Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 30

Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 30
30|Morgunblaðið � � � � � �� � �������� �� �� ����� � ������ ����� ���� ������������� � �������� ������������� ������ �� ������������� Enn eru laus pláss í meistaranám fyrir bakara, framreiðslumenn, kjötiðnaðarmenn og matreiðslumenn. Nánari upplýsingar og innritun hjá áfangastjóra verknáms: Baldri Sæmundssyni og fagstjóra meistaranáms, Guðlaugu Ragnarsdóttur, í síma 594 4000 frá kl. 9:00 til 15:00. Netföng: bs@mk.is - gr@mk.is ���� �������������������������� Ráðstefna EECERA verður haldin við Kenn- araháskóla Íslands dagana 30. ágúst til 2. sept- ember. Evrópusamtök um menntarannsóknir á sviði yngri barna (European Early Childho- od Education Research Association) standa að ráðstefnunni í samvinnu við Kennaraháskóla Íslands. Fyrsta sinn á Íslandi Ráðstefnan er haldin í 16. sinn og nú í fyrsta sinn á Íslandi. Yfirskrift hennar er: Lýðræði og menning í menntun yngri barna. Jóhanna Einarsdóttir prófessor er formaður undirbún- ingsnefndar en auk hennar skipa nefndina Arna H. Jónsdóttir, Hildur Skarphéðinsdóttir, Kristín Dýrfjörð og Þröstur Brynjarsson. Í ár stefnir í metþátttöku en um 560 manns frá 43 löndum hafa nú þegar skráð sig. Yfir 300 er- indi verða flutt í málstofum en undirbúnings- nefndin hefur skilgreint ellefu þræði sem mál- stofuerindi heyra undir: Sjónarhorn barna Menntun og umönnun Þátttaka fjölskyldunnar Leikurinn Fjölbreytileiki Fagmennska Námskrár, námsefni og námstilhögun Leiðtogahlutverkið Skil skólastiga og samfella í námi Samþætting þjónustu Kynferði Lýðræði í leikskólum Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru 5 virtir fræðimenn í menntarannsóknum á sviði yngri barna. Barbara Rogoff frá Bandaríkjunum mun fjalla um hvernig börn læra í samvinnu við aðra og hvernig menning hefur áhrif á nám og kennslu. Peter Moss frá Lundúnaháskóla talar um lýðræðislegt starf í leikskólum, að hlusta á börn og leiðir til þess. Lars Dencik frá Háskólanum í Hróarskeldu er með fyrirlestur um samskipti ungra barna og foreldra þeirra í velferðarsamfélögum samtímans. Joseph Tob- in frá Bandaríkjunum fjallar um samanburð- arrannsókn á milli landa um börn innflytjenda og viðhorf bæði foreldra og kennara í þeim efnum. Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við Kennaraháskólann, fjallar um hlutverk menningar í þroska barna með tilliti til nið- urstaðna máltökurannsókna. Morgunblaðið/Jim Smart Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um börn og lærdómsferli barna við Kennaraháskólann í lok mánaðarins. Alþjóðleg ráðstefna haldin í Kennaraháskóla Íslands Hugmyndir manna um stjórnun hafa breyst mikið á undanförnum árum og nýjar aðferðir og hugtök hafa litið dagsins ljós. Jafnframt hafa margir vinnu- staðir orðið að litlum fjölmenning- arstöðum þar sem fólk með ólíkan bakgrunn vinnur saman. Hæfileikinn til að fá fólk með sér, skapa gott andrúmsloft og veita endurgjöf á þau verkefni sem verið er að vinna eru því orðin eitt af lyk- ilatriðum nútímalegrar stjórnunar en þetta eru þau atriði sem nám- skeið sem haldið er hjá Iðn- tæknistofnun um nýjustu aðferðir við stjórnun, teymisvinnu og hvatn- ingu fjallar um. MARKMIÐ: Að þátttakendur þekki helstu aðferðir við nútíma stjórnun og geti nýtt sér ýmis form og eyðublöð sem hjálpartæki við stjórnun. ÁHERSLUR: Að auka fræði- og faglega þekkingu þátttakenda á stjórnun með því að benda á nýjar og praktískar leiðir við stjórnun og tengja þær eigin reynslu þátttak- enda. Um er að ræða leiðir sem bæta yfirsýn við stjórnun, sam- skipti og sjálfsmynd starfsmanna á vinnustaðnum og framleiðni starfs- manna. Námskeiðið er fyrir þá sem hafa mannaforráð og reynslu í stjórnun. Jafnframt er gott ef þátttakendur hafa sótt önnur stjórnunarnám- skeið. Teymisvinna og hvatning Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.