Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 30

Morgunblaðið - 19.07.2006, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar - Einn vinnustaður Stýrihópur um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir eldri borgara í Reykjavík óskar eftir samstarfi Af þessu tilefni er auglýst eftir samstarfsaðilum varðandi uppbyggingu búsetuúrræða fyrir eldri borgara í Reykjavík. Einkum er horft til samstarfs við sjálfseignarstofnanir, félög eldri borgara, samtök launþega og aðra hagsmunaaðila sem hafa reynslu af uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu við eldri borgara. Viðbrögð við auglýsingu þessari sendist sviðsstjóra velferðarsviðs, Láru Björnsdóttur, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, fyrir 27. júlí 2006. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa ákveðið að vinna að auknum og bættum búsetuúrræðum fyrir eldri borgara í Reykjavík á komandi kjörtímabili. Lögð verður m.a. áhersla á eftirtalin forgangsverkefni: ● Uppbyggingu þjónustuíbúða og/eða öryggisíbúða í tengslum við þjónustukjarna. ● Uppbyggingu söluíbúða og þjónustu- og/eða öryggisíbúða með þjónustukjörnum þaðan sem hægt er að veita fjölþætta heimaþjónustu. ● Byggingu hjúkrunarheimila í eldri og nýjum hverfum borgarinnar. Velferðarsvið Raðauglýsingar 569 1100 Listmunir Listmunir Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð. Fyrir viðskiptavini leitum við að góðum verkum eftir Jóhannes S. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Þórarin B. Þorláks- son, Nínu Tryggvadóttur, Louisu Matthíasdóttur, Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Kristínu Jónsdóttur, Jón Stefánsson, Jóhann Briem og Kristján Davíðsson. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14, Sími 551 0400. Til sölu Bækur til sölu. Biskupasögur 1-2, 1858, Árbækur Espolin 1-12 lp., Sturlungasaga 1-2, 1-3, Safn fræðafélagsins 1-13, Borgfirskar æviskrár 1-6, Nokkrar Árnesingaættir, Örnefni í Saurbæjarhreppi, Byggðasaga Austur Skaftafellssýslu 1-3, Manntal 1801, Manntal 1816, Jarðartal á Íslandi 1847, Frumvarp til nýrrara jarðabókar fyrir Ísland 1848, Sóknarlýsing Vestfjarða 1-2, Sagnaþættir landpóstanna 1-3, Austantórur 1-3, Hvað er bak við myrkur lokaðra augna, Ferðaféag Íslands 1928 -81 ib, frumprent, Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar 1-16, Ættir austfirðinga 1-9, Ferðabók 1-4, Landfræðisaga Íslands 1-4, Lýsing Íslands 1-4, Þorvaldur Thoroddsen, Eldfjallarit ÞTH, 1925, Homopatísk lækninga- bók 1882, Svarfdælingar 1-2, Flateyjarbók 1-4, Saga alþingis 1-5, Rauður loginn brann st. st., Nokkrar sögur Laxness, Kvennafræðarinn Elín Briem, 3 pr. Fingrarím 1838, Myndir úr Strandasýslu, Letters from high latitudes, Ísland, Walter Iwan 1935, Prentlistin 500 ára, Árbók Finns Jónssonar 1926, Kvöldvökurnar 1794 (1848), Roðskinna, Með flugu í höfðinu, Lífsgleði á tréfæti, By fell and fjord (Oswald), Skaftfellskar þjóðsögur, Íslensk fornrit, 22 st., skinn, Kortasaga Íslands 1-2, Akranes 1-11. Upplýsingar í síma 898 9475. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um- hverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Öskjuleið (F 88) um Lindaá í Herðubreiðar- lindum í Skútustaðahreppi. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er ein- nig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 19. ágúst 2006. Skipulagsstofnun. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Raðauglýsingar augl@mbl.is FRÉTTIR SEGLSKIPIÐ Sedov leggst að Grandabakka í Reykjavíkurhöfn í dag, 19. júlí, en ekki á föstudag eins og sagði ranglega í frétt í blaðinu í gær. Áhugasömum gefst kostur á að skoða skipið á morgun milli kl. 10.00 og 22.00. Samanlögð stærð segla skipsins er enn fremur 4.195 fer- metrar en ekki um fjórir ferkíló- metrar. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Nafn ljósmyndara NAFN ljósmyndarans Elísabetar Vilmarsdóttur vantaði við mynd sem hún tók og birtist með frétt í blaðinu sl. mánudag undir fyrirsögninni „Fyrsta gegnumbrotið í aðalgöngum við Kárahnjúka“. Beðist er velvirð- ingar á þessu. LEIÐRÉTT Seglskipið Sedov STRÆTÓ bs segir í yfirlýsingu sinni að um misskilning sé að ræða hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands að ferðatími námsmanns frá Selás- hverfi að Háskóla Íslands muni tvö- faldast með þeim breytingum á þjónustu Strætós sem nýverið voru kynntar. „Með breytingum á tímatöflum verður biðtími við tengingu á milli leiðar 19 og stofnleiðar 6 að há- marki 3 mínútur. Ferðatími náms- manns á milli Árbæjar- og Selás- hverfis og Háskóla Íslands mun því lengjast sem því nemur. Þá verður þjónustutími leiðar 19 lengdur til miðnættis, til samræmis við akstur á stofnleiðum. Það er því misskilningur í álykt- un SHÍ, að ferðatími námsmanns frá Seláshverfi að Háskóla Íslands muni tvöfaldast með þeim breyt- ingum á þjónustu Strætós sem ný- verið voru kynntar. Í tilkynningu sem Strætó bs sendi frá sér sl. föstudag vegna breytinga á þjónustu vegna hallareksturs sagði m.a.: „Til að vega upp á móti fækkun ferða á stofnleiðum verður aukavögnum bætt við á mestu ann- atímum. Stofnleið S5 verður lögð niður en breytingar gerðar á þjón- ustutíma leiðar 19 til mótvægis. Breytingarnar, sem kynntar voru í síðustu viku, taka gildi með vetraráætlun sem hefst þann 20. ágúst. Þó mun akstur á leið 19 til miðnættis hefjast þegar þriðjudag- inn 8. ágúst,“ segir í yfirlýsingunni. Ferðatími tvöfaldast ekki hjá námsmanni STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands lýsir yfir óánægju sinni með þá ákvörðun borgaryfirvalda að draga úr þjónustu Strætó bs. með því að leggja niður stofnleið 5 og fækka ferðum á álagstímum. Þetta kemur fram í ályktun sem Stúdentaráðs- .Þar segir jafnframt að þessi ákvörð- un bitni sérstaklega illa á náms- mönnum en þeir séu stór hluti af viðskiptavinum Strætó bs. „Því hefur verið haldið fram að borgarbúar hafi „valið“ einkabílinn fram yfir almenningssamgöngur. SHÍ er því ósammála og telur að borgaryfirvöld hafi með stefnu sinni í skipulags- og samgöngumálum á undanförnum áratugum „valið“ bíl- inn fyrir borgarbúa. Borgaryfirvöld hafa í raun takmarkað möguleika borgarbúa til þess að ferðast með öðrum hætti en með einkabíl og ekki sýnt lausnum á sviði almennings- samgangna nægilegan áhuga,“ segir í ályktuninni. Þar segir einnig að borgaryfir- völd ættu að standa við gefin loforð og kanna möguleika á bættri þjón- ustu og lækkun á fargjaldi handa námsmönnum. Lýsa yfir óánægju vegna Strætós bs. SAMBAND ungra sjálfstæðismanna (SUS) fagnar þeim sjónarmiðum sem fram koma í nýútkominni skýrslu formanns matvælanefndar forsætis- ráðherra um að afnám tolla og ann- arra innflutningshafta sé besta leiðin til að lækka matvælaverð hér á landi. SUS harmar hins vegar að samstaða um þær tillögur hafi ekki náðst í nefndinni vegna andstöðu forræðis- og forsjárhyggjuafla sem þar áttu fulltrúa sína, eins og komist er að orði í ályktun SUS vegna skýrslu formanns matvælanefndar forsætisráðherra. Þar segir jafnframt að þær til- lögur sem fram koma í skýrslunni séu skref í rétta átt en gangi þó allt of skammt að mati ungra sjálfstæð- ismanna. „Samband ungra sjálfstæðis- manna skorar á ríkisstjórnina að fylgja vinnu nefndarinnar eftir með niðurfellingu á tollum og öðrum inn- flutningshöftum sem enn hvíla á inn- fluttri matvöru. Samhliða þarf að gera grundvallarbreytingar á ís- lensku landbúnaðarkerfi og skapa ís- lenskum bændum svigrúm til að keppa á frjálsum markaði. Ríkisaf- skipti hafa aldrei haft jákvæð áhrif á neina atvinnugrein og það á ekki síst við um íslenskan landbúnað,“ segir m.a. í ályktuninni. Fagna sjónarmið- um formanns matvælanefndar HÓPUR japanskra þingmanna var á ferð hér á landi í síðustu viku og var tilgangurinn með ferð þeirra m.a. að kynna sér einkavæðingu hér á land. Óskuðu þingmennirnir sérstak- lega eftir að fræðast um verklag við sölu á eignarhlut ríkisins í Símanum sem fram fór á síðasta ári. Þing- mennirnir eiga allir sæti í allsherjar- nefnd fulltrúadeildar japanska þingsins, en undir hana heyra m.a. póst- og fjarskiptamál. Með þingmönnunum í för voru embættismenn frá innanríkis- og fjarskiptaráðuneyti Japans, auk starfsmanna japanska þingsins. Áttu þeir fund í fjármálaráðuneytinu með Baldri Guðlaugssyni ráðuneyt- isstjóra sem sæti á í einkavæðing- arnefnd, og Stefáni J. Friðrikssyni, sérfræðingi í fjármálaráðuneytinu og starfsmanni einkavæðingarnefndar. Fræðst um einka- væðingu á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.