Morgunblaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Omega-3 fitusýrur geta dregið úr hættu á hjarta og
kransæðasjúkdómum. Jafnframt hafa rannsóknir sýnt fram
á gagnsemi omega-3 gegn liðagigt.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
MIKLAR breytingar eru fyrirhug-
aðar á hafnarsvæðinu við Viðeyjar-
sund, þ.e. í Sundahöfn og Kleppsvík,
auk þess sem tillögur verða unnar
um gerð atvinnulóða í landinu við
Gufunes. Formaður stjórnar Faxa-
flóahafna segir algjöra sprengingu
hafa orðið í eftirspurn eftir lóðum á
svæðinu og því nauðsynlegt að koma
til móts við óskir umsækjenda. Stórt
atriði í framkvæmdunum er lega
Sundabrautar en stefnt er að að hún
verði ákveðin fyrir árslok.
„Staðan er einfaldlega þannig að
það er allt að verða sprungið hjá
okkur,“ segir Björn Ingi Hrafnsson,
stjórnarformaður Faxaflóahafna, en
fyrir stjórninni liggja óskir um meira
en 150 þúsund fermetra af atvinnu-
húsnæði. Því þykir nauðsynlegt að
skoða með hvaða hætti hægt er að
verða við eftirspurninni. Björn Ingi
segir að á milli tuttugu og þrjátíu
umsóknir hafi borist, án þess að eftir
þeim hafi verið auglýst sérstaklega,
og séu margar hverjar eftir gríðar-
lega stórum lóðum. „Ljóst er að
miklu meira en það er í pípunum og
því þurfum við að flýta fram-
kvæmdar- og þróunaráætlun sem
hefur verið í gildi hjá Faxaflóahöfn-
um til næstu ára og setja á allt annan
hraða en verið hefur.“
Farið í tvenns konar aðgerðir
Á fundi hafnarstjórnar í gær var
ákveðið að fara út í tvenns konar að-
gerðir svo hægt sé að koma til móts
við aukna eftirspurn. Annars vegar
var samþykkt að hefja undirbúning
að lengingu Skarfabakka yfir í
Kleppsbakka og fjögurra til fimm
hektara landgerð í tengslum við þá
framkvæmd. Var hafnarstjóra falið
að leggja fyrir stjórnina tillögu að
tímasettri verkáætlun og kostnaðar-
mati við verkefnið. Frekari landfyll-
ing kæmi til í Kleppsvík en hún yrði
töluvert stærri, eða um 25 hektarar.
Hins vegar var samþykkt að efna
til viðræðna við skipulagsyfirvöld í
Reykjavík um tillögur að gerð at-
vinnulóða á landi hafnarinnar við
Gufunes, í ljósi mikillar eftirspurnar.
Hafnarstjóra var falið að leggja fyrir
hafnarstjórn tillögu að afmörkun
svæðisins meðal annars með tilliti til
fyrirhugaðrar legu Sundabrautar,
mögulegra landfyllinga og tímasetta
verkáætlun um aðra þætti sem málið
varða.
„Það er ekki búið að ákveða að
gera landfyllingar þar, því það er
heilmikil ákvörðun. Hins vegar þarf
að setjast yfir það með skipulagsyf-
irvöldum í borginni,“ segir Björn
Ingi en núverandi skipulag um svæð-
ið gerir ráð fyrir blandaðri byggð.
„Höfnin á þetta svæði að stærstum
hluta og þarna er auðvitað starfsemi
Áburðarverksmiðjunnar og Sorpu,
ljóst er að þarna þarf að gera
ákveðnar breytingar.“
Ekki fer á milli mála að lóðir á
þessu svæði eru afar dýrmætar og
því mikið í húfi fyrir Reykjavíkur-
borg og Faxaflóahafnir. Björn Ingi
getur þó ekki nefnt neinar tölur í því
samhengi, og bendir m.a. á að ekki sé
búið að úthluta lóðum á landfylling-
um og verði ekki gert fyrr en fram-
kvæmdir eru komnar lengra á leið.
Kleppsspítali á sínum stað
Björn Ingi segir að engar breyt-
ingar verði gerðar á eignum sem eru
á svæðinu við Sundahöfn fyrir utan
fyrirhugaðar nýbyggingar og stækk-
anir, s.s. á vöruhótelum Eimskips og
Samskipa. „Fyrirtækin hafa óskað
eftir umtalsverðri stækkun á vöru-
hótelum sínum en þegar þau voru
byggð var gert ráð fyrir að ákveðinni
þörf yrði fullnægt næstu ár – það er
löngu sprungið.
