Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 41
menning
Sú ákvörðun forsvarsmannaÞýsku Óperunnar að hættavið uppfærslu Mozart-
óperunnar Idomeneo hefur vakið
athygli margra og ekki eru allir á
eitt sáttir um ákvörðunina.
Ástæða þessa er atriði í óp-erunni þar sem Idomeneo,
konungur Krítar, heldur á höfði
Múhameðs spámanns, Jesú Krists,
Búdda og sjávarguðsins Posei-
dons. Atriðið var þó ekki skrifað
af Mozart sjálfum heldur er það
viðbót leikstjórans, Hans Neu-
enfels.
Forsvarsmenn Óperunnar sögðuákvörðunina vera tekna „af
öryggisástæðum“ og þýska lög-
reglan sagði atriði í uppfærslunni
geta haft „óútreiknanlega
áhættu“. Óttinn er sem sé fyrst og
fremst við viðbrögð múslima við
uppátækinu. Bannað er að per-
sónugera Múhameð í myndum eða
á annan hátt og minnast menn við-
bragða við skopteikningunum af
spámanninum sem birtust í danska
dagblaðinu Jyllands-Posten.
Kirsten Harms, óperustjóriDeutsche Opera, sagðist í
viðtali harma ákvörðunina en
sagði jafnframt að hún hefði ekki
átt annars kosta völ þar sem hún
beri ábyrgð á „öllu fólki á sviðinu,
baksviðs og úti í sal,“ eins og hún
orðaði það sjálf.
Þýska lögreglan segist hafafengið símtöl frá fólki sem sé
andvígt uppsetningu verksins án
þess þó að eiginlegar hótanir hafi
átt sér stað. Uwe Kozelnik, tals-
maður lögreglunnar, sagði lög-
regluna ekki geta útilokað að
óeirðir brytust út í kjölfar sýning-
arinnar og þeir hefðu stutt
ákvörðun Óperunnar þó svo að
þeir hefðu ekki haft áhrif á hana.
Sem fyrr sagði hefur ákvörð-unin vakið athygli margra og
margir fordæmt hana en aðrir
segjast skilja hana. Fjöldi stjórn-
málamanna og einstaklinga úr
listageiranum í Þýskalandi hefur
tjáð sig um málið, meðal annarra
kanslari landsins, Angela Merkel.
Hún gagnrýndi fosvarsmenn Óp-
erunnar harðlega í viðtali við Neu
Presse í gær og sagði hún það
ótækt að gefa eftir tjáning-
arfrelsið af ótta við öfgamenn sem
séu reiðubúnir að grípa til ofbeld-
is.
Innanríkisráðherra Þýskalands,
Wolfgang Schäuble, tók í sama
streng og sagði ýmsa ganga of
langt í viðleitni til að sýna múslim-
um tillitssemi og nefndi sýninguna
sem gott dæmi um það.
Í gær hófust samræður milliþýskra embættismanna og leið-
toga múslima um leiðir til að að-
laga þær þrjár milljónir múslima
sem búa í Þýskalandi betur að
samfélaginu. Haft var eftir
Schäuble innanríkisráðherra að
því tilefni að Íslam væri mik-
ilvægur hluti af Evrópu og Þýska-
landi og yrði því að laga sig að því
gildismati sem þar ríki.
Ali Kizilkaya, yfirmaður hinsíslamska ráðs í Þýskalandi,
fagnaði hins vegar ákvörðun Óp-
erunnar í útvarpsviðtali í gær.
Hann sagði marga múslima vissu-
lega geta tekið það illa upp að sjá
höfuð Múhameðs með þessu móti.
Hann sagðist þó jafnframt harma
að það væri ótti sem væri und-
irliggjandi ástæða þess að ákvörð-
unin var tekin.
Þessi uppfærsla Idomeneo varfyrst sýnd í Þýsku óperunni
árið 2003 og voru menn uggandi
um viðbrögðin. Engin hávær mót-
mæli bárust í kjölfarið og ákveðið
var að sýna óperuna fjórum sinn-
um nú í nóvember, með fyrr-
greindum afleiðingum.
Óperustjórinn Harms sagði
reyndar að sýningin yrði áfram á
dagskrá óperunnar og vel kæmi
til greina að sýna hana einhvern-
tíma seinna. Ef svo er hlýtur þetta
að teljast ein af betri ókeypis aug-
lýsingum sem um getur.
Umræðurnar snúast ekki baraum þessa tilteknu óperu
heldur hvort tjáningarfrelsi fari
halloka vegna ótta við ofbeldi eða
hvort virðing við trúarbrögð ann-
arra sé eitthvað sem eigi að iðka í
meira mæli. Það verður spennandi
að fylgjast með fólki komast að
niðurstöðunni.
birta@mbl.is
Afhöfðaður Múhameð veldur deilum
»Umræðurnar snúastekki bara um þessa
tilteknu óperu heldur
hvort tjáningarfrelsi
fari halloka vegna ótta
við ofbeldi eða hvort
virðing við trúarbrögð
annarra sé eitthvað sem
eigi að iðka í meira
mæli.
Reuters
Umdeilt Óperuhúsið í Berlín þar sem hætt var við að setja upp óperu Mozarts, Idomeneo.
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir