Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 37

Morgunblaðið - 01.07.2006, Page 37
Í þeirri fullvissu að ég hitti hana í öðrum heimi kveð ég hana með sökn- uði og ég veit að það verður tekið vel á móti henni. Birna Dögg Jónsdóttir. Þá sagði kona ein: Talaðu við okkur um gleði og sorg. Og hann svaraði: Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð að innan með hnífum? Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Sum ykkar segja: ,,Í heimi hér er meira af gleði en sorg,“ og aðr- ir segja: ,,Nei, sorgirnar eru fleiri.“ En ég segi þér: Sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt sefur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar. Jafnvægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á meta- skálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara. (Kahlil Gibran.) Kveðja. Ásta. Elsku amma. Okkur þykir afskap- lega leitt að hafa ekki getað komið og kvatt þig í dag. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur þegar við komum aust- ur, og við hefðum fundið fyrir þér í dag. Það hefði létt mikið á hjarta okk- ar. Og eitt er víst, við hefðum skálað í mjólk og jólaköku. Þær eru jú ófáar jólakökurnar sem maður hefur sporðrennt í gegnum tíðina hjá ömmu. Í hennar húsi var borðuð jóla- kaka allt árið, og hún var aldrei betri en eftir gott næturbrölt. Það var allt- af mikið ævintýri að ferðast austur til Víkur. Ef maður var ekki að hrekkja Jóa frænda, þá var maður á hestbaki eða inni hjá ömmu að borða gulan búðing og jólaköku. Eða bara að leika sér innan um allt þetta frændfólk sem virtist búa í öllum húsum í þorpinu. Þessar minningar eru ógleymanleg- ar, og alltaf var amma miðpunktur- inn. Hún hvatti mann áfram, ásamt því að minna mann á að það væri bannað að fara niður í fjöru. Svo kom maður heim, angandi af sjólykt og með sand í skóm, og reyndi að sann- færa ömmu um að maður hefði nú bara stigið í poll á leiðinni heim. Sú gamla hristi bara hausinn yfir þess- um uppátækjum. Það var mjög skemmtilegt þegar við komum aust- ur síðasta sumar. Þá leit hún á litla drenginn minn og sagði: „Ætlar þú að verða eins og pabbi þinn, stelast nið- ur í fjöru og þræta svo fyrir það?“ Og auðvitað allt sagt með stóru brosi. Nú er ekkert eftir nema að kveðja þig, elsku amma. Við vitum að það fer vel um þig þar sem þú ert núna. blá gröfin bíður sjávarfallanna vindanna ættingjanna sem koma þögulir og fara íhugulir á vit lífsins sem bíður þeirra (Helen Halldórsdóttir) Kristens Guðfinnsson, Júlíana Guðfinnsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 37 MINNINGAR Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vinarhug og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÁRU STEINDÓRSDÓTTUR, Starengi 16, Selfossi. Jón Hallgrímsson, Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir, Magnús Baldur Bergsson, Steindór Sverrisson, Hjördís Ásgeirsdóttir, Ríkharður Sverrisson, Valgerður Hansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn og bróðir, FINNBOGI BJARNASON frá Tjaldbúðum í Staðarsveit, lést mánudaginn 26. júní. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 3. júlí kl. 15.00. Málmfríður Jóhannsdóttir, María Bjarnadóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BALDUR ÞORSTEINSSON, Víðivöllum 20, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 3. júlí kl. 13.30. Sigrún Hauksdóttir, Hulda Jóhanna Baldursdóttir, Eiríkur Örn Kristjánsson, Stefán Þór Baldursson, Ragnheiður Njálsdóttir, Bryndís Baldursdóttir, Baldur Þorsteinsson, afa- og langafabörn. Elskuleg dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Bjarkarheiði 5, Hveragerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi fimmtudaginn 29. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helga Baldursdóttir, Ögmundur Jónsson, Ida Løn, Þorbjörn Jónsson, Vigdís Anna Kolbeinsdóttir, Daníel Örn Þorbjörnsson, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR JÓNSSON, Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 28. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Haraldsson, Þóra Björgvinsdóttir, Gunnar Haraldsson, Stella Benediktsdóttir, Stefán Haraldsson, Fanney Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, RÖGNU GRÖNVOLD RAGNARS, Grandavegi 47, 107 Reykjavík. Gústaf Grönvold, Magnús Grönvold, Guðrún Grönvold, Ragnar Grönvold, tengdabörn og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR MAGNÚSSON fyrrverandi skrifstofustjóri í Ríkisendurskoðun, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðvikudag- inn 28. júní. Elísabet Jónsdóttir, Jón Guðmundsson, Marta Kjartansdóttir, Björg Guðmundsdóttir, Gunnar Kr. Guðmundsson, Anna Guðný Björnsdóttir, Örn Guðmundsson, Ragnhildur Sigurðardóttir, barnabörn og langafabarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐGEIR ÞÓRARINSSON klæðskeri, áður til heimilis í Stóragerði 1, Reykjavík, lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 29. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Dóra Guðrún Kristinsdóttir, Jón Þ. Hilmarsson, Þórarinn Guðgeirsson, Vicki Guðgeirsson, barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN INGVARSSON, Hjallaseli 31, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtu- daginn 30. júní. Jarðarför hans verður auglýst síðar. Ragna Bergmann, Valur Freyr Jóhannsson, Sædís Sigurðardóttir, Katrín Gróa Jóhannsdóttir, Trausti Friðfinnsson, Jóhanna Huld Jóhannsdóttir, Albert Ingason, Guðrún Edda Jóhannsdóttir, Birgir Ingibergsson, Bergþóra Ósk Jóhannsdóttir, Ólafur Eyjólfsson, Örn Ingvar Jóhannsson, Hrefna Hermannsdóttir, William Ragnar Jóhannson, Eiríkur Þorsteinsson, Berglind Björnsdóttir, Guðmundur Reynir Jóhannsson, Inga Rún Garðadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og frændi, VALDIMAR GUÐMUNDUR JAKOBSSON, Álfaborgum 27, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 27. júní verður jarðsunginn frá Graf- arvogskirkju fimmtudaginn 6. júlí kl. 13.00. Jakob Valdimarsson, Þráinn Kristjánsson, Lára Kristjánsdóttir, Grétar Geirsson, Örn Berg Guðmundsson, Ragnhildur Gröndal, Björk Kristjánsdóttir, Stefanía Kristjánsdóttir, Ásgeir Þór Hjaltason, Sigurlaug Jakobsdóttir, Bragi Már Bragason og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.