Morgunblaðið - 09.08.2006, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GREIÐA SKATT AF FÉ
Fjármagnstekjur verða sífellt
stærri hluti skattgreiðslna Íslend-
inga og á síðasta ári voru 2.170 fram-
teljendur sem höfðu eingöngu fjár-
magnstekjur.
Hraðakstur um helgina
Tæplega 400 ökumenn óku of
hratt í gegnum Hvalfjarðargöngin
um verslunarmannahelgina og náð-
ist brot þeirra á hraðamyndavélar
og eiga þeir von á sektum. Þá stöðv-
aði lögreglan í V-Skaftafellssýslu
100 manns fyrir hraðakstur.
Spilliefni urðuð
Líklegt er að spilliefni hafi verið
urðað á einhverjum þeirra urðunar-
staða sem nú tilheyra þéttbýli
Reykjavíkur. Sums staðar hefur ver-
ið byggt ofan á urðunarstaði án þess
að fjarlægja gömul úrgangsefni.
Ástandið í Darfur versnar
Samkomulag, sem náðist í maí og
átti að binda enda á átökin í Darfur-
héraði í Súdan, hefur þess í stað leitt
til átaka milli fylkinga uppreisnar-
manna í héraðinu, að sögn embættis-
manna Sameinuðu þjóðanna og frið-
argæsluliðs Afríkusambandsins.
Castro að hressast
Embættismenn á Kúbu segja að
nokkur tími, vikur eða jafnvel mán-
uðir, muni líða áður en Fidel Castro
forseti taki á ný við stjórnartaum-
unum en hann fól þá bróður sínum,
Raul, fyrir nokkru vegna veikinda.
Lög gegn kynjamismun
Forseti Portúgals, Anibal Cavaco
Silva, hefur samþykkt lög gegn
kynjamismunun en samkvæmt þeim
mega ekki meira en tveir þriðju
frambjóðenda stjórnmálaflokka vera
af sama kyni.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 21
Viðskipti 12 Forystugrein 22
Úr verinu 13 Minningar 24/29
Erlent 14/15 Myndasögur 32
Minn staður 16 Dagbók 32/35
Höfuðborgin 117 Víkverji 32
Akureyri 17 Velvakandi 33
Suðurnes 18 Staður og stund 34
Landið 18 Bíó 38/41
Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42
Menning 20, 36/41 Veður 43
Umræðan 21/24 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
„VIÐ erum dreifð um allt núna og
engin sérstök forysta fyrir hópnum
þó við höfum lauslegt samband inn-
byrðis,“ sagði einn breskra mótmæl-
enda Kárahnjúkavirkjunar í samtali
við Morgunblaðið á Egilsstöðum í
gærkvöldi. „Við höfum rætt það að
halda einhvers konar sameiginlegan
fund og ráða ráðum okkar, en af því
hefur ekki orðið ennþá.“
Um 50 mótmælendur af 17 þjóð-
erni eru nú á Egilsstöðum og víðar á
Héraði eftir að lögregla leysti upp
mótmælabúðirnar við Lindur. Aðrir
höfðu yfirgefið búðirnar í kjölfar að-
gerða við Desjarárstíflu, þegar 17
mótmælendur voru fluttir þaðan til
yfirheyrslu á Egilsstöðum og sleppt
að þeim loknum. Eitthvað af fólkinu
er farið til Reykjavíkur, hluti af
hópnum fer út með Norrönu á morg-
un og búast má við að aðrir þeir út-
lendingar sem eftir verða fari fljót-
lega af landi brott.
Viðmótið hefur gjörbreyst
Viðmælendum verður tíðrætt um
að lögregla hafi gengið harkalega
fram gagnvart fólki sem tengist mót-
mælunum á einhvern máta.
