Morgunblaðið - 01.07.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 01.07.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EKKI FJÁRDRÁTTUR Fyrsta ákæruliðnum í endur- ákæru í Baugsmálinu var í gær vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem Arngrími Ísberg héraðsdómara þótti ekki koma nægjanlega skýrt fram hvernig sú atburðarás sem þar er lýst brjóti gegn lögum. Í þeim ákærulið er Jón Ásgeir Jóhannes- son, forstjóri Baugs Group, sakaður um fjárdrátt. Hækka vexti í 4,95% Íbúðalánasjóður ákvað í kjölfar útboðs á íbúðabréfum að útláns- vextir sjóðsins hækki um 0,10 pró- sent og verði 4,95%. Hækkunin kem- ur í kjölfar tilkynningar ríkisstjórn- arinnar fyrr í vikunni þess efnis að frá og með deginum í dag muni há- markslán sjóðsins lækka úr 18 millj- ónum króna í 17 milljónir, auk þess sem lánshlutfall lækki úr 90% í 80%. Slapp naumlega úr átökum Bashir Ali, 21 árs gamall hermað- ur sem er hálfur Íslendingur og hálf- ur Breti, slapp naumlega þegar hann og félagar hans lentu í átökum við liðsmenn talíbana í Afganistan. Tveir breskir hermenn létust í átök- unum. Ný upptaka frá bin Laden Osama bin Laden, leiðtogi al- Qaeda, varaði við því í nýrri hljóð- upptöku, sem birt var í gær, að sam- tökin myndu halda áfram árásum í Írak þrátt fyrir dauða hryðjuverka- foringjans Abu Musab al-Zarqawi. Segir Ísraela undirbúa stríð Leiðtogi Hamas-samtakanna sak- aði í gær Ísraela um að undirbúa allsherjarstríð á hendur Palestínu- mönnum til að koma Hamas frá völdum en sagði að Ísraelsstjórn yrði ekki kápan úr því klæðinu. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 34 Fréttaskýring 8 Minningar 36/38 Viðskipti 19 Kirkjustarf 42 Erlent 20/22 Hestar 43 Minn staður 23 Myndasögur 44 Akureyri 24 Dagbók 44/47 Árborg 24 Víkverji 44 Suðurnes 25 Velvakandi 47 Daglegt líf 26/31 Staður og stund 48 Forystugrein 28 Bíó 50/53 Menning 32, 48/53 Ljósvakamiðlar 54 Umræðan 33/34 Staksteinar 55 Íslenskt mál 34 Veður 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %       &         '() * +,,,                        ÞAÐ VAR ekki bjart yfir hópi 17 starfsmanna hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík sem skil- uðu inn uppsagnarbréfum í gær. Allt voru þetta félagar í Bandalagi há- skólamanna (BHM) og fyrr um dag- inn hafði jafnstór hópur sagt upp störfum á svæðisskrifstofu Reykja- ness. Að sögn Sigríðar Kristjánsdótt- ur, framkvæmdastjóra svæðisskrif- stofu Reykjaness, voru uppsagnir þar mest frá forstöðumönnum og deild- arstjórum. „Við höfum glímt við manneklu í allan vetur og höfum þegar spáð slæmu ástandi í haust miðað við hvernig vinnumarkaðurinn hefur ver- ið. Þetta er ekki til að auka á bjartsýni okkar með haustið,“ segir Sigríður. „Menntunarstigið á starfsstöðunum okkar er lágt og það væri afdrifaríkt að missa út þetta fáa fagfólk sem er innan málefna fatlaðra.“ Fékk áfall þegar hún sá hver launin raunverulega eru Guðný Jónsdóttir þroskaþjálfi er ein þeirra sem sögðu upp störfum í Reykjavík en hún segir félagsmenn í BHM hafa staðið vel saman og vera ákveðna í kröfum sínum. „Eins og þetta er okkur erfitt þá getum við ekki látið þetta ganga yfir okkur leng- ur.“ Guðný lauk þriggja ára háskóla- námi fyrir ári og segir sér líka mjög vel í vinnunni. „Ég hef verið með þennan draum lengi og gerði eigin- lega ráð fyrir að þroskaþjálfar væru með laun eins og annað háskóla- menntað fólk. Ég fékk síðan hálfgert sjokk þegar ég útskrifaðist og sá hver launin raunverulega eru.“ Guðný segir vel koma til greina að sækja um starf hjá sveitarfélögum í staðinn og það sama virtist upp á ten- ingnum hjá öðrum sem skiluðu inn uppsagnarbréfi í gær. Hópnum var mikið niðri fyrir. Voru allir sammála um að þetta væri örþrifaráð og von- uðust til að lausn yrði komin áður en uppsagnartími er liðinn. Neyðarástand getur skapast Guðný Anna Arnþórsdóttir, starfs- mannastjóri svæðisskrifstofunnar í Reykjavík, segir afhendingu upp- sagnarbréfa starfsfólksins hafa verið harmastund. „Það er mjög slæmt að okkar háskólamenntaða fólk skuli segja upp störfum. Starfið hér hvílir mikið á herðum þroskaþjálfa og þetta eru eingöngu þroskaþjálfar sem af- hentu hér uppsagnarbréf.“ Guðný sagðist vona að það fyndist flötur til að semja en lítið hefur þokast á samningafundum upp á síðkastið. „Komi til þess að þessir aðilar hætti störfum, sem ég vona að gerist ekki, skapast neyðarástand á okkar heim- ilum,“ sagði Guðný og bætti við að hún vildi ekki hugsa þá hugsun til enda að missa þroskaþjálfa úr þeim störfum sem þeir sinna. 34 afhentu uppsagnarbréf á höfuðborgarsvæðinu Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Þroskaþjálfar gengu í röð inn á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og afhentu uppsagnarbréf sín. Jón Heiðar Ríkharðsson framkvæmdastjóri veitti þeim móttöku og sagðist hryggur yfir þessari ákvörðun. SÖNGELSK fjallafinka hvíldi lúna vængi á birkitré í Hallormsstað- arskógi á dögunum. Fjallafinkan er eins og nafnið gefur til kynna af finkuætt og er m.a. skyld auðnutittlingi og kan- arífugli. Fuglinn er útbreiddur í birkiskógum Skandinavíu og er reglulegur vorgestur hér á landi, þótt Ísland sé utan farleiðar hans. Talið er að óhagstæðir loft- straumar hreki fjallafinkuna af leið sinni á varpstaði til Íslands. Hingað komin reynir finkan að finna sér birkiskógarrjóður til að dveljast í og stundum grípur hún til þess ráðs að gera sér hreiður og verpa. Þeg- ar kólna fer í veðri hugsar finkan sér til hreyfings og heldur aftur heim á suðrænar slóðir. Algengast er að fuglinn geri vart við sig á Suð- austurlandi, en hann hefur þó látið sjá sig á fjarlægari slóðum, svo sem við Mývatn og Þingvelli. Ljósmynd/Ellert Grétarsson Fjallafinkusöngur í Hallormsstaðarskógi STURLA Böðvarsson, samgöngu- ráðherra og 1. þingmaður norðvest- urkjördæmis, hefur fallist á beiðni Jóns Bjarnasonar, þingmanns VG, um að þingmenn kjördæmisins verði kallaðir saman til fundar. Tilefnið er að ríkisstjórnin hefur samþykkt að fresta nýjum framkvæmdum á veg- um ríkisins tímabundið. Jón telur að með þessari ákvörðun hafi hinn lögformlegi ferill um ákvörðun vegaframkvæmda verið rofinn. Alþingi hafi samþykkt tíma- setningar varðandi þau verkefni sem eigi að vera í gangi á þessu ári og rík- isstjórnin geti ekki breytt þeim ein- hliða. Eðlilegt sé því að kalla saman þingmannafund í kjördæminu en slíkir fundir eru hluti af ákvörðunar- ferli vegamála í landinu. „Ég mun krefjast svara um hvernig þær tíma- setningar standist sem Alþingi sam- þykkti á sl. vetri. Ef þær hafa breyst verulega mun ég að sjálfsögðu mót- mæla því.“ Mótmæla aðgerðunum Einn liður í aðgerðum ríkisstjórn- arinnar til að draga úr þenslu er að fresta vegaframkvæmdum fyrir 2–3 milljarða króna það sem eftir er árs og er um að ræða u.þ.b. fimmtung af framkvæmdum ríkisins en borist hafa margar ályktanir frá norðan- verðu landinu þar sem frestun vega- framkvæmda er mótmælt. Meðal þeirra sem gagnrýna ákvörðun ríkis- stjórnarinnar eru starfsmenn Vega- gerðarinnar á Ísafirði sem létu þess getið í mótmælum sínum að vegir á Vestfjörðum væru ekki boðlegir og að Vestfirðingum væri sýnt virðing- arleysi með niðurskurði ríkisstjórn- arinnar. Byggðaráð Langanes- byggðar sendi einnig frá sér yfirlýsingu þar sem því er mótmælt harðlega að áform ríkisstjórnarinnar taki til framkvæmda á svæðum þar sem þensluáhrifa gætir ekki og hef- ur ekki gætt á undanförnum miss- erum. Fjárveitingar hafi verið til staðar undanfarin ár svo færa mætti vegamál á norðausturhluta landsins til því sem næst nútímahorfs án þess að til framkvæmda hafi komið. Vegaframkvæmdum stöðugt frestað Jón telur að aðgerðirnar hafi eng- in teljandi áhrif á þensluna í landinu en hin stóru mistök ríkisstjórnarinn- ar í efnahagsmálum liggi í uppbygg- ingu stóriðju sem þurfi að stöðva. Hann bendir á að vegaframkvæmd- um á Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi sé stöðugt frestað og spyr: „Af hverju eiga þessi mál og þessir landshlutar stöðugt að bera stóriðjuna og þensluna?“ Sátt hafi verið á Alþingi um að þessir lands- hlutar fengju forgang í vegagerð af því að ástandið væri þar verst en síð- an sé umbótum frestað og án þess að Alþingi sé spurt álits. Andstaða við frestun vega- framkvæmda Þingmenn í norðvesturkjördæmi funda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.