Morgunblaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.lyfja.is
- Lifið heil
FLJÓTVIRKT VERKJALYF VIÐ M.A. TÍÐAVERKJUM.
INNIHELDUR ENGIN ÁVANABINDANDI EFNI.
VoltarenDolo
FÆST ÁN LYFSEÐILS
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
LY
F
33
20
4
06
/2
00
6
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn
Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði
Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd
Selfossi - Laugarási
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem
höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum skal
leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu
að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgu-
eyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði
við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfja- fræðings um milliverkanir við önnur
lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
GRÆNFRIÐINGAR í Noregi hafa
lýst yfir stuðningi við orð Stefáns
Skjaldarsonar, sendiherra Íslands í
Noregi, um að íhuga skuli hvort
herða skuli aðgerðir gegn sjóræn-
ingjaveiðum. Í tilkynningu frá
Grænfriðungum eru Íslendingar
hvattir til dáða í afstöðu sinni gegn
sjóræningjaveiðum og að tími sé
kominn til að loka smugum á alþjóð-
legum hafsvæðum þar sem henti-
fánaskip stundi sjórán sitt.
Stefán Skjaldarson flutti í fyrra-
dag ræðu á ráðherrafundi um ólög-
legar fiskveiðar í Þrándheimi þar
sem hann sagði að ef þær aðferðir
sem Íslendingar hafa notað til að
koma í veg fyrir sjóræningjaveiðar
færu ekki að skila árangri yrði að
íhuga harðari aðgerðir.
Stefán sagði við fréttavef Morg-
unblaðsins í gær að íhuga þyrfti
hertar aðgerðir gegn hentifánaveið-
um því þær gætu valdið hruni fisk-
stofna. Sem dæmi nefndi hann karfa-
stofninn sem væri í talsverðri hættu
og sagði sjóræningjaveiðar á
Reykjaneshrygg og í Barentshafi
talsvert vandamál.
Grænfriðungar taka einnig sér-
staklega undir þau orð Stefáns að Ís-
lendingar telji sér nú heimilt að beita
neyðarrétti gegn ólöglegum karfa-
veiðum hentifánaskipa.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra sagði í samtali við
fréttavef Morgunblaðsins að aug-
ljóst væri að skipin sem stunduðu
þær veiðar væru að notfæra sér göt
sem gerði það að verkum, að þau
gætu stundað veiðar þrátt fyrir mót-
mæli og aukið eftirlit. Jafnframt
sagði Einar að ákvörðun hefði ekki
verið tekin um í hverju auknar að-
gerðir gætu falist en að ef aðildar-
þjóðir Norður-Atlantshafsfiskveiði-
ráðsins tækju höndum saman myndi
árangur nást.
Grænfriðungar styðja bar-
áttu gegn sjóræningjaveiðum
Sjávarútvegsráðherra segir að
íhuga verði hertar aðgerðir
HLJÓMSVEITIN Mezzoforte
mun koma fram við útibú Lands-
bankans í Austurstræti á menn-
ingarnótt í Reykjavík 19. ágúst nk.
„Þetta verður í fyrsta skipti í 20 ár
sem gamli Garden Party-hópurinn
kemur saman,“ segir Gunnlaugur
Briem trommuleikari en auk hans
eru í hópnum Eyþór Gunnarsson,
Friðrik Karlsson, Jóhann Ás-
mundsson og Kristinn Svavarsson
en hinir fjórir fyrstnefndu stofn-
uðu hljómsveitina árið 1977.
„Við ákváðum að gera þetta til
að ögra sjálfum okkur og einnig af
því að við munum hafa gaman af
þessu. Það var sérstök stemning í
þessum hópi og það er hálfgert
kraftaverk að hann skyldi nást
saman,“ segir Gunnlaugur. „Við
munum taka vinsælustu lögin og
miðað við fyrri reynslu myndi ég
áætla að það yrði alveg pakkað
þarna. Þarna munu allir mæta sem
höfðu áhuga á okkur á sínum tíma
þegar það var sveifla á okkur,“
segir hann og bætir við að hljóm-
sveitin hafi þó spilað talsvert und-
anfarin ár en með annarri uppstill-
ingu.
