Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 27 THOMAS F. Hall, einn af aðstoðarvarn- armálaráðherrum Bandaríkjanna, segir að samkomulag ís- lenskra og banda- rískra stjórnvalda í varnarmálum sé til hagsbóta fyrir bæði ríkin. „Ég tel að sam- komulagið sé gott fyr- ir bæði ríkin,“ segir hann, en Thomas F. Hall sat einnig í samn- inganefnd Banda- ríkjamanna. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er í nýrri varnaráætlun, sem ís- lensk og bandarísk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um, gert ráð fyr- ir því að varnir Íslands verði tryggðar með hreyfanlegum við- búnaði og liðsafla Bandaríkjahers. Thomas F. Hall ítrekar, þegar hann er spurður út í áætlunina, að Bandaríkin muni áfram standa við ábyrgð sína á vörnum Íslands. Bandaríkin hafi skuldbundið sig til þess að koma Íslandi til varnar, ef á þurfi að halda. „Samskipti ríkjanna verða áfram sterk,“ segir hann, „og ábyrgð okkar á vörnum Íslands er enn til staðar.“ Þegar hann er spurður hvort hann telji það viðunandi að Ísland sé eina ríki NATO án loftvarna segir hann að það sé ekki nákvæmt að orða spurninguna á þennan hátt. „Skapist ógn á Ís- landi munu Banda- ríkin leggja til loft- varnir,“ segir hann og bætir því við að bandaríski herinn sé með hreyfanlegar loftvarnir víða um heim. Hann geti brugðist við óvissu- ástandi hér á landi ýmist með flugvélum eða skipum. Í svokölluðum skilasamningi milli Bandaríkjanna og Ís- lands, um skil á landi og mann- virkjum, er gert ráð fyrir því að Ís- lendingar taki við öllum mannvirkjum Bandaríkjahers, en sjái jafnframt alfarið um að hreinsa varnarsvæðin. Spurður út í þetta segir hann að Bandaríkja- her hafi ávallt gætt þess að ganga vel um varnarsvæðin. Hann ítrek- ar sömuleiðis að gert sé ráð fyrir því að Bandaríkjamenn og Íslend- ingar muni leysa það sameiginlega komi fram ný vandamál í umhverf- ismálum á næstu fjórum árum. Að lokum segir hann aðspurður að samkomulag Íslands og Banda- ríkjanna vegna brotthvarfs Banda- ríkjahers sé svipað því og gert hafi verið vegna lokunar bandarískra herstöðva víða um heim. Samkomulagið gott fyrir bæði ríkin Thomas F. Hall un og um- narsvæðis Félaginu ábyrgð á nús gerir gðiseftirlit með þeirri ið hreins- ar og við- miklar eingöngu segir að í a af olíu- r yfirleitt g sprung- ekki einu að grunn- onum nið- stur.“ hafi verið í m jarðvegi nda fyrir þess að skila því il stóð að r að auki var mengun á svæðinu mun meiri en á þeim svæðum sem nú á að skila, segir Magnús. Hreinsunin fór þannig fram að jarðvegurinn var tekinn og settur í ákveðna garða, hvar bakteríur voru látnar éta upp olíuna, og þar með hreinsa hana úr jarðveginum. Að því búnu var hægt að nota jarðveginn hvar sem var, segir hann. Ekki var hins vegar unnt að hreinsa bergið undir jarðveginum, en að sögn Magnúsar munu jarðvegsgerlar hreinsa olíuna burt úr berginu á löngum tíma. Magnús hefur meiri áhyggjur af gömlum öskuhaug á varnarsvæðinu við Hafnaveginn á Suðurnesjum. Hann segir að haugurinn hafi verið notaður af Bandaríkjaher fram til ársins 1976. „Við vitum ekki hvað var sett í þennan haug en vitum þó að á þeim tíma voru notuð ýmis efni sem menn áttuðu sig seinna á að væru skaðleg umhverfinu. Við vilj- um að gengið sé frá þessum haug í samræmi við nýjustu aðferðir.