Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 30
Í leiðara Morgunblaðsins í gær um
botnvörpubann og vísindi er sagt:
„Æ fleiri komast á þá skoðun, að
botnvörpuveiðar séu ekki forsvar-
anlegar, vegna þess að þær valdi svo
miklum skemmdum á sjávarbotn-
inum að þær eyðileggi kóralmynd-
anir og jarðmyndanir og þarmeð
lífsskilyrði ýmissa botndýra og fiska.
Röksemdafærslan er m.a. sú, að
botnvörpuveiðarnar séu ekki sjálf-
bærar, gjöful fiskimið séu smátt og
smátt eyðilögð með veiðarfærunum
og verði ónýt um langt árabil eða
jafnvel um alla framtíð.“ – Vitnað
m.a. í ályktun 1.136 vísindamanna í
Kuala Lumpur fyrir rúmum tveimur
árum um áskorun til Sameinuðu
þjóðanna um tímabundið bann við
togveiðum. Í þessu sambandi vill
undirritaður benda á, að umrædd
ályktun fól í sér auk textans að fram-
an og sem birtist í leiðaranum, þann
rökstuðning, að veiðarnar valdi
minnkun á „líffjölbreytileika“ (biodi-
versity), en þar er m.a. um að ræða
erfðabreytingar. Á síðustu árum
hafa komið fram vaxandi upplýs-
ingar um erfðabreytingar fiska, sem
verða með netveiðarfærum á upp-
vaxtarskeiði fiska og er þar um að
ræða bæði botnvörpu og dragnót.
Þessi hlið málanna er illa eða ekki
sýnileg og næstum útilokað að
sanna, því tölfræðirannsóknir geta
ekki einar falið í sér sönnun, en
botnskemmdir er unnt að sanna og
því er oftast minnst aðeins á þær.
Hópur hæfra vísindamanna hefur
áætlað, að skemmdir af völdum
botnvörpu séu að einum þriðja af
völdum botnskemmda og að tveimur
þriðju af völdum erfðabreytinga
vegna sífelldrar stærðarflokkunar
Athugasemd við leiðara
Frá Jónasi Bjarnasyni: með veiðunum. Víða eru nú fiskar
mjög breyttir af þessum sökum og
verða þeir miklu yngri kynþroska en
áður auk þess sem þeir vaxa hægar
og frjósemi minnkar. Margir hópar
vísindamanna eru nú að rannsaka
erfðabreytingar af þessu tagi og eru
þær m.a. nú einnig stundaðar á
Hafró en aðeins svör við fáum
spurningum liggja fyrir. Nauðsyn-
legt er að þessar upplýsingar komi
fram með annarri röksemdafærslu
um skaðsemi botnvörpuveiða. Það er
nauðsynlegt að Íslendingar taki
undir framangreind sjónarmið og
reyni ekki að gera lítið úr þeim og
kenna þau bara við tilhneigingar til
alþjóðlegrar stjórnunar fiskveiða
heldur aðallega til verndunar nytja-
fiska í víðum skilningi.
JÓNAS BJARNASON,
efnaverkfræðingur dr.rer.nat.
30 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Mjög falleg 5-6 herbergja íbúð á tveimur
hæðum ásamt bílskúr og ca 18 fm suður-
svölum með miklu útsýni á góðum stað í
Grafarvogi. Íbúðin er vel skipulögð, 130,5 fm
(svalir ekki inn í fmtölu) og bílskúr 23,6 fm.
VERÐ 31,5 millj.
Upplýsingar gefur Þóra Þrastardóttir sölufulltrúi
í síma 822-2225
TIL SÖLU
NÝTT- FROSTAFOLD - 112 RVÍK
ÓSKÖP voru sorgleg við-
brögð Jóns Sigurðssonar for-
manns Framsóknarflokksins við
þeirri hugmynd Ómars Ragn-
arssonar að fullgera Kára-
hnjúkavirkjun en nota hana síð-
an eingöngu sem minnismerki
um „hugrekki þjóðar sem leitaði
sátta við kynslóðir framtíð-
arinnar og eigin samvisku“. Því
þótt hugmynd Ómars kunni að
virðast nokkuð geggjuð í fyrstu,
þá sýnist hún þó vera furðu vel
ígrunduð og í raun það eina
sem getur bjargað orðstír okkar
kynslóðar í sögunni.
