Morgunblaðið - 09.08.2006, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 33
DAGBÓK
Dagana 10. og 11. ágúst verður áGrand hóteli í Reykjavík haldin ráð-stefna norrænna næringarráðgjafa.Kolbrún Einarsdóttir er formaður
Félags norrænna næringarráðgjafa og fulltrúi
Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands í
norrænu stjórninni: „Með ráðstefnunni sköpum
við grundvöll fyrir samskipti milli næring-
arráðgjafa Norðurlandanna, aukum umræðu
um fag okkar og veitum norrænum næring-
arráðgjöfum tækifæri til að hitta hver annan
og auka við fagþekkingu sína,“ segir Kolbrún.
Ráðstefnan á Grand hóteli er sú níunda sem
félagið heldur, en þetta er í fyrsta skipti sem
ráðstefnan er haldin hér á landi: „Flutt eru
fjölbreytt erindi á ráðstefnunni, en stór hluti
dagskrárinnar lýtur að neysluvenjum, offitu,
líkamssamsetningu og orkubúskap líkamans,“
segir Kolbrún. „Meðal annars verður fjallað
um hvað stjórnar matarlystinni og sagt frá
evrópskri könnun, sem íslenskir fræðimenn
höfðu yfirumsjón með, þar sem athuguð voru
áhrif fisks og fiskfitu hjá fólki í megrun. Einn-
ig verður sagt frá evrópskri könnun þar sem
hugað var að því hvernig hvetja mætti til auk-
innar fiskneyslu, og þá sérstaklega meðal
yngra fólks.“
Fjallað verður á ráðstefnunni um bandarísk-
ar tillögur að ráðleggingum um ýmsar
drykkjartegundir og einn fyrirlesara mun ræða
um notkun blóðsykurstuðuls. „Svo verður
fjallað um næringarráðgjafann í starfi, en gerð
var könnun á því hvernig næringarráðgjafar
eru nýttir í vinnu sinni á sjúkrahúsum og hver
áhrifin eru af starfi þeirra,“ segir Kolbrún.
„Járnneysla íslenskra barna er viðfangsefni
eins fyrirlestursins og einnig mun danskur
næringarráðgjafi upplýsa um næringu veikra
barna. Loks er fastur liður á ráðstefnum fé-
lagsins að fjalla um hvernig meta á næringar-
ástand sjúklinga. Síðasta erindi ráðstefnunnar
flytur sálfræðingur sem við höfum fengið til
liðs við okkur og fjallar hann um konur í starfi,
en næringarráðgjafastéttin er óneitanlega mik-
il kvennastétt.“
Kolbrún segir ánægjulegt að helmingur fyr-
irlesara séu íslenskir fræðimenn, en samtals
verða flutt 14 erindi á ráðstefnunni og er von á
80 gestum, þar af 60 erlendis frá.
Næringarráðgjafar starfa einkum við heil-
brigðisstofnanir, en einnig hjá fyrirtækjum:
„Flestir næringarráðgjafar læra næring-
arfræði, sem fjallar um hvað við borðum,
hvernig líkaminn nýtir næringuna og hvaða
áhrif maturinn hefur á heilsuna, en bæta síðan
við sig námi í klínískri næringarfræði sem
fjallar um næringarþarfir við mismunandi
sjúkdóma,“ útskýrir Kolbrún.
Nánar má lesa um ráðstefnuna og dagskrá
hennar á slóðinni www.gestamottakan.is.
Heilsa | Ráðstefna Félags norrænna næringarráðgjafa á Grand hóteli 10. og 11. ágúst
Offita og orkubúskapur líkamans
Kolbrún Ein-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 1956. Hún
lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum
við Tjörnina 1976,
útskrifaðist sem
matráðsmaður frá
Hússtjórnarkenn-
araskóla Íslands
1978, næringarfræð-
ingur frá Háskól-
anum í Ósló 1981 og næringarráðgjafi frá
Háskólanum í Gautaborg 1983. Kolbrún hef-
ur starfað sem næringarráðgjafi við Land-
spítala, síðar Landspítala – háskólasjúkra-
hús, síðan 1983, og sem klínískur
kennslustjóri á næringarstofu frá 2002.
Kolbrún hefur verið fulltrúi Matvæla- og
næringarfræðafélags Íslands í Félagi nor-
rænna næringarráðgjafa síðan 1998. Maki
Kolbrúnar er Gísli Þór Sigurþórsson kennari
og eiga þau þrjú börn.
Engar flækjur.
Norður
♠ÁKG1083
♥Á654 N/Enginn
♦4
♣82
Vestur Austur
♠962 ♠D75
♥87 ♥DG
♦1062 ♦KDG95
♣KG1054 ♣D73
Suður
♠4
♥K10932
♦Á873
♣Á96
Bart Bramley og Björn Fallenius
unnu Live Masters tvímenninginn í
Chicago í síðasta mánuði með töluverð-
um yfirburðum, en þeir hlutu 63,24%
skor í 180 spila keppni. Árangur þeirra
er sérlega glæsilegur í ljósi þess að
þeir höfðu aldrei spilað saman áður!
Báðir nota flókin kerfi með sínum föstu
spilafélögum, en í þetta sinn voru allar
flækjur lagðar til hliðar og léttleikandi
tilfinningin látin ráða för. Og það gaf
góða raun. Þeir voru til dæmis eitt
fárra para sem komst í slemmu í
spilinu að ofan.
Fallenius var í norður og Bramley í
suður:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 spaði 2 tíglar 2 hjörtu
Pass 4 tíglar * Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Innákoma austurs er hjálpleg, því
Bramley hálfpartinn neyðist til að
melda tvö hjörtu á fremur rýran styrk.
Fallenius „flísar“ með fjórum tíglum til
að sýna stuttlit og Bramley spyr gal-
vaskur um lykilspil, enda hafa spilin
hans stórbatnað.
Hægt er að fá alla slagina með því að
hitta í hjartað, en Bramley tók fyrst á
kónginn og svínaði fyrir hinn hámann-
inn, svo austur fékk slag á tromp. En
bara það að ná slemmunni gaf þeim fé-
lögum 72 stig af 90 mögulegum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3
Be7 5. O-O O-O 6. He1 d6 7. c3 Ra5 8.
Bb5 a6 9. Ba4 c5 10. Rbd2 Dc7 11. Rf1
Be6 12. Bg5 h6 13. Bh4 b5 14. Bc2 Rc6
15. Re3 Rh7 16. Bg3 Bf6 17. Bb3 Re7
18. Bxe6 fxe6 19. d4 Had8 20. a4 exd4
21. cxd4 e5 22. dxe5 dxe5 23. Dc2 c4
24. axb5 axb5 25. b3 Rg5 26. Rxg5
Bxg5 27. bxc4 Bxe3 28. Hxe3 bxc4 29.
Hc3 Hd4 30. Hc1 Hc8 31. f3 Dd6 32.
Bf2 Hd2 33. Da4 Kh7 34. Be3 Hd3 35.
Kf2 Hxc3 36. Hxc3 De6 37. Db4 Rg6
38. g3 Dh3 39. Kg1 Hd8 40. Db1 De6
41. Kg2 Da6 42. Dc2 Hc8 43. Dd2 Hb8
44. De2 Hc8 45. Db2 Hd8 46. Ha3 Dc6
47. Dc2 Db5 48. Hc3 Hc8 49. Ha3 Hd8
50. Ha7 Hd3 51. Dc1 c3 52. Bxh6.
Staðan kom upp á norska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Moss. Geir Tallaksen (2356) hafði
svart gegn stórmeistaranum Kjetil Lie
(2523). 52 … Hd2+! 53. Kh3, hvítur
hefði orðið óverjandi mát eftir 53.
Bxd2 De2+ 54. Kh3 cxd2 55. Dc7
Rf4+! 56. Kg4 Dxf3+! þar sem eftir
57. Kxf3 d1=D+ mátar svartur í
næstu leikjum. Eftir textaleikinn verð-
ur svartur manni yfir ásamt því að
hvítur er flæktur í mátnet. 53 … Kxh6
54. Dxc3 De2 55. Kg4 Dxh2 56. De3+
Kh7 57. Kf5 Hd6 58. Hxg7+ Kxg7 59.
Da7+ Kf8 60. Db8+ Ke7 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
frá höfninni, oft margir í einu. Þetta
skapar mikla hættu og má líkja því
við ef fólk í útlöndum þyrfti að fara
yfir brautarteina til að komast í
lestirnar.
Ég bý ofarlega við Kleppsveginn
og þar var áður mjög gott aðgengi
að strætisvagni. Leið 4 var sér-
staklega notadrjúgur vagn og fólk
hér í hverfinu sér mikið eftir hon-
um. Nú koma áberandi fleiri leigu-
bílar að stóru blokkunum hér á
Kleppsveginum enda segja leigubíl-
stjórar mér að það sé gósentíð hjá
þeim síðan leiðakerfinu var breytt.
Annað sem betur mætti fara eru
Nýja strætókerfið
er mistök
STRÆTÓLEIÐIR eldra kerfisins í
miðbæ og eldri hverfum þótti býsna
gott og var ekki mikið kvartað yfir
því.
Strætisvagnar eru fyrir fólkið
sem ekki notar bíla og þar er ekki
síst um að ræða eldra fólk og börn.
Það er því áríðandi að stutt sé í
stoppistöðvar og að ekki þurfi að
fara yfir stofnbrautir (hraðbrautir)
eins og t.d. Sæbrautina þar sem
bílar hafa verið teknir á 160 km
hraða og stórir flutningabílar koma
strætóskýlin. Þau standa tæpast
undir nafni því lítið skjól er þar að
hafa. Það þyrfti einnig að vera tafla
í skýlunum sem sýnir hvenær vagn-
inn stoppar við skýlið svo að fólk
viti hversu lengi það þarf að bíða á
hverjum stað. Það tala margir um
að biðskýlin í Hafnarfirði séu góð
enda virðast þau verða miðuð við ís-
lenskt veðurfar.
Eftir áratuga reynslu af því að
nota strætisvagna borgarinnar
finnst mér hæfilegt að hafa 15 mín-
útur á milli ferða á daginn og hálf-
tíma á kvöldin. Þann tíma geta allir
sætt sig við að bíða en allt umfram
það fer að ergja fólk og veldur því
að það reynir að sleppa við að taka
strætó.
070422-3879
Kisa týndist frá Vesturgötu
SVART fress týndist frá Vestur-
götu 50 í Reykjavík 10. júlí síðast-
liðinn. Kötturinn var í pössun þar
en er úr Hafnarfirði og ratar því
ekki heim. Hann er eyrnamerktur
02G124. Þeir sem hafa orðið hans
varir eru beðnir um að hafa sam-
band í síma 445 8832 eða 615 3795.
Hans er sárt saknað.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
75 ára afmæli. Siggerður Þor-steinsdóttir, Ósi, Eyrarbakka,
er 75 ára í dag, 9. ágúst. Í tilefni dags-
ins ætlar Siggerður ekki að gera nokk-
urn skapaðan hlut og hvíla sig svo vel á
eftir.
100 ára afmæli í dag. GuðrúnJónsdóttir frá Auðkúlu í Arn-
arfirði verður 100 ára í dag 9. ágúst.
Hún tekur á móti ættingjum og vin-
um á heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar að Mosabarði 10 í Hafnarfirði.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111