Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
KVIKMYNDAHÁTÍÐ í
Reykjavík hefst í dag. Sýndar
verða myndir frá öllum heims-
hornum er eiga það sameigin-
legt að vekja áhuga þeirra sem
þyrstir í „frumlegheit og
ómengaða listræna sýn“, eins
og dagskrárstjórinn, Dimitri
Eipides, orðar það. Opnunar-
myndin, Queen, um viðbrögð
Bretadrottningar við dauða
Díönu prinsessu, hefur vakið
mikla athygli, ekki síst fyrir leik Helen Mirren í
hlutverki drottningar. Kvikmyndahátíð minnir á
sig með síkviku sjónarspili himnanna, kl. 22 í
kvöld þegar Reykjavík verður myrkvuð.
Kvikmyndahátíð
Ómenguð listræn
sýn og frumlegheit
Mirren í hlutverki
Elísabetar
ROKKHLJÓMSVEITIN Brainpolice heldur tón-
leika á Paddy’s í kvöld, en hljómsveitin gaf nýverið
út breiðskífuna Beoynd the Wasteland sem hefur
hlotið einróma lof gagn-
rýnenda. Brainpolice fær
til liðs við sig heimabæj-
arhetjurnar í hljómsveit-
inni Tommygun. Í frétt
frá hljómsveitinni segir
að búast megi við því að í
hita leiksins, þegar best
lætur, mæti hljóðfæri og
annar búnaður hljómsveitarinnar örlögum sínum.
Það má því búast við að það verði vagg og velta,
hopp og skopp og jafnvel brauk og braml á
Paddy’s, en tónleikarnir hefjast kl. 21.30.
Tónleikar
Brainpolice með
brauk og braml
Í TILEFNI af 150 ára afmæli
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
bjóða Rannsóknarstofa í
kvenna- og kynjafræðum,
Kvennasögusafn Íslands og
Kvenréttindafélag Íslands til
málþings um Bríeti og arf
hennar á morgun, í hátíðarsal
Háskóla Íslands. Dagskráin
hefst kl. 13.30 með ávarpi há-
skólarektors, Kristínar Ing-
ólfsdóttur. Þorgerður Einars-
dóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og fleiri flytja erindi
um arf Bríetar, en auk þess les Ragnheiður Stein-
dórsdóttir úr bréfum hennar og Sesselja Krist-
jánsdóttir syngur. Allir eru velkomnir.
Málþing
Arfur Bríetar
150 árum síðar
Bríet
Bjarnhéðinsdóttir
HUGMYNDIN að byggingu Safns
umburðarlyndisins varð til hjá Sim-
on Wiesenthal-stofnuninni og átti
tilgangur safnsins að vera sá að
stuðla að sátt og samlyndi milli
múslíma, gyðinga og kristinna
manna í hinni helgu borg.
Byrjunin lofaði góðu. Jerúsal-
emborg gaf lóð undir bygginguna í
miðju borgarinnar en þar var fyrir
fjögurra hæða bílastæðahús sem
hafði verið byggt neðanjarðar árið
1974. Þá var vitað að lóðin var hluti
af kirkjugarði múslíma sem hætt var
að nota árið 1948 þegar Ísraelsríki
var stofnað.
Talsmenn verkefnisins segjast
ekki hafa vitað af gröfunum og
benda jafnframt á að hluti af svæð-
inu hafi verið seldur árið 1930 að til-
stuðlan háttsetts embættismanns í
röðum múslíma og þar reist hótelið
Palace.
Grafirnar og bygging safnsins
hafa orðið til þess að vekja upp deil-
ur milli múslíma og gyðinga og það
áður en sjálf byggingin hefur risið.
Margra mánaða samningaumleit-
anir hafa runnið út í sandinn. Fyrr á
þessu ári fundu mælingamenn grafir
á svæðinu. Í framhaldi af því fengu
samtök araba í Ísrael því framgengt
að sett yrði lögbannskrafa á fram-
kvæmdirnar.
„Íslömsk lög eru skýr: Það er
óheimilt að byggja á landi þar sem
áður hefur verið kirkjugarður,“ seg-
ir Muhammad Suleiman, lögmaður
samtakanna. Málamiðlunartillaga
Wiesenthal-stofnunarinnar er sú að
gerður verði sérstakur minningar-
reitur og grafirnar fluttar þangað.
Deilan er fyrir hæstarétti í Ísrael
en jafnvel þótt hann gefi grænt ljós á
áframhaldandi framkvæmdir er ekki
víst að Safn umburðarlyndisins
hristi af sér slyðruorðið.
Morgunblaðið/Ómar
Sagan Borgarmúrar Jerúsalem.
Framliðnir
stöðva fram-
kvæmdir
Safn umburðarlyndis
vekur upp deilur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Tenórinn Finnur Bjarnasonfer með hlutverk Belmonteí Mozartóperunni Brott-námið úr kvennabúrinu
sem Íslenska Óperan frumsýnir á
morgun. Belmonte er spænskur að-
alsmaður sem freistar þess að ná
unnustu sinni, Konstönzu, úr
kvennabúri tyrknesks höfðingja.
„Ég hef sungið rómantíska elskhug-
ann Belmonte tvisvar áður, í Berlín
og Frakklandi,“ segir Finnur og
bætir við að hann sé alls ekki kom-
inn með leið á hlutverkinu enda sé
það mjög krefjandi. „Verkið gerir
miklar kröfur til okkar söngvaranna.