En Jón Sigurðsson lét aðeins
svo um mælt að hér væri aug-
ljóslega um að ræða „gam-
anmál“.
Þótt Ómar Ragnarsson sé
vissulega skemmtilegur maður
er þessi hugmynd þó ekkert
grín, heldur reyndar einhver sú
besta sem ég hef nokkru sinni
heyrt. Ónotuð Kárahnjúkavirkj-
un verður stórfenglegt minn-
ismerki sem mun – þó ekki væri
annað – draga hingað ferða-
menn í margar aldir. Virkjunin
gæti þannig orðið eitt athygl-
isverðasta og merkilegasta und-
ur nútímans. Ég mundi að
minnsta kosti ferðast langar
leiðir til að skoða svo mik-
ilfenglegt og einstætt minn-
ismerki.
Sorgleg voru líka viðbrögð
Geirs H. Haarde formanns
Sjálfstæðisflokksins við þessari
hugmynd. En þau voru engin.
Því það virðist vera plagsiður
Geirs að láta ekki ná í sig, ansa
engu, vera einhvers staðar ann-
ars staðar.
Eru þetta forystumennirnir
sem við viljum? Menn sem af-
greiða með þögn eða hótfyndni
hugmynd sem leitast við að af-
stýra því stórslysi sem virkj-
unin er? Og gæti reyndar orðið
til þess að bjarga leifunum af
orðstír einmitt þeirra sem
hyggjast innan nokkurra daga
hleypa vatni á Hálslón.
Því það er mála sannast að
verði af þessu stórslysi mun
orðstír ekki bara Halldórs Ás-
grímssonar og Davíðs Odds-
sonar fara fyrir lítið í sögubók-
um framtíðarinnar, heldur líka
orðstír þeirra Jóns Sigurðs-
sonar og Geirs H. Haarde.
Illugi Jökulsson
Sorgleg viðbrögð
Höfundur er rithöfundur.
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 5.
september sl. skruppu allmargir
landsmenn austur á Þingvöll til að
fylgjast með lista-
manninum Rúrí
fremja gjörning við
Drekkingarhyl.
Gjörningurinn var
áhrifamikill og vakti
marga viðstadda af
værum blundi: að
horfa aftur um öxl til
skelfilegrar fortíðar.
Listakonan var greini-
lega að vekja athygli á
þessari glórulausu sál-
arlausu grimmd gagn-
vart fátækum, varn-
arlausum og umkomulausum konum
fortíðarinnar sem höfðu það eitt til
sakar unnið að hafa fætt börn utan
hjónabands.
Góðir listamenn láta yfirleitt öðr-
um eftir að túlka list þá sem þeir
færa þjóðum heims hverju sinni.
Hlutverk okkar leikra sem lærðra er
að túlka listina og nota til þess þau
skynfæri og þær gáfur og næmi sem
okkur hefur verið gefið í öndverðu.
Einn frægasti gjörningur sem
framinn hefur verið á Íslandi var
þegar Rúrí kom fyrir um 20 ára
gömlum gullnum eðalvagni af
Mercedes Bens gerð á Lækjartorgi
sumarið 1974. Á tilteknum aug-
lýstum tíma mætti listakonan á torg-
ið með allmikla sleggju sér í hönd.
Án nokkurs hiks réðst hún á hið
gullna tákn með sleggjunni og linnti
ekki látum fyrr en það sem áður var
eftirsóttur og verðmætur gripur,
breyttist á nokkrum mínútum í bíl-
flak eins og hvert annað rusl. Sjón-
arvottar töldu listakonuna gengna af
göflunum: að eyðileggja forkunn-
arfagran og dýran bílinn.
Auðvitað var Rúrí að
skírskota til gullkálfsins
og í þann atburð bibl-
íunnar þegar Móse leið-
togi gyðinga kom niður
af fjallinu og braut gull-
kálfinn í eyðimörkinni.
