Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. AÐ STANDA VIÐ STÓRU ORÐIN Ræða Valgerðar Sverrisdótturutanríkisráðherra á allsherj-arþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrradag bar þess öll merki að Ísland er í framboði til ör- yggisráðs samtakanna. Aðaláherzla utanríkisráðherra var á þróunarmál, enda skiptir það miklu máli fyrir Ís- land að ná fylgi í hinum stóra hópi þróunarríkja, eigi nokkur von að vera um sæti í öryggisráðinu. Valgerður lét m.a. í ljós áhyggjur af stöðu mála í alþjóðlegum fríverzl- unarviðræðum á sviði Heimsvið- skiptastofnunarinnar (WTO). Hún benti á að frjáls viðskipti gætu orðið mikilvægasti áhrifaþátturinn í að efla efnahagsþróun á heimsvísu og ekki ætti að láta tækifærið, sem Doha-við- ræðulotan hefði boðið upp á, úr greip- um ganga. Utanríkisráðherra nefndi jafn- framt að Ísland vildi axla ábyrgð í þróunarmálum og að á næsta ári yrði þróunaraðstoð Íslendinga við fátæk- ari ríki heims þrefalt meiri en fyrir nokkrum árum. Íslendingar væru staðráðnir í að auka enn þróunarað- stoð sína og eftir 2009 væri stefnt að því að ná markmiði Sameinuðu þjóð- anna um að iðnríkin verji 0,7% af þjóðartekjum sínum til þróunar- hjálpar. Þá vakti Valgerður Sverrisdóttir athygli á því, að Ísland hefði meira en tífaldað stuðning sinn við UNIFEM, þróunarsjóð SÞ í þágu kvenna, og Ís- lendingar legðu ennfremur hver og einn meira til UNICEF, barnahjálp- ar Sameinuðu þjóðanna, en tíðkaðist með öðrum þjóðum. Í kosningabaráttu er sjálfsagt að flagga því, sem vel hefur verið gert, og gefa loforð sem eiga að auka lík- urnar á kjöri. En það er líka rétt að hafa í huga, að í kosningunni til ör- yggisráðs SÞ skiptir ekki öllu máli hvort sætið vinnst eður ei, það verður gengið eftir því að Ísland efni kosn- ingaloforðin og standi við yfirlýsing- ar sínar um að leggja meira af mörk- um til þróunar hinna fátæku ríkja heimsins. Íslenzkum stjórnvöldum verður haldið við efnið á vettvangi WTO. Það verður horft til þess hvort þau vilja raunverulega fríverzlun, eða hvort þau vilja áfram standa vörð um þrönga sérhagsmuni í viðskiptum með landbúnaðarvörur. Íslendingum verður líka haldið við efnið hvað varðar loforðin um að upp- fylla markmið SÞ um hlutfall þróun- araðstoðar af þjóðartekjum. Það verður horft til samanburðar á fram- lögum Íslands annars vegar og hinna norrænu ríkjanna hins vegar, en hann er enn sem komið er okkur í óhag. Með framboði sínu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, kosningabar- áttunni, opnun vefsíðu o.s.frv. hefur Ísland beint kastljósinu sem aldrei fyrr að því hvernig það stendur að þróunarmálum. Það þýðir að fleiri en áður vita að við höfum góð áform, en þeir vita líka að eins og er stendur eitt ríkasta land í heimi flestum öðr- um þróuðum ríkjum að baki í stuðn- ingi við hin fátæku þróunarlönd. Það verður eftir því tekið, hvort við stöndum við stóru orðin. HUGMYNDASAMKEPPNI UM VARNARSVÆÐIÐ Gríðarlegir möguleikar felast aug-ljóslega í nýtingu þess land- svæðis og mannvirkja, sem Banda- ríkjamenn hafa nú afhent Íslendingum á varnarsvæðinu á Mið- nesheiði. Þar er um að ræða hundruð íbúða, flugskýli og skemmur, kvik- myndahús, sundlaug, sjúkrahús, kirkju (raunar fjölnota guðshús sem hentar ýmsum trúarbrögðum) o.s.frv. Ljóst er að nýting svæðisins og bygginganna er ýmsum takmörkun- um háð. Í fyrsta lagi er mikið af húsnæðinu gamalt og úr sér gengið og áætlað hefur verið að rífa geti þurft allt að helmingi þess. Í öðru lagi er ekki víst að hag- kvæmt sé að reka t.d. sundlaug eða sjúkrahús á þessu svæði, þar sem sambærileg aðstaða er fyrir hendi í Reykjanesbæ. Í þriðja lagi þarf að vera hægt að uppfylla skyldur Íslands um að veita herliði Bandaríkjanna og annarra NATO-ríkja aðstöðu á svæðinu vegna heræfinga og ef til hættuástands kemur, sem kallar á að herlið verði sent hingað á ný. Í fjórða lagi vill íslenzka