Morgunblaðið - 01.07.2006, Síða 25

Morgunblaðið - 01.07.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 25 MINNSTAÐUR VARNARLIÐSSALA Herinn er að fara og nú þarf að selja allt sem eftir verður. Opnum sölu á eigum Varnarliðsins í gamla Blómavali að Sigtúni 40 í Reykjavík. Verslunin verður opin alla daga vikunnar fram á haust - eða þar til allt hefur selst. GEYMSLUSVÆÐISINS Úrvalið er ótrúlegt: sófar - varahlutir - skrifstofustólar - rúm - ljósmyndir tölvur - borðstofuboð - flugvélapartar - leikskólastólar skrifborð - eldhúsborð - lazyboy stólar - bílar - landslagsmyndir húsgögn fyrir veitingastaði - skápar - náttborð - eldhússtólar stólar fyrir samkomusali - stálskápar - leðursófar - verkfæri sjónvarpsskápar - húsbúnaður - varahlutir - prentarar - skannar hermannaskór - eldhúsborð - geymsluskápar - dekk - tússtöflur hermannaaxlabönd - skjávarpar - töskur - kommóður - dýnur rúmgaflar - speglar - verkfærakassar - staflanlegir stólar og fleira og fleira... Opið: Laugardaga: 10:00 - 18:00Sunnudga: 12:00 - 18:00Virka daga: 10:00 - 18:00 OPNAR Í DAG laugardaginn 1. júlí Í Blómavalshúsinu að Sigtúni 40 Komið og gerið góð kaup Reykjanesbær | Í tilefni sjó- mannadagsins var haldin uppá- koma í bátasafni Gríms Karlssonar í Duushúsum. Við sama tækifæri var því fagnað að ný líkön hafa bor- ist safninu að gjöf og eru nú tæp- lega 90 bátar í breyttri sýningu. Andrés Magnús Eggertsson notaði tækifærið og gaf safninu líkan af skútunni Sigurfara sem hann hafði sjálfur smíðað. Sögðu sögur af sjónum Gestir gerðu góðan róm að pall- borðsumræðum sem þeir hlýddu á, en fimm reynslumiklir skipstjórar, þeir Ólafur Björnsson, Arnbjörn Ólafsson, Gunnlaugur Karlsson, Grímur Karlsson, og Hafsteinn Guðnason tóku þátt í umræðunum undir stjórn Valgerðar Guðmunds- dóttur menningarfulltrúa. Sögðu þeir sögur af sjónum og veltu meðal annars fyrir sér spurn- ingunni af hverju sumir veiddu allt- af meira en aðrir. Einnig sögðu þeir skemmtilegar sögur af litríkum persónum. Glæsilegur skipakostur Bátasafni Gríms Karlssonar barst viðbót í lík- anasafn sitt á dögunum og í safninu eru nú tæplega 90 líkön. Bátum fjölgar í flota bátasafnsins í Duushúsum SUÐURNES Reykjanesbær | Suðurnesjamara- þonið verður þreytt í dag og verða fjórar vegalengdir í boði. Meira en áratugarlöng hefð er fyrir hlaupinu. Til stóð að leggja það niður fyrir um sex árum síðan en þá tók líkams- ræktarstöðin Lífstíll við því og hefur staðið að því síðan. „Hlaupið er fyrir alla fjölskylduna, við erum að reyna að fá fólk til að hreyfa sig og vekja það jafnframt til umhugsunar um hreyfingu og bætta heilsu,“ segir Vikar Sigurjónsson, sem rekur Lífstíl. „Á næsta ári stendur svo til að bæta við einni vegalengd, heilu maraþoni.“ Öll hlaupin hefjast og enda við lík- amsræktarstöðina Lífstíl við Hótel Keflavík og þar er boðið upp á bún- ingsaðstöðu. Fjölbreyttar vegalengdir á boðstólum Lengsta vegalengdin er 25 km fjallahjólakeppni, Sandgerðishring- urinn, sem stendur til boða fyrir hjólreiðamenn. Frá Keflavík verður hjólað í Garð, þaðan til Sandgerðis og aftur til Keflavíkur. Leggja hjól- reiðakappar af stað kl. 11.20. Hálft maraþon, rúmur 21 km, verður hlaupið frá Keflavík, í Garð og til baka sömu leið. Ræst er kl. 10.30. Næsta vegalengd er 10 km hlaup og liggur sá hringur í kringum Kefla- vík, alveg út að Fitjum þar sem verslun Bónuss er. Verður það hlaup ræst kl. 11.15. Loks stendur til boða 3,5 km langt skemmtiskokk, hringur inni í Keflavík, þar sem fólki er vel- komið að skokka eða ganga auk þess sem leyfilegt er að taka börn með í kerrum. Yngstu þátttakendum er til dæmis velkomið að hjóla eða skauta þessa vegalengd á línuskautum. Gert er ráð fyrir því að þátttak- endur í hinum ýmsu vegalengdum komi í mark á svipuðum tíma. Skráning fer fram í dag og lýkur henni rétt fyrir upphaf hlaups. Þátt- tökugjald er 1.000 krónur fyrir fimmtán ára og eldri og 500 krónur fyrir þá sem yngri eru. Tilboð verða á líkamsræktarkortum í Lífstíl og allir þátttakendur frá frítt í sund. Fjöldi útdráttarvinninga er í boði þar sem nöfn allra þátttakenda eru í pottinum. Meðal annarra vinninga er utanlandsferð fyrir tvo með Flug- leiðum. Suðurnesja- maraþonið fer fram í dag Sandgerði | Byggingarfulltrúa hef- ur verið falið af bæjarráði Sandgerð- is að bjóða stækkun leikskólans Sól- borgar út að nýju. Tilboðin sem berast verða tekin til afgreiðslu á fyrri fundi bæjarstjórnar í ágúst nk. og er gert ráð fyrir því að húsnæðið verði tekið í notkun í ágúst 2007. Að mati S-listans væri réttara að hefjast handa við byggingu nýs leik- skóla, en framboðið gerir ekki at- hugasemdir við fyrirhugað útboð. K-listi og D-listi taka fram að ekki verði ráðist í aðrar framkvæmdir í leikskólamálum fyrr en lokið verði við umrædda framkvæmd, enda hafi verið gert ráð fyrir umræddri stækkun frá upphafi. Meðan útboðsmál hafa verið í ólestri hafa færri komist að í Sólborg en vilja og var kennsla elstu nem- enda leikskólans því flutt í Skóla- stræti 1. Úttekt hefur verið gerð á því húsnæði og stendur til að starf- rækja þar leikskóladeild með eldhúsi fyrir börn á aldrinum fimm til sex ára þar til 10. ágúst 2007. Stækkun leik- skólans Sól- borgar boðin út að nýju ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.