Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUGASTI starfsvetur Kammermúsíkklúbbsins hófst á sunnudagskvöld við fjölmenna að- sókn. Í boði voru tvö öndvegisverk úr kannski kammermúsíkölskustu allra kammertóngreina, tríói fyrir píanó, fiðlu og selló. Fyrst var hið ástsæla Tríó Franzs Schuberts í e-moll frá næst- síðasta æviári hans 1827, er menn hafa látið að liggja að sé til óyfir- lýstrar minningar um Beethoven sem hinn feimni Schubert dáði mjög en hafði aldrei uppburð til að kynnast nánar í lifanda lífi. Ekki minna efnistökin þó á tríó Beet- hovens. Nær væri að nefna Schu- mann, og skýrist það auðvitað af að- dáun yngri höfundarins á þessu fjórþætta verki, eins og sést hvað bezt á lokaþætti þess sem víða er nánast næsti bær við kammertón- mál Schumanns. Það er engin spurning að B-dúr tríóið er meðal allra innblásnustu verka fyrr og síðar fyrir téða áhöfn. Því mætti í sjálfu sér halda að lítill vandi væri að gera því fullkomin skil svo lengi sem flytjendur leika óaðfinnanlega hreint, samtaka og í góðu styrkrænu jafnvægi eins og hér var oftast uppi á teningi. En þrátt fyrir vandaða spilamennsku fór mér fljótt að hálfleiðast. Það vantaði eitthvað umfram, og smám saman hvarflaði að mér hvort ekki birtist hér sem oftar aðalvandi ís- lenzks kammerflutnings í hnot- skurn – tímaleysi undir samæfingu. Vitaskuld er hróplega ósann- gjarnt að bera hérlendar „ad hoc“ aðstæður saman við þaulrútínu er- lendra atvinnukammerhópa sem gera ekkert annað en að flytja sömu tiltölulega fáu verk árið um kring. Samt virtist mér þar einmitt hundurinn grafinn. Verk eins og e- moll tríóið útheimtir nefnilega akk- úrat þetta – inngróna samspila- mennsku „per esp“ eða svefngeng- ilslega öruggt hópefli við fínmótun stórra hendinga og tempóbreytinga svo músíkin öðlist hið sérstaka líf og spennu sem hvergi stendur í nótunum. Þar vantaði herzlumun- inn hjá Trio Nordica, og þess vegna verkaði túlkun hópsins oftar en ekki líkt og kreist úr túpu við jafn- an þrýsting. Fyrir vikið kom flutn- ingurinn, ekki sízt í lokaþætti þar sem Schubert nærri því „hjakkar“ á grunnfrumi aðalstefs, furðu vél- rænn fyrir í mínum eyrum. Öðru máli gegndi um snilldar- verk Dmítrís Sjostakovitsj í e-moll frá 1944. Einhverra hluta vegna, hugsanlega tengt tragísku megin- inntaki verksins í manískri hryllingsumgjörð heimsstyrjald- arinnar, virtist það þola betur fá- breytt tempóval hópsins, ef þá ekki beinlínis þurfa þess. Alltjent lifnaði ég allur við eftir hlé, því það sem mætti mér þá var af allt öðrum toga. Hindurvitni sammannlegrar sektarkenndar vegna stríðs- grimmdar og gyðingamorða risu kviklifandi upp úr fjöldagröfum fyr- ir innlifaða meðferð hópsins svo manni rann kalt vatn milli skinns og hörunds, og hin stöku gálgahúmor- ísku broshvörf sovézka meistarans drógu hvergi úr nema síður væri í snilldartúlkun þeirra þremenninga. Hér var vel að verki staðið, og hin sjarmerandi tvö aukalög eftir Piazzolla tryggðu eins og eftir forn- grískan harmleik að hlustendur gengu þrátt fyrir allt ekki grátandi heim. Vélrænn Schubert, magnaður Sjostakovitsj TÓNLIST Bústaðakirkja Schubert: Píanótríó í B Op. 99. Sjostako- vitsj: Píanótríó í e Op. 67. Trio Nordica (Auður Hafsteinsdóttir fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló og Mona Sand- ström píanó). Sunnudaginn 17. septem- ber kl. 20. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Íslenskar plötur Ýmsir – 100% Sumar Safnplatan 100% sumar inniheldur tuttugu lög með jafn mörgum flytjendum. Útgefandi er 2112 Culture Company. ÞAÐ fyrsta sem maður tekur eftir í sambandi við þessa sumarsafnplötu er umslagið, sem er hreint og beint skelfilegt. Minnir á þessa fríu diska sem bankar eða símfyrirtæki gefa viðskiptavinum sínum í jólagjöf, eða þá á hinar mögnuðu safnplötur sem Spor gaf út fyrir um tíu árum; Reif í skóinn – pakkann – ísinn eða hvað þetta hét nú allt saman. Þá finnst mér sú yfirlýsing sem prýðir framhlið plötunnar hæpin; það er að platan innihaldi tuttugu af vinsælustu ís- lensku lögunum, vorið og sumarið 2006 og geti valdið „varanlegri sumar- gleði við ofhlust- un!