Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA “NAPOLEON
DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR.
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ TAKA
FYRSTA SPORIÐ.
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
Takið þátt í spennandi
ferðalagi þar sem
villidýrin fara á kostum.
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
eee
E.B.G. Topp5.is
DEITMYNDIN
Í ÁR
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
FRÁBÆR DANSMYND HLAÐIN GEGGJAÐRI TÓNLIST EN MYNDIN
KOM HELDUR BETUR Á ÓVART Í USA FYRIR NOKKRU.
/ AKUREYRI
BEERFEST FORSÝNING kl. 6 - 8 - 10 B.I. 12
NACHO LIBRE kl. 8 - 10 B.i. 7
ÓBYGGÐIRNAR Ísl tal. kl. 6 Leyfð
MEZCAL 18:00
RÚSSNESKA ÖRKIN 18:00
PÚÐURTUNNAN 18:00
SUMARHÖLLIN 20:00
DRAUMUR Á ÞORLÁKSMESSUNÓTT 20:00
SKJALDBÖKUR GETA FLOGIÐ 20:10
TJÓN 20:15
UMSÁTUR 22:30
NORÐURKJÁLKINN 22:30
PRINSESSA 23:00
HÁSKÓLABÍÓ 28. SEPT.
HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is
FRAMLEIDD AF
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
E.T. kvikmyndir.is
MEÐ KYNTRÖLLINU
CHANNING TATUM
(“SHE’S THE MAN”)
Ekki missa af fyndnustu
Walt Disney teiknimynd
haustins.
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
eeeee
H.J. MBL
/ KEFLAVÍK
STEP UP kl. 8 - 10 B.i. 7
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 B.i. 7
UNITED 93 kl. 10 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
að hann færði sinni
heittelskuðu kaffi í ból-
ið nokkra daga í röð.
Hún er enn þá að
minna hann á þetta. Og
þannig hefur liðið eitt
ár í kaffifíkninni. Fíkn-
in náði nýjum hæðum
þegar Víkverji var
staddur í heilsubúð og
sá þar kaffi frá ítalska
framleiðandanum Clip-
per. Einn pakki á 750
kall! Víkverji skellti sér
á einn, enda ekki annað
hægt. Það var mynd af
Davíðsstyttunni fram-
an á. Og síðan var hald-
ið heim með dýrðina og
hellt upp á. Kaffið var hverrar krónu
virði, það getur Víkverji vottað. En
það er vissara að fara sparlega með
svona vörur. Best að vera ekki að
láta sína heittelskuðu vita af þessu.
Hún gæti orðið fíkninni að bráð
langt fyrir aldur fram og farið með
Davíð í rúmið án vitundar og sam-
þykkis Víkverja. Síðast þegar varð
kaffilaust í kotinu kom hálffimm
hausverkurinn strax um hádegið.
Bara tilhugsunin um að fá ekki kaffi
olli ótímabærum verkjum. Víkverja
minnir að hann hafi byrjað að aka
sér og misst alla einbeitingu á dag-
leg störf í það skiptið.
Víkverji hefur áttvið kaffifíkn að
stríða í nokkur ár og
hefur stundum reynt
að slíta af sér hlekki
hins ilmandi, kolsvarta
bedúínadrykkjar – en
án lítils árangurs.
Þannig var það í fyrra
að Víkverji lét sig hafa
það að sleppa kaffi í
eina viku og fá dúndr-
andi hausverk stund-
víslega kl. 16.30 á
hverjum degi. Hann
harðneitaði að taka
höfuðverkjatöflur
þessa daga, heldur
vildi einfaldlega taka
út þjáningarnar. Og reyndar gekk
þetta að lokum. Heilinn sigraðist á
fíkninni. Það var reyndar ákveðinn
tilgangur með þessu og hann var sá
að Víkverji þurfti að fara á „óörugg-
ar“ kaffislóðir erlendis og vildi vera
orðinn afeitraður þegar þangað
kæmi. Og allt gekk þetta eins og til
var ætlast. En þegar heim kom fór
allt í sama farið aftur. Fíknin ágerð-
ist enn meir og nú fór Víkverji að
kaupa sér baunir og mala þær í gam-
aldags kvörn svo kaffiilmurinn barst
um allt. Síðan var hellt upp á í
mokkakönnu og meira að segja var
Víkverji kominn í svo mikið kaffistuð
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Sá sem trúir á mig, – frá hjarta hans
munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin
segir. (Jh. 7, 38.)