Áleitin spurning er
hvort listakonan hafi
verið að skírskota til
annars en fortíðarinnar
í gjörningunum við
Drekkingarhyl? Hvað
með samtíð listamanns-
ins? Í fréttum er alltaf
öðru hvoru sagt frá þar sem verið er
að níðast á konum. Spurning er hvort
Rúrí hafi viljað vekja athygli á stöðu
konunnar í nútímasamfélagi.
Græðgi og ágirnd margra er nokk-
uð sem skemmt hefur mikið út frá
sér í samfélaginu. Þriðjudaginn 29.
ágúst ritaði sr. Gunnar Kristjánsson
prófastur á Reynivöllum í Kjós frá-
bæra grein í Morgunblaðið: Stríð
streymir Jökla, um ágirndina og
freistinguna. Höfundur tengdi mál
sitt deilunum miklu um Kárahnjúka.
Hafi hann bestu þakkir fyrir og megi
greinin verða sem flestum Íslend-
ingum hvatning til alvarlegrar um-
hugsunar.
Stjórnvöld allra tíma eru bæði
seint og snemma að taka ákvarðanir
og sumar hverjar oft mjög umdeild-
ar. Þá er ekki alltaf farið eftir þjóð-
arvilja eða því sem flestir vilja. Þá er
stundum vísað til fulltrúalýðræðis þó
svo að kannski aðeins einn eða í
besta falli tveir eða þrír hafi í raun og
veru tekið ákvörðun! Fyrir kemur,
að ekki er einu sinni haft fyrir því að
leita til sérfræðinga sé einhver vafi á
ferð, stundum er skoðunum þeirra
stungið undir stól. Umdeild ákvörð-
un er tekin og ekki aftur snúið.
Nú er unnt að drekkja ýmsu fleira
en fátækum og varnarlausum konum
á Íslandi. Tiltölulega auðvelt er fyrir
ósvífna valdsmenn að drekkja skoð-
unum og viðhorfum annarra í þjóð-
málaumræðunni. Jafnvel mannrétt-
indi er auðvelt að troða niður í
svaðið. Hvað með réttlætið? Auðvelt
er að sniðganga það einnig einkum
þegar lög og reglur eru óskýrar.
Skyldi þá ekki jafnvel heilu dalirnir
og hálendi landsins falla jafnvel sem
fórn og landslagi breytt í þágu
gróðafíkninnar?
Listamenn allra tíma hafa oft not-
að konuna sem tákn fegurðar náttúr-
unnar.
Hafi listamaðurinn Rúrí bestu
þakkir fyrir vel úthugsaðan gjörning
við Drekkingarhyl.
Ég bíð spenntur að fylgjast með
þeim næsta.
Gjörningurinn við Drekkingarhyl
Guðjón Jensson fjallar um
gjörninga og gróðafíkn
Guðjón Jensson
»Nú er unnt aðdrekkja ýmsu
fleira en fátækum og
varnarlausum konum
á Íslandi.
Höfundur er forstöðumaður bóka-
safns og leiðsögumaður.
NÝLEGA kynnti heilbrigð-
isráðherra tillögur um aðgerðir til að
efla þjónustu við börn
með hegðunar- og geð-
raskanir. Tillögurnar
gera ráð fyrir að
styrkja öll þjónustustig,
frá sérhæfðri þjónustu
Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans
(BUGL) til almennrar
grunnþjónustu heilsu-
gæslustöðva. Í umfjöll-
un og skipulagningu
heilbrigðisþjónustu, eru
gjarnan skilgreind þrjú
þjónustustig; 1. stig al-
mennrar grunnþjón-
ustu, 2. stig sérhæfðari þjónustu inn-
an almenna kerfisins og 3. stig
sérhæfðra stofnana svo sem BUGL.
Í tillögunum kom m.a. fram að efla
eigi Miðstöð heilsuverndar barna
(MHB) og að ákveðinn hluti grein-
ingar og ráðgjafar færist þangað frá
göngudeild BUGL. MHB er sérstök
2. stigs starfseining innan vébanda
Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins sem
sinnir ýmiss konar sér-
hæfðu klínísku starfi og
verkefnum í samstarfi
við heilsugæslustöðvar.