“ Hér er öllu heldur um að ræða samtíning úr hin- um og þessum áttum, lög með flytj- endum sem eru að fara að gefa út plötu hjá 2112 í bland við annað; og platan ekkert sumarlegri en hver önnur safnplata. En hvað um það, heyrn er sögu ríkari. Því miður er hún þó ekkert sérstakleg rík og þess heldur fátæk- ari. Mesta athygli vekur að byrjunar- lögin, líklega tromp plötunnar, eru vart boðleg. Framlag Margrétar Eirar og Helga Rafns eru mjög snautleg og ég botna ekki í því hvernig lagið „Ó María“, með þeim Gretu Mjöll og Hólmfríði komst á diskinn. Fleira gleður þá ekki. Plast-„doo wop“ söngsveitarinnar Brooklyn Fæv er jafn yfirborðskennd og alltaf og maður veit varla hvort maður á að hlæja eða gráta þegar maður hlýðir á Ellert Heiðar syngja lagið „Þú sagðist elska mig“. Stórkostlega ömurlegur texti við yfirdrifna dramatík. Hanna Guðný, Guðrún Árný og Leone Tinganelli eiga þá öll lög sem hreyfa engan veginn við manni. Eftirfarandi listamenn bjarga plötunni frá algerum óskunda. Lag Baggalúts og Valgeirs Guðjónssonar er líklega frískasta lagið hér; dæg- iskemmtilegt þó að þolinmæði mín gagnvart heimabrugguðum húmor Baggalúts sé takmörkuð. Svavar Knútur á þá lag sem sólólistamaður og einnig á hann lag með sveit sinni Hrauni. Angurvær lög og snotur. Ei- vör Pálsdóttir og Högni Lisberg eiga góð lög bæði tvö og útsetning MoR á lagi Gunnars Þórðarsonar, „Ástarsæla“, gengur vel upp í ein- faldleika sínum. „Take me with you“ með Myst er þá gott og Bogomil Font á gríðarhresst innslag. Annað er þarna einhvers staðar á milli. Semsagt, ekki merkilegur pappír og þessi „100%“ sumarsafnplata á heildina litið fremur kauðsk. Arnar Eggert Thoroddsen Kauðskt AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 SANDUR MÖL FYLLINGAREFNI WWW.BJORGUN.IS Sævarhöfða 33, 112 Reykjavík, sími 577 2000 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 FOOTLOOSE Í kvöld kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 UPPS. Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 HVÍT KANÍNA Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk eftir hópinn Í kvöld kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 Sun 1/10 kl. 20 BANNAÐ INNAN 16 ÁRA. Engum hleypt inn án skilríkja. FRÍTT FYRIR 12 ÁRA OG YNGRI Börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum* *Gildir ekki á söngleiki og barnasýnin- gar. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is MEIN KAMPF Fös 29/9 kl. 20 Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 Lau 14/10 kl. 20 Lau 21/10 kl. 20 ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskriftarkorta stendur yfir! 5 sýningar á 9.900 kr. Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin Eldjárn og Egil Ólafsson Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lind- gren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Manntafl e. Stefan Zweig Alveg brilljant skilnaður e. Geraldine Aron Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is www.leikfelag.is 4 600 200 Kortasala í fullum gangi! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu Lau. 30.sept. kl. 14 UPPSELT - 3.kortasýn. Lau. 30. sept. kl. 15 UPPSELT Lau. 30. sept. kl. 16 Aukasýning - í sölu núna Sun. 1. okt. kl. 14 UPPSELT - 4.kortasýn. Sun. 1. okt. kl. 15 UPPSELT Sun. 1. okt. kl. 16 UPPSELT Sun. 8. okt. kl. 17 örfá sæti laus - 5.kortasýn. Næstu sýningar: 15/10, 22/10, 29/10 Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu Fös. 29.sept. kl. 21 UPPSELT - 1.kortasýn. Lau. 30.sept. kl. 21 2.kortasýn. Næstu sýningar: 05/10, 06/10, 12/10, 13/10, 14/10 Mr. Skallagrímsson - leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Miðvikudagur 27/09 kl. 20 Uppselt Fimmtudagur 28/09 kl. 20 Örfá sæti laus Fimmtudagur 5/10 kl. 20 Uppselt Föstudagur 6/10 kl. 20 Uppselt Laugardagur 7/10 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 8/10 kl. 20 Uppselt Fimmtudagur 12/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 13/10 kl. 20 Uppselt Laugardagur 14/10 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 15/10 kl. 20 Uppselt Fimmtudagur 19/10 kl. 20 Laus sæti Föstudagur 20/10 kl. 20 Uppselt Laugardagur 21/10 kl. 20 Uppselt Sunnudagur 22/10 kl. 20 Uppselt Fimmtudagur 26/10 kl. 20 Síð. sýn. á árinu Laus sæti Eftir Benedikt Erlingsson Sýningar í september og október SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Hljómsveitarstjóri ::: Krzysztof Penderecki Einleikari ::: Florian Uhlig Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30 Krzysztof Penderecki ::: Sjakonna fyrir strengi Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 4 Krzysztof Penderecki ::: Píanókonsert Það ferskasta í norrænni nútímatónlist FIMMTUDAGINN 5. OKTÓBER KL. 19.30 Jón Leifs ::: Edda I LAUGARDAGINN 14. OKTÓBER KL. 17.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.