Friðrik ekki með síðan ’96
Tíminn sem Gunnlaugur vísar í
hófst í raun með útgáfu lagsins
Garden Party sem náði 17. sæti
breska smáskífulistans árið 1983. Í
kjölfarið komst svo lagið inn á vin-
sældalista í mörgum Evrópu-
löndum og Asíu. Liðsmenn sveit-
arinnar fluttu búferlum til
Englands og hófu hljómleikaferðir
um Evrópu auk þess að fara til
Japans og víðar. Síðan þá hafa liðs-
mennirnir einnig sinnt ýmsum öðr-
um verkefnum og það er eflaust
erfitt að finna tíma sem hentar öll-
um.
„Friðrik hefur ekki spilað með
okkur síðan 1996, eða í 10 ár, en
hann hefur þó alltaf verið með-
limur í sveitinni þótt hann hafi ekki
spilað á tónleikum,“ segir Gunn-
laugur sem virðist hress yfir því að
gamla uppstillingin verði nú brátt
að veruleika aftur.
Spurður að því hver hafi verið
kveikjan að hugmyndinni segir
Gunnlaugur að menn hafi rætt um
að gera DVD-disk með tónleika-
upptökum. „Þessir tónleikar nú í
ágúst gætu orðið byrjunin á því
ferli og mögulega gætum við tekið
diskinn upp á næsta ári,“ segir
hann.
Mezzoforte kemur fram á menningarnótt
„Gamli Garden Party-hópurinn“
Upprunalegir meðlimir Mezzoforte: Gunnlaugur Briem, Eyþór Gunn-
arsson, Friðrik Karlsson og Jóhann Ásmundsson.
MAÐURINN sem leitað var að í
Skaftafelli fannst kaldur og þrek-
aður, en annars heill á húfi, á
Skeiðarársandi á áttunda tím-
anum í gærmorgun. Björg-
unarsveitarmenn úr Slysavarna-
félaginu Landsbjörg fundu
manninn eftir að slóð hans fannst
á söndunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbjörg voru um 60 björg-
unarsveitarmenn við leit í alla
fyrrinótt en þegar birti til var
settur mikill þungi í hana og tóku
á milli 160 til 170 björgunarsveit-
armenn þátt í leitinni, fótgang-
andi og á fjór- og sexhjólum, auk
svæðisleitar- og sporleitarhunda.
Einnig var stærri þyrla Land-
helgisgæslunnar, Líf, við leit á
svæðinu.
Ekki hafði spurst til mannsins,
sem er á fimmtugsaldri, frá því
um klukkan hálftvö aðfaranótt
mánudags en maðurinn var afar
illa búinn til útivistar.
Fannst kaldur
og þrekaður
BERJASPRETTAN á Austurlandi
virðist ætla að verða einstaklega
góð í ár og þá sérstaklega á Aust-
fjörðum. Þá er útlit fyrir góða
sprettu á Norðurlandi en berin
kunna að verða seinni til og vand-
fundnari á Vesturlandi. Þetta sagði
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og
áhugamaður um berjatínslu, blaða-
manni Morgunblaðsins í gærkvöldi.
Sveinn var þá á leið til Seyðis-
fjarðar hvar hann fékk staðfest,
það sem hann hafði grunað í kjölfar
frétta af feitum berjum í Miðfirði,
að berin á Austfjörðum væru öngv-
ir grænjaxlar.
„Ég fór í gönguferð út af Skála-
nesi í lok júlí og bjóst þá ekki við
neinu sérstöku. Þá voru þar ekki
einungis falleg krækiber sprottin
heldur jafnframt myndarleg aðal-
bláber,“ segir Sveinn.
Frá gamalli tíð hefur berjatínslu-
tímabilið verið talið standa frá síð-
ustu vikunni í ágúst fram í fyrstu
vikuna í september en að sögn
Sveins er hægt um vik að hefja
tínsluna fyrr á Norður- og Austur-
landi. Þá ættu íbúar höfuðborg-
arsvæðisins ekki að örvænta því
sést hefur til fullskapaðra berja í
bröttum hlíðum Esju og fögur
berjalönd í botni Hvalfjarðar og í
Kjósinni munu eflaust taka við sér
innan tíðar.