Í dag er fimmtudagur
28. september, 271. dag-
ur ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Skjár sport og enski boltinn
ÉG er áskrifandi af Skjá sport og
horfi talsvert á enska boltann þar.
Laugardaginn 23. september er ég
að lesa Morgunblaðið og sé þá á
íþróttasíðunni að „Ekki verði sýnt
frá leikjunum sem byrja kl. 14:00 í
dag vegna lokaumferðarinnar í
Landsbankadeild karla.“ Hvaða vit-
leysa er í gangi árið 2006? Ég er
áskrifandi af Skjá sport og borga
fyrir það, en einhver (líklega KSÍ)
lokar svo stöðinni hjá mér milli kl. 14
– 16 svo ég get ekki valið hvaða leiki
ég horfi á, þó ég borgi fyrir það.
Ég get horft á Idol – stjörnuleit á
Stöð 2 kl. 14.10 – það er í lagi Ég get
horft á Celebrity Cooking Show-
down á Skjá einum kl. 14.15 – það er
í lagi Ég get horft á endursýndan
leik á Skjá sport sem byrjar kl. 13.50
– það er í lagi Mér sýnast enginn út-
varpsrás vera lokuð milli kl. 14 og 16
– það er í lagi að hlusta á úvarpið á
þessum tíma. Matvöruverslanir,
bakarí og sundstaðir eru margir
opnir milli kl. 14 og 16 svo ég get
skroppið í sund, farið í bakaríið og
verslað í matinn, mikill léttir. Það er
bara ýmislegt sem er leyfilegt á
þessum tíma.
Ég má bara ekki horfa á enska
boltann beint milli kl. 14 og 16 í dag
vegna lokaumferðarinnar í Lands-
bankadeild karla. Ég hef bara ekki
áhuga á að horfa á lokaumferðina í
Landsbankadeild karla. Þarf nokkuð
að ræða þetta ferkar?
Ég beini því til þeirra sem standa
að þessari vitleysu að hætta þessu
svo árið 2007 þegar lokaumferðin í
Landsbankadeild karla hefst, þá geti
ég sest niður fyrir framan sjón-
varpið og horft beint á enska bolt-
ann, að eigin vali.
Gísli Gíslason,
Brekkukgötu 43, Akureyri.
Blindur er vefsíðulaus maður
Á forsíðu Morgunblaðsins sl. sunnu-
dag var svohljóðandi fyrirsögn:
„Kynna þjóðinni tillögu að nýrri brú
yfir Öxarár.“
Og fréttin hefst á þessa leið:
„Þingvallanefnd hefur ákveðið að
kynna þjóðinni tillögu sem fram er
komin að nýrri brú yfir Öxará. Björn
Bjarnason, dóms- og kirkjumála-
ráðherra og formaður nefndarinnar,
segir að kynningin muni fara fram á
vefsíðu nefndarinnar, thingvellir.is,
og leggur áherslu á að ný brú verði
ekki lögð yfir ána komi fram veruleg
andstaða við þá hugmynd.“
Það eru ekki allir með vefsíðu,
frekar en ég. Er maður þá hvorki
fólk né þjóð, ef maður hefur ekki að-
ganga að vefsíðu?
Ásta.
Góð þjónusta og heiðarleiki
ÞAÐ er mikið talað um óheiðarleika
og svoleiðis. En ég hef aðra sögu að
segja. Ég fór að versla á föstudegi í
Bónus við Smáratorg. Á laugardeg-
inum uppgötva ég það að ég er ekki
með veskið mitt. Hringdi ég þá til að
athuga þetta en sú sem sér um
óskilamunivar ekki við. Gaf ég því
upp símanúmerið mitt.