“ Þegar Magnús er beðinn um að lýsa þeim aðferðum segir hann: „Vatnsheldir dúkar eru settir ofan á hauginn, þannig að ekki fari regn- vatn í gegnum hann. Síðan eru bor- aðar könnunarholur niður í grunn- vatnið í kringum hann og tekin sýni úr því á hverju ári, til að kanna hvort eitthvað komi fram sem valdi áhyggjum.“ Magnús hefur einnig nokkrar áhyggjur af öðrum haug sem er á Stokksnesi. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í fyrradag að sett yrði í forgang að loka göml- um haugum og urðunarstöðum. Magnús er því sammála. Hann segir sömuleiðis brýnt að hreinsa PCB- menguð svæði. PCB-efni úr jarð- vegi er eytt á þar til gerðum hreins- unarstöðum erlendis. seftirlits Suðurnesja segir mengun á varnarsvæðinu mismikla t á rigð- Morgunblaðið/Hilmar Bragi Umhverfishreinsun Olíumengaður jarðvegur á Nikkelsvæðinu svonefnda, í nágrenni Keflavíkur og Njarð- víkur, var hreinsaður fyrir nokkrum árum, er Bandaríkjamenn skiluðu svæðinu til Íslendinga. „FYRST og fremst fagna ég því að það skuli vera orðið svo friðvæn- legt að Ísland skuli geta verið herlaust land að jafnaði. Þetta er gleði- dagur í sögu þjóðarinn- ar.“ Þetta segir Þór Whitehead, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, og sérfræðing- ur í varnarmálum, um samkomulag íslenskra og bandarískra stjórn- valda vegna varnar- mála, sem upplýst var um á þriðjudag. „Ég tel að þetta samkomulag sé í grundvallaratriðum vel ásættanlegt fyrir Íslendinga. Ég held að það varði mestu að það sé tryggt að þetta varn- arsamstarf haldi áfram,“ segir Þór. Hann segir þetta einnig gleðidag fyrir sig og aðra sem stutt hafi vest- rænt samstarf. Þeir hafi trúað því að það myndi á endanum leiða til þess að friðardagar rynnu upp, og sá friður yrði friður með frelsi, eins og nú sé raunin. „Við njótum þarna tryggingar fyrir okkar öryggi af hálfu Bandaríkja- manna, það er aðalatriðið í þessu. Þá hverfur hugurinn aftur til 1949 þegar Íslendingar gengu í Atlantshafs- bandalagið. Þá var það skýrt tekið fram að hér ættu ekki að vera her- varnir á friðartímum. Nú er það óum- deilanlegt að þessir friðartímar eru runnir upp í okkar álfu, þótt það séu ýmsar blikur á lofti. Ég tel að við þeim sé brugðist með þessari trygg- ingu.“ Þór segir að með þessum samningi sé ljóst að nú sé komið að Íslending- um sjálfum að leika mun stærra hlut- verk í vörnum landsins en áður var. Nú sé það undir íslenskum stjórn- völdum komið að tryggja að jafnaði lágmarksöryggi á Keflavíkurflug- velli. „Við verðum að leysa þau mál og gera mun meiri kröfur til okkar en verið hefur. Það minnir einnig á fyrri tíð, og umræður eftir inngöngu okkar í Atl- antshafsbandalagið um það hvernig Íslending- ar gætu tryggt að flug- vellir hér á landi stæðu ekki opnir og óvarðir. Það er merkilegt að nú sé þessi spurning kom- in upp aftur,“ segir Þór. Hann segir að sýna þurfi ákveðna yfirveg- un þegar rætt er um að Íslendingar taki að sér hreinsun á menguðum svæðum. „Í fyrsta lagi hafa Íslend- ingar orðið aðnjótandi bandarískrar fjárhagsaðstoðar næstum því óslitið frá því árið 1941. Það eru liðin 65 ár sem Íslendingar hafa notið hvers kyns fjárhagsstuðnings og fríðinda frá Bandaríkjunum.