ríkið auð- vitað hafa tekjur af sölu eigna á svæð- inu, en hún verður að fara fram í hæfilegum skömmtum, þannig að fasteignamarkaðurinn á Suðurnesj- um verði ekki settur á hliðina. Enginn skortur er á hugmyndum um nýtingu svæðisins. Utan um þær verður væntanlega haldið á vegum hlutafélagsins, sem ætlunin er að stofna um svæðið og nýtingu þess. Það skiptir máli að svæðið verði ekki nýtt til að auka opinber umsvif nema að því marki sem stofnanir, sem í dag búa við ófullnægjandi aðstöðu, gætu fengið betra athafnasvæði á gamla varnarsvæðinu. Þar hafa bæði Land- helgisgæzlan og Lögregluskólinn verið nefnd til sögunnar. En fyrst og fremst á að kalla eftir hugmyndum einkaaðila um það hvernig eigi að nýta tækifærin, sem í svæðinu og mannvirkjunum felast. Hins vegar hlýtur að þurfa að skipuleggja svæðið upp á nýtt. Það er skipulagt í samræmi við allt önnur sjónarmið en verið hafa uppi í þétt- býlisskipulagi á Íslandi undanfarna áratugi, enda byggt og notað sem herstöð. Þá vaknar sú spurning, hvort ekki eigi að efna til alhliða hugmyndasam- keppni, þar sem í fyrsta lagi er aug- lýst eftir hugmyndum um rekstur og starfsemi á svæðinu og í öðru lagi hvernig hægt sé að gera það að eðli- legu framhaldi byggðarinnar í Reykjanesbæ annars vegar og flug- vallarsvæðisins hins vegar. Ef rétt er á haldið getur Miðnesheiðin orðið eitt öflugasta vaxtarsvæðið á Íslandi á næstu árum. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is M agnús H. Guðjóns- son, framkvæmda- stjóri Heilbrigðis- eftirlits Suðurnesja, telur að ástand um- hverfisins, á þeim varnarsvæðum sem Bandaríkjamenn hafa haft til umráða frá 1951, sé ekki eins slæmt og við mátti búast. Íslendingar taka við öllum svæðunum nema litlu svæði í Grindavík, í lok mánaðarins, samkvæmt samkomulagi íslenskra og bandarískra stjórnvalda, vegna brotthvarfs varnarliðsins. Heilbrigðiseftirlitið hefur farið með öll umhverfismál á varnar- svæðunum og er kunnugt um sextíu mengaða staði á þeim. „Miðað við sambærileg svæði annars staðar í heiminum, tel ég að við höfum slopp- ið mjög vel,“ segir Magnús. Varnarsvæðin eru á sex stöðum á landinu. Stærst þeirra er varnar- stöðin í Keflavík, sem er tæplega 8.400 hektarar að stærð. Mismikil mengun er á öllum þessum svæðum, að sögn Magnúsar. Hann segir að mengunin sé þrenns konar: grunn- vatnsmengun, jarðvegsmengun og mengun vegna mannvirkja sem þarf að fjarlægja, s.s. olíuleiðslur, olíu- tankar og möstur. Þessi mannvirki eru ýmist ofan- eða neðanjarðar. Að sögn Magnúsar er olía aðal- ástæða mengunarinnar og hefur hún lekið frá starfsemi Bandaríkja- hers í áranna rás. Á nær öllum stöð- unum sextíu er mengunin olía, en á þremur þeirra er þó vitað um örlitla PCB-mengun í jarðvegi, segir Magnús. Þá er vitað um öskuhauga, sem gætu í framtíðinni mengað grunnvatn. PCB er skylt klórlífrænum efnum og finnst í ýmsum iðnvarningi, að- allega í olíu. Það safnast fyrir í fitu- vef lífvera sem lifa í jarðvegi, seti og sjó, þegar þær éta PCB-ríkan jarð- veg. Ríkisstjórnin lýsti því yfir í fyrra- dag að stofnað yrði hlutafélag í eigu ríkisins um framtíðarþróu breytingu fyrrverandi varn á Keflavíkurflugvelli. verður m.a. ætlað að bera hreinsun svæðisins. Magn ráð fyrir því að Heilbrig Suðurnesja hafi eftirlit m hreinsun. Hann segir að vi unina verði notaðar þekkta urkenndar aðferðir. Magnús hefur ekki áhyggjur af svæðum, sem eru menguð af olíu. Hann sjálfu sér stafi lítil hætta blettum. „Olíubletturinn e kyrr, hann sest í jarðveg og ur í berginu. Þú sérð hann sinni. Hann getur þó menga vatn ef regnvatn skolar ho ur en yfirleitt situr hann fa Magnús segir að ráðist h hreinsun á olíumenguðum á Nikkelsvæðinu svonefn nokkrum árum vegna Bandaríkjamenn voru að svæði til Íslendinga, og ti reisa þar íbúðabyggð. Þar Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðis Ekki eins slæmt og við mátti búast