Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 53
NYLON-flokkurinn heldur til Ír-
lands á mánudaginn í fimm daga
kynningarferðalag en í því felst
fjöldi sjónvarps- og útvarpsviðtala
auk myndataka. Lagið þeirra, „Los-
ing a friend“, er nú komið í spilun á
flestöllum útvarpsstöðvum þar í
landi við töluverðar vinsældir en lag-
ið er jafnframt búið að vera í mikilli
spilun í Bretlandi. Á föstudaginn er
förinni svo heitið til Bretlands þar
sem þær munu leggja lokahönd á
kynningu smáskífunnar. Þar var
stelpunum boðið að koma fram á ein-
um stærsta næturklúbbi Lundúna,
Astoria, ásamt hiphop-stjörnunni
Rihanna.
Áður en stúlkurnar halda í þetta
ferðalag munu þær taka þátt í tón-
listarveislu í miðbæ Reykjavíkur í
dag sem haldin er í tilefni af 120 ára
afmæli Landsbankans. Tónlist-
arveislan hefst um klukkan 13.30 en
áætlað er að Nylon-flokkurinn verði
á sviði um 14.30.
Morgunblaðið/ÞÖK
Syngja á Ingólfstorgi í dag
Tónlist | Nylon-flokkurinn til Írlands
www.nylon.is
KAPPAKSTURSFÍKLAR og unn-
endur hraðskreiðra tryllitækja er
markhópurinn sem hefur gefið The
Fast and the Furious, nokkuð óvænt
framhaldslíf. Nú blasir Tokyo Rift,
þriðja myndin í röðinni, við sjónum
og er skref upp á við frá miðmynd-
inni. Ekki svo að skilja að um neitt
gersemi sé að ræða fyrir aðra en þá
sem nefndir eru að ofan, en leik-
stjórnin er oft á tíðum athyglisverð í
kappakstursatriðunum sem eru sum
hver spennandi og fagmannlega svið-
sett.
Japanskir töffarar og glansgellur,
framandi umhverfi, götur, stræti og
geymslur Tókýó, gefa þriðja kafl-
anum nauðsynlega ferskt yfirbragð.
Einnig er búið að skipta um aðal-
persónur, Sean Boswell (Black) hef-
ur ekki komið við sögu fyrr. Hann er
17 ára (!) vandræðagripur, með
óslökkvandi bíladellu og kláða í bens-
ínfætinum. Eftir enn einn glæfra-
akstur og meðfylgjandi eyðilegg-
ingar, verður fráskilin móðir hans að
grípa til örþrifaráða, senda drenginn
til föðurins, sem gegnir herþjónustu í
höfuðborg Japans.
Það er ekki mikið meira um mynd-
ina að segja, það sem við tekur er af-
ar kunnuglegt. Strákurinn kemur
sér þegar í kappakstra og vafasaman
félagsskap, klisjusúpan blasir við.
Sean er bærilega borgið í hönd-
unum á Black, sem virðist hafa
möguleika á að tóra eitthvað fram á
næsta áratug. Hann á reyndar að
vera mikið yngri en hann lítur út fyr-
ir, og svo er um flestar aðalpersón-
urnar. Þetta er augljós galli sem
pirrar vafalaust þá sem vilja velta sér
upp úr slíkum smámunum í B-
iðnaðarafþreyingu. Hér eru það öku-
tækin sem skipta mestu máli og setja
mark sitt á Tokyo Drift, áhættuleik-
ararnir og brellumeistararnir. Mann-
fólkið er innantómar teiknimyndafíg-
úrur og samtölin klúðursleg og ekki
frítt við að sama megi segja um þýð-
inguna á stöku stað.
Hvað sem öllu líður, þá má hafa
ákveðna skemmtun af hasarnum,
áhorfandinn slekkur einfaldlega á
vitglórunni (ef hún er fyrir hendi), og
sest upp í rússíbanann. Nafnið Tokyo
Drift (sem er þýtt skrið, frekar en
skrens), er dregið af ökulaginu, sem
er merkust nýjung í 3. kaflanum:
Glæfralegar beygjur þar sem öku-
tækin renna út undan sér á ógn-
arhraða með hjálp kúplingar, hand-
bremsu og annarra stjórntækja.
Uppi í fjöllum, í bílageymslum, bull-
andi stórborgartraffík, í iðandi
mannhafi. Ekki þarf að taka fram að
naumast sést skráma á nokkrum
manni. Undir fjörinu dunar viðeig-
andi bárujárnsrokk og gamall kunn-
ingi skýtur upp kollinum. Hvað er
hægt að hafa það betra?
Skriðið og skrensað
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Sambíóin, Borg-
arbíó Akureyri
Leikstjóri: Justin Lin. Aðalleikarar: Lucas
Black, Bow Wow, Brian Tee, Sung Kang,
Nathalie Kelley. 98 mín. Bandaríkin
2006.
The Fast and the Furious: Tokyo Drift
„Hvað sem öllu líður, þá má hafa ákveðna skemmtun af hasarnum.“
Sæbjörn Valdimarsson
RISA kvikmyndagerð er nýstofnað
kvikmyndaáhugafélag sem hefur
það að markmiði að efla kvikmynda-
gerð meðal ungs fólks. Félagið var
stofnað í tengslum við stuttmynd
sem ætlunin er að framleiða nú í
sumar en tökur fara fram í águst í
Vesturbæ Reykjavíkur og á Laug-
arvatni. Á laugardaginn fara fram
áheyrnarprufur fyrir fjögur hlut-
verk myndarinnar en leitað verður
að tveimur strákum og tveimur
stelpum á aldrinum 17-24 ára. Pruf-
urnar fara fram að Krókhálsi 4, ann-
arri hæð og standa þær á milli 13-16.
Stuttmyndin er um fimmtán til tutt-
ugu mínútur að lengd og fjallar um
tvær manneskjur sem eru ástfangn-
ar af hvor annari en þær þora ekki
að segja frá því af ótta við höfnun og
því grípa þær til róttækra aðgerða.
Um er að ræða afar athyglisverða
ástarmynd með litríkum og jafn-
framt draumkenndum blæ og síðan
verður klippingin í eins konar Kung
Fu-stíl sem ætlað er að ýta undir til-
finningaflæði myndarinnar
Áheyrnarprufa fyrir íslenska stuttmynd
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„THE INCREDIBLES“ &
„LEITIN AÐ NEMO“
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
NÝJASTA MEISTARA-
VERKIÐ FRÁ PIXAR
SEM ALLIR ERU AÐ
TALA UM.
KVIKMYNDIR.IS
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI AÐ
SKORA
eeee
KVIKMYNDIR.IS eeee
VJV, Topp5.is
S.U.S. XFM
EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
0
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
FAST AND THE FURIOUS 3 VIP kl. 1:30 - 4:15 - 8 - 10:20
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 12:15 - 1:30 - 3 - 5:30 - 8
CARS M/ENSKU TALI kl. 12:15 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30
THE LAKE HOUSE kl. 1:30 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
SLITHER kl. 10:30 B.I. 16.ÁRA.
SHE´S THE MAN kl. 5:45 - 8
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
BAMBI 2 M/ÍSL. TALI kl. 1:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/ÍSL. TALI kl. 1 - 2:15 - 3:30 - 5:30
CARS M/ENSKU TALI kl. 1 - 3:30 - 6 - 8 - 10:30 DIGITAL SÝN.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 8:30 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN.
MI : 3 kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA. DIGITAL SÝN.