Morgunblaðið - 19.07.2006, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“
eeee
V.J.V, Topp5.is
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR.
OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS.
BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
S.U.S. XFM 91,9
„...EINHVER BESTA
AFÞREYING SUMARSINS...“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA
KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND
HLAÐIN SPENNU OG
MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
OVER THE HEDGE ÍSL TAL. kl. 6 - 8
THE LAKE HOUSE kl. 10
SUPERMAN RETURNS kl. 6 - 9 B.I. 10
SUPERMAN kl. 5:30 - 8:40 - 10:30 B.I. 10.ÁRA.
OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 6 - 8 - 10:10
THE BREAK UP kl. 6 - 8:15 - 10:40
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 5:50
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 8:15
KEEPING MUM kl. 10:30 B.I. 12.ÁRA.
OVER THE HEDGE ÍSL TAL kl. 6 - 8
THE BREAK UP kl. 10.10
SUPERMAN kl. 6 - 9
ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
Fyrrum strandvarða-stjarnan Carmen
Electra og eiginmaður
hennar, rokkarinn Dave
Navarro, hafa tilkynnt að
þau ætli að skilja. Þau
taka fram að þau séu góð-
ir vinir og skilji í góðu.
Þau giftu sig í nóv-
ember 2003 og gátu
áhorfendur MTV-sjónvarpsstöðvarinnar fylgst með
athöfninni í þætti þeirra hjóna, „Til Death Do Us
Part“. Electra, sem er 34 ára, var um skeið gift
körfuboltastjörnunni Dennis Rodman.
Navarro, sem hefur spilað á gítar með hljómsveit-
unum Jane’s Addiction og Red Hot Chili Peppers,
er nú gestadómari í raunveruleikaþættinum Rock
Star: Supernova.
Fólk folk@mbl.is
Eins og allir vita reyndi mik-ið á Brad Pitt á síðasta ári
þegar hann skildi við Jennifer
Aniston til að vera með Angel-
inu og ganga börnum hennar
tveimur, Maddox og Zahara, í
föðurstað. Hann segist hins
vegar vera mjög hamingju-
samur þessa dagana eftir að
honum og Angelinu Jolie fædd-
ist dóttirin Shiloh. Gildismat hans hafi fyrir vikið
breyst mikið. „Það er alveg ótrúlegt að eignast
börn. Það breytir því algjörlega hvernig maður
horfir á heiminn. Maður hættir að einblína á sjálfan
sig, og fyrir það er ég þakklátur.“ Þetta sagði leik-
arinn góðkunni í spjalli við NBC á dögunum. „Sko.
Maður getur skrifað bók eða málað mynd eða
teiknað eða gert mynd en það að eignast börn er
það ótrúlegasta sem ég hef nokkurn tíma gert á
ævinni. Bara ef ég fæ hana litlu (Shiloh) til að ropa,
finnst mér ég hafa afrekað eitthvað.“
KVIKMYNDIN Ultraviolet gerist síðla á 21. öldinni þegar ný teg-
und manna sem nefnast „Hemophages“ hefur sprottið fram. Þessi
nýja tegund hefur lent í genabreytingu sem gerir það að verkum að
hún er fljótari, þolnari og mun greindari en hin almenna mann-
skepna
Stjórnvöldum til mikils ama er tegundin hins vegar sífellt að
breytast sökum reglulegrar stökkbreytingar sem hún verður fyrir
og því er ákveðið að útrýma hinu genabreytta kyni. Kona af Hemop-
hages-kyni ákveður þó að berjast til varnar sinni tegund og ná fram
réttlæti gagnvart þeim sem breyttu lífi hennar fyrir fullt og allt.
Jafnvel þótt margir gætu haldið annað, er þessi kvikmynd ekki
hluti af langri runu mynda gerðra eftir teiknimyndasögu. Leikstjór-
inn Kurt Wimmer byggir myndina á kvikmyndinni Gloria eftir John
Cassavetes frá árinu 1980.
Það er Milla Jovovich sem fer með aðalhlutverkið í myndinni, en
auk hennar leika í henni m.a. Cameron Bright, Nick Chinlund og
William Fichtner.
Frumsýning | Ultraviolet
Hefnd hinna stökkbreyttu
Milla Jovovich er hér komin í annað kvenhetjuhlutverkið.
ERLENDIR DÓMAR
Los Angeles Times 40/100
The New York Times 30/100
The Hollywood Reporter 20/100
Variety 20/100
New York Post 0/100
ÞAÐ er komið vor og Verne og félagar hans í skóginum, vakna eftir
langan vetur. Sér til mikillar hrellingar sjá þeir að undarlegur grænn
veggur hefur risið í miðjum heimkynnum þeirra á meðan þeir lágu í
dvala. Þvottabjörninn RJ hefur skýringu á reiðum höndum; handan
veggsins er veröld, betri en sú sem þeir sjálfir heyra til þar sem und-
arleg dýr sem kalla sig mannverur, lifa til að borða en ekki öfugt.
Verne er einhverra hluta vegna tortrygginn á útskýringu RJ og legg-
ur til að vinir hans og fjölskylda haldi sig „réttu“ megin við limgerðið.
RJ lætur þó ekki segjast og sannfærir dýrin í skóginum um að þau
geti notið góðs af því sem hinn heimurinn hefur upp á að bjóða. Af illri
nauðsyn ákveða Verne og RJ að bindast vináttuböndum því að það
mun þarfnast samvinnu að komast af við hlið þessa nýja heims sem
mannfólkið kallar „úthverfi“.
Myndin er bæði sýnd með ensku og íslensku tali og í aðal-
hlutverkum í ensku útgáfunni eru: Bruce Willis, Garry Shandling,
Steve Carrell, William Shatner, Catherine O’Hara, Eugene Levy,
Wanda Sykes, Nick Nolte, Thomas Hayden Church og Avril Lavigne.
Þeir íslensku leikarar sem ljá persónunum raddir sínar eru: Magn-
ús Jónsson, Harald G. Haralds, Rúnar Freyr Gíslason, Inga María
Valdimarsdóttir, Björn Thorarensen, Ólafur Darri Ólafsson og Valdi-
mar Flygenring.
Frumsýning | Over the Hedge
Öll dýrin ferðast um eyðimerkur úthverfanna í Over the Hedge.
Handan limgerðisins
ERLENDIR DÓMAR
The Hollywood Reporter 70/100
The New York Times 40/100
Washington Post 70/100
Variety 60/100
Roger Ebert 75/100
Dúettinn Síbylur, skapandi sumarhópur hjáHinu húsinu, heldur lokatónleika sína
fimmtudaginn 20. júlí klukkan 20 á Kaffi Hljóma-
lind. Síbylur hefur í sumar unnið með ýmis stef
sem í gegnum árin hafa heyrst í útvarpi, sjónvarpi
og kvikmyndum og verða tónleikarnir yfirferð á af-
rakstri sumarsins. Meðlimir Síbyls, þeir Finnur og
Andri, fá til liðs við sig marga góða gesti, flesta
þeirra tónlistarfólk úr öðrum sumarhópum Hins
hússins. Aðgangur er ókeypis.