Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 6

Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÉG TEL þetta vera byggt á misskilningi,“ segir Siv Frið- leifsdóttir heil- brigðisráðherra um gagnrýni þá sem fram kom í máli aðstand- enda aldraðra á blaðamannafundi í fyrradag. Aðspurð vísar Siv því á bug að hún hafi ekki umboð til þess að tryggja fjármagn upp á 1,3 millj- arða króna til uppbyggingar hjúkr- unarheimila á næstu fjórum árum og bendir máli sínu til stuðnings á samkomulag sem ríkisvaldið gerði við Landssamband eldri borgara (LEB) nú í sumar. „Það er ljóst að það er sameiginlegur skilningur stjórnvalda og LEB að tillögurnar nái fram að ganga á næstu fjórum árum,“ segir Siv og vísar þar ann- ars vegar til uppbyggingar á þjón- ustu og hins vegar aukins lífeyris til ellilífeyrisþega. Sérstök áhersla á heimaþjónustu Segir Siv ljóst að byggð verði um 400 ný hjúkrunarrými á næstu fjórum árum og að allar líkur séu til þess að þörfin fyrir hjúkrunar- rými verði uppfyllt að fjórum árum liðnum, ekki síst þar sem mark- miðið sé að efla samhliða heima- þjónustu. Aðspurð vísar Siv því á bug að ekki sé verið að setja nægi- legt fjármagn í heimaþjónustu og umönnun og segir hún að einmitt sé lögð sérstök áhersla á þann málaflokk nú um stundir með stór- auknum framlögum. „Aðalatriðið er að það er verið að taka stórkost- legt skref í uppbyggingu á öldr- unarþjónustunni, bæði varðandi hjúkrunarrými, endurbyggingu gamalla rýma og stóraukna heima- hjúkrun, sem er sá þáttur sem ég legg langmesta áherslu á,“ segir Sif. Stjórnendur spítalans hafa með starfsmannamál að gera „Mál einstakra starfsmanna á spítalanum eru mál sem stjórnend- ur spítalans hafa með að gera og svara fyrir,“ sagði Siv þegar leitað var viðbragða hennar við ályktun sem Læknafélag Íslands sendi frá sér fyrr í vikunni vegna málefna Stefáns E. Matthíassonar, fyrrum yfirlæknis æðaskurðdeildar LSH. Í ályktuninni var ráðherra gagn- rýndur harðlega fyrir tómlæti sitt gagnvart lögbrotum undirmanna sinna, þ.e. stjórnenda spítalans. Vísar gagnrýn- inni á bug Siv Friðleifsdóttir „ÉG GERI mér vonir um að sett verði aukið fjármagn til Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) í fjár- aukalögum yfirstandandi árs og fjár- lögum næsta árs,“ segir Siv Frið- leifsdóttir heilbrigðisráðherra, þegar leitað var viðbragða hennar vegna tæplega 600 milljóna króna gjaldfallinna vanskila LSH við heild- sala á sviði lyfja og hjúkrunarvara. Aðspurð sagðist hún ekki geta upp- lýst hversu háa upphæð yrði um að ræða, en önnur umræða um fjár- aukalögin fer fram í næstu viku og þá ættu tölur að skýrast. Aðspurð segir Siv ljóst að bregð- ast þurfi við þeirri stöðu sem upp er komin í rekstri spítalans, enda sé það ávallt stefna stjórnenda LSH að rekstur spítalans sé í sem mestu jafnvægi. Tók hún fram að vel hefði tekist sl. ár að halda rekstri LSH samkvæmt áætlun, en að erfiðleikar í rekstri vegna utanaðkomandi þátta hefðu komið fram snemma á þessu ári. Benti Siv á að sú erfiða staða sem LSH væri nú í skýrðist t.d. af gengisbreytingum og þenslu á vinnumarkaði sem leitt hefði til meiri yfirvinnu og vakta starfsmanna. Aðspurð hvort það væri ekki slæm nýting á fjármunum að greiða allt að 50 milljónir króna á ársgrundvelli í dráttarvexti svaraði Siv því til að LSH stefndi að því að hafa ávallt sem minnst af útistandandi skuldum og því þyrfti á þessum tímapunkti að skoða skuldastöðuna. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra Skoða skulda- stöðuna ÖSSUR Skarphéðinsson, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, lýsti því yfir á opnum stjórnmála- fundi í gær, að kæmist flokkur sinn í ríkisstjórn yrði umhverfisráðu- neytið eitt aðalráðuneyti ríkis- stjórnar flokksins. Sagðist Össur myndu leggja til að umhverfisráð- herra gerði sáttmála um orkusparn- að, aðgerðir til þess að draga úr los- un gróðurhúslofttegunda, og um umhverfisbætur við alla helstu at- vinnuvegi Íslendinga og stórfyrir- tæki. Þessir sáttmálar yrðu opin- berir og með mælanlegum markmiðum sem fylgst yrði vel með að fyrirtækin stæðu við. Össur sagðist í ræðu sinni sann- færður um, á grundvelli ýmissa rannsókna, að einungis um- hverfisvænir at- vinnuvegir yrðu samkeppnishæfir innan nokkurra ára