Morgunblaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÖNGKONAN Hera Björk
Þórhallsdóttir sendir frá sér
sína aðra breiðskífu á morgun,
fimmtudag. Af því tilefni held-
ur Hera útgáfutónleika í kvöld
á Nasa við Austurvöll. Tónleik-
arnir marka upphafið að hring-
ferð söngkonunnar en á næstu
dögum mun hún leika á fernum
tónleikum víðsvegar um landið.
Á morgun verður hún á Græna
hattinum á Akureyri og á
föstudaginn á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit.
Fimmtudaginn 2. nóvember eru tónleikar á River-
side í Hótel Selfossi og föstudaginn 3. nóvember í
félagsheimilinu í Stykkishólmi.
Útgáfutónleikar
Hera Björk á Nasa
við Austurvöll
Hera Björk
Þórhallsdóttir
EITT af verkefnum myndlist-
arhátíðarinnar Sequences sem
nú stendur yfir, kallast Loud &
Clear & TOO. Verkefnið bygg-
ist á samvinnu myndlistar-
manna, tónlistarmanna, tón-
skálda og auglýsingahönnuða.
Loud & Clear & TOO hefur
sýnt fram á að engir rammar
eru öruggir lengur, sér í lagi
innan listarinnar. Verkefnið er
ekki hlutlaus nálgun mynd-
bandslistar og auglýsingagerðar heldur alvarleg
tilraun til að athuga þann mun sem er á menningu
sjónlista og auglýsinga. Afrakstur verkefnisins
verður sýndur í Tjarnarbíói kl. 19 í kvöld.
Listgjörningur
Hátt og skýrt
í Tjarnarbíói
Guðni Franzson er
meðal þátttakenda.
SUÐUR-amerískir vindar
blása um kammertónleika í
Salnum kl. 20 í kvöld, þar sem
Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari, Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari og Pamela De Sensi
flautuleikari leika verk eftir Al-
berto Ginastera og Heitor
Villa-Lobos. Þessi suður-
amerísku tónskáld sóttu sér
innblástur í þá tónlist sem þeir
uxu upp við en jafnframt blésu um þá alþjóðlegir
vindar. Seríalismi, nýklassík og endurunnin bar-
okkform renna saman við seiðandi tangó, choro,
hljómliti og takt sem dregur okkur í vesturveg,
suður fyrir miðbaug til Rio og Buenos Aires.
Tónleikar
Suður-amerískt í
Salnum í kvöld
Pamela De Sensi
ÓBÆRILEGUR léttleiki tilver-
unnar eftir Milan Kundera er að
koma út í Tékklandi í fyrsta sinn en
bókina skrifaði Kundera í byrjun ní-
unda áratugarins og hún var fyrst
gefin út í Frakklandi 1984.
Friðrik Rafns-
son, sem þýtt
hefur öll verk
Kundera að und-
anskildum hluta
af einu ritgerð-
arsafni og skáld-
sögunni Brand-
arinn, yfir á
íslensku segir að
Óbærilegur létt-
leiki tilverunnar
sé þekktasta og mest þýdda verk
höfundarins. Bókin kom út í ís-
lenskri þýðingu 1986. Kundera á
stóran og lesendahóp hérlendis og
bækur hans hafa ávallt gengið vel á
Íslandi.
Friðrik segir að mikil eftirvænt-
ing sé í Tékklandi vegna útkomu
bókarinnar en það er útgáfufyr-
irtækið Horst í Brno, fæðingarbæ
Kundera, sem gefur hana út seinni-
part þessarar viku. Hann segir að
mikil fjölmiðlaumfjöllun hafi verið
um útgáfuna enda fjallar bókin um
afar mikilvæga tíma í lífi tékknesku
þjóðarinnar, þ.e. innrás Sovétmanna
í landið 1968 og uppgjör Tékka við
þennan tíma.
Friðrik segir að ríkt hafi ástar-
haturssamband milli Kundera og
tékknesku þjóðarinnar. Þjóðin lítur
á hann sem einn af aðalhöfundum
sínum en mörgum hefur sárnað að
hann hafi ekki snúið aftur heim eftir
fall kommúnismans. Kundera hefur
lengi búið í París. Friðrik segir að
Kundera setji þau skilyrði fyrir út-
gáfu bóka sinna að þær komi út í
réttri tímaröð. Nú sé einfaldlega
röðin komin að Óbærilegum léttleika
tilverunnar. Kundera skrifar bækur
sínar á tékknesku og yfirfer sjálfur
þýðingar yfir á frönsku. Núorðið
skrifar hann mest á frönsku.
Bíó Úr kvikmynd eftir bókinni
Óbærilegum léttleika tilverunnar.
Léttleikinn
gefinn út í
Tékklandi
Þekktasta og mest
þýdda verk Kundera
Milan Kundera
HLJÓMSVEITIN Sykurmolarnir
kemur saman á nýjan leik í Laug-
ardalshöllinni föstudaginn 17. nóv-
ember í tilefni þess að tuttugu ár
eru liðin frá útgáfu smáskífunnar
„Ammæli“.
Miðasala hefst í dag klukkan 10 í
verslunum Skífunnar í Kringlunni
og Smáralind, BT á Akureyri, Sel-
fossi og Egilsstöðum og á Midi.is.
Vert er að taka fram að Skífan á
Laugaveginum er lokuð vegna
breytinga en Hr. Örlygur og Midi.is
eru að vinna í því að koma upp
bráðabirgðamiðasölu í miðborginni
og verður tilkynnt um það á vefsíðu
Örlygs, www.destiny.is, og á
www.midi.is.
Miðaverð á tónleikana er 5.000
krónur í stæði og 6.500 krónur í
stúku. Aldurstakmark á tónleikana
er 18 ár, nema í fylgd fullorðinna.
Allur ágóði af tónleikunum renn-
ur til Smekkleysu.
Miðasala á Mol-
ana hefst í dag
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
KVARTETT Jóels Pálssonar og Sigurðar Flosa-
sonar var tekið með kostum og kynjum í Sjanghaí í
Kína, en þar kom hljómsveitin fram á tvennum tón-
leikum, þar af einum í 2.000 manna konsertsal
Sjanghaí-borgar á samnefndri listahátíð þar í borg.
„Þetta var í alla staði velheppnuð ferð. Aðal-
tónleikarnir voru í 2.000 manna höll sem við fyllt-
um. Við vorum eina djassatriðið á þessari stóru
listahátíð. Við byrjuðum reyndar á gjörningi, ég og
Sigurður, á fréttamannafundi fyrir hátíðina,“ segir
Jóel.
Í framhaldi af því tóku tvær af stærstu sjón-
varpsstöðvunum í Sjanghaí við þá viðtöl og þótti Jó-
el það sérkennilegt að heyra sig tala kínversku
reiprennandi, en öllu töluðu erlendu máli er snarað
á kínversku og flutt með þeim hætti í sjónvarpi.
Ætla má að milljónir manna hafi fylgst með þessum
viðtölum í sjónvarpi.
„Við uppgötvuðum ekki fyrr en að þessu öllu yf-
irstöðnu hversu stórt atriði við vorum á sýningunni
og okkur fannst það hálf súrrealískt,“ segir Jóel.
Plata tekin upp og gefin út
í alþýðulýðveldinu
Hann segir að þetta hafi verið glæsilegasta tón-
leikahöll sem hann hafi spilað í. Tónleikarnir hafi
heppnast mjög vel. Flutt var efni eftir þá Jóel og
Sigurð. Með þeim léku Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson á bassa og Einar Valur Scheving á
trommur. Einnig lék kvartettinn á stuttum úti-
tónleikum í borginni og hélt síðan í hljóðver. „Það
er rekið af kommúnistaflokknum og þar tókum við
upp á hálfum degi allt efnið. Við fórum síðan aftur í
hljóðverið í hálfan dag og hljóðblönduðum með sér-
legum hljóðmanni kommúnistaflokksins. Það
stendur til að gefa diskinn út á næstunni í Kína,“
segir Jóel.
Léku
fyrir fullu
húsi í
Sjanghaí
Anddyrið Sigurður og Jóel á milli tveggja fljóða í anddyri tónleikasalarins.
Tónleikasalurinn Salurinn var fullsetinn á tónleikunum.
SIGTIÐ – gamanþáttur Skjás eins hefur göngu sína að nýju annað kvöld kl.
kl. 21.30. Þetta er ný þáttaröð, framhald frá því síðasta vetur. Þar kynntust
áhorfendur Frímanni Gunnarssyni, en síðustu syrpu lauk með því að Frí-
mann glopraði út úr höndunum eigin sjónvarpsþætti, og nú þarf hann að
finna sér eitthvað nýtt að gera. Hann skrifar bók, setur upp leikrit, passar
börn, fer með Listalestinni út um allt land, lendir í ástarsambandi, kennir í
Háskólanum, veikist alvarlega og margt margt fleira. Frímann var auðvit-
að vonlaus sjónvarpsmaður, en nú er það spurning hvernig hann mun
standa sig á öðrum sviðum.
Í þættinum annað kvöld sjáum við hvar Frímann ákveður að láta gamlan
draum rætast, að skrifa skáldsögu. Til að fá vinnufrið til að skrifa meist-
araverkið fer hann út á land, í afskekktan vita.
Sigtið Álfrún Örnólfsdóttir, Friðrik Friðriksson, Gunnar Hansson, Halldór
Gylfason og Helga Braga Jónsdóttir.
Ný þáttaröð Sigtisins að hefjast
Frímann
gerist vitaskáld