„Framkoma löggæslunnar hefur
gjörbreyst frá því í fyrrasumar, en
þá tók ég einnig þátt í tjaldbúðum
mótmælenda við Kárahnjúka,“ segir
einn Bretanna. „Í þeim löndum sem
við komum frá ríkir lýðræði þar sem
samfélagið gefur lögreglu ákveðið
vald sem byggt er á lagasetningum
sem samfélagið hefur ákvarðað. Því
miður verður að segjast eins og er að
lögreglan hér hefur komið fram við
okkur af fádæma hörku og virðing-
arleysi, þeir bera ekki virðingu fyrir
okkur sem borgurum, gestum í landi
sínu eða sem manneskjum. Lögregl-
an virðist telja að hún geti í fram-
göngu sinni sýnt ruddaskap og ein-
strengingshátt, neitað að gefa
skýringar á aðgerðum sínum og rétt-
lætt framkomu sína með því að við
séum á einhverjum stöðum sem við
eigum ekki að vera á. Við munum
kæra þá lögreglumenn sem hafa
beitt okkur líkamlegu ofbeldi og
ræða þessi mál við fjölmiðla í okkar
heimalöndum þegar þangað verður
komið. Við erum bæði í sambandi við
íslenska lögmenn og lögmenn heima
og munum ekki láta hér við sitja,“
sagði Bretinn, sem ekki vildi láta
nafns síns getið.
Rúmlega 30 verið handteknir
Lögregla hefur nú handtekið og
látið lausa eftir yfirheyrslur um 30
mótmælendur það sem af er og verk-
takarnir Impregilo og Suðurverk
kært 14 vegna truflana á starfsemi á
virkjunarsvæðinu. Lögregluyfirvöld
eystra telja aðgerðir til að varna
ónæði á virkjunarsvæðinu fullkom-
lega réttmætar og vitna til 15. grein-
ar lögreglulaga í því sambandi, en
Ragnar Aðalsteinsson hrl. bendir á
að lögregla hafi gengið allt of langt í
aðgerðum sínum og brotið á tjáning-
arfrelsi, fundafrelsi, ferðafrelsi og
skoðanafrelsi fólks og traðkað þann-
ig á lýðréttindum þess. Ekki er vitað
til að kærur hafi borist frá mótmæl-
endum enn sem komið er, hvorki ís-
lenskum né erlendum.
Mikil reiði meðal mótmælenda í garð löggæslunnar vegna meints harðræðis
„Erum dreifð um allt“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þessi hópur var nýlega farinn úr tjaldbúðum mótmælenda við Lindur
áleiðis til Egilsstaða þegar lögregla leysti þær upp.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Hlemms og Lækjartorgs í nýrri
ferð sem nefnist „surviving
Reykjavik“!
Alls taka um 250 skátar þátt á
mótinu. Skátarnir eru á aldrinum
BANDALAG íslenskra skáta stend-
ur nú í þriðja sinn fyrir alþjóðlega
skátamótinu NORDJAMB sem sett
var við hátíðlega athöfn í Perlunni
í Reykjavík í gær. Þar voru mættir
skátarnir sem taka þátt í mótinu
og mótsstjórnin ásamt skátahöfð-
ingja og aðstoðarskátahöfðingja.
Dagskrá mótsins verður með
nokkuð óhefðbundnum hætti en
fyrstu fjóra dagana taka skátarnir
þátt í skipulögðum ferðalögum um
allt land. Einhverjir munu róa um
Ísafjarðardjúp á kajökum, aðrir
klífa tinda í nágrenni Skaftafells-
jökuls og þá munu sumir ganga
Laugaveginn milli Landmanna-
lauga og Þórsmerkur en aðrir
munu ganga Laugaveginn milli
15–30 ára og koma frá tíu mismun-
andi löndum og eru flestir þeirra
frá Englandi en sumir þeirra eru
komnir alla leið frá Hong Kong.
Mótið stendur til 13. ágúst.
Skátar frá
tíu löndum
í Perlunni
Morgunblaðið/Eyþór
KONAN sem lést í umferðar-
slysi á Suðurlandsvegi við
Langsstaði aðfaranótt mánu-
dagsins sl. hét Rósa Björg Guð-
mundsdóttir, til heimilis í Vall-
arási 1 í Reykjavík.
