Morgunblaðið - 18.08.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.08.2006, Blaðsíða 45
Morgunblaðið |45 „Rosalega líður manni vel þegar maður sér þetta svona datt upp úr 15 ára gömlum nem- anda mínum þegar hann horfði í fyrsta skipti á línuritið sem sýndi hvað hann bætti sig mikið í kennslutímanum. Þessi strákur hafði árum saman átt í erfiðri glímu við stærðfræð- ina og var eiginlega búinn að missa kjarkinn til að takast meira á við hana. Í fyrsta tím- anum okkar upplýsti hann mig m.a. ábúð- arfullur um að ég gæti kannski kennt honum margföldun en um deilingu skyldi ég ekki hugsa – deilingu gæti hann ekki lært, hann væri bara þeirrar gerðar! Nú, stráksi fjór- faldaði færni sína þennan vetur sé miðað við einkunnir úr skólanum úr því efni sem lagt var fyrir bekkinn í stærðfræði samkvæmt námskrá. Hann varð einnig eldsnöggur bæði að margfalda og deila, leggja saman og draga frá. Sömu sögu er að segja um aðra nem- endur sem ég hef kennt að reikna á und- anförnum árum. Þeir eiga það sameiginlegt að ráða ekki við það námsefni í stærðfræði sem fyrir þá er lagt og vantar alla kunnáttu og öryggi í undirstöðuatriðunum, talnaleikni og reikningi. Þessir nemendur lesa ekki reip- rennandi úr tölum, eru ekki öruggir á sæta- skipan, leggja ekki saman 3 + 4 svo dæmi sé tekið nema að telja, hvort sem er á fingrum sér eða inni í höfðinu. Oftast notast þeir þó við vasareikni. Hafi nemendur slík lykilatriði ekki á takteinum,er tómt mál að tala um að þeir taki til láns eða geymi, finni samnefnara, hvað þá að þeir leysi orðadæmi. Allur tími þeirra fer í að reyna að rifja upp aðgerðirnar sem þeir eiga að kunna eftir fyrstu ár skóla- göngunnar, en gera ekki. Að þyngja náms- efnið eða þræla þeim áfram í efni sem þau ráða ekkert við er í besta falli gagnslaust. Að þrástagast á því hvað þau kunna ekki hjálpar þeim ekki heldur. Því síður klínísk greining um talnablindu. Það sem hins vegar hjálpar þeim er að kenna þeim að reikna. Hafi kennsluaðferðin sem notuð var til þess reynst árangurslaus þarf að skipta strax um aðferð við kennsluna en bíða ekki eftir því að þau lendi í algjöru öngstræti í skólanum og spýt- ist út í heilbrigðiskerfið. Að sjálfsögðu eru ýmsar leiðir að sama markinu, þ.e. kennslu sem skilar sér hratt og vel til allra nemenda. Sú leið sem ég valdi að beita er að kenna reikning í gegnum svo- nefndar talnafjölskyldur. Þá er samlagning og frádráttur kennt saman og margföldun og deiling eru kennd saman. Með almennu orðalagi má segja að talnafjölskylda séu þrjár tölur sem alltaf passa saman, s.s. 2,3,5 eða 3,4,12. Dæmi um þær talnafjölskyldur eru svona: 2+3 = 5, 3+2 = 5, 5-2 = 3 og 5– 3=2. Og 3*4=12, 4*3=12, 12/4=3 og 12/ 3=4. Að átta sig á samhengi talnanna með þessum hætti er mikil upplifun fyrir nem- andann, og hjálpar honum á ýmsa lund við að skilja þau sambönd sem hann er að vinna með. Auk þessa telst mér til, að með því að kenna í gegn um talnafjölskyldur megi fækka þeim talnareyndum (math facts) um ¾ sem nemendur þurfa annars að læra. Talnafjölskyldunum miðla ég svo til nem- endanna með aðferðum sem nefnast „bein fyrirmæli (Direct instruction), og „hnitmiðuð færniþjálfun með mælingum (Precision teaching). Fáar kennsluaðferðir eru jafn þaulrannsakaðar og bein fyrirmæli og ekkert hefur jafnast á við hana þegar kenna skal ný þekkingaratriði. Þótt aðferðin sé ekki upp- runnin í frumrannsóknum atferlisgreiningar þá er henni víða beitt af atferlisfræðingum vegna þess hversu árangursrík hún er. Mikl- ar heimildir og reynslutölur eru einnig til um gagnsemi „hnitmiðaðrar færniþjálfunar. Eins og önnur þjálfun felur hún í sér stutta end- urtekna æfingaspretti sem auka mýkt, hraða og öryggi nemandans á viðfangsefninu. Nem- andinn mælir frammistöðuna jafnóðum og sprettinum lýkur sem oftast er ein mínúta í senn og skráir þá fjölda réttra og rangra lausna á þar til gert línurit sem heitir hröð- unarkort. Hröðunarkortið er staðlaður hegð- unarmælir sem er eins alls staðar í heiminum og því ekki hægt að toga kvarðana til og hafa þannig áhrif á hvernig grafið lítur út. Hröð- unarkortið sýnir stöðu nemandans, hversu miklu hann afkastar og síðast en ekki síst einnig hversu mikið og hratt hann bætir sig við æfinguna. Kortið felur í sér símat á náms- ferlinu og beinir athygli nemandans sjálfs, foreldra hans, kennara og annarra sem málið varðar að námsaukanum sem væntanlega verður til þegar þörfum nemandans um kennslu er mætt. Viðgjöf af þessu tagi er hvort tveggja í senn hvetjandi fyrir nemanda og kennara og sýnir kennaranum stöðugt hvort hann er á á réttri leið í kennslu sinni. Ef athygli yfirvalda fræðslu- og menntamála beindust einnig að þeirri mælivídd sem námsaukinn er er ekki ólíklegt að skólar og kennarar sæktust sérstaklega eftir að fá til sín nemendur sem mikið ættu eftir ólært. Nemendurnir sjá um hröðunarkortin sín sjálfir og skráningarnar auka þ.a.l. ekki vinnuálag kennarans. Með því einu að líta á hröðunarkortið sér hann hins vegar mynd sem byggð er á haldbærum tölum og gerir honum kleift að taka ákvarðanir um hvað við- komandi nemandi þurfi að gera næst. Það gerir kennaranum einnig kleift að breyta ákvörðunum sínum umsvifalaust ef nauðsyn krefst í ljósi nýrra upplýsinga. Með öðrum orðum sagt, hið staðlaða hröðunarkort er ekki gagnageymsla, heldur stýri- og ákvarð- anatæki. Eins og þú heyrir, þá smellur þetta við þá umræðu um námsmat sem nú er Þegar stærðfræðin er alltof erfið Morgunblaðið/Árni Torfason 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.