Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 30
30 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
24.200
Vika í Danmörku
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
32
54
6
05
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá
Eþíópía þarf virkilega á ferða-mönnum að halda en efna-hagur landsins er bágborinn
og verðlag eftir því sem þýðir aftur á
móti að þar er hagstætt fyrir okkur
að ferðast,“ segir Þóroddur F. Þór-
oddsson.
Þátttakendur í gönguferðinni
ásamt honum voru þau Guðlaug
Sveinbjarnardóttir, Höskuldur Jóns-
son, Inga Jónsdóttir, Páll Gunn-
laugsson, Sif Konráðsdóttir og Vigdís
Erlendsdóttir. Sumir höfðu ferðast
saman áður, aðrir ekki, en hópurinn
hristist vel saman.
Ferðin hófst 3. nóvember sl. og
stóð til 13. sama mánaðar. Göngu-
ferðin tók átta daga og gengið var um
Simen-þjóðgarðinn, m.a. á hæsta tind
Eþíópíu og fjórða hæsta fjall Afríku,
Ras Dajen (4.620 m). Hentugast er
að ferðast á þessar slóðir í október og
nóvember en regntíminn stendur frá
júní og fram undir lok september.
Eftir það er gróður í blóma, náttúran
skartar sínu fegursta og hitinn er
ekki óbærilegur, að sögn Þórodds.
Hópurinn flaug til London og þaðan
til höfuðborgar Eþíópíu, Addis
Ababa, með British Airways. Þar tók
ferðaskrifstofan Red Jackal við
hópnum og sá um ferðina innan-
lands. Þóroddur mælir með þessu
fyrirkomulagi þar sem þannig skilja
ferðamennirnir mest verðmæti eftir í
landinu í staðinn fyrir að greiða er-
lendum milliliðum þjónustugjöld.
Ferðin innan Eþíópíu kostaði um
þúsund dollara á mann sem sam-
svarar um 73.000 íslenskum krónum
og eru þá innifaldar flugferðir til og
frá Gonder, allur akstur, fullt fæði
allan tímann, fjórar nætur á hóteli og
9 dagar í gönguferð með tjöldum,
dýnum, borðum og stólum. Að auki
koma ferðir frá Íslandi til Eþíópíu.
Vopnaðir skátar stóðu vörð
„Ferð okkar í Eþíópíu hófst með
flugi til hinnar fornu höfuðborgar
Gonder,“ segir Þóroddur. Þaðan var
ekið upp í fjöllin og inn í Simen-
þjóðgarðinn sem var stofnaður 1975–
1977. „Til að komast inn í hann þarf
að ráða bæði viðurkenndan leiðsögu-
mann og einn til tvo vopnaða „skáta“
sem hafa það hlutverk að gæta tjald-
búðanna og verja ferðamenn gegn
sjakölum, hýenum og öðrum rándýr-
um. Sem heimamenn þekkja þeir vel
til hvar líkur eru á að sjá sjaldgæf
dýr, svo sem fjallageitur (Walya
ibexes), en þær eru sú spendýrateg-
und sem er í hvað mestri útrýming-
arhættu á jörðinni. Leiðsögumaður
okkar, Salomon, var tæplega þrítug-
ur kennari sem hafði starfað í mörg
ár í skólum sem verið var að koma
smám saman upp í þorpum umhverf-
is þjóðgarðinn og var mjög fróður
um bæði náttúru og mannlíf,“ segir
Þóroddur.
Í pakkanum sem keyptur var af
ferðaskrifstofunni var allt innifalið,
þ.e. þjónusta leiðsögumannsins og
„skátanna“, auk þess voru burð-
armenn með í för og kokkar sem eld-
uðu ofan í mannskapinn. „Ég hefði
verið til í að fara þessa ferð með allt á
bakinu og þurft að sjá um tjald og
matseld, áður en ég fór, ekki vitandi
hve það er mikill munur að þurfa að-
eins að hafa lítinn hryggsekk með
búnaði til dagsins, ekki síst þegar
hitinn var kominn vel yfir 20°C. Síð-
ast en ekki síst kostar þjónusta
heimamanna okkur lítið og ber okk-
ur að kaupa hana að eins miklu leyti
af þeim og kostur er og stuðla þannig
að bættum lífsgæðum heimamanna,
við getum kallað það einstaklings-
bundna þróunaraðstoð,“ segir Þór-
oddur.
Gengið í 3-4 þúsund metra hæð
Gönguleiðin var að mestu hefð-
bundin gönguleið útlendra ferða-
manna og þeirra um eitt hundrað
manns sem fara alla leið á hæsta tind
Simen-fjalla á ári. Nokkuð kom á
óvart hvað hækkun og lækkun gat
verið mikil einstaka daga en engar
leiðir voru beinlínis erfiðar, að sögn
Þórodds. Ferð eins og þessi hentar
breiðum hópi, allt frá unglingum upp
í eftirlaunaþega sem eru vanir göngu-
ferðum og að sofa í tjaldi. Þátttak-
endur þurfa að vera í góðu göngu-
formi svo þeir njóti ferðarinnar,
dagleiðir eru drjúgar, göngulandið
töluvert mishátt og gengið er í 3000–
4000 m hæð svo þunnt loftið segir til
sín, að sögn Þórodds. Á daginn var
gengið í stuttbuxum og hlýrabol en
fljótlega eftir að kom í náttstað gekk
sólin undir og þá var nauðsynlegt að
klæða sig vel, og í tjaldstað yfir 3.000
m hæð fer hitinn niður fyrir frost-
mark á nóttunni. Á fjórða degi var
farið á hæsta tindinn. „Það var um
ellefu klukkustunda ferð og hækk-
unin um 1.500 metrar, jafnt á fótinn
nema klungur svipað og upp á Þver-
fellshornið á Esjunni í lokin.“ Þór-
oddur er vanur göngumaður og sjálf-
ur getur hann helst borið ferðina
saman við gönguferð upp í grunn-
búðir Everest. „En þetta var miklu
auðveldara, minni hæð, hlýtt á daginn
og engin magakveisa, hvorki vegna
matar eða hæðar,“ segir hann. „Það
sem gerir þetta göngusvæði sérstakt,
og reyndar ferðasvæðið allt, er ná-
lægðin við íbúa landsins og að kynn-
ast baráttu þeirra fyrir lífsviðurværi
sem lætur engan ósnortinn. Það má
benda á að um leið og ferðamaður
upplifir einstaka náttúru og mannlíf á
þessu svæði styður hann við afkomu
fólksins og fátt hlýtur að vera nota-
legra að loknu vel heppnuðu fríi en að
finna slíkt,“ segir Þóroddur.
Gönguferðir í útlöndum verða æ vinsælli meðal Íslendinga og má nefna Spán, Ítalíu, Alpana og fleira í því sambandi. Eþíópía er ekki á
meðal þeirra landa sem fyrst koma upp í hugann þegar Íslendingar hyggjast leggja land undir fót en Þóroddur F. Þóroddsson fór ásamt
sex öðrum í gönguferð í Eþíópíu á síðasta ári og var afar ánægður með ferðina.
EÞÍÓPÍA
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
www.redjackal.net.
Með fjallageitum
Ljósmynd/Þóroddur
Gönguferðin tók átta daga og gengið var um Simen-þjóðgarðinn en þar er einstakt gönguland.
Allt var innifalið og kokkar elduðu ofan í mannskapinn.
FIMMTÁN ár eru síðan sumarþjónustusvæðið að
Hamragörðum undir Eyjafjöllum hóf starfsemi sína.
Guðlaug Jóna Helgadóttir er nú umsjónarmaður tjald-
svæðisins ásamt yngri systur sinni Hugrúnu Helgadótt-
ur. Þær systur tóku við umsjóninni af foreldrum sínum,
Sigrúnu Adolfsdóttur og Helga Friðþjófssyni, fyrir
nokkrum árum
„Rangárþing eystra á staðinn og rekur og við sjáum
um hann. Hamragarðar er gamall sveitabær sem var
byggður um 1900 og er nú friðaður. Karlinn sem bjó á
bænum gaf Skógrækt ríkisins jörðina og hreppurinn
keypti hana svo af skógræktinni og setti upp tjaldstæði,“
segir Guðlaug. „Tjaldstæðið er með snyrtiaðstöðu,
sturtu og rafmagnsinnstungum fyrir felli- og hjólhýsi.
Nú er verið að bæta aðstöðuna og byggja nýtt þjónustu-
hús og fjölga rafmagnsinnstungunum.“
Aðsóknarmet síðasta sumar
Guðlaug segir aðsóknina að Hamragörðum hafa aukist
með hverju sumri síðan opnað var og síðasta sumar hafi
öll met verið slegin í gestafjölda. „Sama fólkið kemur
mikið aftur og aftur og það tekur svo nýtt fólk með sér
og svoleiðis hefur ásóknin aukist. Erlendir ferðamenn
koma líka mikið hingað, þeir eru oft á þessari leið og
náttúrufegurð tjaldstæðisins dregur þá að.“
Helsta aðdráttarafl tjaldstæðisins er einmitt sú nátt-
úruperla sem það er staðsett í. „Bærinn Hamragarðar
stendur á milli Gljúfrabúa og Seljalandsfoss, hér er frið-
sælt og umhverfið fallegt. Skjólgott er fyrir ríkjandi átt-
um og kvöldsólin getur verið fögur. Gönguferðir í ná-
grenni staðarins eru vinsælar, t.d að Eyjafjallabrúnum
og Paradísarhelli. Þá er stutt í ökutúr að Skógafossi og
Byggðarsafninu að Skógum, 30 km eru til Þórsmerkur
og 20 mín. akstur til Hvolsvallar. Það er mikið um það að
fólk tjaldi hjá okkur og fari svo í dagsferð inn í Þórsmörk
eða keyri um Fljótshlíð, svo eru margir sem bara eru á
tjaldstæðinu og njóta lífsins,“ segir Guðlaug og bætir við
að það sé helst fjölskyldufólk og eldri borgarar sem sæki
Hamragarða heim.
FERÐALÖG | Sumarþjónustusvæðið að Hamragörðum undir Eyjafjöllum
Verið að bæta
aðstöðuna á
tjaldstæðinu
Ljósmynd/Þorberg Ólafsson
Hamragarðar standa í skjólgóðri náttúruperlu.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is