Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 17

Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 17 MINNSTAÐUR E N N E M M / S IA / N M 2 2 7 2 3 Nú n SKJÁEINUM í gegnum Digital Íslandærðu Bein útsending í kvöld Fyrir þá sem ekki geta vakað verður þátturinn sýndur kl. 21.30 á fimmtudaginn. Fylgstu með hvernig Magna gengur í úrslitunum í Rock Star: Supernova á miðnætti í kvöld. AKUREYRI hringurinn 24x24 vísar til þess að leiðin liggur yfir 24 tinda af og að markmið þess sem ætla alla leið sé að ljúka göngunni á 24 tímum. „Við höfum nú þegar skráð um 60 þátttakendur, en ég geri ráð fyrir að um 100 manns taki þátt þegar gangan hefst við Skíðastaði kl. 8 á laugar- dagsmorgun,“ segir Ragnar Sverr- isson einn þeirra sem skipulagt hefur viðburðinn. Vitað sé um marga sem hugsi sér mjög til hreyfings og ætli að vera með. Fyrsta gangan á fjallstindana 24 í Glerárdalshringnum var farin í fyrra og voru þátttakendur þá 46 talsins, 17 luku allri göngunni. „Það góða í þessu er,“ segir Ragn- ar, „að menn þurfa ekki endilega að ganga á alla tindana, enda er það heil- mikil áskorun, það er hægt að fara hálfan hring eða hvað sem er í raun- inni, allt eftir úthaldi hvers og eins.“ Flugmenn á sveimi og Súlnamenn fylgjast með Ragnar segir að samstarf sé nú við Björgunarsveitina Súlur á Akureyri, „þeir munu fylgjast vel með fólki á leiðinni, við verðum í fjarskipta- sambandi við þá félaga og eins munu þeir sjá um að aka þeim sem það vilja niður úr Fálkafelli að lokinni göngu,“ segir Ragnar og bætir við að Súlna- menn muni bjóða upp á heita súpu og kakó þegar á leiðarenda er komið. Flugmennirnir Arngrímur Jó- hannsson og Magnús Þorsteinsson fljúga yfir svæðið og henda út glaðn- ingi til göngumanna, vatni, orku- drykkjum og jafnvel sviðasultu. Á vefsíðunni glerardalur.is er að finna ýmsar upplýsingar um gönguna og þar er einnig hægt að skrá þátt- töku. Kynnt í útlöndum „Veðurspáin er mjög fín, það verð- ur glimrandi gott veður um helgina, þannig að við eigum von á miklum fjölda þátttakenda,“ segir Ragnar, en stór hluti göngumanna er af höf- uðborgarsvæðinu og víðar að af land- inu að hans sögn. „Við stefnum svo að því að markaðssetja þessa göngu í út- löndum, það eru gríðarlega margir sem hafa áhuga fyrir fjallgöngum af þessu tagi,“ segir Ragnar. ALLT stefnir í að um eitt hundrað þátttakendur verði í fjallamaraþon- inu Glerárdalshringurinn 24x24, nú um helgina, en þetta er öðru sinni sem til þess er efnt. Glerárdalshringurinn 24x24 er fé- lag sem stofnað er utan um göngu sem farin verður í júlí á hverju ári. Gengið er fjallahringinn sem myndar Glerárdal í Eyjafirði og eru 24 tindar á leiðinni. Samanlögð hækkun er um 4.000 metrar og heildarvegalengd leiðarinnar eru rétt tæpir 50 km. Hæsta fjall á leiðinni er Kerling 1.538 m.y.s. en það lægsta er Hlíðar- hryggur 1.100 m.y.s. Þess má geta 10 af þessum fjöllum eru yfir 1.400 metrar. Áhugaverð gönguleið fyrir fríska Þorvaldur Þórsson kom þessari erfiðu gönguleið á kortið sumarið 2003, en það var svo að tilstuðlan Ragnars Sverrissonar að hafist var handa við að skipuleggja og markaðs- setja Glerárdalshringinn sem nokk- urskonar fjallamaraþon. Glerárdals- hringurinn þykir áhugaverð gönguleið fyrir fríska göngumenn og talsvert krefjandi. Frá upphafi hefur það verið markmið skipuleggjenda að fleiri geti tekið þátt þótt þeir gangi ekki alla leið. Yfirskriftin Glerárdals- 24 tindar við Glerárdal gengnir á sólarhring Stefnir í að þátttakendur verði um 100 talsins Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is C     1 '      "                       ,"   #                  !  !"     "     #!$! %         & ! #      &  '   $%&$  '              (    (   !   )      0    ) % #!  ( ! ( * & !     ' +  &       # "     , "    - .!  #*   # #!- !     ! /    $%*& $ !      0"! 1 ++++++        )    #!-  1%    +,, $$$- $%.- $%&% $*-. $%.% $%/0 $%,$$,&/ $*.+ /00 $0&- $0-% $.0- $0$. $0.* $0,/ $,$0 %    9# * $ , 0 % .     Ánægðir göngugarpar Ragnar Sverrisson, Kristján Þórisson og Valtýr Hreiðarsson á Steinsfelli. Tignarlegt Þarna má sjá berg- gang, í kvöldsólinni, rétt sunnan við Syðri-Súlu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.