Morgunblaðið - 18.08.2006, Page 28

Morgunblaðið - 18.08.2006, Page 28
28|Morgunblaðið Fjölmargir vefir eru á vefsíðu Námsgagnastofnunar. Einn þeirra er vefurinn Tónlist í tím- ans rás en hann er námsefni ætl- að eldri nemendum grunnskólans. Vefurinn er að hluta til gagn- virkur og býður upp á sjálfstætt nám og sjálfstæð vinnubrögð á sviði tónmenntar undir góðri leið- sögn kennara. Efnið er hannað með það í huga að það henti vel til fjarkennslu. Almennur fróðleikur er settur saman úr brotum almennrar mannkynssögu, listasögu, bún- ingasögu og tónlistarsögu. Ekki er þó hægt að gera þessum þátt- um full skil í svo takmörkuðum texta en megintilgangurinn er að vekja áhuga. Tónsmíðaleiðbeiningarnar byggjast á vandlega völdum að- ferðum frá ýmsum tímum. Að- gerðum nemenda er skipt niður á þrep og er þeim ætlað að feta sig gegnum sköpunina stig af stigi með aðstoð og ábendingum í efn- inu og frá kennara. Mikilvægt er að átta sig á því að ekki er ætlunin í tónsmíðunum að endurskapa stílbrigði fyrri alda heldur aðeins kynnast að- ferðum frá þeim tíma og verkum sem á þeim byggjast. Síðan eru aðferðirnar notaðar á annan efni- við og með breyttum hætti til að móta verk nemenda. Auðvitað gefa aðferðirnar stundum mjög sterkt stílbragð. En verk nemenda verða ekki metin með tilliti til þess hve þau líkjast fyrirrennurum sínum held- ur því hvað nemandinn hefur lagt sjálfur af mörkum við vinnu sína. Tónlist í rás tímans Veffang: www.nams.is Meðal margra skemmtilegra vefsíðna er Listavefur krakka. Á þessum vef geta krakkar skoðað íslenska myndlist og fræðst um listamennina sem hafa skapað hana. Hér er líka sagt frá því hvernig litir og form eru notuð í myndum og aðferðum við að búa til mynd- verk Á vefnum má finna skemmtileg verkefni um ýms- ar tegundir myndlistar. Þótt það sé bæði gaman og gagnlegt að skoða myndlist á vef er ennþá skemmtilegara að fara á listasafn. Þarna er einnig að finna vefsíðu um alla fugla íslands, öll íslensku hús- dýrin, stuðningsvef við stærð- fræði, Um fjöruna og hafið og þannig mætti lengi telja. Velkomin á Listavef krakka! www.nams.is Þarfagreining fræðslu og þjálfunar Fræðsla og þjálfun er öflugt vopn í samkeppni sé tekið mið af þörfum vinnustaðarins og viðskiptavina hans. Minerva – fræðsla og frammistaða sér um greiningu þarfa og kemur með tillögur að lausnum. www.minerva.is Það eru kannski ekki allir sem hugsa um Námsgagnastofnun sem útgáfufyrirtæki. Þrátt fyrir það hefur stofnunin 27 fasta starfs- menn og að auki yfir 200 manns, sem teikna og skrifa. „Ætli virkir titlar á lager hjá okkur séu ekki um 1700 og þar að auki kemur gífurlegt magn af hljóðefni. Í fyrra voru gefnir út 108 titlar í 250 þúsund eintökum, 20 titlar í 68 þúsund eintökum voru gefnir út endurskoðaðir og 230 titlar í 500 þúsund eintökum voru endurprentaðir. Alls gerir þetta nær 800 þúsund eintök, sem dreift var til skóla landsins,“ segir Tryggvi Jakobsson, útgáfustjóri Námsgagnastofnunar. Öflug vefsíða fyrir alla Starfsmenn stofnunarinnar rit- stýra, stjórna, gefa út og dreifa námsgögnum en að auki rekur stofnunin öfluga og fjölþætta vef- síðu, sem allir geta notað, jafnt kennarar sem nemendur og fjöl- skyldur þeirra. „Verkefni okkar er fyrst og fremst að gefa út og dreifa náms- efni til grunnskólanna, en þetta er lögbundið verkefni. Stundum er okkur líka falið af ráðuneytinu að gera námsefni fyrir framhalds- skólana,“ segir Tryggvi. Það er menntamálaráðuneytið sem semur og endurskoðar aðal- námskrá grunnskólans, en Náms- gagnastofnun sér svo um útgáfu- starfsemina. „Námskráin var endurnýjuð al- gerlega 1999 og nýjar breytingar eru væntanlegar í sambandi við fyrirhugaða styttingu framhalds- skólans.