Að auki hefur MHB
margþætt hlutverk
gagnvart heilsugæsl-
unni á landsvísu, ekki
síst hvað varðar
fræðslu, þróunarstarf
og ráðgjöf, sem ekki
verður gerð nánari skil
hér.
Eitt þriggja sviða á
MHB er Þroska- og hegðunarsvið
þar sem þverfaglegt teymi barna-
lækna, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, sál-
fræðinga og sjúkraþjálfara hefur frá
árinu 1998 byggt upp öflugt úrræði
við greiningu þroska- og hegð-
unarfrávika 0-6 ára barna. Þessi
starfsemi, sem þjónar höfuðborg-
arsvæðinu og nærliggjandi héruðum,
hefur mælst vel fyrir og er í nánum
tengslum við ung- og smábarna-
vernd, leikskóla, ráðgjafarskrifstofur
leikskóla o.fl. aðila.
Á síðastliðnu ári var ákveðið að
auka þjónustu á MHB fyrir börn með
hegðunar- og geðvanda og bjóða m.a.
upp á greiningu og ráðgjöf vegna
gruns um athyglisbrest og ofvirkni
(ADHD) og skyldra raskana. Ákvörð-
unin kom til bæði vegna tilmæla frá
þáverandi ráðherra og til að bregðast
við löngum biðlistum víða í þjón-
ustukerfinu.
Samstarf við BUGL
Til að efla sérhæfingu við greiningu
og meðferð geðraskana barna á MHB
og tryggja sem best gæði og samfellu
þjónustunnar hefur frá upphafi verið
haft fullt samráð við BUGL við þróun
þessarar auknu þjónustu. Gerður var
formlegur samstarfssamningur sem
kveður á um fræðslu og reglulega
handleiðslu sérfræðinga BUGL til fag-
fólks greiningarteymisins á MHB.
Þessi stuðningur hefur verið ómet-
anlegur enda eru þeir sálfræðingar,
barnageðlæknir og félagsráðgjafi sem
sinna þessari ráðgjöf og handleiðslu öll
meðal færustu og reyndustu sérfræð-
inga landsins á þessu sviði.
Markmið samstarfssamnings MHB
og BUGL er „… að stuðla að bættri
þjónustu við börn sem hafa vísbend-
ingar um athyglisbrest, ofvirkni og
aðrar hegðunartruflanir með því að
auka aðgengi að sérhæfðri greiningu,
meðferð og eftirfylgd annarrar línu
þjónustu í heilsugæslunni og draga
þar með úr álagi á þriðju línu þjónustu
sem veitt er frá BUGL“.
Sú staðreynd að ekki er starfandi
barnageðlæknir á MHB er ekki
vegna áhuga- eða skilningsleysis á
nauðsyn þess, heldur vegna þess að
fram til þessa hefur ekki verið fjár-
magn til slíkrar ráðningar. Tillögur
ráðherra um að efla sérhæft starf á
MHB fela vonandi í sér að ráðrúm
skapist til að bæta úr þessu og ráða
fleira sérmenntað starfsfólk, þ.á m.
barnageðlækni.
Þótt eflaust sé hægt að færa rök
fyrir því að enn betur megi gera í efl-
ingu þjónustu við börn sem stríða við
hegðunar- og geðvanda, ber að fagna
þeirri viðleitni sem tillögur ráðherra
fela í sér. Það hvernig fagfólk á hin-
um ýmsu þjónustustigum vinnur úr
þeim tækifærum sem þarna eru
sköpuð mun ekki síst hafa áhrif á
hvernig til tekst .
Orð í belg
Gyða Haraldsdóttir skrifar um
þjónustu við sérstök börn » Tillögur ráðherraum að efla sérhæft
starf á MHB fela von-
andi í sér að ráðrúm
skapist til að bæta úr
þessu og ráða fleira sér-
menntað starfsfólk …
Gyða Haraldsdóttir
Höfundur er sálfræðingur og sérfræð-
ingur á sviði föltunar barna og sviðs-
stjóri Þroska- og hegðunarsviðs MHB.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is