Á mánudeginum hringir stúlka og
tilkynnir að veskið sé fundið og hafi
fundist í innkaupakörfu úti fyrir
Smáralindinni.
Það vantaði ekkert í veskið og er
ég afskaplega þakklát og ánægð með
svona góða þjónustu og að til sé
heiðarlegt og skilvíst fólk.
Lilja.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
80 ára afmæli.Benedikt
Helgason, tónlistar-
kennari og versl-
unarstjóri, Álfhól 7,
Húsavík verður átt-
ræður laugardaginn
30. september.
Benedikt var versl-
unarstjóri hjá KÞ í 25 ár og tónlistar-
kennari í 15 ár. Fjölskylda Benedikts
ætlar að fagna með honum á afmælis-
daginn og bjóða af því tilefni vinum,
ættingjum, sem og fyrrverandi sam-
starfsfólki á stutta tónleika kl. 17 í
Safnahúsinu á Húsavík og að þiggja
veitingar að þeim loknum í Mið-
Hvammi.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Bertha Sóley, Lilja Hrund og Svan-
hildur Silja, héldu tombólu og söfnuðu
þær kr. 2.389 til styrktar Rauða kross
Íslands.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
STATHAM er fjallbrattur B-mynda töffari
sem nær ekki lengra með sama áframhaldi.
Drifkrafturinn er mikill, hann fer létt með að
bera uppi heilalausar spennumyndir á borð við
Crank og The Transporter, og gera þær í leið-
inni að þokkalegum skyndibita.
Crank er einhvers konar millistig af spennu-
og teiknimynd: hún er leikin en tökuvélum og
skærum er beitt á köflum í óvenjulegum, graf-
ískum stíl. Myndrammar frystir og myndflöt-
urinn klofinn í tvo eða fleiri hluta, tækni sem
þótti æðisleg fyrir nokkrum áratugum og
bregður fyrir af og til.
Sagan er ósvikið hasarblaðaefni, Chev (Stat-
ham), er leigumorðingi í Los Angeles, sem
vaknar upp við vondan draum. Honum hefur
verið byrlað banvænt eitur, „Beijingkokkteill-
inn“ svokallaði, en hann getur haldið sér á lífi í
sólarhring með efidríntökum, spennu, hræðslu,
kynlífi; öllu sem eykur adrenalínflæðið. Chev
notar tímann til hefnda og fjandmenn hans
safnast á vit feðra sinna, einn á fætur öðrum –
en tíminn er takmarkaður.
Minnir lítillega á Speed og ennfrekar D.O.A.
(Dead On Arrival), klassíska B-mynd frá 1950,
sem var endurgerð með góðum árangri með
Dennis Quaid fyrir tæpum 20 árum. Crank
gengur miklu lengra og er stanslaus, blóði drif-
inn og ofbeldisfullur djöfulgangur frá upphafs-
mínútunum allt til enda. Virkar vel á köflum,
þess á milli er framvindan aulaleg, jafnvel þótt
ramminn sé ómerkilegur. Leikstjórarnir, sem
einnig skrifuðu handritið, eiga, líkt og aðalleik-
arinn, möguleika á að gera nokkra B-smelli í
viðbót. Þeir kunna að skapa hasar og eru grág-
lettnir að auki. Smart, sem leikur vinkonu
Chevs, stendur sig ótrúlega vel í stykkinu og
hefur róandi útgeislun sem virkar fyndin í
hamaganginum. Gott ef hún á ekki betra skilið.
Klukkan tifar
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Laugarásbíó.
Leikstjórar: Mark Neveldine og Brian Taylor. Aðal-
leikarar: Jason Statham, Amy Smart, Jose Pablo
Cantillo, Efren Ramirez, Dwight Yoakam. 85 mín.
Bandaríkin 2006.
Crank Töff Statham er fjallbrattur B-mynda töffari.
Sæbjörn Valdimarsson