Ílátin skulu ætíð með
En hvernig skyldu þeir menn
standa að tínslunni sem mesta
reynsluna hafa? Blaðamanni finnst
sem sérstakt áhald, berjatína, hljóti
að vera hið mesta þarfaþing ætli
menn sér að ná langt og tína mikið
magn berja. Sveinn segir það þó
ekki aðalatriðið – heldur það, að
gleyma ekki ílátunum.
„Það er ágætt að handtína fyrri
hluta tímabils því þá er hægt að
koma aftur viku seinna og svæðið
er þá eins og enginn hafi komið þar.
Berjatínuna á frekar að nota á
seinni hluta tímabilsins þegar farið
er að huga að saft- og sultugerð.“
Gnótt fullþroskaðra berja á Austurlandi
Berjasprettan mjög
misjöfn eftir landshlutum
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra segir að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um frekari
aðild Íslendinga
að norrænu eft-
irlitssveitunum,
SLMM, í Sri
Lanka og gat
hún því ekki
svarað því hvort
kæmi til greina
að fækka, eða
fjölga, Íslend-
ingum í eftirlits-
sveitunum í ljósi
harðnandi átaka að undanförnu.
Svíar, Danir og Finnar hafa
þurft að draga sig út úr eftirliti
SLMM í landinu í kjölfar þess að
ESB skilgreindi tamílsku tígrana
sem hryðjuverkasamtök í maí sl.
Valgerður sem átti fund með
utanríkisráðherra Finna, Erkki
Tuomioja, í gærdag segir þó lítið
hafa verið rætt um málið á fund-
inum. Hins vegar hafi blaðamenn
verið forvitnir að vita afstöðu Ís-
lendinga á blaðamannafundi sem
haldinn var eftir fund ráðherranna.
„Í þessari viku mun háttsettur
sendiboði frá Noregi fara til Sri
Lanka til að kynna sér aðstæður
frá fyrstu hendi, hann mun í kjöl-
farið koma til Íslands til fundar
með okkur og síðan munum við
taka ákvörðun um framhaldið,“
segir Valgerður og tekur fram að
áfram verði fylgst grannt með
framvindu mála í utanríkisráðu-
neytinu.
Aðspurð hvort Íslendingar
myndu fylgja Norðmönnum segir
Valgerður að of snemmt sé til að
kveða upp úr um það.
Engin ákvörðun
liggur fyrir um
aðild Íslendinga
Valgerður
Sverrisdóttir
ÖSSUR Skarphéðinsson, fulltrúi
Samfylkingarinnar í utanríkis-
málanefnd Alþingis, gagnrýndi
feril varnar-
viðræðna Íslands
og Bandaríkj-
anna í samtali
við fréttastofu
RÚV í gær. Tel-
ur hann utanrík-
ismálanefnd ekki
fá nægilegar
upplýsingar um
gang viðræðn-
anna og að nær
væri að semja
við Bandaríkjamenn um aðstoð
við björgunarstörf heldur en að
hér verði áfram herþotur.
Þá sagðist Össur telja sig hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir því
að Bandaríkjamenn hafi fyrr á
árinu tilkynnt íslensku samninga-
nefndinni að þeir væru reiðubún-
ir að greiða Íslendingum 36 millj-
ónir dollara, eða rúma 2,5
milljarða íslenskra króna, til að
sjá um tiltekin verkefni, einkum
vegna umsjónar og viðhalds fast-
eigna sem tengjast Atlantshafs-
bandalaginu og þá hugsanlega
hernum líka. „Ég veit ekki betur
en að það hafi engin viðbrögð
orðið frá formanni samninga-
nefndarinnar gagnvart þessu,“
sagði Össur um viðbrögð ís-
lenskra yfirvalda.
Össur segir
Bandaríkjamenn
hafa boðið 2,5
milljarða
Össur
Skarphéðinsson