Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 4

Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. ÍS LE N SK A AU G L† SI N G AS TO FA N /S IA .I S LY F 33 20 4 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is NÆSTU vikurnar eru síðustu for- vöð fyrir landann að sjá svæðið við Kringilsárrana sem hverfa mun und- ir Hálslón, en líkt og margoft hefur komið fram verður byrjað að safna vatni í lónið í september nk. Ómar Ragnarsson fréttamaður mun á næstunni verða landsmönnum innan handar við að sjá og kynna sér svæð- ið hvort heldur er í lofti eða á láði. Þannig getur fólk t.d. keyrt að flug- vellinum við Kárahnjúkaveginn eða flugvellinum við Brúarjökul og feng- ið þar að hoppa upp í hina marg- frægu flugvél Ómars TF-FRÚ og flogið með honum yfir svæðið, skoð- að stífluna úr lofti, áhrifasvæði Háls- lóns, Kringilsárrana, nú eða fossa- röðina í Jökulsá í Fljótsdal sem mun hverfa, allt eftir því hvað fólk langar helst að sjá og upplifa. Einnig er að sögn Ómars mögulegt að koma með honum í flugvél Sverris Þórodds- sonar, TF-TAL sem er sex sæta, en FRÚ-in er aðeins fjögurra sæta. Á þeim fjórum flugvöllum, sem Ómar hefur útbúið á svæðinu með samtals sex flugbrautum, geymir hann verðlausar gamlar bíldruslur sem hann segist geta notað til þess að skutla fólki milli staða gerist þess þörf, auk þess sem hann geti að- stoðað við að benda fólki á ýmsar gönguleiðir. Þess má geta að bílana notar Ómar einnig sem nokkurs konar bækistöðvar á svæðinu ásamt því að nota þá til þess að valta flug- vellina með. Spurður um kostnað vegna flugsins segist Ómar aðeins rukka upp í undirbúningskostnaðinn og nefnir sem dæmi að þeir sem hoppi upp í með honum inn við Kára- hnjúka þurfi aðeins að greiða nokkra þúsundkalla. Einnig er í boði að fara með honum frá öðrum flugvöllum á landinu, allt eftir samkomulagi. Við höfum gert okkur að forréttindakynslóð „Ég vil ekki að fólk geti síðar sagt að það hafi ekki átt kost á því að sjá svæðið,“ segir Ómar þegar hann er spurður hvers vegna hann sé að eyða frítíma sínum næstu mánuðina í að aðstoða áhugasama landsmenn með þessum hætti. „Við sem nú lif- um höfum í raun gert okkur að for- réttindakynslóð. Við getum skoðað landsvæði sem enginn hefur skoðað á undan okkur, þ.e. Kringilsárrann- ann. Og við erum að gera ráðstafanir til þess að enginn geti nokkurn tím- ann skoðað þetta á eftir okkur. Ég tel það einstakt á Íslandi að geta skoðað svona stórt svæði sem eng- inn hefur getað skoðað á undan okk- ur og enginn mun geta skoðað á eftir okkur. Það verður alltaf hægt að fara í Landmannalaugar seinna, en þú getur ekki farið á þetta svæði seinna,“ segir Ómar, sem sjálfur leggur sitt af mörkum til þess að komandi kynslóðir muni geta upp- lifað svæðið þó ekki væri nema í gegnum heimildamyndir. Ómar hefur, eins og hann orðar það sjálfur, lengi verið eins og grár köttur á þessu landsvæði. Því auk þess að safna myndefni af svæðinu hefur hann t.d. í tvígang farið sem leiðsögumaður fyrir Landsbankann í stórum hópferðum inn að Kára- hnjúkum. Upplýsingagjöf um svæðið stórlega ábótavant „Í þessum ferðum varð ég var við það að fólk er ótrúlega fáfrótt um umhverfið sem þarna skiptir máli og sem virkjunin á eftir að hafa áhrif á,“ segir Ómar og nefnir sem dæmi að margir geri sér t.d. enga grein fyrir þeim mikla gróðri sem á svæðinu sé og öllum þeim jarðmyndunum sem hvergi er getið. „Mín niðurstaða er sú að upplýsingagjöf um svæðið hef- ur verið ábótavant,“ segir Ómar og tekur fram að sér finnist það hrein- lega vera skylda sín sem fjölmiðla- manns að upplýsa almenning eftir fremsta megni. „Það má kannski segja að ég sé ástríðufjölmiðlunar- maður,“ segir Ómar að lokum. Þeir sem áhuga hefðu á flugi um Kára- hnjúkasvæðið geta sett sig í sam- band við Ómar í síma: 699 1414. Hefur lengi verið eins og grár köttur á svæðinu Morgunblaðið/RAX Ómar Ragnarsson lendir flugvél sinni TF-FRÚ á melnum við Kringilsárrana með Snæfell í bakgrunni. Ómar hefur komið verðlausum bíldruslum fyrir á flugvöllum víðs vegar um Kárahnjúkasvæðið, sem hann notar til að skutla fólki í skoðunarferðir, enda vill hann aðstoða sem flesta við að sjá svæðið með eigin augum. Aðstoðar landsmenn við að skoða Kára- hnjúkasvæðið jafnt úr lofti sem á láði TENGLAR .............................................. www.hugmyndaflug.is SAMNINGI um sjúkraflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, sem hefur verið ítrekað brotinn af flug- félaginu Landsflugi undanfarið, verður ekki rift af hálfu heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og Tryggingastofnunar ríkisins að svo stöddu. Þetta er mat ráðuneytisins sem grundvallast á bráðabirgðanið- urstöðu starfshóps sem fór yfir mál- ið. Niðurstaða starfshópsins hefur verið send til umsagnar. Meðal um- sagnaraðila er bæjarstjórn Vest- mannaeyja sem lýst hefur yfir mikl- um áhyggjum af stöðu mála. Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Flugumferðarstjórn og Landsflug munu einnig gefa umsögn. Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins, kvaðst vera afar ósátt- ur við að sjúkraflugvél flugfélagsins Landsflugs skyldi ekki hafa verið í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum, eins og kveðið er á um í samningi, þegar flytja átti sjúkling í síðustu viku. Vélin var stödd í Reykjavík í áætlunarflugi en var komin til Eyja innan þess tíma sem gert var ráð fyr- ir, miðað við tegund útkallsins. Í vikunni þar á undan átti sér stað atvik þar sem vél frá flugfélaginu sem sinna átti sjúkrafluginu fór í reglubundið eftirlit án þess að flug- félagið gerði ráðstafanir til að tryggja að viðbragðsskyldu þess yrði sinnt af öðrum. Landsflug sinnir áfram sjúkra- flugi til Eyja AUGLÝST hefur verið eftir til- boðum á EES-svæðinu vegna fyr- irhugaðra kaupa Landhelgisgæsl- unnar á nýrri flugvél. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra boðaði síðastliðið haust eflingu Gæslunnar. Nýtt varðskip yrði tekið í notkun árið 2008 og ný flugvél árið 2007. Nú- verandi flugvél Gæslunnar er kom- in nokkuð til ára sinna og missir lofthæfi í lok þessa árs. Ný flugvél mun þurfa að búa yfir nútíma greiningar- og samskiptatækni og hafa nægilegt flugþol til að sinna eftirliti í stórri efnahagslögsögu. Einnig þarf hún að geta tekið þátt í löngum björgunar- og leit- araðgerðum og sinnt vettvangs- stjórn og sjúkraflugi. Gert er ráð fyrir að vélin þurfi auk þess að geta flogið utan vegna alþjóðlegra björgunarstarfa, friðargæslu og mannúðarmála. Tilboð verða opn- uð í nóvember. Auglýst eftir flugvél fyrir Land- helgisgæsluna VERIÐ er að fara yfir hvort og þá hvaða framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar verði frestað vegna þenslu í þjóðfélaginu. Munu svör liggja fyrir í næsta mánuði. Vil- hjálmur Þ. Vil- hjálmsson borg- arstjóri, segir ekki svo margar framkvæmdir standa fyrir dyr- um hjá borginni fyrir utan hefð- bundnar framkvæmdir við skólahús sem og gatnaframkvæmdir. Verið sé að undirbúa framkvæmdir við íþróttahús t.d. hjá ÍR og Leikni og ekki hafi verið rætt um að fresta þeim. Hann segir mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar ekki verða boðin út á árinu, en undirbúningur sé hafinn. Gatnamótin ekki í útboð á þessu ári Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ELDUR kviknaði í vörugeymslu við áburðarverksmiðjuna í Gufunesi á níunda tímanum í gærmorgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi þrjá dælubíla á vettvang, um 17 til 20 slökkviliðsmenn, og gekk greiðlega að slökkva eldinn. „Þetta var töluverður eldur og mikill reyk- ur af þessu þannig að við þurftum að nota reykkafara,“ sagði Guð- mundur Jónsson, vaktstjóri hjá SHS, en bætti við að engin hætta hefði verið á ferðum þar sem engin eiturefni voru í geymslunni. Geymslan er í eigu gámafélags og meðal þess sem var í henni var pappírsúrgangur og gamlar prent- vélar. Ljóst er að skemmdir á geymslunni voru töluverðar en að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvernig eldurinn kviknaði. Eldur kom upp í vörugeymslu HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 14. júlí sl. um að þrír menn sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi, til 25. ágúst nk. Mennirnir eru grun- aðir um aðild að stórfelldum inn- flutningi á fíkniefnum, rúmum 15 kg af amfetamíni og rúmum 10 kg af hassi, sem falin voru í bifreið sem flutt var inn til landsins frá Rotter- dam í Hollandi. Fíkniefnin fundust við tollgæslu hinn 3. apríl sl. en mennirnir voru teknir höndum tíu dögum síðar, eft- ir eftirlit lögreglu. Hið meinta brot þykir mjög alvarlegt enda um mik- ið magn af sterkum og hættulegum fíkniefnum að ræða, sem þykir nær öruggt að hafi átt að fara í sölu og dreifingu. Hæstiréttur staðfesti varðhald

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.