Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 32
daglegt líf
32 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Það þarf stundum ekkimarga til að gerakraftaverk, létta öðrumlífið og gleðja. Jesús
Kristur var einn á ferð en þau í bibl-
íuleshópnum Bleikjunni eru ell-
efu, jafnmörg lærisveinunum.
Þau eru nú þriðju jólin í röð
að safna jólagjöfum í skó-
kassa, sem pakkað hef-
ur verið í jólapappír.
Pakkana senda þau til
barna á munaðarleys-
ingjahælum, á barnaspí-
tölum og barna einstæðra
mæðra í Úkraínu. ,,Verkefni
sem þetta eru þekkt víða er-
lendis, þar sem reynt hefur ver-
ið að mæta þörfum fólks, sem er
fórnarlömb stríðs, fátæktar, nátt-
úruhamfara og sjúkdóma, með því að
setja nokkra hluti eins og ritföng,
vettlinga, sokka, hreinlætisvörur,
leikföng og sælgæti í kassa og
dreifa,“ segja þau Björg Jónsdóttir
og Þorsteinn Arason. „Við gripum
hugmyndina á lofti og ákváðum að
senda börnum í Úkraínu jólaskókass-
ana,“ segir Þorsteinn. ,,Í landinu búa
um 50 milljónir en atvinnuleysi er
gífurlegt og allt að 80% á svæðunum
þar sem jólagjöfunum verður dreift.
Örbirgðin er því mikil og sár. Við er-
um í samstarfi við rússneska rétt-
trúnaðarkirkju þar en KFUM í
Úkraínu starfar innan þeirrar kirkju-
deildar.“
Að hjálpa náunganum
En hvað fær þau til þess að ráðast í
verkefni sem þetta? ,,Við höfum öll
víðtæka reynslu af barna- og æsku-
lýðsstarfi og komið að starfi hjáK-
FUM og KFUK, þjóðkirkjunni og
kristilegu sumarbúðastarfi. Við erum
auk þess öll í Biblíuleshópnum
Bleikjunni, sem ber þetta nafn ein-
faldlega vegna þess að við hittumst
oftast á heimili eins sem býr í Bleik-
jukvíslinni,“ segir Björg og brosir.
,,Við hittumst reglulega, lesum valda
kafla úr biblíunni og ræðum. Núna
erum við að lesa Lúkasarguðspjall.“
Er endalaust hægt að lesa Biblí-
una? ,,Já, hún er mjög lifandi. Við er-
um sífellt að læra nýja hluti og um-
ræðurnar er oft mjög fjörugar,“ segir
Björg og lítur á Þorstein sem fer að
hlæja. ,,Já, það er óhætt að segja það.
Við erum ekki öll á sama máli. Það
má segja að þetta sé eins og sauma-
klúbbur. Sumir vilja skoða lífið út frá
sjálfshjálparbókum, við kjósum að
gera það út frá Biblíunni. Ein af
ástæðunum fyrir því að við ákváðum
að ráðast í þetta verkefni að við vilj-
um og teljum að líka skyldu okkar
sem kristinna einstaklinga að hjálpa
náunganum.“
Og kristið samfélag hefur verið
mjög gefandi að þeirra sögn. ,,Við
höfum ferðast töluvert í tengslum við
starf okkar og verkefni í kirkjunni og
kynnst þannig ólíkri lífssýn og menn-
ingu, eins og í Kenía, Úkraínu og Sló-
vakíu.“
Engin leikföng í leikherberginu
,,Ferðin til Úkraínu var ógleym-
anleg en það var erfitt að horfa upp á
örbirgðina sem er mjög mikil,“ segir
Björg sem þangað fór ásamt nokkr-
um öðrum úr hópnum. „Við heimsótt-
um sjúkrahús fyrir börn og unglinga
með geð- og taugasjúkdóma og að-
stæður þar voru vægast sagt hræði-
legar. Allt var svo frumstætt, hús-
næðið í niðurníðslu og það skorti
nánast allt, bæði fatnað og lyf. Það
voru ekki einu sinni leikföng í leik-
herberginu. Við höfðum safnað fyrir
þvottavél til þess að gefa sjúkrahús-
inu, en prestur rétttrúnaðarkirkj-
unnar, Evheniy Zhabkovskiy, sagði
okkur að hún myndi koma sér mjög
vel þar sem allir sjúklingar spítalans
væru með taubleiur sem starfsfólk
yrði svo að þvo í höndunum,“ segir
Björg.