“ „Aðalmarkhópur stofnunarinnar er kennarar, en bæði foreldrar og nemendur geta nýtt sér námsefni á vefnum okkar,“ segir Hrafnhild- ur Hafsteinsdóttir, kynningarstjóri stofnunarinnar. Sem dæmi nefnir hún nýgert efni um íslenska fugla og aðrar síður um íslensk húsdýr. „Svo eru aðrir vefir sem eru stuðningur við annað efni, til dæm- is stærðfræði, en þar eru lagðar út alls konar æfingar og dæmi. Við gefum reyndar líka út fræðslu- myndir, sem spanna mjög vítt svið, ætli það séu ekki um það bil 600 myndir, allt frá landafræði til líf- fræði. Stundum eru þetta lengri heimildamyndir og svo höfum við látið gera örfáar bíómyndir,“ segir Tryggvi. Stafræn dreifing í bígerð Að sögn þeirra Tryggva og Hrafnhildar er verið að vinna að stafrænni dreifingu á ýmiss konar efni yfir netið um þessar mundir. „Við vonumst til að þetta geti verið komið á netið í haust, en maður verður alltaf að reikna með einhverjum aðlögunartíma,“ segir Tryggvi. Hugbúnaðurinn, sem notaður verður, heitir DRM og er frá Microsoft. „Þegar þetta er komið í gagnið getur fólk annaðhvort halað niður myndefnið eða skoðað myndirnar á netinu,“ segir Hrafnhildur. Að sögn Tryggva eru skólarnir misbúnir til þess að nýta sér þessa Útgáfufyrirtækið sem allir Íslendingar nota Námsgagnastofnun er eitt af stærstu útgáfufyrirtækjum landsins. Stofnunin dreifir nærfellt 800.000 eintökum til allra skóla landsins árlega. Við kynntum okkur starfsemina nánar. Morgunblaðið/Sverrir Tryggvi Jakobsson, útgáfustjóri og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, kynning- arstjóri Námsgagnastofnunar. nýjung, en hann vonar þó að breyting verði þar á með tímanum. Hrafnhildur segir að hinn nýi hugbúnaður muni geta auðveldað kennsluna verulega, en þó er ekki áætlað að dregið verði úr hefð- bundinni útgáfustarfsemi, alla vega ekki um fyrirsjáanlega fram- tíð. Vilja koma vefsíðunni á framfæri Fjarnám er ekki beinlínis meðal verkefna stofnunarinnar, en þó hefur fjarnám verið nýtt í kennslu fyrir íslensk börn sem búa erlend- is. „Hins vegar getur fólk nátt- úrulega nýtt sér vefsíðuna okkar óháð hvar í heiminum það býr, en við viljum gjarnan kynna vefsíðuna okkar betur af þeim sökum. Fólk sem býr erlendis getur bæði nýtt sér prentað efni, sem við gefum út, og eins vefsíðuna og vonandi verð- ur það síðastnefnda í auknum mæli,“ segir Hrafnhildur. Um þessar mundir er verið að gera átak í ritun, útgáfu og dreif- ingu kennsluefnis um kynlíf, en í haust koma tvö hefti um kynlíf – annað fyrir stráka en hitt fyrir stelpur – og auk þess verða gefin út sex myndbönd og meðfylgjandi leiðbeiningahefti fyrir kennara. „Það kemur líka út bók hjá okk- ur, sem heitir Um stelpur og stráka, glænýtt íslenskt efni til kynfræðslu og allt þetta efni er væntanlegt í haust og verður notað sem námsefni,“ segir Hrafnhildur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.