Morgunblaðið - 25.10.2006, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Nú stendur yfir í ÞjóðminjasafniÍslands greiningarsýning á
ljósmyndum sem varðveittar eru í
Myndasafni Þjóðminjasafnsins og
ekki hefur tekist að bera kennsl á.
Sýndar eru myndir af óþekktum
stöðum, húsum og fólki og gestir
beðnir að reyna að þekkja mynd-
efnið og gefa upplýsingar um það.
Opið kl. 11–17, nema mánudaga.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Í Salnum í Kópavogi í dag, mið-vikudaginn 25. október, kl. 20
verður flutt suður-amerísk tónlist
fyrir selló, flautu og píanó.
Tónskáldin sóttu sér innblástur í
þá tónlist sem þau uxu upp við en
jafnframt blésu um þau alþjóðlegir
vindar.
Miðaverð: 2.000/1.600 kr. í síma
570 0400 og á www.salurinn.is.
Tónlistardagar Dómkirkj-unnar eru árleg tónlist-
arveisla sem haldin er í kringum
vígsluafmæli kirkjunnar síðustu
helgina í október og fram í miðj-
an nóvember. Tónlistardagarnir
eru nú haldnir í 25. skipti en í ár
eru liðin 210 ár frá því að Dóm-
kirkjan var vígð. Eiginlegir upp-
hafstónleikar Tónlistardaga
verða föstudaginn 3. nóvember
en þá mun Dómkórinn frumflytja ný tónverk sem samin hafa verið sér-
staklega fyrir kórinn í tilefni af Tónlistardögunum. Tónlistardagskráin í
Dómkirkjunni hefst þó nokkru fyrr því fimmtudaginn 26. október verður
unglingakór Dómkirkjunnar með tónleika í kirkjunni undir stjórn Krist-
ínar Valsdóttur og hefjast þeir klukkan 20. Síðan verður afmælis Dóm-
kirkjunnar minnst með samfelldum tónlistarflutningi í kirkjunni frá kl. 11
til 17 laugardaginn 28. október. Þennan dag verður opið hús í kirkjunni
þar sem fólki gefst tækifæri til að líta inn og hlýða á tónlist.
Tónlist
Árbæjarkirkja. | Á fimmtudagskvöld kl. 20
syngur Unglingakórinn á fyrstu tónleikum
Tónlistardaga Dómkirkjunnar. Efnisskráin
er fjölbreytt og skemmtileg. Stjórnandi er
Kristín Valsdóttir.
Laugarneskirkja | „Gospel með gamla lag-
inu“ í Laugarneskirkju kl. 20. Fríkirkjukór-
inn í Hafnarfirði og Kirkjukór Laugarnes-
kirkju syngja negrasálma. Einsöngvarar
eru Þorvaldur Halldórsson og Esther Jök-
ulsdóttir. Stjórnendur: Gunnar Gunnarsson
og Örn Arnarson. Miðaverð 1.500 kr.
Norræna húsið | Í dag kl. 12.30 eru Há-
skólatónleikar. Hljómsveit Hafdísar Bjarna-
dóttur flytur verk eftir Hafdísi Bjarnadótt-
ur. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Fyrir
ellilífeyrisþega og öryrkja 500 kr.
Salurinn, Kópavogi | Í kvöld kl. 20: Suður-
amerísk tónlist fyrir selló, flautu og píanó.
Tónskáldin sóttu sér innblástur í þá tónlist
sem tónskáldin uxu upp við en jafnframt
blésu um þá alþjóðlegir vindar. Miðaverð:
2000/1.600 kr í síma 570 0400 og á
www.salurinn.is
Tónlistarskóli FÍH | Kyrjurnar og Kyrjukór-
inn Þorlákshöfn halda tónleika undir nafn-
inu „Kyrjutvennan“ fimmtudaginn 26.
október kl. 20.30, í sal Tónlistarskóla FÍH,
Reykjavík. Stjórnendur: Gróa Hreinsdóttir
og Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir Píanóleik-
ari: Halldóra Aradóttir Miðaverð 1.000 kr.
