Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 20

Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is LEIÐTOGI Hamas-samtakanna sagði í gær að Ísraelum myndi ekki takast að bola samtökunum frá völdum með hernaði sínum eftir um það bil 30 loftárásir Ísraelshers á Gaza-svæðið, meðal ann- ars á byggingu palestínska innanríkisráðuneytis- ins. Ismail Haniya, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sagði að hún væri að reyna að fá herskáa Palestínumenn til að sleppa ísraelskum hermanni sem hefur verið í haldi þeirra frá því á sunnudag. Hann bætti við að Ísraelar yrðu að hætta „villimannslegum árásum“ sínum á Gaza- svæðið. „Tylliástæða“ til að fella stjórnina Forsætisráðherrann gaf til kynna að Palestínu- menn myndu ekki framselja ísraelska hermanninn í skiptum fyrir átta ráðherra og 56 aðra embætt- ismenn Hamas sem Ísraelar handtóku í fyrradag. Haniya sakaði stjórn Ísraels um að undirbúa allsherjarstríð á hendur Palestínumönnum og nota mál ísraelska hermannsins sem „tylliástæðu“ til að fella heimastjórn Hamas-samtakanna. Forsætisráðherrann kvaðst hafa rætt við ráða- menn í arabalöndum og Evrópu til að reyna að finna lausn á vandanum en hernaður Ísraela hefði torveldað þá viðleitni. Stjórn Egyptalands hefur reynt að miðla mál- um og sagði í gær að Hamas hefði fallist á að tryggja að hermaðurinn yrði leystir úr haldi, en gegn skilyrðum sem Ísraelar hefðu ekki sam- þykkt. Ísraelskar herþotur skutu flugskeytum á bygg- ingu innanríkisráðuneytisins í Gaza-borg í fyrri- nótt. Eldur kviknaði í byggingunni sem var mann- laus þegar árásin var gerð. Loftárásir Ísraelshers beindust meðal annars að skrifstofu Fatah, hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, þjálfunarbúðum her- skárra Palestínumanna, vopnabúrum þeirra og stöðum sem þeir hafa notað til að skjóta flugskeyt- um á Ísrael. Ísraelsher hefur einnig skotið flugskeytum og sprengjum á vegi, brýr og eina orkuver Gaza- svæðisins. Árásirnar hafa valdið rafmagnsleysi víða á svæðinu og einnig vatnsleysi vegna þess að rafmagn hefur verið notað til að knýja vatnsdælur. Segir að Ísraelar geti ekki fellt heimastjórnina AP Hernaði Ísraela mótmælt fyrir utan skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Beirút í Líbanon. SERBNESK yfirvöld skiluðu í gær líkamsleifum síð- ustu Kosovo-Albananna sem vitað var að hefðu verið drepnir í aðgerðum serbneskra öryggissveita í Kosovo 1998–1999 og grafnir í fjöldagröfum í Serbíu. Um var að ræða 110 lík en aðeins var búið að bera kennsl á 22 þeirra. Um þrjú hundruð Kosovo-Albanar voru því komnir til Merdare, við landamæri Kosovo og Serbíu, þar sem líkin voru afhent. Vonaðist fólkið, þ.á m. mað- urinn á myndinni, eftir því að finna lík ástvina sinna sem saknað hefur verið þessi sjö ár sem liðin eru. AP Skila líkum Kosovo-Albana Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna þykir hafa sett verulega ofan í við George W. Bush Bandaríkjaforseta með þeim úrskurði sínum í fyrradag að hann hafi farið út fyrir valdsvið sitt með því að stofna sérstakan herdómstól fyrir fanga í Guantanamo-herstöðinni banda- rísku á Kúbu. Þykir úrskurðurinn í reynd vekja spurningar um alla framgöngu forsetans í svonefndu stríði gegn hryðjuverkum, en Bush hefur tekið sér víðtækt forsetavald, m.a. með því að heimila