Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 34

Morgunblaðið - 01.07.2006, Side 34
34 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Gamall orðskviður segir:Sjaldan fer betur þábreytt er. Í boðskapnumfelst vitaskuld nokkur íhaldssemi en einnig er vísað til þess að það beri að virða sem liðn- ar kynslóðir hafa komið sér saman um. Nú á tímum hraða og al- þjóðavæðingar eru breytingar miklar og stundum virðist breytt til þess eins að breyta. Íslensk tunga er þar ekki undanskilin enda breytist hún hratt. Ein mesta breytingin felst að mati umsjónarmanns í ofnotkun orðasambandsins vera að + nafn- háttur. Að þessu nýmæli hefur nokkrum sinnum verið vikið á þessum vettvangi. Dæmi af þess- um toga eru t.d.: Hinn almenna borgara grunar að ríkisstjórnin sé ekki að segja satt [‘segi ekki satt’] (Blaðið 22.4.06); þjóðin er að upp- lifa verðbólguskot (Blaðið 22.4.06); við erum að sjá minni verðbólgu og meiri hagvöxt [‘sjáum að verð- bólgan er ...’] (Útv. 25.4.06); Við erum að spá [‘spáum’] auknum hagvexti (Útv. 25.4.06) og Þar sem við erum að ná [‘höfum náð’] ár- angri erum við að byggja [‘byggj- um við’] á mjög víðtæku samstarfi (1.5.06). — Umsjónarmaður hefur heyrt því haldið fram að ekkert sé athugavert við þessa breytingu enda sé um merkingarmun að ræða en ekki verður séð að svo geti verið. Eftir sveitarstjórnarkosning- arnar 27. maí fylgdist umsjón- armaður með umræðum um nið- urstöðurnar í sjónvarpi og fjölmiðlum. Það var fremur regla en undanteking að notað væri ‘dvalarhorf hið nýja’, jafnvel til að vísa til þess sem er liðið. Sem dæmi má nefna: Flokkurinn er að bæta [‘hefur bætt’] við sig manni; Flokkurinn er að ná árangri [‘hef- ur náð’]; Í úrslitunum eru að birt- ast [‘birtast’] skýr skilaboð og Flokkurinn er að koma [‘kom’] mjög vel út. Málbeiting sem þessi er orðin býsna algeng og umsjón- armanni virðist hún ekki bundin við lýsingar á kappleikjum. Því má ætla að hún sé um garð gengin í máli flestra og því komin til að vera eins og stundum er sagt. Allt annars eðlis eru ágallar í málbeitingu sem rekja má til þess að farið er rangt með föst orða- sambönd eða föstum orða- samböndum er ruglað saman. Þá er sjaldnast um breytingar að ræða, sanni nær er að tala um klaufaskap eða klúður. Dæmi þessa eru reyndar algeng í nú- tímamáli og skal nú vikið að nokkrum. Í sköpunarsögu Gamla testa- mentisins segir: Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm og myrkur grúfði yfir djúpinu og andi Guðs sveif yfir vötnunun (1. Mósebók). Til þessa vísar orðatiltækið e-ð svífur yfir vötnunum, t.d.: Á bókasafninu svífur andi fræðimannsins yfir vötnunum. Hér fer ekki betur þá breytt er og því þykir umsjón- armanni eft- irfarandi dæmi hæpið: Ég á sannarlega von á því að þess uppgjörsandi liggi yfir sögu- þinginu (Blaðið 16.5.06). Flestir munu þekkja hina gullnu reglu kristinna manna: Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér þeim og gjöra (Matt 7, 12). Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu var svipaðan boð- skap að finna: Flestum þykir það sjálfsagt að vel sé tekið á móti Ís- lendingum erlendis og mætti því ætla að við skyldum koma á móts við aðra eins og við viljum að kom- ið sé á móts við okkur (Mbl. 5.5.06). Hugsunin er fögur en ekki verður sama sagt um búninginn. Orðasambandið koma til móts við e-ð (kröfur e-s eða óskir) er al- gengt í merkingunni ‘mæta; nálg- ast’ og (samsetta) forsetningin á móts við er notuð til að vísa til staðar, t.d.: Óhappið varð á móts við bensínstöðina. Umsjón- armaður kannast hins vegar ekki við orðasambandið koma (vel/illa) á móts við e-n í merkingunni ‘koma (vel/illa) fram við e-n’. Orðatiltækið sitja (fast) við sinn keip ‘halda (fast) við afstöðu sína; breyta ekki skoðun sinni’ er gam- alt í íslensku. Það vísar til manns sem er fastheldinn á róðrarstað sinn í skipi. Í nútímamáli er al- gengt að skotið sé inn atviksorðinu fast. Umsjónarmaður taldi að vís- unin væri býsna augljós en svo getur ekki verið í máli þess sem segir: halda fast um sinn keip (Útv. 15.5.06). Eitt er að geta sér gott orð en annað að afla sér einhvers. Þessu má ekki rugla saman eins og í eft- irfarandi dæmi: Miðað er við að kennarar ... hafi getið sér góðs orðs [þ.e. gott orð] fyrir kennslu (Mbl. 30.4.06). Orðatiltækið vakna við vondan draum ‘átta sig skyndilega á e-u neikvæðu’ er hundgamalt í ís- lensku og eftir því sem umsjón- armaður veit best hefur búningur þess haldist lítt breyttur í um 800 ár. Í nútímamáli eru þess þó nokk- ur dæmi að í stað vakna sé notað vakna upp, t.d.: Kisi vaknaði upp við vondan draum (Blaðið 27.5.06). Hér kann að gæta áhrifa frá ensku: wake up, sbr. einnig dönsku vogne op og þýsku aufwachen. – Í dæmum sem þessum hlýtur málvenja og mál- kennd að ráða. Úr handraðanum Forsetningarliðurinn á við e-n/ e-ð er naumast eldri en frá 17. öld. Hann samsvarar fs. við + þf. í eldra máli, sbr.: skyldi gjalda hon- um einn pening heilan þann er denarius heitir. Sá er við aðra tíu. Við skýringu á breytingunni við > á við virðast einkum tveir kostir koma til greina. Annars vegar gæti verið um liðfellt orða- samband að ræða, þ.e. til móts við > móts við > á móts við > á við. Breytinguna til móts við > við er reyndar að finna í Grettis sögu (17. k.): voru þá fengnir til tveir að ausa til móts við hann og Svo segja sumir menn, að átta jósu þeir við hann áður en lauk. Hinn kosturinn er að líta svo á að fs. á við eigi ræt- ur sínar að rekja til orðatiltækisins e-ð er á borð við e-ð ‘e-ð er sam- bærilegt/svipað e-u (að e-u leyti)’, sbr.: þótt þvílík brot sýnist á borð við hinar sakirnar. Þá yrði að gera ráð fyrir liðfalli: e-ð er á borð við e-ð > e-ð er á við e-ð ‘e-ð er eins og e-ð, jafngildir e-u’. Síðari skýr- ingin byggist á svipaðri merkingu forsetningarinnar (á við) og orða- tiltækisins (vera á borð við) en hún verður ekki studd beinum dæmum eins og fyrri skýringin. — Í nú- tímamáli er fs. á við einkum notuð með tilteknum sögnum, t.d.: borða á við tvo; jafnast (ekki) á við e-n/ e-ð; tala á við þrjá; vinna á við tvo o.s.frv. Eftirfarandi dæmi mun hins vegar ekki eiga sér hliðstæðu og er því að engu hafandi: Þau [samkeppnisyfirvöld] staðfestu að álagning hér á landi væri sam- bærileg og lægri á við nágranna- löndin (Frbl. 10.5.06). Nú á tímum hraða og al- þjóðavæðingar eru breytingar miklar og stundum virðist breytt til þess eins að breyta. jonf@hi.is ÍSLENSKT MÁL Jón G. Friðjónsson 80. þáttur. NÝLEGA var blaðakona ráðin yfir þeiri deild Mogunblaðsins sem sér um aðsendar greinar. Hún hafði í einhver ár starfað í þessu, en hætt í góðan tíma þar til hún birtist nú sem ráðandi manneskja. Fyrstu