Brotthvarf varnarliðsins hefur á ný beint kastljósinu að umhverfismálum á varnarsvæðunum. Íslendingar taka við svæðunum um mánaðamót. Heilbr iseftirlit Suðurnesja hefur vitneskju um sextíu mengaða staði á þeim. Í TENGSLUM við brottför Bandaríkjahers frá landinu hyggst ríkisstjórnin efla öryggisgæslu innanlands og almannavarnir með ýmsum hætti. Einnig á að efla samstarf Íslands og Bandaríkj- anna á sviði landhelgisgæslu, inn- flytjendamála, löggæslu, tollgæslu og landamæraöryggis. Þetta kem- ur fram í samkomulagi við Banda- ríkin vegna brottfarar herliðsins og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um ný verkefni vegna hennar. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur m.a. fram að samstarf land- helgisgæslu, slökkviliða og björg- unarsveita verði aukið enn frekar, þannig að tryggja megi þátttöku varaliðs hvarvetna sem þess kann að vera þörf í landinu. Varalið til öryggis Til að efla „almennt öryggi“ verður við endurskoðun laga um almannavarnir hugað að því að koma á fót miðstöð þar sem tengd- ir verði saman allir sem koma að öryggismálum innanlands, hvort sem er vegna náttúruhamfara eða vegna hættu af mannavöldum. Dagleg stjórn miðstöðvarinnar verði á vegum dómsmálaráðherra en til að tryggja sem best samhæf- ingu innan miðstöðvarinnar munu forsætisráðherra, utanríkisráð- herra, samgönguráðherra, heil- brigðisráðherra og umhverfisráð- herra sitja í yfirstjórn hennar, auk dómsmálaráðherra. Þá segir í yfirlýsingunni að tryggt verði að íslensk stjórnvöld hafi lögheimildir til náins sam- starfs við stjórnvöld og alþjóða- stofnanir þar sem skipst er á trún- aðarupplýsingum. Ríkisstjórnin muni vinna að því að koma á lagg- irnar samstarfsvettvangi fulltrúa stjórnmálaflokkanna þar sem fjallað verði um öryggi Íslands á breiðum grundvelli, m.a. í sam- starfi við sambærilega aðila í ná- lægum löndum. Starfi með sérsveitum hersins Fjallað er um nánari samvinnu við Bandaríkin á sviði öryggismála í samkomulaginu við Bandaríkja- menn. Þar kemur m.a. fram að reglulega muni fara fram reglu- legar viðræður sérfræðinga um ör- yggismál, jafnt hernaðarleg sem önnur öryggismál og er tekið fram að umræðuefni verði m.a. samstarf og upplýsingamiðlun á sviði hryðjuverkavarna, löggæslu, landamæraeftirlits og öryggis á hafinu. Fram kemur að Bandaríkin og Ísland ætli að „auka og styrkja samstarf á sviði löggæslu og landamæraöryggis til þess að hamla gegn og verjast ógnum sem steðja að báðum ríkjunum frá al- þjóðlegum hryðjuverkum, þar með talið með æfingum, þjálfun og starfsmannaskiptum milli lög- regluliða ríkjanna, sérsveita Bandaríkjahers og sérsveitar ís- lensku lögreglunnar, auk stofnana sem koma að innflytjendamálum, tollgæslu og landamæragæslu, sem og milli Alríkislögreglu Bandaríkjanna og viðeigandi op- inberra aðila á Íslandi.“ Þá muni Bandaríkin og Ísland kanna leiðir til þess að auka sam- starf milli bandarísku strandgæsl- unnar og Landhelgisgæslunnar með æfingum, þjálfun og starfs- mannaskiptum. Að auki sé til athugunar að bandaríska strandgæslan annist þarfagreiningu varðandi þjálfun Landhelgisgæslunnar og kaup hennar á búnaði. Öryggisgæsla og almanna- varnir efldar Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is RATSJÁRSTOFNUN við eftirliti með óþekkt vélum í íslenskri lofthe slíkt eftirlit á vegum v ins lagðist niður í lok m Ekki þarf að fjölga sta mönnum stofnunarinna taka að sér þetta verke Í yfirlýsingu ríkisstj arinnar um ný verkefn lenskra stjórnvalda við varnarliðsins frá því á kom fram að gerðar ha ráðstafanir til að lesið öllum merkjum Ratsjá unar er þýðingu hafi v irlits með flugvélum í l Íslands. Ólafur Örn Ha forstjóri Ratsjárstofnu festi í samtali við Morg í gær að stofnunin mun sér þessi verkefni. Eins og fram hefur k Morgunblaðinu hafa flu Fylgst með Ratsjáreft Rats irliti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.