Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í HNOTSKURN »Enski boltinn hefur verið eitt vinsælastasjónvarpsefnið hér á landi í áratugi. »RÚV var upphaflega með sýningarrétt áenska boltanum áður en Sýn náði rétt- inum af því. Fyrir rúmum tveimur árum náði síðan Skjár einn sýningarréttinum. FRESTUR til þess að skila inn tilboðum í sýning- arrétt í sjónvarpi frá leikjum í ensku úrvalsdeild- inni fyrir næstu þrjú leiktímabil, frá næsta hausti, rann út á hádegi á þriðjudaginn. Gert er ráð fyrir að það skýrist fyrir áramót hvaða aðili hér á landi fær sýningarréttinn og hugsanlega strax í þessum mánuði, en samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins gerðu Skjár einn og Sýn tilboð í sýning- arréttinn, en Ríkisútvarpið gerði það ekki. Skjár einn er með sýningarréttinn á leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur og hefur verið síð- ustu tvö leiktímabilin. Skjár einn hafði þá betur í samkeppni við Sýn um sýningarréttinn, en Sýn var áður með útsendingar frá ensku knattspyrn- unni og hafði verið allt frá því að stöðin hafði betur í samkeppni við RÚV um sýningarréttinn. Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Skjás eins, sagði að niðurstaða útboðs vegna sýningar- réttarins myndi liggja fyrir einhvern tíma fyrir jól, en útboðið tæki til sjötíu markaðssvæða og því tæki tíma að vinna úr tilboðum. Sennilega myndi þó niðurstaðan liggja fyrir einhvern tíma í þessum mánuði. Ari Edwald, forstjóri 365, sagði að Sýn hefði gert tilboð í sýningarréttinn á enska boltanum. Það gæti tekið langan tíma að fá niðurstöðu í það hver hlyti sýningarréttinn. Þannig skildist honum að það hefði tekið nokkra mánuði, síðast þegar enski boltinn hefði verið boðinn út, frá því tilboð- um var skilað inn í upphafi og þar til endanleg nið- urstaða lá fyrir og það hefði verið eftir að farið hefði fram önnur umferð. Seljandi sýningarrétt- arins hefði rétt til þess að efna til annarrar um- ferðar í tilboðsskilum ef honum byði svo við horfa. RÚV tók ekki þátt Páll Magnússon, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, sagði að RÚV hefði ekki gert tilboð í sýningarrétt- inn á enska boltanum. Þeir væru sjálfum sér sam- kvæmir í þeim efnum að gera ekki tilboð í deild- arkeppnir í einstökum löndum, en reyndu hins vegar að fá sýningarrétt á landskeppnum, eins og Evrópukeppni landsliða 2008 og heimsmeistara- keppni og ólympíuleikum, en það væri í samræmi við stefnu flestra almannaþjónustustöðva í Evr- ópu og á Norðurlöndunum. Samningar um sýning- arrétt RÚV frá Evrópukeppninni í knattspyrnu 2008 væru nú í lokafrágangi og vonandi yrði hægt að skýra frá niðurstöðunni í þeim efnum á næstu dögum. Skjár einn og Sýn gerðu til- boð í sýningar enska boltans Gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í þessum mánuði og ekki síðar en fyrir jól Á MEÐAN sykurinn og mjólkin er hrært saman við heitt kaffið eru heimsmálin rædd af þunga. Sviðið er Ráðhús Reykjavíkur og sviðsmyndin í baksýn er Reykjavíkurtjörn sem hefur orðið mörgu skáldinu að yrkisefni. Kaffihús Ráðhússins er því líklega kjörið af- drep fyrir þá sem vilja fá innblástur. Morgunblaðið/Ómar Á myrkvuðu kaffihúsi Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor af kröfum Auðar Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Laxness, um brot á höfundarrétti vegna bók- arinnar Halldór sem Hannes ritaði. Í nið- urstöðu héraðsdóms kemur fram að fallist sé á að Hannes hafi brotið gegn höfundarrétti á verkum Halldórs Laxness. Ekki var hins vegar hægt að líta fram hjá kröfu lögmanns Hann- esar um að heimild til að höfða einkamál til refsingar falli niður sé málið ekki höfðað innan sex mánaða frá því aðilum berist vitneskja um brotið. Kröfur Auðar fyrir dómi voru þær að Hann- es yrði dæmdur til refsingar og til að greiða samtals fimm milljónir í skaða- og miskabætur vegna grófra höfundarréttarbrota í bók Hann- esar, sem var sú fyrsta af þriggja binda ævi- sögu Halldórs, sem kom út í desember árið uðir eru liðnir frá því að vitneskja fæst um brotin. Segir stefnandi að vitneskja um meint brot hafi legið fyrir þegar eftir að bókin var komin út. Meint brot hafi m.a. margsinnis verið til ítarlegrar umfjöllunar í fjölmiðlum vikurnar eftir útgáfu bókarinnar. Í niðurstöðu dómsins segir m.a. um kröfu Auðar Sveinsdóttur til miskabóta að sam- kvæmt lögum um höfundarrétt geti bætur ein- ungis verið dæmdar höfundi eða flytjanda. Því var ekki hægt að fallast á að stefnandi ætti að- ild að kröfunni. Dómurinn féllst á að Hannes hefði brotið gegn höfundarrétti á verkum Halldórs en þar sem ekki hafi verið gert nægjanlega líklegt að stefnandi hefði beðið tjón af broti stefnda var Hannes auk þess sýknaður af skaðabótakröf- unni. Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp dóminn. Halldór Helgi Backman hrl. sótti málið fyrir hönd Auðar og Heimir Örn Her- bertsson hrl. varði Hannes. 