,,Börnin voru himinlifandi með
jólagjafirnar. Fyrir mörg var eins og
þau hefðu himin höndum tekið er þau
eignuðust tannbursta – í þeirra huga
hafði hann miklu víðtækari merkingu
en notkunarmöguleikar hans sögðu
til um, hann var eitthvað sem þau
áttu sérstaklega.“
Þorsteinn segir að síðasti skiladag-
ur skókassa sé laugardagurinn 11.
nóvember en tekið er á móti köss-
unum í húsi KFUM og KFUK við
Holtaveg í Reykjavík alla virka daga
frá klukkan 9 til 16. ,,Í fyrra var frá-
bært að sjá fólkið sem streyma inn í
höfuðstöðvarnar síðustsu dagana
með jólaskókassa til þess að hjálpa
náunga sínum. Hingað komu rútur
með grunnskólabörnum og leik-
skólabörnum, og svo eldra fólk.
Pakkarnir streymdu líka frá lands-
byggðinni.“
,,Við verðum eiginlega að fá að
þakka Eimskipi sérstaklega, því fyr-
irtækið hljóp svo sannarlega undir
bagga með okkur, bæði með því að
senda pakkana til Reykjavíkur utan
af landi og eins til Úkraínu, okkur að
kostnaðarlausu,“ segja Björg og Þor-
steinn sem vitaskuld hvetja sem
flesta til að taka þátt í kraftaverkinu í
ár því fyrir barn getur það birst í skó-
kassa og kærleikurinn sömuleiðis.
Kraftaverk og kærleikur í skókassa
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Sverrir
Lærisveinar Björg og Þorsteinn safna jólaskókössum til Úkraínu.
„Við heimsóttum sjúkra-
hús fyrir börn og unglinga
með geð- og taugasjúk-
dóma og aðstæður þar
voru vægast sagt hræði-
legar.“
Hvað fær ungt, önnum kafið fólk á háskólaaldri til
þess að gefa sér tíma í kapphlaupinu á klakanum og
safna mörg þúsund jólagjöfum fyrir börn í fjarlægu
landi? Unnur H. Jóhannsdóttir komst að því.
Gleði Úkraínskur drengur var glaður með jólagjöfina.
Allar upplýsingar um jól í skókassa
er hægt að finna á www.skokass-
ar.net.
Skipuleggjendur jóla í skókassa:
Anna Guðný Hallgrímsdóttir, nemi
í hjúkrunarfræði, Áslaug Björg-
vinsdóttir, mastersnemi í lögfræði,
Björgvin Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri í Háteigskirkju,
Björg Jónsdóttir, nemi í lækn-
isfræði, Einar Helgi Ragnarsson,
nemi í viðskiptafræði, Hjördís Rós
Ragnarsdóttir, nemi í fé-
lagsráðgjöf, Páll Ágúst Ólafsson,
mastersnemi í lögfræði, Rannveig
Káradóttir söngnemi, Salvar Geir
Guðgeirsson guðfræðingur, og
Þorsteinn Arnórsson, rafvirki og
nemi í viðskiptafræði.
Barnakærleikur Íslensk leikskólabörn bjuggu til jólaskókassa og gáfu.
Handfrjáls búnaður gerir símtöl við stýrið
ekki öruggari. Þetta staðhæfir breskur sál-
fræðingur sem segir farsíma stela athygli frá
ökumönnunum og vill banna þá alfarið í bíl-
um.
Graham Hole, sálfræðingur við University
of Sussex í Bretlandi, segir aðalvandamálið
við gemsana fyrst og fremst vera að þeir
dragi athyglina frá umferðinni, að því er
fram kemur á vefsíðu forskning.no. Hann
segir fólk fá eins konar „gangasjón“ við að
tala í síma meðan það ekur því það líti sjaldn-
ar í baksýnisspegla og taki ekki eftir umferð-
arskiltum. Hann staðhæfir að rannsóknir síð-
ustu 15 ára sýni að handfrjálsir símar séu
jafn hættulegir og símar sem haldið er á við
notkun.
Hole hefur rætt við sérfræðinga í umferð-
aröryggi og komist að þeirri niðurstöðu að
rafræn mælitæki sem fjölgar stöðugt í mæla-
borði nýjustu bíla geti valdið hættu í umferð-
inni. GPS-staðsetningartæki og aðrar raf-
rænar upplýsingar breyti bílnum í eins konar
skrifstofu á hjólum og öll þessi tækni keppi
um athygli bílstjórans við umferðina. „Þegar
of mikið er að gerast inni í bílnum til viðbótar
við það sem gerist utan við hann er hætta á
að bílstjórinn verði undir of miklu álagi,“ seg-
ir hann.
Hann bendir á að akstur geri miklar kröfur
til bílstjóranna enda geri hraði bílsins það að
verkum að þeir verði að sjá og skilja hluti,
greina aðstæður og taka ákvarðanir á mjög
skömmum tíma.
Handfrjáls búnaður
veitir ekki öryggi
Morgunblaðið/Þorkell
Varasamt Rannsóknir síðustu fimmtán ára sýna að sögn sálfræðings við háskólann í Sussex að
handfrjálsir símar eru jafn hættulegir og símar sem haldið er á við notkun.