Kleppsspítali verður einnig áfram
á svæðinu. „Kleppsspítali er nú þeg-
ar umkringdur höfninni, og hefur
verið, þannig að það þarf ekki að fela
í sér neinar breytingar varðandi
hann. Þetta eykur aðeins magn
eigna á svæðinu.“
Áfangaskipt uppbygging
Um er að ræða gríðarlega mann-
virkjagerð og segir Björn Ingi ekki
komið á hreint hvenær framkvæmd-
ir geti hafist að fullu. „Þetta tekur
auðvitað tíma, það þarf að breyta að-
alskipulagi, sums staðar þarf að fara
í umhverfismat, þannig að fram-
kvæmdirnar munu gerast á nokkr-
um árum. En þetta er áfangaskipt og
það þýðir að uppbyggingin þarf að
halda áfram hið fyrsta.“
Aðspurður hvort slík uppbygging
muni ekki hafa mikil áhrif á umferð
um svæðið og þungaflutningar auk-
ist segir Björn Ingi Sundabraut lyk-
ilatriði. „Menn hafa alltaf litið þann-
ig á að þungaflutningar úr
Sundahöfn þurfi að komast beint
þaðan, en ekki út í íbúðahverfin og
ég held að um það séu allir sammála.
Við höfum lýst því yfir að Sunda-
brautin sé algjört forgangsmál og
þessi uppbygging undirstrikar það
og sýnir nauðsyn þess að því verki sé
hraðað.“
Lega Sundabrautar
valin fyrir árslok
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður samstarfshóps um Sunda-
braut, segir frumskýrslu um jarð-
göng að vænta á næstunni. „Verið er
að vinna skýrslu um jarðgöng en sú
vinna var sett af stað fyrir síðustu
kosningar. Þá var ákveðið að vinna
frumskýrslu um hvort hægt væri að
hafa jarðgöng, ekki botngöng, sem
gengju á milli Gufuness og kæmu
upp alveg niðri við Laugarnes,“ seg-
ir Gísli og á von á að fá skýrsluna í
hendur á næstu dögum. „Hún er
komin fram yfir á tíma, en það er
verið að vinna hana eins hratt og
auðið er.“
Gísli segir að allir möguleikar
verði í kjölfarið skoðaðir, en ef jarð-
gangaleiðin verður farin þarf að
setja hana í umhverfismat – aðrir
kostir hafa áður farið í mat. „Við
ákveðum á þessu ári hvaða leið við
viljum fara. Ef einhver af hinum leið-
um verður fyrir valinu þá tökum við
tveggja ára hönnunarferli og í fram-
haldi af því tveggja ára framkvæmd-
arferli.“
Óskir um meira en 150 þúsund
fermetra af atvinnuhúsnæði
Umfangsmikil uppbygg-
ing stendur fyrir dyrum
við hafnarsvæði í Reykja-
vík. Vegna mikillar eftir-
spurnar eftir lóðum var
samþykkt á fundi hafnar-
stjórnar Faxaflóahafna í
gær að flýta fram-
kvæmdar- og þróunar-
áætlun fyrirtækisins.
Morgunblaðið/ÞÖK
Heldur velli Umfangsmiklar breytingar eru fyrirhugaðar á hafnarsvæðinu við Sundahöfn og mun m.a. landgerð
ná til Sundahafnar. Framkvæmdirnar munu hins vegar ekki ná til Kleppsspítala sem fær að standa óhreyfður.
Í HNOTSKURN
»Á milli tuttugu og þrjátíu um-sóknir um lóðir á svæðinu við
Sundahöfn liggja fyrir stjórn
Faxaflóahafna og er í flestum til-
fellum óskað eftir gríðarstóru
svæði.
» Í gær var samþykkt að hefjaundirbúning að fram-
kvæmdum svo hægt sé að koma
til móts við óskirnar.
»Fyrirhugaðar eru landfyll-ingar í Sundahöfn og Klepps-
vík, samtals í kringum 30 hekt-
arar, auk þess sem tillögur verða
unnar að atvinnulóðum í Gufu-
nesi.
UMSVIF á hafnarsvæðinu við
Sundahöfn munu aukast töluvert
með tilkomu landgerðar sem fyr-
irhuguð er. Gert er ráð fyrir um 30
hektara landfyllingu, annars vegar
í Sundahöfn og hins vegar í Klepps-
vík.
Umtalsverðar framkvæmdir hafa
verið á hafnarsvæðinu að und-
anförnu og fyrir aðeins nokkrum
mánuðum var vígð bryggja við
Skarfabakka. Björn Ingi Hrafns-
son, stjórnarformaður Faxaflóa-
hafna, segir breytingarnar að ein-
hverju leyti tengjast auknum
sjóflutningum við landið á næstu
árum. „Þetta tengist því til dæmis
að strax upp úr árinu 2010 þurfum
við að gera ráð fyrir stærri skipum
en hingað hafa komið áður og að-
staða þarf að vera fyrir þau,“ segir
Björn Ingi. „En þetta tengist einnig
auknum innflutningi og útflutningi.
Fáir gera sér í raun grein fyrir því
að hafnirnar hafa verið að stækka
mikið.“
Meðal þeirra fyrirtækja sem sótt
hafa um lóðir eru Olíufélagið, Dan-
ól og Fóðurblandan.
Töluverð aukning umsvifa á svæðinu
!
!" #$
%" &