Rósa Björg var 36 ára, fædd
4. apríl 1970, hún var ógift og
barnlaus.
Lést í um-
ferðarslysi
á Suður-
landsvegi
Um 2.200
skráðir í
maraþon
SKRÁNING í Reykjavíkurmaraþon
Glitnis gengur vonum framar og síð-
degis í gær höfðu 2.214 manns skráð
sig í hlaupið en 9. ágúst í fyrra voru
skráningarnar orðnar 787.
Útlit er fyrir að þátttökumet verði
slegið í erfiðustu keppnivegalengd-
unum. Nú þegar hafa 425 skráð sig
til keppni í maraþoni en í fyrra luku
306 maraþoni. Þá hafa 569 manns
skráð sig í hálfmaraþon. Skráning í
Latabæjarmaraþon, sem er 1,5 km
hlaup fyrir börn, fer ágætlega af stað
og hafa 87 börn nú þegar verið skráð
til leiks. Þá hafa stórir hlaupahópar
frá útlöndum tilkynnt þátttöku.
FÆRST hefur í aukana að fyrirtæki
og einstaklingar komi upp auglýs-
ingum meðfram vegum t.d. með því
að leggja stórum bílum eða vinnu-
vélum og koma þar fyrir auglýsingu,
að mati Guðbrands Sigurðssonar, að-
alvarðstjóra umferðardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann tekur þó
fram að þetta byggist á tilfinningu en
ekki sérstökum rannsóknum.
Þeir vegfarendur sem óku Vest-
urlandsveginn um helgina urðu til að
mynda varir við að nokkrum öku-
tækjum og vinnuvélum með auglýs-
ingum hafði verið lagt skammt frá
veginum.
Björn Ólafsson, forstöðumaður
þjónustudeildar Vegagerðarinnar,
segir að almennt sé óheimilt að setja
upp auglýsingar með þessum hætti.
Við alla vegi sé svonefnt veghelg-
unarsvæði sem geti verið allt að 30
metra frá veginum og segir Björn að
þar megi ekki setja upp slíkar auglýs-
ingar. Dæmi séu um að menn reyni
að fara framhjá þessu og haldi því
fram að þeir hafi orðið að leggja bíl-
um sínum í vegkantinum. Utan veg-
helgunarsvæða segir Björn að við
taki landsvæði sem eigi undir nátt-
úruverndarlög og sömu reglur gildi
því, óheimilt sé að koma fyrir auglýs-
ingum þar.
Hann segir að það falli undir starf-
svið lögreglunnar að reglum sé fylgt
en Vegagerðin hafi reynt að koma til
móts við þá sem vilji auglýsa með því
að bjóða upp á aðstoð við hönnun á
svokölluðum þjónustuskiltum. Þar sé
unnt að auglýsa ýmiss konar þjón-
ustu sem fyrirtæki og einstaklingar
bjóða upp á, t.d. tjaldstæði, veiðileyfi
og gistingu.
Fátítt að kvartanir berist
Guðbrandur Sigurðsson segir að
þótt almennt sé óheimilt að vera með
slíkar auglýsingar við vegi geti lög-
reglan ekkert gert þegar þeim sé
komið fyrir á einkalóðum. Um
helgina hafi raunin t.a.m. verið sú að
auglýsingum var komið fyrir inn á
einkalóðum manna skammt frá veg-
inum og segir hann að lögreglan geti
þá ekkert gert, nema landeigandi
kvarti. Hann segir að þetta hafi færst
í aukana og svo virðist sem þessir
óhefðbundnu auglýsendur reyni að
stíla inn á helgarumferðina út úr
bænum.
„Þetta er ekki æskileg þróun enda
bannað að auglýsa með þessum
hætti,“ segir Guðbrandur.
Auglýsingar í vegköntum
eru algengari en áður
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is