2003. Var m.a. byggt á því að við ritun bók- arinnar hefði Hannes sótt heimildir sínar í út- gefin ritverk Halldórs og annarra höfunda, en einnig sótt heimildir í óútgefin verk Halldórs og bréf hans til þriðju aðila. Var því haldið fram að ekki hefði legið fyrir samþykki erfingja Halldórs fyrir notkun á óútgefnu efni og að bókin hefði verið rituð án samráðs. Bók Hannesar hefði verið til þess fallin að draga úr sölu á ýmsum bókum og ritverkum Halldórs og raska með öðrum hætti þeim gríð- arlegu fjárhaglegu hagsmunum sem bundnir séu við höfundarrétt skáldsins. Ekki sannað að tjón hefði hlotist af Stefnandi sagði umfang brotanna og málsins í heild hafa verið slíkt að ekki hefði reynst mögulegt að höfða málið fyrr en 23. nóvember 2004, tæpu ári eftir að bókin kom út, en ein að- alkrafa Hannesar var, eins áður er greint frá, sú að heimild til að höfða einkamál til refsingar falli niður sé mál ekki höfðað áður en sex mán- Héraðsdómur féllst á að Hannes Hólmsteinn hefði brotið gegn höfundarrétti á verkum Halldórs Laxness – frestur til málshöfðunar var hins vegar liðinn Sýkn af kröfum Auðar HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 37 ára karlmann í átta mánaða fangelsi en frestað fulln- ustu sex mánaða af refsivistinni fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni. Hann þarf auk þess að greiða rúm- ar 200 þúsund krónur í sakar- kostnað. Ákærði játaði brot sitt skýlaust en við leit lögreglu á heimili hans fundust fundust rúm 100 grömm af amfetamíni og tæp 142 grömm af kókaíni í júní sl. Hefur leitað sér aðstoðar vegna fíkniefnavanda Við ákvörðun refsingar leit dóm- urinn til þess að maðurinn á ekki að baki sakarferil auk þess sem hann hefur leitað sér aðstoðar vegna fíkniefnavanda síns og verið í fastri atvinnu undanfarið ár. Ingveldur Einarsdóttir héraðs- dómari kvað upp dóminn. Daði Kristjánsson fulltrúi lögreglustjór- ans í Reykjavík flutti málið af hálfu ákæruvaldsins og Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði mann- inn. Fangelsi fyrir fíkniefni Á HLUTHAFAFUNDI Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, í gær, voru eftirtalin kjörin í stjórn: Stefán P. Eggertsson, Ragnhildur Geirsdóttir, Kristinn Björnsson, Skúli Valberg Ólafsson og Steingrím- ur Pétursson. Eftir stjórnarkjör skipti stjórnin með sér verkum og verður Stefán P. Eggertsson formað- ur og Ragnhildur Geirsdóttir varafor- maður. Í varastjórn félagsins eru: Hallgrímur Geirsson, Helga Gunn- arsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson, Óttar Pálsson og Þór Kristjánsson. Ný stjórn Árvakurs Stefán P. Eggertsson Ragnhildur Geirsdóttir „Í ÞESSU máli voru gerðar ákveðnar kröfur á hendur Hannesi og málið snerist um þessar kröfur. Niðurstaða dómsins er alveg afdrátt- arlaus um að hann er sýknaður af þeim og það skiptir mestu máli fyrir hann,“ segir Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Hannesar. Spurður út í orð dómsins varðandi brot á höfundarrétti segir Heimir kveða við nýjan tón í viðhorfi til þess hvernig haga skuli tilvís- unum í ritum af þessu tagi. „Það má lengi deila um hvenær tilvísanir til rita annarra eru innan eða utan einhverra marka sem eðlileg þykja.“ Lengi má deila „FRESTURINN var ekki liðinn, það tók hins vegar næstum sex mánuði að skoða fimmtíu bækur Halldórs og sex hundruð síðna bók Hannesar til að átta sig á umfanginu á þess- um þjófnaði,“ segir Halldór Þorgeirsson, eiginmaður Guðnýjar Halldórsdóttur, dóttur Halldórs Laxness. „Um leið og það lá fyrir liðu fjórar vikur þar til hann var ákærður. Það sem ég held að gerist í þessu máli er að þessu ákvæði verði áfrýjað vegna þess að Hannes getur ekki alltaf sloppið, hann verð- ur einhvern tíma að svara til saka.“ Verður áfrýjað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 22 ára karlmann til sex mánaða fangelsisvistar fyrir stór- fellda líkamsárás, en skilorðsbundið refsinguna til þriggja ára. Honum var gert að greiða fórnarlambi sínu um 430 þúsund kr. í miskabætur og um 150 þúsund kr. í sakarkostnað. Maðurinn játaði brot sitt en hann sló karlmann í andlitið með glasi. Fórnarlambið hlaut skurði í andliti og líklegt að hann þurfi að fara í lýta- aðgerð. Varanlegur miski er 5%. Fyrir dómi sagði ákærði að hann hefði misskilið orð þriðja aðila í mál- inu og talið að fórnarlambið hefði misboðið honum. Í kjölfarið réðst hann á fórnarlambið með fyrr- greindum afleiðingum. Í dómsniður- stöðu kemur fram að ákærði eigi ekki að baki sakarferil sem máli skipti við ákvörðun refsingar. Sandra Baldvinsdóttir, settur hér- aðsdómari, kvað upp dóminn. Sigríð- ur Elsa Kjartansdóttir saksóknari sótti málið af hálfu ákæruvaldsins og Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði manninn. Skilorð fyrir líkamsárás
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.