“ Haft varnir að féþúfu „Margar aðrar þjóðir hafa þurft að leggja mjög hart að sér í varnarmál- um til að gæta öryggis síns og engir meira en hlutlaus ríki í Evrópu – þar sem fjárframlög til varnarmála hafa verið hærri en í þeim löndum sem eru í bandalögunum. Við höfum að vissu leyti getað haft þessar varnir að fé- þúfu og mér finnst ekki að leiðarlok- um að við séum í þeirri stöðu að geta gert miklar kröfur á Bandaríkjamenn í þessum efnum, sér í lagi miðað við það sem við fáum í okkar hlut þarna,“ segir Þór. Hann segir að auðvitað hafi hann sem íslenskur skattgreiðandi viljað að Bandaríkjamenn þrifu upp eftir sig en bendir á að engin ástæða sé til að ætla að hægt hafi verið að semja á öðrum nótum en annars staðar í Evr- ópu þar sem Bandaríkjamenn hafa lokað herstöðvum. Samkomulagið viðunandi Gleðidagur í sögu þjóðarinnar að Ís- land geti verið herlaust land að jafnaði Þór Whitehead mun taka tum flug- elgi, en varnarliðs- maí sl. arfs- ar til að efni. órn- ni ís- ð brottför þriðjudag afi verið verði úr árstofn- vegna eft- lofthelgi araldsson, unar, stað- gunblaðið ni taka að komið í ugumferð- flugvélum í loft- helgi Íslands frá þeim tíma. „Það hefur verið beðið um að við sinntum því að vakta umferð óþekktra flugvéla. Það verkefni höfum við tekið að okkur og leysum það með okkar tæknibúnaði og fólki. […] Við lesum úr þessum merkjum og látum viðeigandi aðilum í té upplýsingar ef slík loftför birtast,“ segir Ólafur. „Við leysum þessi atriði með öruggum hætti, en ég vil ekki fara út í tæknilegar út- listanir á því. Við erum með búnað sem við erum að setja í gang núna.“ Ólafur segir að Ratsjár- stofnun hafi átt þann búnað sem þarf til að hægt sé að fylgjast með óþekktum loftförum. Ekki þurfi að bæta við starfsmönnum til að sinna þessu eftirliti. Spurður hvort þetta hafi kostn- aðarauka í för með sér sagðist Ólafur ekki geta upplýst það, né hver beri kostnað sem af þessu kunni að hljótast. Flugöryggi og löggæsla Ef óþekkt flugvél kemur inn í íslenska lofthelgi og sést á ratsjá munu því starfsmenn Ratsjárstofnunar láta Flug- málastjórn vita. „Það er vegna flugöryggis, en svo koma til önnur atriði sem varða löggæslu og annað þess háttar,“ segir Ólafur. Hann vildi ekki upplýsa nánar um viðbrögð verði vart við slíkar flugvélar. Ólafur vildi ekki heldur upplýsa hvort það kerfi sem notað var í stjórnstöð varnarliðsins, sem gerði orr- ustuþotum kleift að athafna sig hér við land, verði gangsett á ný. arstjórar Flugmála- stjórnar einungis eftirlit með flug- vélum sem eru með sérstaka ratsjár- svara í gangi. Hægt er að slökkva á slíkum ratsjár- svörum og þar með verður viðkomandi flugvél ekki sýnileg flugumferð- arstjórum. Eftirlit með óþekktum flug- vélum var áður á hendi varnarliðsins, sem var með stjórnstöð á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til að sinna því eftirliti. Stjórnstöðin gat svo brugðist við með því að senda orrustuþotur til móts við óþekkt loftför, yrði þeirra vart. Stjórn- stöðinni var hins vegar lokað í byrjun sumars, og hefur ekkert eftirlit verið haft með óþekktum Morgunblaðið/Árni Sæberg tirlit var áður á hendi varnarliðsins, sem var með stjórnstöð á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til að sinna því. sjárstofnun mun sinna eft- með óþekktum flugvélum Ólafur Örn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.