Morgunblaðið - 28.09.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.09.2006, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag                                  ! " # $ %          &         '() * +,,,                  Í dag Sigmund 8 Forystugrein 26 Veður 8 Viðhorf 28 Staksteinar 59 Umræðan 28/30 Úr verinu 12 Bréf 30 Erlent 14/15 Minningar 30/35 Höfuðborgin 18 Myndasögur 44 Akureyri 18 Dagbók 46/47 Suðurnes 19 Staðurstund 48/49 Landið 19 Leikhús 42 Daglegt líf 20/25 Bíó 46/49 Menning 16/17 Ljósvakamiðlar 50 * * * Erlent  Milljónir barna undir fimm ára aldri deyja af völdum skorts á óspilltu vatni og lágmarkshreinlæt- isaðstöðu á ári hverju, að því er fram kemur í skýrslu sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) birtir í dag. Rúmur milljarður manna hefur ekki aðgang að ómeng- uðu vatni og um 2,6 milljarðar eru án lágmarkshreinlætisaðstöðu. » 1  Vatnslindir í Ástralíu eru að þorna upp og verði ekki veruleg breyting á veðurfarinu á næstunni má búast við alvarlegum áföllum í efnahagslífinu. Vegna þessa hefur verið komið á sérstöku ráðuneyti vatnsmála í landinu. » 14  Stjórnarkreppa ríkir í Póllandi og einn þingmanna stjórnarflokks- ins Laga og réttar hefur verið stað- inn að því að reyna að kaupa til fylgis við stjórnina þingmann úr Samoobrona-flokknum. » 15 Innlent  Samninganefndir Félags leik- skólakennara (FL) og Launanefnda sveitarfélaganna undirrituðu aðfara- nótt þriðjudagsins síðasta nýjan kjarasamning til tveggja ára. Með- altalslaunahækkanir samkvæmt samningnum eru 15,20% á samn- ingstímanum, þar af 6,73% upphafs- hækkun. » 52  Kaupþing banki gaf í gær út skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir samtals þrjá milljarða Bandaríkja- dala, eða um 210 milljarða króna. Þetta er stærsta skuldabréfaútgáfa Kaupþings banka frá upphafi en með henni lýkur endurfjármögnun þeirra langtímalána bankans sem koma til gjalddaga á árinu 2007. » 1  Unnið er að umskipun á farmi flutninga- og frystiskipsins Polestar í önnur skip í höfninni í Hong Kong þar sem skipið liggur nú, en það er með fullfermi af frystum úthafskarfa sem veiddur hefur verið ólöglega af sjóræningaskipum á úthafinu á Reykjaneshrygg. » 52 Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is KONUKOT verður rekið áfram til vors og mun Reykjavíkurborg greiða rekstrarkostnað á þeim tíma, en hingað til hefur Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands (RKÍ) staðið straum af kostnaðinum að langmest- um hluta. Á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar sl. þriðjudag var samþykkt að gera samning milli Reykjavíkurdeildar RKÍ og velferð- arsviðs borgarinnar um að Reykja- víkurdeildin reki Konukot tímabilið 1. desember nk. til 30. apríl á næsta ári, eða í fimm mánuði. Þessi tími verði notaður til að móta stefnu í málefnum húsnæðislausra kvenna hjá Reykjavíkurborg og finna var- anlega lausn í málefnum þessa hóps kvenna. „Þetta verður samstarfsverkefni og tíminn til vors verður notaður til að skoða framhaldið,“ segir Katla Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar RKÍ. „Þetta er mjög ánægjulegt og mikill léttir. Velferðarráð fær með þessum hætti tíma til að finna varanlega lausn á málinu. Þetta tryggir að eyða mun ekki myndast í þessari þjónustu þangað til önnur úrræði verða fund- in.