Myndlist
Anima gallerí | Hjörtur Hjartarson. Á sýn-
ingunni eru málverk unnin á þessu og síð-
asta ári, þar sem myndlistarmaðurinn
vinnur með náttúruform, liti og ljós. Opið
þri.–lau. kl. 13–17. www.animagalleri.is.
Art-Iceland.com | Charlotta Sverrisdóttir
með sýninguna Litasinfóníu í Míru-Art,
Bæjarlind 6, Kópavogi. Íslenski mosinn og
hraunið greypa sig sterkt í undirvitund
Charlottu og leitast hún við að flétta þessi
hughrif inn í sköpunina.
Aurum | Arna Gná Gunnarsdóttir sýnir
verkið „Þrá“ frá 2006. Verkið er unnið
með blandaðri tækni. Opið mán.–þri. kl. 10–
18 og laug. kl. 11–16. Til 17. nóv.
Café Karólína | Ásmundur sýnir óvenju-
legar teikningar á Café Karólínu og Snorri
bróðir hans sýnir jafnvel enn óvenjulegri
málverk á veitingastaðnum. Til 3. nóv.
Gallerí 100° | Guðmundur Karl Ásbjörns-
son – málverkasýning í sýningarsal Orku-
veitunnar – 100°. Opin frá kl. 8.30–16 alla
virka daga og laugard. frá kl. 13–17.
Gerðuberg | Sýning á afrískum minjagrip-
um sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mann-
fræðingur hefur safnað saman.
Sýning á mannlífsmyndum Ara í tilefni 220
ára afmælis Reykjavíkurborgar. Ljósmynd-
irnar sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir
veita eftirtekt í daglegu amstri.
Sýning Sigurbjörns Kristinsson stendur yf-
ir. Á sýningunni má sjá abstraktmyndir í
anda gömlu íslensku meistaranna. Opin
virka daga frá 11–17 og um helgar frá 13–16.
www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Einkasýning á verkum Val-
gerðar Hauksdóttur 7.–30. október. Á efri
hæð sýnir Valgerður ný verk, ljósmyndir og
grafíkverk unnin með blandaðri tækni. Í
Sverrissal er kynning á hugmyndum og að-
ferðum er liggja að baki myndsköpun Val-
gerðar.
Hafnarfjarðarkirkja | Kirkjur, fólk og fjöll,
ljósmyndasýning Sigurjóns Péturssonar
stendur yfir í Ljósbroti Hafnarfjarðarkirkju.
Sýningin er opin virka daga kl. 13–19 og á
sunnudögum kl. 10–15. Til 12. nóv.
Hoffmannsgallerí | „Tölvuprentið tekið út“
Myndlistarverk í formi tölvuprents eftir 11
listamenn í Hoffmannsgallerí í húsnæði
Reykjavíkurakademíunnar, fjórðu hæð, op-
ið kl. 9–17, alla virka daga. Sýningin stend-
ur fram í nóvember.
Kaffi Sólon | Þóra Einarsdóttir sýnir mál-
verk á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a. Sýn-
ingin nefnist „Margt býr í þokunni“ og
stendur til 27. okt. Þetta er 4. einkasýning
Þóru og er viðfangsefnið aðallega íslenskt
landslag en verkin eru með olíu á striga.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðn-
um Karólínu. Á sama tíma opnar Ásmund-
ur bróðir Snorra sýningu á Café Karólínu.
Liborius | Sýning listamannsins Peters
Finnemore nefnist Project Jedi og er sýnt
hér í heild sinni.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Eirún Sig-
urðardóttir – Blóðhola. Blönduð tækni.
