Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 22
22 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Hjónarúm
Barnarúm
RÚM Í ÚRVALI
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
Unglingarúm
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
ALLAR deildir Listaháskóla
Íslands taka þátt í opnum degi
skólans í dag milli klukkan 11
og 15. Leiklistardeildin kynnir
leikaranám, dansnám og fræði
og framkvæmd. Í tónlist-
ardeildinni verða opnir tón-
leikar og opnar æfingar. Í
myndlistardeildinni verður
leiðsögn um deildina og fjöl-
breytt verk nemenda til sýnis.
Hönnunar- og arkitektúrdeild
verður einnig með leiðsögn um deildina, en þar er
að finna fatahönnun, vöruhönnun, grafíska hönn-
un og arkitektúr. Í öllum deildum verða nem-
endur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar.
Kynning
Opinn dagur í
Listaháskólanum
Listaháskóli
Íslands.
KOMIN er út bókin Jón Ara-
son – ljóðmæli, en þetta mun
vera í fyrsta sinn sem öll ljóð-
mæli þessa fyrrum Hólabisk-
ups koma saman út í einni bók.
Ásgeir Jónsson ritstýrði
verkinu og ritaði jafnframt inn-
gang þar sem kvæðin eru sett í
samhengi við tíðaranda og lífs-
hlaup Jóns.
Jón biskup var mjög þekktur
sem skáld í lifanda lífi og nutu
ljóð hans áfram mikilla vinsælda eftir siðaskiptin.
Útgáfudagur bókarinnar, 7. nóvember, var
hreint ekki tilviljun en Jón var hálshöggvinn þann
7. nóvember árið 1550.
Bókaútgáfa
Öll ljóð Jóns Ara-
sonar saman á bók
Hólar í
Hjaltadal.
Í KVÖLD fara fram styrkt-
artónleikar í Neskirkju við
Hagatorg í Reykjavík.
Allur ágóði tónleikanna
rennur óskiptur til Ljóssins,
endurhæfingar- og stuðnings-
miðstöðvar fyrir krabbameins-
greinda og aðstandendur
þeirra.
Á tónleikunum koma fram
Unglingakór Snælandsskóla,
Léttsveit Kvennakórsins og Selkórinn auk ein-
söngvara.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 í Neskirkju.
Miðasala fer fram við innganginn og er miða-
verð 2.500 krónur.
Styrktartónleikar
Sungið til styrktar
Ljósinu
Neskirkja.
ÁHUGI á verkum Arnaldar Indr-
iðasonar fer enn vaxandi erlendis og
viðurkenningum honum til handa
fjölgar. Publishers Weekly var að
birta lista sinn yfir bestu útgefnu
bækurnar í flokki glæpasagna í
Bandaríkjunum og er Grafarþögn
ein 6 bóka sem tilnefndar eru. Sama
bók hlaut einnig glimrandi dóma í
New York Times. Kleifarvatn hefur
ennfremur verið tilnefnd til hinna
sænsku Martin Beck verðlauna sem
besta erlenda glæpasagan sem kom
út í Svíþjóð í ár og er það í fjórða
sinn sem bók eftir Arnald hlýtur til-
nefningu til þeirra verðlauna.
Saga hans Röddin hlaut verðlaun-
in í fyrra.
Publishers Weekly var að birta
lista sinn yfir bestu bækur ársins í
Bandaríkjunum 2006 og er Graf-
arþögn tilnefnd í flokki glæpasagna.
Þess má geta að einungis eru til-
nefndar 6 bækur alls staðar að úr
heiminum.
Mýrin sem kom út í Bandaríkj-
unum 2005 undir heitinu Jar City
hlaut einróma lof gagnrýnenda og
Grafarþögn, Silence of the Grave
sem út kom á þessu ári hefur fengið
mjög góða dóma.
Forleggjarar Arnaldar í Banda-
ríkjunum hafa einnig keypt réttinn
að Röddinni og Kleifarvatni og
munu þær koma út á næsta ári.
„Þetta er endanleg staðfesting á
því að hann er kominn í hóp með
stærstu höfundunum á þessu sviði,“
sagði Páll Valsson útgáfustjóri hjá
Eddu – útgáfu í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Vegur Arn-
aldar vex
Tilnefndur til tveggja
viðurkenninga
sjá: http://www.nyti-
mes.com/2006/10/22/books/
review/Crime.
Sigurför Arnaldur Indriðason
HLJÓMLEIKAR und-
ir yfirskriftinni „Give
Peace a Chance“ verða
haldnir til heiðurs bítl-
inum John Lennon í
Háskólabíói föstudag-
inn 1. desember nk.
Um viðamikið verkefni
er að ræða þar sem
fjörutíu hljóðfæraleik-
arar úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands
koma fram auk rokk-
hljómsveitar og tólf
söngvara.
Það er fram-
kvæmdamaðurinn Sig-
urður Kaiser sem hefur haft veg og
vanda af skipulagningu tónleikanna
og telur hann að um einstakan við-
burð sé að ræða.
„Maður er hissa á því að engin sin-
fóníuhljómsveit úti í
heimi hafi ráðist í þetta
verkefni áður,“ segir
Sigurður og fullyrðir
að lagasmíðar Lennons
séu vel til þess fallnar
að klæða þær í búning
af þessu tagi en það er
Haraldur Vignir Svein-
björnsson sem hefur
útsett lögin fyrir tón-
leikana.
Jón Ólafsson annast
tónlistarstjórn og hef-
ur verið Sigurði innan
handar með valið á
þeim rúmlega tuttugu
lögum sem eru á efnisskránni auk
þess sem hann valdi söngvarana sem
munu spreyta sig á verkum Len-
nons.
„Ætli það ráði ekki miklu hvað
maður fílar sjálfur á hverjum tíma,“
segir Jón um valið á söngvurunum.
„Mér fannst líka atriði að draga inn
á svið með Sinfóníunni fólk sem
maður er óvanur að sjá í því um-
hverfi,“ heldur hann áfram og á þar
einkum við Jens Ólafsson úr hljóm-
sveitinni Brain Police og Hauk Heið-
ar Hauksson úr hljómsveitinni
Dikta. „Þeir voru báðir himinlifandi.
Enda tel ég að flestum finnist gaman
að fá tækifæri til að standa uppi á
sviði með allt þetta lið í kringum sig.
Það er ákveðið „kikk“ sem fylgir
því.“
Auk Jens og Hauks eru söngvarar
kvöldsins Björn Jörundur, Hildur
Vala, KK, Páll Rósinkrans, Magnús
Þór Sigmundsson, Jón Ólafsson,
Sigurjón Brink, Pétur Örn Guð-
mundsson og færeyska söngkonan
Eivör Pálsdóttir.
Tónlist | Hljómleikar til heiðurs John Lennon í Háskólabíói
Tólf söngvarar spreyta sig
með Sinfóníuhljómsveitinni
John Lennon
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
GULLNA ljónið, aðalverðlaun
Feneyjatvíæringsins um bygging-
arlist og borgarskipulag, voru af-
hent við hátíðlega athöfn í Teatro
Malibren-leikhúsinu í Feneyjum
sl. miðvikudag. Að auki hlutu þrír
sýningarskálar sérstakar við-
urkenningar og var sá íslenski í
þeim hópi.
Það er fyrir „framúrskarandi
framsetningu og samspil lista-
manns og arkitektastofu“ sem við-
urkenningin fellur íslenska sýn-
ingarskálanum í skaut. Í íslenska
skálanum er tónlistar- og ráð-
stefnuhús við Austurhöfn í
Reykjavík kynnt ásamt tilheyr-
andi borgarskipulagi og uppbygg-
ingu í miðborginni, en hönnun tón-
listarhússins er verk dönsku
arkítektastofunnar Hennings Lar-
sen Tegnestue, í samvinnu við
Batteríið arkitekta, og listamanns-
ins Ólafs Elíassonar.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ís-
land tekur þátt í sýningunni og er
sýningarskálinn staðsettur utan
sjálfs sýningarsvæðisins, nálægt
Markúsartorgi, á bak við Santa
Maria della Pieta-kirkjuna.
Tekist vonum framar
Þórhallur Vilhjálmsson er sýn-
ingarstjóri skálans jafnframt því
að vera markaðsstjóri Eign-
arhaldsfélagsins Portusar hf., sem
mun byggja og reka tónlistar- og
ráðstefnuhúsið. Að sögn Þórhalls
geta þeir sem standa að verkefn-
inu ekki annað en verið ánægðir
með viðurkenninguna. Hann bend-
ir á að Feneyjatvíæringurinn í ár
samanstandi af 145 sýning-
arskálum og að það sé mikið afrek
Byggingarlist | Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum hlýtur viðurkenningu
Hefur fengið mikla athygli
að vera sérstaklega valinn úr þeim
stóra hópi. Hann segir jafnframt
að íslenska framlagið hafi vakið
athygli vonum framar og þakkar
það ekki síst nafni Ólafar Elías-
sonar sem sé „stórveldi í Evrópu“.
Þá segir hann aðkomu Dorrit Mo-
ussaieff forsetafrúar hafa reynst
vel, en Dorrit opnaði skálann fyrir
hönd menntamálaráðherra og
borgarstjórans í Reykjavík 8.
september sl.
Íslenski skálinn Ólafur Elíasson flytur tölu við athöfn í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum.