Morgunblaðið - 01.07.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.07.2006, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mb.is ALLS bíða nú um 80 aldraðir ein- staklingar, sem lokið hafa meðferð á bráðadeildum Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, eftir að fá inni á hjúkr- unarheimilum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Sigríði Guðmundsdóttur, innlagnarstjóra LSH, hefur staðan aðeins batnað á umliðnum vikum, þar sem hjúkrunarheimili hafa veitt spít- alanum forgang á þau pláss sem losn- að hafa, en þó sé nokkuð í land að staðan verði viðunandi að hennar mati. Segir hún æskilegt að útskrifa fólk sem lokið hefur meðferð, ekki aðeins af því að mikilvægt sé að geta nýtt spítalarúmin betur, heldur ekki síður vegna þess að sjúklingum líði ekki vel liggjandi á bráðadeild eftir að með- ferð er lokið. Segir hún sjúklinga eiga rétt á að komast í mannúðlegra um- hverfi á hjúkrunarheimilum, þar sem fólk geti haft sitt eigið dót og þurfi ekki að liggja frammi á gangi eða skipta um herbergisfélaga nær dag- lega. Ráðuneytið að skoða hvernig efla megi heimahjúkrun Bendir Sigríður á að hluti þessa hóps gæti útskrifast og farið heim til sín ef í boði væri nægileg heimaþjón- usta, þ.e. ef einstaklingarnir gætu fengið allt að tólf klukkustunda heimaþjónustu á sólarhring. Aðspurð hvað felist í slíkri heimaþjónustu nefnir Sigríður þætti á borð við þrif, heimsendan mat, aðstoð við innkaup, aðstoð við að fara á fætur, klæða sig, bursta tennur og aðstoð við böðun og lyfjagjöf, en slík þjónusta þyrfti að vera í boði allan sólarhringinn. Líkt og áður hefur komið fram er um þessar mundir verið að skoða hvernig efla megi heimaþjónustuna og -hjúkrun til þess að hægt sé að út- skrifa aldraða einstaklinga heim sem lokið hafa meðferð á spítala, auk þess sem verið er að skoða hvernig megi færa spítalaþjónustuna heim og veita þar nauðsynlega sérfræðiaðstoð. Er hér um að ræða samvinnuverkefni LSH og Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. Samkvæmt upplýsingum blaðamanns er málið til skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu þar sem verið er að kanna fjárhagslegan grundvöll samstarfsverkefnisins, en ekki er lík- legt að þetta fari af stað fyrr en með haustinu í fyrsta lagi, m.a. vegna skorts á fagmenntuðu starfsfólki nú yfir sumartímann. Mönnun með fagfólki ávallt erfið á sumrin Samkvæmt upplýsingum frá Þór- unni Ólafsdóttur, hjúkrunarforstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, er sumarið ávallt erfiður tími hvað heimahjúkrunina varðar þar sem skortur sé á fagmenntuðu starfsfólki í afleysingar á sama tíma og meira sé um útskriftir af spítölum. Tekur hún fram að staðan þetta sumarið sé ekk- ert verri en mörg undanfarin sumur. Bendir hún á að í ár sé aðalfyrirstað- an hins vegar ekki fjármagn, enda hafi ríkið sett auknar fjárveitingar til þess að bæta og auka þjónustuna í heimahjúkrun, heldur skortur á fag- menntuðu fagfólki. Alls starfa um 130 fagaðilar hjá heimahjúkruninni, bæði hjúkrunar- fræðingar og sjúkraliðar, og sinna þeir um tvö þúsund einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Þór- unnar hefur aðeins verið hægt að ráða í 4–5 stöðugildi af þeim 10–15 sem þyrfti að ráða í yfir sumartím- ann. Þetta þýðir, að sögn Þórunnar, að draga hefur þurft saman seglin yf- ir sumartímann jafnframt því sem dregið hefur úr þjónustunni hjá þeim skjólstæðingum heimahjúkrunarinn- ar sem þola það. „Það er hins vegar sama hvernig við snúum okkur, hag- ræðum og reynum að skipuleggja, við náum aldrei að anna eftirspurn- inni yfir sumartímann,“ segir Þór- unn. