Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 263. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is STJÖRNUTEITI HORFT TIL HIMINS Í MYRKRINU Í ELLIÐAÁRDALNUM Í KVÖLD >> 20 HELGARTILBOÐ SPAGETTÍ OG HAKK EÐA SJÓFRYST ÝSA Í DAGLEGU LÍFI >> 24 PÓST- og fjarskiptastofnun kynnti í gær sam- norræna skýrslu um farsímamarkaði Norður- landanna. Þar kemur fram að GSM-þjónusta á Íslandi hafi hækkað í verði síðan árið 2002 á meðan hún hafi lækkað á hinum Norðurlönd- unum auk þess sem markaðurinn á Íslandi ein- kennist af fákeppni. „Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart og er í samræmi við það sem við greindum frá fyrr á árinu,“ segir Tómas Hansson, framkvæmda- stjóri Novator. „Skýrslan endurspeglar það að aðeins eru tvö fyrirtæki á markaðnum sem bjóða farsímaþjónustu, við sjáum því tækifæri til að koma inn á markaðinn og innleiða nýjustu tækni, svipað og við erum að gera í mörgum öðrum löndum.“ | Viðskipti Fákeppni og hátt verð Í HNOTSKURN »Skv. skýrslu hækkar GSM-þjónusta í verðihér en lækkar á Norðurlöndum frá 2002. »Fákeppni er sögð ríkjandi á íslenska mark-aðnum og erfitt fyrir nýliða að komast inn. Nákvæmlega sama og við sögðum, segir framkvæmdastjóri Novator Á ÁRI hverju deyja um 10,5 milljónir barna undir fimm ára aldri og skortur á óspilltu vatni og lágmarkshreinlætisað- stöðu stuðlar að flestum dauðsfallanna. Þetta kemur fram í skýrslu sem Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) birtir í dag. Í skýrslunni er fjallað um það markmið Sameinuðu þjóðanna að hlutfall þeirra, sem hafa ekki varanlegan aðgang að óspilltu vatni og lágmarkshreinlætisað- stöðu, minnki um helming fyrir árið 2016. Ef svo fer fram sem horfir er líklegt að markmiðið um drykkjarvatnið náist þótt illa hafi miðað í nokkrum heimshlutum. Hreinlætismarkmiðið er aftur á móti langt undan, að sögn Barnahjálparinnar. Rúmur milljarður án hreins vatns Í skýrslunni kemur fram að rúmur millj- arður manna hefur ekki aðgang að ómeng- uðu drykkjarvatni. Um 2,6 milljarðar eru án lágmarkshreinlætisaðstöðu. Ungu börnin eru í mestri hættu þar sem mörg þeirra deyja af völdum sjúkdóma sem berast með vatni. Til að mynda deyja um 1,5 milljónir barna undir fimm ára aldri af völdum bráðrar niðurgangssýki á ári hverju. Um helmingur allra dauðsfalla ungu barnanna er rakinn til vannæringar sem tengist meðal annars niðurgangssýki. Milljónir barna deyja af völdum skorts á hreinu vatni 2,6 milljarðar manna án hreinlætisaðstöðu Morgunblaðið/Þorkell Dýrmætir dropar Piltar dæla vatni úr brunni í Tete-héraði í Mósambík. París. AP. | Hafa vís- indamenn fundið stæð- una fyrir leyndardóms- fullu brosi Mónu Lísu? Sérfræðingar hafa rannsakað hátækni- myndir af Mónu Lísu og telja að fyrirsæta Leon- ardos da Vinci hafi ver- ið barnshafandi eða alið barn nýlega þegar hún sat fyrir. Við rannsóknina komu fram vísbend- ingar um gagnsæja blæju um axlir Mónu Lísu – flík sem ítalskar konur á end- urreisnartímabilinu klæddust þegar þær voru þungaðar. Slík blæja er á málverki listmálarans Sandro Botticelli (1445– 1510) af þungaðri konu sem heldur um magann. Móna Lísa þunguð? KAUPÞING banki gaf í gær út skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir samtals þrjá milljarða Bandaríkja- dala, eða um 210 milljarða króna. Þetta er stærsta skuldabréfaútgáfa Kaupþings banka frá upphafi en isskuldabréfum. Þá gaf bankinn út 500 milljónir dala til tíu ára með föstum vöxtum og er verðlagning þeirra 1,55% yfir bandarískum rík- isskuldabréfum. Kaupendur skuldabréfanna voru rúmlega 200 stofnanafjárfest- ar og óskuðu þeir eftir að kaupa fyrir um 630 milljarða króna. skipt, til þriggja, fimm og tíu ára. Skuldabréfin til þriggja ára eru 1,0 milljarður Bandaríkjadala með fljótandi vöxtum. Verðlagning þeirra er 0,7% yfir Libor-vöxtum. Skuldabréfin til fimm ára nema samtals 1,5 milljörðum dala með föstum vöxtum og er verðlagning þeirra 1,30% yfir bandarískum rík- með henni lýkur endurfjármögnun þeirra langtímalána bankans sem koma til gjalddaga á árinu 2007. Í frétt á fréttavefnum hugin seg- ir að mikil umframeftirspurn hafi verið eftir skuldabréfunum og að útgáfan hafi verið töluvert stærri en gert hafi verið ráð fyrir í upp- hafi. Skuldabréfaútgáfan er þrí- Kaupþing banki hefur lokið endurfjármögnun Bankinn gefur út skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir 210 milljarða króna Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is HJÁVEITUGÖNGUM Kárahnjúkastíflu verður lokað nú í morgunsárið og vatni safnað í Hálslón. Tveimur stálhlerum verður rennt fyrir opið og mun hækka nokkuð hratt í lóninu næst stíflunni. Reikna má með að vatnshæðin þar verði komin í 15 metra á fyrstu fjórum klukkutímunum. Byrjað verður að safna í Hálslón í dag Vatnshæðin fer upp í um 15 metra á fyrstu fjórum klukkutímunum Morgunblaðið/Brynjar Gauti ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.