árin sem ég skrifaði í blað- ið, voru engin vandamál. Svo var hún ráðin og þá voru öll mín skrif sett í bréf til blaðsins. Ég reyndi að ræða þetta við hana, en hún sagði að bréfin væru ekkert síð- ur lesin en greinarnar. Hún átti til að finna að orðavali mínu og hve harð- orður ég væri. Einu sinni sem oftar, neitaði hún að birta grein frá mér, án breytinga. Í fyrirsögn greinarinnar, var orðið Brenglun. Ef ég næmi það burt, yrði greinin viðunandi. Fyrir og eftir þetta, mátti sjá á síðum Morgunblaðsins að orðið, Brenglun, er ekki áreitt, ef aðrir en ég nota það. Því er við hæfi að benda hátt- settri blaðakonu á, að stétt hennar er ekki til fyrirmyndar hvað ís- lenskst málfar varðar. Meðal orð- skrípa þeira er að: Berja einhvern með augunum, í stað þess að sjá eða horfa. Annað skrípi verður til, þegar Lungað úr deginum er notað, í stað meiri eða mikill hluti dags. Þetta er aðeins lítið sýnishorn, fyrir svo utan enskusletturnar. Ég ber mikla virð- ingu fyrir tungumáli okkar og vil hafa mína hentisemi í vali orða og setninga. Mánuðina sem blaðakonan var frá, var við Svein Guðjónsson að eiga. Það var eins og svart og hvítt. Skyndilega var ekkert leiðinlegt að hringja í Morgunblaðið. Sveinn er sérlega viðræðugóður og talar ekki niður til fólks. Án af- skifta frá mér, færði hann skrif mín til betra horfs. Daginn sem Sveinn fór í annað fram í ágúst, tók blaða- konan við síðustu grein minni og lét vita að hún fengist ekki birt án breytinga og þá í bréfi til blaðsins. Ég hafði reyndar vitað að ráðning hennar var vond fyrir mig og aðra sem hún er ekki sammála og þorir við. Þó mig grunaði að það skilaði litlu, hringdi ég í hana og mætti kuldalegri ákveðni. Þá sagðist ég ekki vilja að greinin sem heitir: Við- skilnaður R-listans og framtíð- arlandið, yrði birt í Morgunblaðinu. Hún sagði það ekki skifta sig neinu og þegar ég kvaðst bíða með skrif í blaðið þar til Sveinn kæmi, kvað hún það til lítils, því hún réði. Svo mörg voru þau orð og sannast oft, að ekki er allt gull sem glóir. Greinina sendi ég svo í Frétta- blaðið, þar sem mér er ætíð vel tekið. ALBERT JENSEN, trésmíðameistari, Sléttuveg 3, Reykjavík. Greinahöfundar og blaðamenn Frá Alberti Jensen: Albert Jensen BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Á ÁRINU 2003 keyptu Íslend- ingar lyf fyrir 14 milljarða sam- kvæmt skýrslu rík- isendurskoðanda. Athyglisvert er að Ís- lendingar nota að jafnaði minna af lyfj- um en Danir og Norðmenn en samt sem áður var kostn- aður hér á hvern landsmann að jafnaði 46% hærri. Nýjustu fréttir af verðlags- könnun ASÍ á lyfjum gefa alls ekki til kynna að þessi mun- ur sé að minnka. Það eina sem bendir til hagstæðrar þróunar lyfjaverðs er samn- ingur sem ríkið gerði við innflytjendur frumlyfja árið 2004 en á móti kemur að vísbendingar eru um að verulega hafi dregið úr samkeppni milli apóteka eftir því sem eignarhald þeirra hefur færst á færri hendur. Að einhverju leyti má skýra þennan mun á verði lyfja hér og í nágrannaríkj- unum með smæð markaðarins, en þó einungis að mjög litlum hluta að mínu mati. Það er ekki hægt að útskýra 46% mun á útgjöldum með því einu. Það gefur augaleið, sérstaklega þegar Íslendingar nota minna af lyfjum en Danir og Norðmenn. Heilbrigðisráðherra lítur fram hjá rót vandans Viðbrögð ráðherra við verðlags- könnun