Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 29

Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 29 Reykjavík International Film Festival Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík filmfest.is This town isn’t big enough for he both of us Reykjavík International Film Festival Sept 28 Okt 8 2006 SKRIF Valdimars L. Friðriks- sonar alþingismanns í Morg- unblaðinu mánudaginn 18. sept- ember sl. um svik vegna tengibrautar að Helgafellshverfi eru tilefni greinar þess- arar. Ekki ætla ég að blanda mér í þá svika umræðu um umhverf- ismál sem Valdimar gerir að umtalsefni. Mér hefur fundist Valdimar og aðrir þeir sem mest hafa haft sig í frammi varðandi um- ræðuna um tengi- brautina að Helga- fellslandi hafi skautað létt framhjá staðreyndum málsins. Ástæða þess að tengibrautinni í Helgafellshverfi var valinn staður í framhaldi af Álafossvegi var ein- mitt á grundvelli umhverf- isskipulags sem gert var af Mos- fellsbær á árunum 1996–97. Þar var m.a. fjallað um tengibrautirnar sem á þeim tíma voru áætlaðar tvær frá Helgafellshverfinu annars vegar um Álafossveg og hins vegar aust- an Álafoss. Í umhverfisskipulaginu var sett fram sú tillaga að við end- urskoðun á aðalskipulagi yrði metin þörfin fyrir tengibrautina austan Álafoss, þar sem hún þótti rýra mjög möguleika til útivistar og upplifunar á svæðinu með Varm- ánni. Þegar vinna við endurskoðun að- alskipulags Mosfellsbæjar hófst á árinu 2000 var Vinnustofan Þverá fengin til að meta þörfina fyrir tengibrautirnar. Niðurstaða þeirr- ar athugunar, eftir umferð- arútreikninga, var sú að ekki var þörf fyrir nema eina tengingu til að anna umferðinni. Umferð- arútreikningarnir sýndu að umferð um veg austan Álafoss yrði nær engin, ef jafnframt væri veg- tenging um Álafoss- veg. Því var það í sam- ræmi við ábendinguna í umhverfisskipulag- inu að lagt var til, í til- lögu að breyttu að- alskipulagi Mosfellsbæjar, að að- eins yrði gert ráð fyrir tengingu við Álfossveg á þessu svæði. Það voru því umhverfisleg rök sem höfð voru að leiðarljósi við þessa ákvarðanatöku. Í tengslum við endurskoðun að- alskipulagsins óskuðu íbúar í Helgafellslandi eftir kynning- arfundi um framtíðar umferð- arskipulag að Helgafellslandi. Á fundinum komu fram mótmæli, sér- staklega frá þeim sem bjuggu við Brekkuland, að tengibrautunum yrði fækkað. Niðurstaða bæjaryfirvalda var að gera ráð fyrir báðum tengingunum. Önnur þeirra (það er sú sem um- ræðan hefur snúist um) skyldi verða tengibraut en hin safngata, þar sem gert yrði ráð fyrir lítilli umferð. Við hönnun safngötunar skyldi einnig tekið tillit til útivist- arsvæðisins og hún hönnuð fyrir lægri umferðarhraða. Nú segja eflaust sumir: „Fyrst á annað borð er verið að leggja veg austan Álafoss því ekki að hætta við tengibrautina frá Álafossvegi?“ Því er til að svara að sú tenging ein og sér mun hafa mjög neikvæðari áhrif á umhverfið og útivistarmöguleika austan Álafosskvosarinnar. Ef af þessari breytingu yrði mun umferð um Reykjaveg í átt að Vesturlands- vegi aukast verulega. Þrátt fyrir að umferðin frá Helgafellshverfinu verði ekki sú sem Valdimar full- yrðir um í grein sinni þá er hún þó áætluð um níu þúsund bílar á sólar- hring. Þessari umferðaraukningu myndi fylgja vandamál fyrir íbúa Teigahverfis og væntanlegs Krika- hverfis þannig að sá vandi m.a. vegna hljóðvistar væri færður til og hefði áhrif á mun fleiri íbúa. Áhrif tengibrautarinnar í fram- haldi af Álafossvegi eru fyrst og fremst annars vegar sjónræn og hins vegar aukin umferðarhávaði. Við hönnun vegarins hefur verið reynt að lágmarka neikvæð sjón- ræn áhrif, m.a. með því að leggja hana í landið. Þó verður ekki hjá því komist að á takmörkuðu svæði sem snýr að Álafosskvosinni verður komið fyrir stoðvegg. Bæjaryf- irvöld hafa lýst því yfir að við út- færslu hans verði haft samráð við hagsmunaaðila. Með vandaðri út- færslu á þessum vegg megi skapa skemmtilega framlengingu á Ála- fosskvosinni og skapa mótvægi við húsin í brekkunni. Hvernig væri götumyndin í Álafosskvosinni ef ekki væru stóra verksmiðjuhúsið og húsin upp brekkuna til mótvæg- is við Tindastól og bröttu brekkuna að sunnan? Að mínu viti ekki svipur hjá sjón. Áður en ég lét af störfum sem bæjarverkfræðingur hafði ég óskað eftir tilnefningum (frá hags- munaaðilum) í samráðshópinn sem skyldi vinna með fulltrúum Mos- fellsbæjar og Pétri Jónssyni lands- lagsarkitekt að útfærslu stoðveggj- arins. Ég hvet hagsmunaaðila til þess að koma að þessari vinnu og þar með að skapa gott og vistlegt umhverfi. Varðandi hljóðvist verða, samhliða byggingu vegarins, gerð- ar ráðstafanir sem tryggja að hljóð- stig fari hvergi yfir 55 dB(A), eins og reglugerð kveður á um. Það á einnig við um Álafosskvosina þrátt fyrir að umrædd ákvæði eigi þar ekki við. Af framangreindu tel ég að það hafi af umhverfisástæðum verið ákveðið að leggja tengibrautina inn á Helgafellslandið um Álafossveg. Þar liggur hún um svæði þar sem byggð og mannvirki m.a. vegir eru til staðar og lagning hennar mun ekki hafa jafn neikvæð áhrif í för með sér og hefði henni verið valinn staður austan Álafoss. Er þá ekki til einhver önnur staðsetning veg- arins sem meiri sátt væri um? Að mínu viti er aðeins um þessar tvær að ræða ef á annað borð er ætlunin að nýta Helgafellsland til bygg- ingar. Aðrar vegtengingar sem til álita koma eru annaðhvort til norð- urs í átt að Þingvallavegi eða aust- ur í átt að Bjargsvegi. Tengibraut í Mosfellsbæ – Tilraun til útskýringar Tryggvi Jónsson svarar grein Valdimars Leós Friðrikssonar um tengibraut í Mosfellsbæ »Mér hefur fundistValdimar og aðrir þeir sem mest hafa haft sig í frammi varðandi umræðuna um tengi- brautina að Helgafells- landi hafi skautað létt framhjá staðreyndum málsins. Tryggvi Jónsson Höfundur er fyrrverandi bæjarverk- fræðingur í Mosfellsbæ. Einu sinni var kona sem vildi eiga hvítan brúðarkjól en þá kom til hennar norn sem sagði að hún gæti ekki eignast hvíta brúðarkjólinn nema hún hefði líka svarta míkrófóninn. Þessi kona gæti verið íslenska þjóðin, brúðarkjóllinn fossinn, og míkrófónninn gæti táknað að hún þyrfti að segja það sem henni býr í brjósti tilað fá að klæðast kjólnum. Elísabet Kristín Jökulsdóttir Hvíti brúðarkjóllinn og svarti míkrófónninn Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.