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er töluverður skortur á hvíld- arinnlagnarplássum sem aldraðir geti nýtt sér í þrjár til sex vikur í senn, einu sinni til tvisvar á ári. Að mati Sigríðar Guðmundsdóttur, inn- lagnarstjóra LSH, þyrfti ekki nema tuttugu slík pláss til viðbótar þeim sem nú eru í boði t.d. á Landakoti og hjúkrunarheimilinu Eir, til þess að gera gæfumuninn í að minnka umönnunarþreytu heima fyrir svo ekki þurfi að koma til þess örþrifa- ráðs að leggja sjúklinga inn á bráða- deildir sjúkrahússins til hvíldar. Seg- ir hún nokkuð hafa borið á því að þeir aldraðir sem koma inn í hvíldarinn- lögn hafi verið orðnir svo lélegir og búnir að bíða of lengi heima þegar loks kom til innlagnar að ekki hefur verið hægt að senda þá aftur heim að innlögn lokinni, sem hafi svo aftur keðjuverkandi áhrif. Að sögn Ingibjargar Hjaltadóttur, sviðsstjóra öldrunarsviðs á Landa- koti, eru þar nú á bilinu 10–14 hvíld- arinnlagnarpláss og eru þau mikið nýtt, en þess má geta að plássum þar hefur fjölgað um helming milli ára. Aðspurð segir hún yfir sextíu ein- staklinga hafa fengið hvíldarinnlögn á Landakoti það sem af er ári, en meðalbiðtíminn eftir innlögn er innan við tveir mánuðir. Alls eru nú 63 ein- staklingar á biðlista eftir innlögn og er meðalaldur þeirra 83 ár. Spurð hvort mikið sé um að ekki hafi verið hægt að útskrifa fólk sem komið hefur inn í hvíldarinnlögn seg- ir Ingibjörg alltaf eitthvað um það, en tekur fram að það sé samt í undan- tekningartilfellum. Segir hún að tek- ið geti allt upp undir ár að þeir ein- staklingar fái inni á hjúkrunarheimili og á meðan liggi þeir á Landakoti. Tekur hún fram að þetta hafi þó ekki áhrif á fjölda þeirra hvíldarinnlagn- arplássa sem í boði séu hverju sinni. Bagalegt ef heimsóknir falla niður vegna veikinda Hjá Regínu Ásvaldsdóttur, sviðs- stjóra þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar, fengust þær upplýsingar að ágætlega hefði gengið að manna þjónustuna að undanförnu og þakkaði hún það m.a. samningum Reykjavíkurborgar við ófaglærða frá því fyrr í vetur. Að sögn Regínu hef- ur borgin nýverið aukið kvöld- og helgarþjónustu sína og segist hún bú- ast við því að þörfin á þeim tíma geti aukist í takt við sumarlokanir spít- alanna, sem enn eru ekki farnar að skella á af miklum þunga. Hjá heima- þjónustunni eru 180 stöðugildi og sinnir hún um 2.800 heimilum í Reykjavík. Aðspurð segir Regína þörf á að efla afleysingar heimaþjónustunnar, því komið hafi fyrir að veikindi eða forföll séu það mikil að ekki hafi verið hægt að sinna umbeðinni þjónustu. Bendir hún á að um viðkvæma þjón- ustu sé að ræða þar sem einn aðili fari inn á heimili og því geti þjónustan farið úr skorðum ef upp komi t.d. veikindi. „Þá er auðvitað alltaf reynt að fá afleysingafólk til að hlaupa í skarðið, en það er ekki alltaf sem það tekst. Það er mín skoðun að við þurf- um að efla þessa afleysingaþjónustu þannig að það falli ekki úr heimsókn- ir,“ segir Regína. Dæmi um að ekki sé hægt að útskrifa aldraða eftir hvíldarinnlögn Enn er nokkuð í land með að staðan verði viðunandi Morgunblaðið/Golli Yfir sextíu einstaklingar hafa fengið hvíldarinnlögn á Landakoti það sem af er ári, en meðalbiðtíminn eftir inn- lögn er innan við tveir mánuðir. Alls eru nú 63 einstaklingar á biðlista eftir innlögn og er meðalaldur þeirra 83 ár. Hjúkrunarheimili hafa veitt LSH forgang á pláss ALÞJÓÐLEGT tengslanet kvenna í atvinnurekstri er mikilvægt, ekki aðeins svo konur geti myndað við- skiptatengsl, heldur vegna þess að þar fá þær tækifæri til þess að hitt- ast, deila reynslu sinni og fá nýja sýn á heiminn. Þetta segir Etta Ca- rignani, markgreifafrú frá Ítalíu, en hún hefur lengi látið að sér kveða á sviði viðskipta, menningar- og góðgerðarmála. Etta er jafn- framt formaður nefndar á vegum FCEM, alþjóðlegs félags kvenna í atvinnurekstri, sem nefnist Task Force Europe. Nefndin fundar hér á landi um helgina um konur í at- vinnurekstri í Evrópu. Verður með- al annars rætt um málefni kvenna í Austur-Evrópu, sem eru í auknum mæli að láta að sér kveða og um aukna samkeppni milli Evrópu- landa og Asíulanda, sem farin er að segja til sín í fyrirtækjarekstri í Evrópu. Jafnframt verður fjallað um næsta heimsþing FCEM, sem haldið verður í Slóveníu í október. Tungumálakunnátta mikilvæg Etta segir að FCEM hafi verið stofnuð skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldar. „Stofnandinn var Yvonne Foinant, frönsk kona sem varð ekkja í stríðinu. Hún tók þá við rekstri stálverksmiðju og áttaði sig á mikilvægi þess að mynda tengsl- anet með öðrum konum. Hún byrj- aði á að skapa slík tengsl við konur á Englandi, en smám saman fjölg- aði þeim ríkjum sem samtökin störfuðu í,“ segir Etta. Hún segir afar mikilvægt að kon- ur í atvinnurekstri komi saman og ræði sín mál. „Það er mjög mik- ilvægt að konur deili reynslu sinni og markmiðum með öðrum konum sem fást við svipaða hluti,“ segir Etta. Tungumálakunnátta sé mik- ilvæg svo hægt sé að eiga tjáskipti og skilja menningu ólíkra landa. „Þær konur sem eru í samtök- unum koma víðsvegar að úr heim- inum,“ segir hún. Þær komi meðal annars frá Suður- og Norður- Ameríku, Afríku, Asíu og Evrópu. „Nefna má að við erum með öfluga starfsemi í Rússlandi,“ segir Etta, en einnig eiga mörg Afríkuríki að- ild að samtökunum. Félag kvenna í atvinnurekstri á Íslandi fékk fulla aðild að samtökunum í fyrra. Etta segir tengslanet kvenna í at- vinnurekstri mikilvægan stuðning við konur í þessum geira og einkum gagnast konum sem reka miðlungs- stór eða lítil fyrirtæki. Hún segir FCEM vinna að því um þessar mundir að styðja konur í Austur- Evrópu við að stofna eigin atvinnu- rekstur. „Sjálf er ég á förum til Alb- aníu í nóvember til þess að sinna slíkum verkefnum,“ segir hún. Etta segir það henta konum afar vel að standa í eigin atvinnurekstri. „Konur sinna ýmsum hlut- verkum. Þær ganga menntaveginn, eignast börn og heimili. Það er erf- itt að samræma öll þessi störf, en konum sem eru í sjálfstæðum rekstri reynist það oft auðveldara en öðrum, því þær eru þá óháðari og hafa meira að segja um hvernig tíma þeirra er ráðstafað,“ segir Etta. Konur í atvinnurekstri deili reynslu sinni Morgunblaðið/ÞÖK Etta Carignani: Mikilvægt að konur í atvinnurekstri myndi tengslanet. Rætt um evrópskar athafnakonur á fundi um helgina STJÓRN Landverndar hefur fjallað um dóm héraðsdóms Reykjavíkur þar sem set- og miðlunarlónum norðan og vestan Þjórsárvera er hafnað án undangengins mats á um- hverfisáhrifum. Í ályktun stjórnarinnar segir: Verndargildi Þjórsárvera er óum- deilt og skoðanakannanir hafa sýnt að víðtæk samstaða er meðal þjóðar- innar um stækkun friðlandsins. Með- al annarra hafa Sigríður Anna Þórð- ardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, Jónína Bjart- marz umhverfisráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lýst yfir jákvæðu viðhorfi til stækk- unarinnar. Stjórn Landverndar hvetur ráða- menn til þess að stíga skrefið til fulls og stækka friðlandið í Þjórsárverum að náttúrulegum mörkum veranna. Landvernd vill að friðlandið stækki ÞINGFLOKKUR Samfylkingar- innar fagnar þeim tíðindum að Landsvirkjun hyggist una niður- stöðu héraðsdóms Reykjavíkur í Þjórsárveramálinu um að megin- hluti úrskurðar Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, verði að fara í umhverfismat áður en til framkvæmda geti komið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þingflokknum sem gefin var út í gær. Einnig kemur þar fram að þingflokkurinn fagni nýlegum yfir- lýsingum landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Telur þingflokkurinn að einboðið sé að fella heimild til Norðlingaölduveitu úr raforkuveralögum strax og þing kemur saman á ný með því að sam- þykkja lagafrumvarp sem fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokkanna standa að og flutt var á síðasta þingi. Fagnar afstöðu Landsvirkjunar ARNAR Þór Sævarsson hdl. hefur verið ráð- inn aðstoðar- maður iðnaðar- og viðskiptaráð- herra frá og með 1. júlí nk. Arnar Þór er 34 ára og starfaði áður hjá Fjármálaeftirlitinu frá árinu 1999 til 2001 og hjá Símanum frá 1. jan- úar 2002 til 30. júní 2006. Arnar Þór útskrifaðist frá Há- skóla Íslands árið 1999, öðlaðist héraðsdómslögmannaréttindi árið 2000 og lauk prófi í verðbréfa- viðskiptum árið 2001. Arnar Þór á tvö börn og er í sam- búð með Gerði Betu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðingi. Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.