leynilegar hleranir. Bush og Dick Cheney varaforseti hafa ítrek- að og eindregið varið þær aðferðir, sem Bandaríkjastjórn hefur beitt í baráttu sinni gegn hryðjuverkum. Hafa þeir haldið því fram að aukið eftirlit með bandarískum ríkisborg- urum og fangelsun manna um ótilgreindan tíma án þess að þeim sé birt ákæra, svo dæmi séu tekin, séu réttlætanleg útfærsla á forseta- valdi á stríðstímum. Fimm dómarar hæstaréttar komust hins vegar í fyrradag að þeirri niðurstöðu að rétt- arhöld í málum fanganna í Guantanamo gengju í berhögg við Genfar-sáttmálann um meðferð á stríðsföngum og bandarísk lög. Var um leið snúið við niðurstöðu áfrýjunardóm- stóls í máli Salims Ahmeds Hamdan frá Jem- en, en hann er sagður fyrrverandi bílstjóri Osama bin Laden. Um 460 föngum er haldið um þessar mundir í Guantanamo og hafa flestir verið þar allt frá 2002. Aðeins tíu hafa hins vegar sætt ákæru, en Hamdan er einn þeirra; hann er sakaður um aðild að samsæri um að fremja hryðjuverk. Þykir hæstiréttur í reynd kastað á dyr þeim útgangspunkti að forseti Bandaríkjanna einn og sér geti ákveðið hvað þurfi að gera til að verja Bandaríkin og hversu langt megi ganga í þeim tilgangi. Þýðir úrskurðurinn að jafnvel við þær aðstæður, sem nú eru uppi, verði for- setinn að halda sig innan tiltekins ramma, sem markist af stjórnarskránni. „Hæstiréttur er ekki vanur að setja ofan í við forsetann á stríðstímum,“ sagði Stephen J. Wayne, prófessor við Georgetown-háskóla í Washington. „En þessi forseti hefur tekið sér vald, með þeim rökum að við eigum nú í stríði við hryðjuverkamenn. Og ég held að hæstirétt- ur sé með úrskurðinum að senda honum þau skilaboð, að hann hafi gengið of langt.“ Skýrir stöðu fanga í Guantanamo lítið Bush var hins vegar fljótur að lýsa því yfir að úrskurðurinn myndi alls ekki hafa þær af- leiðingar „að morðingjum yrði sleppt úr haldi“. Kvaðst hann ætla að vinna með þinginu að lagabreytingum til að hægt yrði að færa fang- ana fyrir herrétt. Athygli vekur að meirihluti hæstaréttar bregst við gagnrýni í þá veru að ákvörðun hans muni þýða að grafið verði undan viðleitni stjórnvalda til að fyrirbyggja hryðjuverk. Bendir rétturinn á að í raun grundvallist nið- urstaðan á því einu, að þingið hafi aldrei gefið framkvæmdavaldinu sjálfdæmi í þessum efn- um. Ekkert útiloki aftur á móti að forsetinn leiti á náðir Bandaríkjaþings með þeim hætti, sem George W. Bush hefur þegar lýst yfir að hann muni gera. Þó að úrskurður hæstaréttar sé óumdeil- anlega áfall fyrir Bush forseta skýrir hann ekki heldur stöðu fanganna 460 í Guantanamo svo nokkru nemi, enda hafa fæstir þeirra sætt ákæru, sem fyrr segir, og hafa því ekki komið fyrir umræddan herdómstól. Fyrir vikið hefur hann ekki sjálfkrafa í för með sér að búðunum verði lokað. Öruggt má hins vegar telja að bandarísk stjórnvöld sæti jafnvel enn harðari gagnrýni framvegis vegna aðstæðna í Guantanamo en hingað til. Og Marty Lederman, kennari við Georgetown-lagaháskólann, segir jafnframt líklegt að ýmis önnur prófmál komi nú fyrir bandaríska dómstóla er tengjast stríðinu gegn hryðjuverkum, s.s. meintar misþyrmingar á föngum í Guantanamo og í Abu Ghraib í Írak. Mestu máli skipti að beinlínis sé sagt í úr- skurðinum að Genfar-sáttmálinn nái til fang- anna í Guantanamo, sem er nokkuð sem Bandaríkjastjórn