“ Konukot er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. Reykjavíkur- deild RKÍ mun áfram sjá um rekst- urinn, halda utan um gjafir sem at- hvarfinu berast og um mönnun sjálfboðaliða. Rekstur Konukots tryggður til vors Í HNOTSKURN »Frá því Konukot var opnaðfyrir um tveimur árum hafa yfir sextíu konur leitað þar skjóls um lengri eða skemmri tíma. » Rekstrarkostnaðurinn erum 18 milljónir á ári en at- hvarfið fær reglulega gjafir og matarkostnaður því lágur. FYRSTU tónleikar Jazzhátíðar Reykjavíkur fóru fram á Nasa í gærkvöldi. Stórsveit Reykjavíkur lék undir stjórn bandaríska stjórnandans Bill Holmans í byrjun tónlistarveislunnar sem standa mun til 1. október. Morgunblaðið/ÞÖK Nú verður sko djassað JESUS Sainz, einn þeirra fimm manna sem Íslensk erfðagreining (ÍE) hefur kært fyrir að stela og senda til keppinautar viðskipta- og rannsóknaupplýsingar, ætlar í meið- yrðamál gegn ÍE – bæði hér á landi og vestanhafs. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sainz, segir ÍE hafa brotið á rétti skjólstæðings síns með því að lesa einkatölvupóst hans auk þess sem fyrirtækið haldi því fram að hann sé sekur þrátt fyrir að vita betur. Sveinn segir málið ekki snúast um hvort Sainz hafi afritað gögn af net- þjóni ÍE, það hafi hann viðurkennt að hafa gert. Málið snúist um ásak- anir um að hann hafi komið þeim gögnum í hendurnar á öðrum aðila, Barnaspítala Fíladelfíu (CHOP). Um 60 þúsund skrár afritaðar yfir á harðan disk „Það sem gerðist var að hann af- ritaði gögn til að vinna með heima, allt sem hann var að vinna með, um 60.000 skrár yfir á harðan disk. Síð- an keypti hann sér fartölvu í Banda- ríkjunum. Við innanhússrannsókn deCODE og rannsókn Ríkislög- reglustjóra hefur komið í ljós að það hefur ekkert verið átt við gögnin sem hann afritaði á harða diskinn, hann hefur ekki sent einum eða neinum þessi skjöl og ekki afritað þau á ann- að form,“ segir Sveinn. Íslensk erfðagreining viti þetta en segi samt að Sainz hafi, ásamt fjórum öðrum, sent spítalanum í Fíladelfíu tölvu- gögn, í raun stolið þeim í þágu spít- alans. „Það virðist vera að ÍE fari fram með þeim ásetningi að rústa minn umbjóðanda um leið og þeir fara í mál við hina.“ Mun verja starfsmennina af mikilli hörku Sainz starfar ekki fyrir Barnaspít- ala Fíladelfíu en á vefsetri spítalans kemur fram að ásakanir Íslenskrar erfðagreiningar á hendur þeim fjór- um mönnum sem starfa á CHOP séu alrangar. Lögsóknin í Bandaríkjun- um gegn mönnunum miði að því að koma í veg fyrir að þeir hefji störf við spítalann á sviði erfðarannsókna. CHOP segir þessar ásakanir til- hæfulausar og það muni koma í ljós í málaferlunum, en spítalinn ætlar sér að verja mennina af hörku. „Okkur skilst að ÍE ætli að leggja fram kæru á hendur CHOP innan sólarhrings,“ segir á vefsetrinu og framkvæmda- stjóri spítalans, Steven M. Altschu- ler, er þess fullviss að starfsmenn- irnir og spítalinn verði hreinsaðir af öllum ásökunum. Sérstök deild var sett á laggirnar innan CHOP í júní sl. til genarann- sókna á algengum barnasjúkdómum. Altschuler segir ætlunina að bæta heilsu barna með því starfi og því mikið áfall ef „gróðafyrirtæki“ ætli að skemma það góða starf. Jesus Sainz ætlar í mál gegn ÍE ÁRMANN Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í Suð- vesturkjördæmi fyrir komandi al- þingiskosningar. Ármann, sem er stjórnmálafræðingur að mennt, hef- ur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi frá 1998 og gegnt formennsku í skóla- nefnd og skipulagsnefnd bæjarins auk þess að sitja í fjölda annarra nefnda á vegum Kópavogsbæjar og stjórnvalda. Hann hefur verið að- stoðarmaður ráðherra í samgöngu-, sjávarútvegs- og fjármálaráðuneyti. Ármann segir að reynsla hans úr sveitarstjórnar- og landsmálunum komi til með að nýtast vel bæði fyrir kjördæmið og á landsvísu. Stærsta einstaka verkefnið segir hann vera að viðhalda þeim árangri sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur náð í efna- hagsmálum og styrkja enn frekar samkeppnisstöðu landsins. Ármann leggur m.a. áherslu á skipulagsmál þar sem mikilvægt sé að bæta vegakerfi kjördæmisins um leið og bætt verði úr hljóðvist stórra umferðaræða. Hann leggur áherslu á aukið samstarf ríkis og sveitarfé- laga til hagsbóta fyrir eldri borgara og telur nauðsynlegt að ráðast í byggingu nýrra framhaldsskóla bæði í Mosfellsbæ og Kópavogi. Ármann Kr. Ólafsson Stefnir á 3. sætið fimmtudagur 28. 9. 2006 viðskipti mbl.is viðskipti Þormóður Jónsson hjá Fíton segir mikla tilfinningu vera í markaðsmálum » 6 IMPRA OG NÝSKÖPUN EINSTAKLINGUM OG STJÓRNENDUM FYRIRTÆKJA AUÐVELDAÐ AÐ VIRKJA EIGIÐ HUGVIT >> 12 PROMENS hf., dótturfélag Atorku Group, hefur ákveðið að reisa ýja hverfisteypuverksmiðju í Pól- andi til framleiðslu á vörum úr plasti. Framkvæmdir hefjast innan fárra ikna og fyrirhugað er að hún taki til tarfa á miðju næsta ári. Upphafleg tærð verksmiðjunnar verður um .000 fermetrar en mögulegt verður ð rúmlega tvöfalda stærð hennar. Aart Fortanier, framkvæmdastjóri romens á meginlandi Evrópu, segir ð félagið hafi verið með starfsemi í Austur-Evrópu undanfarin sex ár em hafi reynst mjög vel. „Austur-Evrópa hefur verið ört axandi markaður og mjög áhuga- erður fyrir margar sakir. Stærstu iðskiptavinir okkar hafa í auknum mæli flutt starfsemi sína þangað og með þessari nýju verksmiðju viljum við bjóða þeim sömu þjónustu þar og við gerum í Vestur-Evrópu,“ segir Fortanier. Verksmiðjan verður byggð á 5,6 hektara lóð í nýju iðnaðarsvæði í Miedzyrzecz, en Fortanier segir margar ástæður liggja að baki valinu á þessari staðsetningu. „Dótturfélag okkar, Bonar Polska Sp. Z o.o, hefur starfrækt þarna litla verksmiðju með 90 starfsmönnum frá árinu 2001. Þessi eining hefur verið mjög arðbær og við byggjum því á góðri reynslu. Frá Miedzyrecz er að- eins tveggja tíma akstur að landa- mærum Þýskalands. Verksmiðjan verður þannig vel tengd því þjónustu- neti sem við rekum fyrir í Vestur- Evrópu, auk þess að vera góður grunnur að frekari vexti okkar í Aust- ur-Evrópu. Verksmiðjan verður byggð sam- kvæmt nýjasta framleiðslufyrir- komulagi og tæknilega mjög fullkom- in og þá kemur sér að frá Miedzyrecz er stutt til Poznan í Póllandi þar sem mikið er af hæfu starfsfólki,“ segir Fortanier. Nýja verksmiðjan bætist við 21 verksmiðju sem Promens rekur nú í 10 löndum beggja vegna Atlantshafs- ins. Promens reisir verksmiðju Byggir 9.000 fermetra hverfisteypu- verksmiðju í Miedzyrzecz í Póllandi Morgunblaðið/Eyþór Hraðar hendur Þessa dagana vinnur fjöldi fólks að því að koma nýrri IKEA-verslun í stand en hún verður opnuð eftir tvær vikur. >> 8 æknilega fullkomin Hin nýja Verksmiðja Promens í Póllandi. FONS eign- arhaldsfélag í eigu þeirra Pálma Haralds- sonar og Jó- hannesar Krist- inssonar, hefur selt allan sinn hlut í sænska lággjaldaflug- félaginu Fly Me. Þetta staðfesti Pálmi Haralds- son í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við tókum þá ákvörðun að selja allan okkar hlut til Cognation, hlutafélags í eigu Norðmanna, þar sem ekki var samstaða í hlut- hafahópnum um hvert stefna bæri,“ sagði Pálmi. Ágreiningur við Christen Ager Hann sagði að ágreiningur hefði m.a. verið við Norðmanninn Chris- ten Ager Hansen, aðaleiganda Cognation. Pálmi sagði að hann og Jóhann- es teldu kröftum sínum einfaldlega betur varið á öðrum vettvangi, en í innbyrðis átökum í Fly Me. Til að mynda hefði ekki náðst samstaða um fjárfestingar í flugfélögunum Astraeus og FlyLa. Fons eignarhaldsfélag hefur verið stærsti einstaki hluthafinn í Fly Me með rétt rúm 20%. Pálmi vildi ekki upplýsa hvað hann og Jóhannes fengu fyrir sinn hlut. „Við töpuðum þó ekki á fjárfest- ingunni,“ sagði Pálmi Haraldsson. Fons selur í Fly Me Pálmi Haraldsson fimmtudagur 28. 9. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Íslenskir kylfingar í víking til Svíþjóðar » 2 DROGBA MEÐ ÞRENNU BÆJARAR Í SIGURFÖR TIL ÍTALÍU – CROUCH Í LOFTFIMLEIKUM Á ANFIELD Það er klárt að ég tek við þjálfun Fram en ég er ekki búinn að skrifa undir. Ég er hjátrúarfullur og skrifa ekki undir samninga nema á fimmtu- degi, föstudegi eða laugardegi,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær en hann tekur við starfi Ásgeirs Elíassonar sem hætti störfum hjá fé- laginu í síðustu viku en undir hans stjórn báru Framarar sigur úr býtum í 1. deildinni. Fram verður þriðja félagið sem Ólafur þjálfar. Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá Fylkismönnum árið 1998 sem léku þá í næst efstu deild. Ólafur stýrði Árbæjarliðinu upp í efstu deild ári síðar og um haustið sama ár var hann ráðinn þjálfari Skagamanna og gegndi því starfi til 30. júní í sumar þegar hann ákvað að segja því lausu. Undir stjórn Ólafs urðu Akurnesingar Íslandsmeistarar árið 2001 og urðu bikarmeistarar tvívegis, 2001 og 2003. Mikil áskorun ,,Mér finnst vera mikil áskorun að taka við liðinu. Fram er stórt félag sem á hvergi annars staðar heima en í efstu deild. Það hefur hins vegar ekki gengið sem skyldi hjá liðinu undanfar- in ár. Það hefur vantað einhverja festu og mitt hlutverk verður að bæta úr því. Fyrsta markmiðið verður eðlilega að tryggja sæti liðsins í Landsbanka- deildinni á næsta tímabili en síðan setjum við markið hærra. Liðið fór upp með glans í sumar en auðvitað vilja menn sjá árangur í efstu deild,“ sagði Ólafur, sem á dögunum hafnaði tilboði um að taka við þjálfun 1. deild- ar liðs Þróttar Reykjavík. Framarar hafa hampað Íslands- meistaratitlinum 18 sinnum en sextán ár eru liðin frá því Safamýrarliðið vann titilinn síðast. Þarf að styrkja liðið Ólafur segist hafa séð nokkra leiki hjá Framliðinu í sumar. ,,Ég kannast við nokkra leikmenn í liðinu og svona við fyrstu sín held ég að við þurfum að styrkja liðið eitthvað fyrir barátt- una næsta sumar. Ég mun skoða leikmannamálin á næstu dögum og vikum.“ Spurður hvort hann líki þessu starfi hjá Fram sem hann er að taka við við það þegar hann tók við liði Fylkis segir Ólafur; ,,Í rauninni er þetta ekki alveg sambærilegt. Fylkir var á þeim tíma sem ég tók við því ekki stórt félag en það var búið að eiga í ákveðnum vandamálum eins og Fram hefur verið í síðustu árin.“ Tek fríið síðar Ólafur var alvarlega að velta því fyrir sér að taka sér frí frá þjálfun og snúa sér að allt öðru. ,,Ég var mikið að spá í taka mér frí en eigum við ekki að segja að það bíði betri tíma?