Morgunblaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 17
Helga Kristín Auðunsdóttir
1. varaformaður SUS
4
www.sigurdurkari.is
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Bjarney Sonja Ólafsdóttir
tölvunarfræðingur
Ásdís Halla Bragadóttir
forstjóri Byko
Erla Ruth Sandholt
hárgreiðslukona
Sif Sigfúsdóttir
varaborgarfulltrúi
Guðrún Inga Ingólfsdóttir
hagfræðingur og
varaþingmaður
Ásthildur Helgadóttir
knattspyrnukona
Arna Hauksdóttir
doktornemi
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
starfsmannastjóri
Fanney Birna Jónsdóttir
formaður Orators og stjórnar-
maður í SUS
Elínbjörg Magnúsdóttir
fiskverkakona
Hera Grímsdóttir
ráðgefandi verkfræðingur
Við styðjum Sigurð Kára Kristjánsson, alþingismann í 4. sæti
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
leikkona
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október
Kosningaskrifstofa Sigurðar Kára - Aðalstræti 6
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
laganemi
Selma Björnsdóttir
söng- og leikkona
Dagný Erna Lárusdóttir
framkvæmdastjóri
„Sigurður Kári skilur mikilvægi þess að frelsi einstaklingsins
sé í öndvegi allra ákvarðana á vettvangi stjórnmálanna.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar
Málsvari einstaklingsfrelsis
Jóna Gróa Sigurðardóttir
fyrrv. borgarfulltrúi
Marta Guðjónsdóttir
varaborgarfulltrúi og for-
maður félags sjálfstæðis-
manna í Nes- og Melahverfi.
Katrín Pétursdóttir
forstjóri Lýsis
Elísabet Ólöf Helgadóttir
stjórnarmaður í félagi sjálf-
stæðismanna í Hóla-
og Fellahverfi
Hanna Birna Kristjánsdóttir
forseti borgarstjórnar
Jerúsalem. AFP. | Frammámenn í
Verkamannaflokknum í Ísrael hvöttu
til þess í gær að Lieberman segði sig
úr stjórn landsins eftir að Ehud
Olmert forsætisráðherra náði sam-
komulagi um að þjóðernisflokkurinn
Yisrael Beitenu gengi í stjórnina.
Stjórnin hefur notið stuðnings 67
þingmanna af 120 og hún myndi falla
ef nítján þingmenn Verkamanna-
flokksins slitu stjórnarsamstarfinu.
Olmert samdi við Yisrael Beitenu
um að leiðtogi flokksins, Avigdor
Lieberman, fengi sæti í stjórninni og
samhæfði aðgerðir hennar vegna
kjarnorkuáætlunar Írana.
Búist er við að samkomulagið verði
borið undir atkvæði í stjórninni í dag
og á þinginu í næstu viku.
Umdeildur flokkur
Ophir Pines-Paz, menningarmála-
ráðherra Ísraels, gagnrýndi sam-
komulagið og kvaðst ætla að beita sér
fyrir því að Verkamannaflokkurinn
sliti stjórnarsamstarfinu.
Flokkur Liebermans nýtur eink-
um stuðnings innflytjenda frá fyrr-
verandi lýðveldum Sovétríkjanna.
Flokkurinn hefur verið mjög um-
deildur, meðal annars vegna þeirrar
stefnu hans að Ísraelar gefi eftir ísr-
aelsk landsvæði, sem byggð eru
aröbum, og fái í staðinn að halda
byggðum gyðinga á Vesturbakkan-
um.
Deila um Lieberman gæti
orðið stjórn Ísraels að falli
Reuters
Í vanda Ehud Olmert (annar frá hægri) og Shimon Peres á þingfundi í gær.
London. AFP. | Breska stjórnin ætlar
að takmarka mjög þann fjölda fólks
frá Rúmeníu og Búlgaríu, sem fær
atvinnuleyfi í
Bretlandi eftir að
löndin verða orð-
in aðili að Evr-
ópusambandinu á
næsta ári. Mun
það gilda sérstak-
lega um þá sem
litla menntun
hafa.
John Reid, inn-
anríkisráðherra
Bretlands, greindi frá þessu og sagði
að tekið yrði á móti svo mörgu
menntuðu eða sérhæfðu fólki sem
þörf væri fyrir en fjöldi annarra yrði
takmarkaður við 20.000. Sagði hann
að finna yrði jafnvægi á milli þarfa
efnahagslífsins og þess sem kæmi
sér best fyrir samfélagið og stofn-
anir þess að öðru leyti.
Liam Byrne aðstoðarinnanríkis-
ráðherra sagði að vinna ómenntaðs
fólks frá löndunum yrði takmörkuð
við landbúnað og matvælaiðnað en
menntað fólk fengi vinnu ef innlent
starfsfólk fyndist ekki.
600.000 manns
frá A-Evrópu
Þegar Pólland og sjö önnur Aust-
ur-Evrópuríki fengu aðild að ESB
2004 varð Bretland eitt af þremur
ríkjum til að setja engar takmark-
anir við flæði vinnuafls frá þeim.
Tony Blair forsætisráðherra spáði
því þá að allt að 13.000 manns kæmu
árlega frá þessum ríkjum til Bret-
lands en fjöldinn er orðinn 600.000.
Skorður við
aðflutningi
John Reid
KANÍNUR eru að eyðileggja bú-
svæði sjófugla í útrýmingarhættu á
afskekktri ástralskri eyju, að sögn
náttúruverndarsamtakanna WWF,
sem vilja að kanínunum verði farg-
að.
Kanínurnar hafa eytt gróðri á
Macquarie-eyju, nálægt suður-
heimsskautssvæðinu, og valdið
þannig skriðuföllum sem hafa eyði-
legt varpstöðvar sjaldgæfra mör-
gæsa- og albatrostegunda, að því er
fram kemur á fréttavef breska rík-
isútvarpsins, BBC.
Evrópskir selveiðimenn fluttu
kanínur til eyjunnar á nítjándu öld
og dýrunum hefur fjölgað í rúm
100.000, að sögn WWF.
Eyjan er mikilvæg varpstöð
tveggja albatrostegunda í útrým-
ingarhættu og fleiri fugla. Alls
verpa nær fjórar milljónir sjófugla
á eyjunni.
„Albatrosar taka mikilli tryggð
við varpstöðvar sínar og eru mjög
ólíklegir til að verpa annar staðar
ef þeir missa búsvæðið,“ sagði Julie
Kirkwood, sérfræðingur WWF í
ágengum dýrategundum.
Kanínur
ógna sjó-
fuglum
♦♦♦