og því væri öllum fyrir bestu að hefjast handa strax í dag. Össur sagði ennfremur að málefni virkjana og stóriðju hefðu verið í brennidepli og klofið þjóðina og ekkert mál hefði verið eins erfitt í Samfylkingunni. Sagðist hann ekki styðja þá skoðun að Kárahnjúka- virkjun yrði látin standa ónýtt sem minnismerki um „heimsku manns- ins“ en sagðist á hinn bóginn styðja að menn tækju mið af nýjum við- horfum og nýrri þekkingu og hættu við frekari áform á meðan ekki væri búið að ganga vísindalega úr skugga um verndargildi allra þeirra náttúrusvæða sem menn ásældust í dag. Sagði hann að stærsta verkefni næstu ríkisstjórnar í atvinnumálum ætti ekki að felast í áframhaldandi uppbyggingu stóriðju, heldur að tryggja að næstu tíu árin yrði ára- tugur hátækni, hugbúnaðar og mannauðs í atvinnulífinu. Í þessu efni hefði Samfylkingin staðið fyrir umfangsmikilli stefnumótun með leiðarvísi fyrir næstu ríkisstjórn um uppbyggingu hátækni. Vill umhverfissáttmála um orkusparnað Aðgerðirnar stuðli að minni losun gróðurhúsalofttegunda Össur Skarphéðinsson Eftir Örnu Schram arna@mbl.is STEFNT er að því að Vatnajök- ulsþjóðgarður verði stofnaður seint á árinu 2007 eða snemma árs 2008, að því er fram kom í máli Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra á blaðamannafundi í gær. Ríkis- stjórnin samþykkti, fyrr um morg- uninn, tillögu hennar að stjórnar- frumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn mun, skv. frum- varpinu, þekja um fimmtán þúsund ferkílómetra svæði, sem samsvarar um 15% af yfirborði Íslands. Hann verður sá stærsti í Evrópu. Frum- varpið um þjóðgarðinn verður lagt fram á Alþingi á næstunni, að sögn ráðherra, og vonast hún til þess að það verði samþykkt fyrir vorið. Tilurð frumvarpsins má rekja allt aftur til ársins 1999, þegar Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Síðan hafa nefndir og hópar starfað að undirbúningi málsins, þar á með- al þingmannanefnd, skipuð fulltrú- um allra þingflokka. Ríkisstjórnin samþykkti í ársbyrjun 2005 að vinna að málinu áfram og síðar sama ár var skipuð ráðgjafarnefnd umhverfisráðuneytisins um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Sú nefnd skilaði tillögum sínum í byrjun þessa mánaðar og er frumvarp ráð- herra byggt á þeim. Gert er ráð fyrir því að Vatnajök- ulsþjóðgarðurinn nái í fyrstu til alls jökulsins og helstu áhrifasvæða hans, þ.m.t. Jökulsár á Fjöllum. Nákvæm mörk þjóðgarðsins ráðast þó ekki fyrr en samið hefur verið við landeigendur á svæðinu og handhafa nytjaréttar. Að sögn ráð- herra er óumdeilt að 80% af fyr- irhuguðum þjóðgarði sé í eigu rík- isins. Vatnajökulsþjóðgarður á skv. frumvarpinu að vera ríkisstofnun sem lýtur sérstakri sjö manna stjórn, skipuð af umhverfisráð- herra. Þjóðgarðinum verður skipt í fjögur rekstrarsvæði undir stjórn þjóðgarðsvarða, sem bera ábyrgð á daglegum rekstri svæðanna. Að sögn ráðherra er stofnkostn- aður talinn vera um 1,2 milljarðar og viðbótarrekstrarkostnaður á ári um 250 milljónir. Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð Verður sá stærsti í Evrópu                                    !     "  !  ! #$ !   %   &   ' &   '        !    "        ORÐSTÍR roksins á Keflavíkurflugvelli berst víða og flugvélaframleiðendur sem eru að reynslufljúga nýjum tegundum eru einstaklega ánægðir með Keflavík- urflugvöll vegna brautarlegu hans, en þar eru tvær 3 km langar flugbrautir sem snúa þvert á hvor aðra. Einnig er ekki mjög mikil umferð um flugvöllinn nema á tilteknum álagstímum. Það er samt ekki á hverjum degi sem stærsta farþegaflugvél í heimi lendir á Keflavíkurflugvelli, en í gær kom Airbus A380-vél hingað til lands til þess að æfa mætti aðflug í hliðarvindi. Miðað er við að A380-flugvélarnar geti flutt 500–600 farþega og er farþegarýmið á tveimur hæðum, en enn er þess beðið að þær fari í almenna framleiðslu og sölu. Airbus A380-vélin er svo stór að ytri hreyflar hennar ná út á brún flugbraut- anna og sópa þar upp ryki og grjóti, sem síðan þarf að sópa burt. Var brautin sóp- uð a.m.k. fjórum sinnum í gær. Á myndinni má sjá hve mjög vélinni er beint upp í vindinn í lendingu allt þar til hún snertir flugbrautina. Stærsta farþegavél heims Ljósmynd/Baldur Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.