Morgunblaðið - 19.07.2006, Síða 21

Morgunblaðið - 19.07.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 21 UMRÆÐAN -o rð sku lu stan d a! Staf fyrir staf 569 7200 www.isprent.is Fyrir heimili, sumarhús, fyrirtæki o.fl. HALLDÓR Blöndal (HB) alþing- ismaður ritar grein 6. júlí síðastlið- inn í Morgunblaðið undir óskilj- anlegri yfirskrift: „Einkavæðing er brot- hætt orð.“ Hvernig geta orð verið brot- hætt? Hann var að svara grein eftir Þór Sigfússon og mun sennilega hafa átt við að einkavæðing felist ekki í því að svonefnd „skuggagjöld“ verði innheimt frá ríkinu af notkun umferð- armannvirkja, sem einkafyrirtæki hafa reist. Svo segir hann: „að við skulum ekki koma óorði á einkavæðinguna.“ Hann skrifar gegn aðferðinni, en svo skín í gegn að hann er á móti breikkun Hellis- heiðarbrautar á þann hátt og kemur að áhuga sínum á göngum undir Vaðlaheiði; dæmigert kjördæmapot. Eitt er pot í samgöngumálum en annað og alvarlegra er það í sjávar- útvegi. Í þeim efnum hefur HB oft komið við sögu og er orðsporið ekki til að guma af. Árið 2003, skömmu eftir kosningar, varð mikil umræða um svokallaða „línuívilnun“, en aðal- fundur Sjálfstæðisflokksins hafði samþykkt tillögu Guðmundar Hall- dórssonar í Bolungarvík um það efni eftir frækilega framgöngu hans. Einsýnt var því að flokkurinn hlyti að beita sér fyrir henni á þingi. Deilur urðu þar og kom HB við sögu og þótti ýmsum hann beita sér gegn ívilnuninni í harkalegri bar- áttu fyrir togaraútgerð á Akureyri og þá gegn hagsmunum smábyggða, því þær stunda mest línuveiðar. HB sagði línuívilnun minnka kvóta ann- arra útgerða og svar- aði gagnrýni sem frægt varð: „að það væri jafnvont fyrir Ólafsfjörð og Dalvík“! Ívilnunin var síðan samþykkt frekar naumlega á þingi. Flestum er nú ljóst, að togaraútgerð á Ak- ureyri hefur dregist mjög saman og munar mestu um að ÚA, síðan Brim, var selt og smám saman hefur kvótinn rjátlast burt. Á síðasta ári hafði botnfiskafli á Ak- ureyri minnkað um þriðjung bara frá 2003, en fyrir kosningar það ár kom þorskurinn við sögu í kosning- unum, en úthlutun afla varð mun hærri en Hafró lagði til og manna á milli var talað um „kosningakvóta“. Með línuívilnun var stigið lítið skref til veiðarfærastjórnunar og það er synd hversu fáir hafa skilið mik- ilvægi þessa og reyndust andstæð- ingar þess á þingi. Þjösnagangur utan þings Ritari þessa pistils (JB) var for- maður Varðar 1987 og var í fyr- irsvari fyrir e.f. tillögu ásamt flest- um formönnum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og Kópavogi, ásamt Heimdalli og Hvöt o.fl., í næstæðstu valdastofnun Sjálfstæðisflokksins: „Flokksráðs- og formannafundur Sjálfstæð- isflokksins haldinn á Selfossi 21.11.1987 ályktar, að núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi eigi að leggja niður við fyrsta tækifæri, en takmarka megi veiðisókn þess í stað þegar nauðsyn krefur með öðrum leiðum svo sem með veiðibönnum og veiðileyfasölu. Nú þegar verður að sníða verstu agnúa af gildandi kvótakerfi, sem heftir frumkvæði og atvinnufrelsi einstaklingsins. Miða ber reglur við þau markmið, að veiðiréttur verði ekki framseldur varanlega og án endurgjalds og að bættur rekstrargrundvöllur fiski- skipa, sem skapast vegna veiði- stjórnunar og takmörkunar, nýtist þjóðfélaginu í heild. Ennfremur verði séð til þess, að áhrif sjávar- útvegs á gengisskráningu verði minnkuð til hagsbóta fyrir aðra út- flutningsstarfsemi. Fundurinn bendir þó sérstaklega á í þessu sam- bandi, að koma verður í veg fyrir að veiði leggist niður eða verði mjög takmörkuð í einstökum lands- hlutum. Þess vegna þarf að miða sölu veiðileyfa eða veiðikvóta við hagsmuni byggðanna.“ – Tillagan fékkst ekki rædd né afgreidd vegna endurtekins yfirgangs HB ásamt Tómasi I. Olrich, varaþingmanni. JB mótmælti og sagði um að ræða mál flutt í nafni allra helstu félaga flokksins á höfuðborgarsvæðinu, en fundarstjórinn, Þorsteinn Pálsson formaður flokksins, tók því fálega og lét málið ekki koma til afgreiðslu. Vissulega eru nokkur efnisatriði í umræddri tillögu, sem hvert og eitt yrði að taka fyrir sérstaklega. – Þetta er rifjað upp nú þar sem HB er enn við sama heygarðshornið og til þess vís að stöðva framkvæmdir á Hellisheiði vegna kjördæmapots og án innsæis í mikilvægi mála, rétt eins og í sjávarútvegi. Þegar litið er til þess, að þorskafla þarf að minnka niður í 150 þ. tonn, að sögn forstjóra Hafró, og að horfur fyrir þorsk- veiðar eru mjög slæmar og þær komnar niður í þriðjung af því sem þær áður voru, má vera ljóst, að svona vinnubrögðum á þingi verður að linna. Í ljósi reynslunnar og þeirrar þekkingar, sem nú liggur fyrir um togveiðar á alþjóðavísu og afla- kvótakerfi með framsalsrétti, sem og þess öngstrætis sem þorskveiðar við Ísland eru nú komnar í, er ljóst að betra hefði verið að fara faglega í saumana á nefndum málum. Þá voru krossgötur og ástæða til að staldra við. Í þessu máli var ekki tekist bara á um skiptingu fjöreggs- ins heldur miklu fremur um aðferðir til að hlúa að því og styrkja það. Deilur um kvóta og útdeilingu hans á þingi líkjast æ meir dæmisögu Esops um krákuna og refinn, sem gátu ekki komið sér saman um skiptingu á ostbita og fengu apann til þess verks. Einmitt ætluð einka- væðing í fiskveiðistjórnun er nú að verða þorskinum að fjörtjóni vegna flausturs og áróðurs fyrir togveið- um. Nær væri að segja að einka- væðing eigi illa við brothættan þorskinn. Mannorð er brot- hætt en orðin ekki Jónas Bjarnason fjallar um fiskveiðikvóta og gerir athugasemd við grein Halldórs Blöndal ’Deilur um kvóta og út-deilingu hans á þingi líkj- ast æ meir dæmisögu Esops um krákuna og refinn, sem gátu ekki komið sér saman um skiptingu á ostbita og fengu apann til þess verks. ‘ Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.