hefur ávallt hafnað með öllu. Það hljóti að hafa einhverja þýðingu. Fréttaskýring | Úrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna í fyrradag er áfall fyrir George W. Bush Hefur tekið sér of víðtækt forsetavald Reuters Margir fanganna í Guantanamo á Kúbu hafa verið þar í fjögur ár án þess að sæta ákæru. VÍSINDAMENN frá Þýska- landi og Sviss telja sig hafa fundið út að maurategund í Afríku noti eins konar „inn- byggðan skrefamæli“ til að mæla fjarlægðir með nákvæm- um hætti, að því er fram kemur á vef breska útvarpsins, BBC. Greint var frá niðurstöðun- um í tímaritinu Science, en þar kemur fram að maurategundin Cataglyphis fortis, sem einkum er að finna í Sahara-eyðimörk- inni, getur rakið leið sína heim úr leiðöngrum aftur að maura- þúfum með því að fara sama skrefafjölda til baka. Vísindamennirnir, sem starfa við háskólana í Ulm og Zürich, vissu að maurar gætu notað sólarljós til að rata. Með því að hafa áhrif á fótalengd til- raunamaura uppgötvuðu þeir hins vegar að maurarnir telja skrefin sín til að áætla leiðina til baka úr leiðöngrum með þessum árangursríka hætti. Maurar telja skrefin Peking. AP. | Kínversk stjórnvöld til- kynntu í gær að þau hygðust herða eftirlit með netumferð í landinu, einkum bloggsíðum og leitarvélum, til að koma í veg fyrir dreifingu efnis sem er talið ósiðlegt eða grafa undan stjórn kommúnista. Tilkynningin kom ekki á óvart en hún kemur í kjölfar herferðar ríkisstjórnar Hu Jintao forseta gegn óæskilegum vef- síðum og blaðamönnum. „Eftir því sem sífellt meira magni af ólöglegum og óæskilegum upplýs- ingum er dreift á bloggsíðum og leit- arvélum munum við leitast við að grípa til árangursríkra aðgerða til að koma böndum á slíka dreifingu,“ sagði Cai Wu, formaður upplýsinga- skrifstofu stjórnarinnar, í viðtali við Xinhua-fréttastofuna í gær. Kínversk stjórnvöld hvetja til net- notkunar í viðskiptalífinu og í skól- um en reyna að draga úr aðgengi að „óæskilegu“ efni. Að sögn Xinhua tengist þessi viðleitni herferð stjórn- arinnar sem hófst í febrúar og hefur það að markmiði að „hreinsa um- hverfi“ net- og farsímanotkunar. Aðeins í Bandaríkjunum er að finna fleiri netnotendur en í Kína, þar sem talið er að 111 milljónir manna noti netið reglulega. Þá er áætlað að 37 milljónir bloggsíðna sé að finna í Kína og að í ár muni þeim fjölga í tæplega 60 milljónir síðna. Hert eftirlit með netinu í Kína Genf. AFP. | Hnattvæðingin hefur ekki orðið til þess að jafna bilið milli ríkra og fátækra ríkja í heiminum, að því er segir í nýrri skýrslu Samein- uðu þjóðanna. Hvatt er til þess í skýrslunni, sem unnin var af efna- hags- og félagsmáladeild SÞ, að þró- unarríkin fái aukið svigrúm til að þróa og byggja upp sinn efnahag. Í skýrslunni segir að sú staðreynd að ójafnræðið hafi vaxið milli ríkra ríkja og fátækra sé í mótsögn við þá almennu trú manna að munur á tekjum ríkja myndi jafnast eftir því sem veröldin yrði smærri, þ.e. á þessum tímum svokallaðrar hnatt- væðingar í efnahagsmálum. Lögð er áhersla á að fátæku ríkin fái meira svigrúm til umbyltingar á hagkerfum sínum, en mörg eru þau háð útflutningi á vörum sem eru þess eðlis að sveiflur á heimsmarkaðs- verði þeirra geta leikið ríkin grátt. Fátæk ríki fái meira svigrúm ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.