Morgunblaðið - 25.10.2006, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 25.10.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 43 menning Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík – Sími 588 0200 –www.eirvik.is -hágæðaheimilistæki Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum Miele þvottavélar erumeð nýrri tromlumeð vaxkökumynstri semferbeturmeðþvottinn. Einkaleyfi Miele. Miele þvottavélar eru byggðar á stálgrind og eru með ytri þvottabelg úr ryðfríu stáli ólíkt flestum öðrum þvottavélum. Miele þvottavélar endast lengur en aðrar þvottavélar. Íslenskt stjórnborð AFSLÁTTUR 30% ALLT AÐ 1. VERÐLAUN í Þýskalandi W2241WPS Gerð Listaverð TILBOÐ ÞvottavélW2241 kr. 160.000 kr. 114.800 1400sn/mín/5 kg. Þurrkari T223 kr. 112.200 kr. 78.540 útblástur/5 kg. Þurrkari T233C kr. 131.000 kr. 91.700 rakaþéttir/5 kg. MIELE ÞVOTTAVÉL - fjárfesting sem borgar sig Hreinn sparnaður Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is Ég er lítill maður í litlulandi.“ Þetta eru upphafs-orð hins dvergvaxna Arn-ars Leós eftir hlé í Þjóð- arsálinni, umtöluðu leikriti sem um þessar mundir er sýnt í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Orðin marka upp- hafið að einræðu þar sem Arnar Leó spyr áhorfendur í einlægni hvort ekki sé ástæða til að staldra við og spyrja sig grundvallarspurninga um þau gildi sem við viljum að einkenni þjóðarvitund Íslendinga. Þurfum við endilega að keppast við að vera stór? Það er áhugaleikarinn Árni Sal- omonsson sem tekst á við hlutverk Arnars Leós í sýningunni, en af öðr- um þátttakendum má nefna fjóra at- vinnuleikara, jafnmarga hesta, fjölda fimleikafólks og kór hestakvenna. Það má einnig segja að Árni sé einn af höfundum verksins þar sem Þjóð- arsálin hefur orðið til upp úr spuna- vinnu aðalleikaranna fimm undir handleiðslu leikstjórans Sigrúnar Sólar. „Ég hafði aldrei áður kynnst þess- ari vinnuaðferð sem Sigrún Sól notar og er mjög spennandi. Hún var einn- ig ný fyrir hina leikarana sem gerði það að verkum að við stóðum öll jafn- fætis við gerð leiksýningarinnar,“ segir Árni um spunavinnuna. „Ég þurfti að kafa djúpt ofan í sjálfan mig og jafnvel nota ýmsa reynslu úr mínu eigin lífi.“ Árni segir það einnig vera nýja reynslu fyrir sig að taka þátt í upp- færslu sem hreyfi jafnmikið við fólki. „Ég hef verið að lenda í því að blá- ókunnugt fólk stoppar mig á förnum vegi til að segja mér að verkið hafi snert það og til að ræða um inntakið við mig.“ Mikilvægt að staldra við Þjóðarsálin tekur m.a. á þeirri þjóðarímynd sem birtist í stæltum víkingum og fögrum fljóðum. Í slíkri mynd virðist vera lítið pláss fyrir fólk sem sker sig úr vegna sérkenna á borð við fötlun. Árni bendir á annan fylgifisk slíkrar ímyndar. „Ef við erum að keppast við að vera víkingurinn eða fallega, ljós- hærða konan þá leiðumst við ósjálf- rátt inn í lífsgæðakapphlaupið. Við þurfum að eignast stóra jeppann til að vera víkingurinn, þurfum að kaupa kremin sem halda hinni fögru stúlku við. En til að standa undir slíkum væntingum þurfum við að vinna eins og brjálæðingar. Og þegar þjóðin fer í þann ham gefst enginn tími til að staldra við og huga að öðru, eins og málefnum fatlaðra.“ Í leikritinu er komið inn á þá stað- reynd að skipulega er skimað eftir fötlun í fóstrum. Árni segir að hér sem annars staðar verði fólk að staldra við og spyrja sig grundvall- arspurninga. „Lífsgæðakapphlaupið gerir það einnig að verkum að þegar foreldrar fá að vita að eitthvað hrjáir tilvonandi barn getur verið þægilegt að „eyða vandamálinu“, ef svo má að orði kom- ast. Það eina sem ég er hins vegar að fara fram á í sýningunni er að hinir verðandi foreldrar gefi sér tíma til að spjalla við þá sem hafa reynslu af fötluninni sem fóstrið greinist með,“ segir Árni, sem forðast greinilega að setjast í dómarasæti. Árni, sem hefur alls tekið þátt í 15– 16 áhugamannasýningum, hefur lengi starfað með Halaleikhópnum, sem er leikhópur fatlaðra og ófatl- aðra í Reykjavík. „Það sem mér finnst dásamlegt við Halaleikhópinn er að við uppsetningu leiksýningar er hægt að finna áhuga- málum hvers og eins farveg. Listin tekur vel á móti öllum.“ Áhrifamikið „Ég hef verið að lenda í því að bláókunnugt fólk stoppar mig á förnum vegi til að segja mér að verkið hafi snert það og til að ræða um inntakið við mig.“ Morgunblaðið/Eggert Þarfasti þjónninn Hestar koma mikið við sögu í sýningunni Þjóðarsálinni. „Listin tekur vel á móti öllum“ Árni Salomonsson er í hlutverki Arnars Leós í karnevalíska spunaverkinu Þjóðarsálinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.