“ sagði Ólafur, sem reiknar með að hefja æfingar hjá Frömurum um mánaðamótin október-nóvember. Þjálfaralistinn að verða klár Þjálfaralisti liðanna sem leika í Landsbankadeildinni næsta sumar er smátt og smátt að taka á sig mynd. Einu spurningarmerkin eru Breiða- blik og ÍA. Ólafur Kristjánsson er í viðræðum við Blika um að halda áfram og nær öruggt er að Guðjón Þórðarson leysir tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni af hólmi. Þá lítur listinn þannig út: FH – Ólafur Jóhannesson KR – Teitur Þórðarson Valur – Willum Þór Þórsson Keflavík – Kristján Guðmundsson Breiðablik – Ólafur Kristjánsson? ÍA – Guðjón Þórðarson? Víkingur – Magnús Gylfason Fylkir – Leifur S. Garðarsson Fram – Ólafur Þórðarson HK – Gunnar Guðmundsson Ólafur tekur við þjálfun Fram Skagamaðurinn Ólafur Þórðarson hefur komist að samkomulagi um að taka við þjálfun úrvalsdeildar- liðs Fram í knattspyrnu. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær settu Framarar sig í samband við Ólaf eftir að Heimir Guðjónsson, aðstoðarþjálfari FH, hafnaði tilboði um að gerast þjálfari liðsins og síð- degis í gær komst Ólafur að sam- komulagi við Framara og liggur þriggja ára samningur tilbúinn til undirskriftar. Var alvarlega að spá í að taka sér frí frá þjálfun en ákvað að slá til Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is SIGMUNDUR Einar Másson, Ís- landsmeistari í höggleik karla í golfi, sigraði á háskólamóti í NCAA-deild- inni í Bandaríkjunum en hann lék 54 holur á 9 höggum undir pari. Sig- mundur leikur fyrir McNeese State-háskólann og lék hann hringina þrjá á 70, 68 og 69 höggum, en mótið fór fram á heima- velli McNeese-skólans. Mótið var einnig liðakeppni þar sem að 5 kylfingar eru saman í liði og telur skor fjögurra kylfinga í liða- keppninni. Sigmundur Einar og fé- lagar hans úr skólaliði McNeese State sigruðu í liðakeppninni með 11 högga mun og var þetta annar sigur þeirra á þessu tímabili. Í fyrsta móti ársins lék Sigmundur Einar á 73 og 71 höggi eða pari vallar og hefur hann því leikið síðustu 5 hringi á samtals 9 höggum undir pari – sem er mjög góður árangur. Kjartan Dór Kjartansson lék í ein- staklingskeppninni fyrir McNeese og lék hann á 230 höggum. Til sam- anburðar lék Sigmundur Einar hringina þrjá á 207 höggum. Sigmundur Einar stóð efstur á palli HEIÐAR Davíð Bragason, kylfing- ur úr Kili í Mosfellsbæ, lék á þrem- ur höggum yfir pari vallar á öðrum keppnisdegi á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi í gær. Hann lék á 75 höggum og fékk hann 5 skolla (+1) á hringnum og 2 fugla (-1). Í fyrradag lék hann á 70 höggum eða 2 höggum undir pari og er hann því samtals á einu höggi yfir pari þegar mótið er hálfnað. Heiðar var í 16.–23. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn en hann er í 42. sæti fyrir þriðja keppnisdaginn. „Það gekk ekkert upp og ég lék illa. Kom mér í vandræði á nokkrum holum þar sem ég gat varla annað en fengið skolla,“ sagði Heiðar við Morgunblaðið í gærkvöld. „Ég verð að spýta í lófana fyrir lokasprettinn. Það þýðir ekkert að leika eins og ég gerði í gær. Besta skorið er 12 högg undir pari og ég verð því að þoka mér í hóp 30 efstu í dag og gera enn betur í framhaldinu. Ég náði ekki að leggjast yfir nákvæm- ar mælingar á vellinum áður en ég fór að keppa. Ég sló hins vegar tví- vegis of langt, eiginlega allt of langt, af um 100 metra færi. Miðað við þessar merkingar sem ég vann út frá þá er ekkert að marka þær. Ég er reynslunni ríkari og geri þessi mistök ekki aftur,“ sagði Heiðar. Heiðar Davíð missti flugið á úrtökumótinu á Ítalíu Heiðar Davíð Bragason Morgunblaðið/Kristinn Á óvart ÍR-ingar komu svo sannarlega á óvart þegar þeir skelltu Haukum í úrvalsdeild karla í handbolta í Austurbergi í gær. Hér sækir ÍR-ingurinn Ivan Jovanovic að Andra Stefan, leikmanni Haukanna. | 2–3 Morgunblaðinu fylgir Kópavogsblaðið. Yf ir l i t

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.