Mozart skrifaði oft erfiðar óperur og
þessi er engin undantekning.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Finnur
syngur með Angelu Gilbert sem fer
með hlutverk Konstönzu. „Hún fer
með mikið og nærri því ósyngjandi
hlutverk en hún gerir það vel og ég
held að hún verði stjarna.“
Gaman og alvara
Finnur segir þessa uppfærslu
leikstjórans Jamie Hayes mjög
blandaða í stíl og tíma og að hann
leggi mikla áherslu á að segja sög-
una og láta verkið njóta sín. „Þetta
er ævintýranleg gamanópera með
örlagasögu sem við reynum að taka
alvarlega til mótvægis við sprellið.“
Það eru fimm ár síðan Finnur
söng seinast í Íslensku Óperunni, þá
hlutverk Tamino í Töfraflautunni, og
segir hann alltaf hafa gaman af því
að syngja á Íslandi. „Ég er núna
lausráðinn við óperuna í Berlín en
annars lifi ég bara þessu sígaunalífi
sem er á söngvurum ásamt konu
minni Emmu Bell og þriggja ára
syni okkar,“ segir Finnur.
Eftir þær tíu sýningar sem stefnt
er að á Brottnáminu úr kvennbúrinu
ætlar Finnur að taka sér smá frí en
síðan er nóg framundan hjá honum
m.a. Jóhannesarpassían í París,
Evgeni Onegin í Berlín og The Turn
of the Screw í Leipzig.
Ekki pláss fyrir mistök
„Ég elska að vera á Íslandi, hing-
að til hef ég átt frábæran tíma; farið
Gullnahringinn, notið landsins og
skemmt mér mikið með samstarfs-
fólkinu,“ segir hin brosmilda óperu-
söngkona Angela Gilbert sem fer
með hlutverk Konstönzu í Brott-
náminu úr kvennabúrinu. Angela,
sem er 32 ára, kemur frá Höfðaborg
í Suður-Afríku en hefur búið í New
York seinustu sjö ár. Henni hefur
verið spáð miklum frama innan
óperuheimsins og margir segja hana
næstu stórstjörnu óperunnar. Að-
spurð hvort það sé satt hlær Angela
hátt og segist ekki vita hvort það sé
eitthvað til í þeim sögusögnum. „Ég
vil bara vera söngvari, ég elska
starfið mitt hvort sem ég verð fræg
eða ekki.“
Angela segir tvær ástæður vera
fyrir því að hún kom til Íslands. „Sú
fyrsta er að ég hef beðið eftir því
lengi að fá að syngja hlutverk Kon-
stönzu og hin var að mig langað að
koma til Íslands en ég hafði heyrt
margt frábært um landið. Ég hef
aldrei sungið hlutverk Konstönzu
áður en ég hef sungið aríur úr Brott-
náminu úr kvennabúrinu í Danny
Kay leikhúsinu undir stjórn James
Levine. Þetta er mjög áhugavert
hlutverk og Konstanza er öðruvísi
en aðrar persónur sem ég hef leikið
og sungið. Hún er mjög mannleg og
með mikinn persónuleika. Raddlega
er þetta talið eitt erfiðasta hlutverk
óperubókmenntanna: það þarf mikla
öndun, mjög háar nótur og mjög lág-
ar nótur, hraða og þunga rödd. Ég
veit ekki hvað Mozart var að hugsa
þegar hann skrifaði þetta hlutverk
en kærasti minn segir að hann hafi
hatað konuna sem hann skrifaði
hlutverkið fyrir.“
Bókuð til 2010
Angela segir Mozart eitt af sínum
uppáhalds tónskáldum til að horfa á
og læra af en ekki til að syngja. „Það
þarf mikla tækni til að syngja hann
og það er ekkert pláss fyrir mistök.“
Amerísku óperuhúsin sem Angela
er vön að syngja í eru harla ólík hús-
næði Íslensku Óperunnar sem þykir
gamalt og þröngt. „Þetta er ólík að-
staða frá því sem ég er vön og ég
vildi að það væri meira pláss bak-
sviðs en ég kann samt vel við húsið,
það verður allt miklu nánara hér.
Svo hefur mér líka fundist svo gam-
an í vinnunni að annað skiptir minna
máli.“ Angela er bókuð til ársins
2010 og þegar hún fer héðan af landi
brott í lok október bíður hennar titil-
hlutverkið í Lucia di Lammermoor í
San Diego. „Mér finnst fínt að vera
svona bókuð en stundum er lífið líka
mikilvægt, ég kvarta samt ekki því
ég er að gera það sem ég elska.
Það er erfitt að ferðast en stund-
um er það frábært eins og að fá að
koma til Íslands, en héðan verður
erfitt að fara.“
Tónlist | Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart frumsýnt í Íslensku óperunni
Ævintýraleg gamanópera
Morgunblaðið/Golli
Rómantískur Belmonte, sem Finnur Bjarnason leikur og syngur, reynir að frelsa unnustu sína úr kvennabúri.
Stjarna Angela Gilbert í hlutverki Konstönzu ásamt Pálma Gestssyni sem
leikur hinn tyrkneska kvennabúrseiganda Selim.
Eftir W. A. Mozart
Hljómsveitarstjóri:
Kurt Kopecky
Aðstoðarhljómsveitarstjóri:
Daníel Bjarnason
Leikstjóri: Jamie Hayes
Leikmynd: Snorri Hilmarsson
Búningar: Filippía Elísdóttir
Ljós: Björn B. Guðmundsson
Konstanza: Angela Gilbert
Blonde: Katharina Th.
Guðmundsson
Belmonte: Finnur Bjarnason
Pedrillo: Snorri Wium
Osmin: Bjarni Thor Kristinsson
Selim: Pálmi Gestsson
BROTTNÁMIÐ
ÚR KVENNABÚRINU
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík
,."C? '(
,,,
9@A
BA
B
A
!"#"
&C
#)
&)D
E
3
F
&)D
)
9G
H)
"
I
& J
)
&)B ,
&)I!
= A
&'#
K =
A
L
?
A
G @
"
&