Gryfja og Arinstofa: Pétur Örn Friðriksson
– Halkíon. Farartæki, fyrirbæramódel, land-
hermar. Sýningarnar standa til 5. nóv-
ember. Opið kl. 13–17. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eft-
ir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur
þróunina í málverkinu frá upphafi níunda
áratugar tuttugustu aldar fram til dagsins
í dag. Á annað hundrað verk eftir 56 lista-
menn eru á sýningunni. Til 26. nóv.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista-
safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist
Sog. Viðfangsefni listamannsins er
straumvatn og sýnir hann þarna ný mál-
verk unnin með olíu á striga og rýmisverk.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum Þórdísar Aðalsteins-
dóttur, ungrar, íslenskrar listakonu sem bú-
ið hefur og starfað í New York.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson
myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin
laugardaga og sunnudaga kl. 14–17.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn
tíma. Árni sýnir olíumálverk 70x100. Opið
kl. 9–17 alla daga nema laugardaga er opið
kl. 12–16. Allir velkomnir. www.arni-
bjorn.com.
Mokka-Kaffi | Nú sýnir Ketill Larsen fjöl-
listamaður 32 litríkar myndir málaðar í ak-
rýl, kærleiksríkar og notalegar. Til 26. okt.
Næsti Bar | Bjarni Helgason með sýn-
inguna Undir meðvitund og þar sýnir hann
tíu akrýlmálverk ásamt skissum og út-
prenti tengt þema sýningarinnar. Til 11. nóv.
Safn | Tilo Baumgärtel og Martin Kobe,
ungir málarar frá Leipzig í Þýskalandi,
sýna ný verk sín. Innsetning svissneska
listamannsins Romans Signer á miðhæð.
Gjörningar í Safni; 13.–28. okt. Opið mið.–
fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17 Ókeypis
aðgangur. Opið til 5. nóvember.
Safn | Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður
sýnir innsetningu sína „Ping Pong Dance“ í
Safni; 13.–28.okt. Innsetningin er hluti af
Sequences listahátíðinni Opið mið.–fös. kl.
14–18 og lau.–sun. kl. 14–17 www.safn.is.
Ókeypis aðgangur.
Saltfisksetur Íslands | Sýning á verkum
William Thomas Thompson stendur yfir í
Listasal Saltfisksetursins. Sýninguna kall-
ar hann Sýnir og stendur hún til 6. nóv-
ember. Saltfisksetrið er opið alla daga frá
11–18.
Veggverk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda
hefðbundins veggjakrots. Sem málverk
takmarkast verkið af eðli Gallerísins Vegg-
verks. Þannig endist þetta verk og þau
sem á eftir munu koma, styttri tíma en
hefðbundin málverk, því listamennirnir
munu allir nota sama rýmið. Til 25. nóv.
Þjóðmenningarhúsið | Þjóðmenning-
arhúsið tekur þátt í Sequences-hátíðinni
með sýningum á myndbandsverkinu Ó,
heilaga tímanna þúsund! eftir listamennina
Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. Verkið sýnir
ungan mann stilla sér upp í Kolaportinu og
syngja þjóðsönginn með ruglaðri orðaröð.
Sýnt viðstöðulaust þegar húsið er opið.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning
á ljósmyndum sem varðveittar eru í
myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef-
ur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru
myndir af óþekktum stöðum, húsum og
fólki og gestir beðnir um að þekkja mynd-
efnið og gefa upplýsingar um það.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13.
Tekið á móti hópum eftir samkomulagi.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í af-
greiðslusal Borgarskjalasafns stendur nú
yfir sýning á verðmætum skjölum úr einka-
skjalasafni Hjörleifs Hjörleifssonar og eru
flest frá ofanverðri 19. og byrjun 20. aldar
og eru mörg þeirra glæsileg í útliti. Sýn-
ingin er opin öllum gestum Borg-
arskjalasafns frá 10–16, alla virka daga.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
gamla prestshúsinu. Opið eftir sam-
komulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is Sími 586-8066.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja-
vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er
miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla
daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands – háskóla-
bókasafn | Sýning til heiðurs Jónasi Jón-
assyni frá Hrafnagili – 150 ára minning.
Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og
fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir
þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar
æviferil Jónasar í máli og myndum. Sjá
nánar á heimasíðu safnsins www.lands-
bokasafn.is.
Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist –
sýningartími lengdur. Trúlofunar- og brúð-
kaupssiðir fyrr og nú, veislur, gjafir, ung-
barnaumönnun og þróun klæðnaðar og
ljósmyndahefðar frá 1800–2005. Unnið í
samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Opið
laugardaga og sunnudaga til 19. nóvember
frá 14–16.
Aðrar sýningar: Eyjafjörður frá öndverðu
og Akureyri – bærinn við Pollinn.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
fjölda leikmynda sem segja söguna frá
landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is.
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp-
haf símasambands við útlönd. Símritari
sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit-
símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns
Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið
og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka
daga kl.13–16 www.tekmus.is.
Veiðisafnið Stokkseyri | Skotveiðisafn –
uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum
munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið
alla daga kl. 11–18. Sjá: www.hunting.is.
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse
stendur yfir. Hver bók er listaverk unnið í
samvinnu rithöfundar og myndlist-
armanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk
tískuhönnun og Fyrirheitna landið. Veit-
ingastofa með hádegisverðar- og kaffimat-
seðli er í húsinu, einnig safnbúð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handaverk listfengra
kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin bygg-
ist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, text-
íl- og búningafræðings. Myndefni útsaums-
ins er m.a. sótt í Biblíuna og
kynjadýraveröld fyrri alda; þarna er stíl-
fært jurta- og dýraskraut o.fl.
Fyrirlestrar og fundir
Eirberg | Að nýta íslenska gagnagrunna í
rannsóknum hjúkrunarfræðinga og ljós-
mæðra en heiti málþings um sama efni.
Málþingið sem er haldið 30. okt. er einkum
ætlað hjúkrunarfræðingum og ljós-
mæðrum en er öllum opið. Ekkert þátt-
tökugjald. Skráning á jmg@hi.is fyrir 26.
október.
staðurstund
Tónlist
Suður-amerísk
tónlist í Salnum
Söfn
Greiningarsýn-
ing á myndum
Tónlist
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
25. október – 12. nóvember
„Stórskemmtileg
hryllingsmynd fyrir
alla fjölskylduna sem
kemur ekki í veg fyrir
svefn hjá smáfólkinu!“
FG, FBL
Æðisl
ævint
all
Tvöfalt fyndnari tvöfalt betri
STÆRS
TA GAM
ANMY
ND
ÁRSIN
S Í USA
HEILALAUS!
BREMSULAUS
DRAUMASTARFIÐ MEÐ YFIRMANNI DAUÐANS!
eeeee
„Eitt orð: Frábær“
-Heat
Frábær gamanmynd með Meryl Streep
og Anna Hathaway.eeeeEmpire
eeee
- Topp5.is
eee
MMJ Kvikmyndir.com
20% AFSLÁTTUR FYRIR
VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD
OG PLATÍNUM GLITNIS, EF
GREITT ER MEÐ GREIÐSLU-
KORTI FRÁ GLITNI
Mýrin kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
The Devil Wears Prada kl. 6 og 8
Texas Chainsaw Massacre kl. 10 B.i. 18 ára
Ung og óreynd stelpa
kemur til New York og fær
fyrir tilviljun vinnu sem
aðstoðarkona hjá ritstjóra
stórs tískublaðs
HÚSIÐ ER Á LÍFI OG ÞAU ÞURFAAÐ BJAR
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Mýrin LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
The Devil Wears Prada kl. 5.40, 8 og 10.20
Talladega Nights kl. 5.40, 8 og 10.20
Monster House m.ensku.tali kl. 3.50 B.i. 7 ára
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 4 B.i. 7 ára
John Tucker Must Die kl. 8 og 10
Grettir 2 m.ísl.tali kl. 3.50
eeee
Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason – Kastljósið
eeee
H.S. – MorgunblaðiðBYGGÐ Á METSÖLUBÓK ARNALDAR INDRIÐASONAR
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarins