður, féllu í átökunum. Allt að 18 féllu á Sri Lanka ♦♦♦ EINAR K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráð- herra, segir að ekki hafi verið forsendur til þess að breyta veiðihlutfalli þorsks frá því sem nú er og framtíðin verði að skera úr um hvort það verði gert. Þessu hafi hann lýst yfir með afdráttarlausum hætti þegar veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kom fram fyrir fáein- um vikum. „Það er ljóst að slíkar ákvarðanir [lækkun veiðihlutfallsins] gætu haft miklar afleiðingar í för með sér – að minnsta kosti til skemmri tíma. Þá verða menn auðvitað að sjá þá mynd alla fyrir sér en það er búið að fara mjög rækilega í gegnum þessar hugmyndir, sem liggja að baki aflareglunni, með fiskifræðileg- um hætti. Ég taldi ekki ástæðu til þess að fara í gegnum það neitt frekar. Menn geta metið það hver fyrir sig og haft á því skoðun út frá þeim gögnum sem liggja fyrir,“ segir Einar og bætir því við að sér hafi fundist myndin vera mun ógreinilegri þegar kæmi að því að meta þjóðhagsleg áhrif. „Þess vegna var það mín niðurstaða að fá Hagfræðistofnun, sjálfstæða stofnun sem nýtur virðingar í þjóðfélaginu, til þess að fara í gegnum þessi mál.“ Aðspurður segist Einar hafa tekið ákvörð- un um leyfilegan heildarafla á þorski, eftir að hafa farið yfir allar þær hugmyndir sem uppi voru með vísindamönnum og hagsmunaaðil- um. Þorskstofninn við Ísland ekki í neinni yfirvofandi hættu „Svona ákvörðun er alltaf umdeilanleg en þetta var niðurstaða mín eftir þessa yfirferð,“ segir Einar og bætir því við að menn verði að gera sér grein fyrir því að okkar þorskstofn sé ekki í neinni yfirvofandi hættu. „Það er ljóst að þetta veiðiálag sem er núna miðað við mælingar mun ekki leiða til neinnar verulegrar uppbyggingar en veiði- álag af því taginu sem við erum að tala um er alveg samrýmanlegt því að verja þorskstofn- inn. Svo má ekki gleyma því að það hafa ver- ið gerðar ýmsar þær ráðstafanir á síðustu ár- um, sem leiða til þess að ætla má að veiðin verði nær þeim markmiðum sem við erum að setja okkur heldur en oft áður.“ Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær er við ákvörðun á leyfilegum heildarafla á þorski á næsta fiskveiðiári byggt á breyttri aflareglu, þar sem aflamark ákvarðast sem meðaltal af aflamarki síðasta fiskveiðiárs og hlutfall af viðmiðunarstofni í upphafi úttekt- arárs. Spurður um ástæður þessarar breyt- ingar segist Einar hafa horft til þess að afla- reglunefnd frá 2004 hafi lagt þetta fyrirkomulag til. Veiðiálagið samrýmanlegt því að verja þorskstofninn Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 193 þúsund tonn JÓHANN Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknarstofnunar, segir það ekki uppbygging- arstefnu að halda óbreyttu veiðihlutfalli þorsks eins og nú er gert enda liggi fyrir að hrygnigarstofninn sé allt of lítill. Lækkun veiðihlutfallsins sé þannig forsenda þess að styrkja hrygningarstofninn en að öðrum kosti séu töluverðar líkur á því að aflinn minnki. Reiknigrundvöllur nýrrar aflareglu sé hins vegar betri en þeirrar sem áður gilti. „Meðan hann [hrygningarstofninn] er þetta veikur eru yfirgnæfandi líkur á því að við fáum lélega nýliðun. Við höfum verið með ný- liðun á undanförnum árum verulega fyrir neð- an langtímameðaltal. Á meðan nýliðun er með þessum hætti er ekkert sem gefur til kynna að aflinn muni aukast á næstu árum,“ segir Jó- hann en hann telur aðalorsökina felast í lang- varandi þungri sókn. „Eina leiðin til að breyta þessu er að koma hrygningarstofninum upp í 300 til 400 þúsund tonn en hann er 230 þúsund tonn núna. Það var tillaga okkar að stjórnvöld myndu fara í uppbyggingaráætlun til þess að ná hrygning- arstofninum upp og þannig auka líkur á betri nýliðun á komandi árum. [...] Við höfum verið að reyna að stefna að veiðihlutfalli upp á 25% síðustu ár en það hefur verið í kringum 30%, sem þó var mikil framför frá því sem áður var. Hærra veiðihlutfall en að var stefnt undanfar- in ár var bæði vegna ofmats og umframafla. Við hefðum því viljað sjá minnkun afla en ekki aukningu afla eins og nú hefur verið ákveðið.“ Hefði viljað meiri framtíðarsýn í ákvörðun stjórnvalda Jóhann segir tillögur stofnunarinnar varð- andi þorsk hafa einkum verið tvíþættar. Lagt hefði verið til að mörkuð yrði uppbygging- arstefna sem kæmi hrygningarstofni í betra horf á næstu 4-5 árum, bæði stærð hans og aldurssamsetningu. Það hefði þýtt lækkað veiðihlutfall og tímabundinn aflasamdrátt, en gefið á hinn bóginn stærri hrygningarstofn, aukinn afrakstur á nýliða og betri líkur á sterkum árgöngum í framtíðinni. Hins vegar var lagt til eins og undanfarin ár að ný og betri aflaregla fyrir þorsk tæki strax gildi í samræmi við tillögur nefndar sjávarútegts- ráðherra. Aðspurður segir Jóhann mikilvægt að lang- tímasjónarmið ráði við nýtingu þorskstofnsins sem og annarra nytjastofna og hefði viljað sjá meiri framtíðarsýn í ákvörðun stjórnvalda. „Fiskifræðingar eru líka orðnir langþreyttir á fullyrðingum þess efnis að í gegnum tíðina hafi verið fylgt algerlega tillögum vegna þess að það er alrangt. Ástæðan fyrir því að við er- um að hjakka í sama farinu eins og sumir vilja kalla það er hreinlega að ekki hefur verið tek- ið á þessu og farið nægilega að tillögum okk- ar.“ Engin uppbyggingarstefna í óbreyttu veiðihlutfalli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.