ASÍ voru um margt sér- stök þar sem hún beindi athyglinni að algjöru aukaatriði hvað varðar himinhátt verðlag á lyfjum. Ég á við það þegar ráðherra hafði í hót- unum við lyfjafræðinga sem höfðu látið hjá líða að upplýsa kaupanda um að til væru samheitalyf sem kostuðu minna og hefðu sömu virkni en þau sem kaupandanum var ávísað samkvæmt lyfseðli. Heilbrigðisráðherra hótaði sem kunnugt er lyfjafræðingum sem eru launþegar lyfjakeðjanna áminningu og leyfissviptingu að því er virðist án þess að kynna sér hverjar mögulegar skýringar væru. Landlæknir ritaði grein sem birtist í Morgunblaðinu 7. júní sl. þar sem hann fjallar um hátt lyfja- verð og veltir vöngum yfir því hvort ríkið neyðist til þess að end- urreisa Lyfjaverslun ríkisins. Í grein landlæknis kemur fram möguleg skýring á því hvers vegna lyfjafræðingar hafa látið undir höf- uð leggjast að upplýsa kaupendur um ódýrari samheitalyf en mögu- leg ástæða er að þau væru ekki til í apótekinu. Landlæknir segir frá því að ítrekað hafi bor- ist kvartanir frá sjúk- lingum og læknum vegna þess að tiltekin skráð lyf séu ekki til þegar þeirra er þörf. Hver er orsökin fyrir háum lyfja- kostnaði? Svarið við háum lyfjakostnaði liggur í augum uppi, verðlagn- ing á samheitalyfjum sem flest eru frá ein- um innlendum fram- leiðanda. Hinn 9. maí síðast- liðinn var forsíðufrétt Fréttablaðsins að sam- heitalyf sem framleidd voru hjá íslenska fyr- irtækinu Actavis væru 10 sinnum dýrari á Ís- landi en í Danmörku. Landlæknir staðfestir í áðurnefndri grein að um gríðarlegan verð- mun er að ræða á samheitalyfjum á Ís- landi og í Danmörku og nefnir hann að munur á lægsta ein- ingaverði sé allt frá því að vera tvöfaldur og til þess að vera tólffaldur. Enn fremur nefndi hann dæmi um að fólk með ákveðna sjúkdóma þyrfti að greiða þrefalt til fjórfalt hærra verð fyrir lyfin á Íslandi en í Dan- mörku. Það er mín skoðun að annar stór liður í háu lyfjaverði sé það kerfi sem við búum við. Í kerfinu er inn- byggður hvati til þess að ávísa sem stærstum skömmtum í sem mestu magni. Það er oft á tíðum hagstæðara fyrir alla aðila nema skattgreið- endur að sjúklingur kaupi sem stærsta skammta og sem dýrust lyf þar sem prósentuafsláttur lyf- sala af heildarverði lyfsins verður hærri krónutala eftir því sem inn- kaupin eru dýrari og afslátturinn rennur eingöngu til þess að greiða hlut sjúklingsins. Nú er ákveðin krónutala hámark þess sem sjúklingur greiðir í hvert sinn og meiri von er til þess að af- slátturinn sem lyfsalinn veitir nái að dekka hlut sjúklingsins. Lausnin gegn háum lyfjakostn- aði felst ekki í sparðatíningi heil- brigðisráðherra, heldur hlýtur hún að liggja að stórum hluta í því að ná fram hagstæðari innkaupum á samheitalyfjum og koma á virkri samkeppni. Lyf tífalt dýrari á Íslandi Sigurjón Þórðarson fjallar um lyfjaverð á Íslandi Sigurjón Þórðarson ’Lausnin gegnháum lyfjakostn- aði felst ekki í sparðatíningi heilbrigðisráð- herra, heldur hlýtur hún að liggja að stórum hluta í því að ná fram hagstæðari innkaupum á samheitalyfjum og koma á virkri samkeppni.‘ Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins Sagt var: Hann hefur ekki ljáð máls á því. RÉTT VÆRI: … ekki léð máls á því. Gætum tungunnar Föt fyrir allar konur á öllum aldri Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.