Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 26
26 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kraftur og reynsla til forystu!
Opnun kosningamiðstöðvar á Akureyri
Arnbjörgu í
1. sætið
www.arnbjorgsveins.is
Verið velkomin í opnun kosningamiðstöðvar
aðGlerárgötu 20 (2. hæð fyrir ofanGreifann)
í dag, laugardaginn 11. nóvember kl. 15
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 25. nóvember
Neskaupstaður | Stóra lyftan á
skíðasvæðinu í Oddsskarði í Fjarða-
byggð hefur verið opnuð. Aldrei áður
hefur verið opnað á svæðinu jafn-
snemma vetrar.
Að sögn Dagfinns Smára Ómars-
sonar, forstöðumanns Skíðamið-
stöðvarinnar í Oddsskarði, eru það
fyrst og fremst umfangsmiklar jarð-
vegsframkvæmdir við stóru lyftuna
sem hafa bætt aðstæður til skíðaiðk-
unar í litlum snjó til muna. Fyrir
breytingar þurfti um 1,5 metra lag af
snjó til að hylja skíðaleiðir í gilinu
svokallaða en á laugardaginn fyrir
viku dugði um 30 cm snjór. Auk
þessa hafa hagstæðar verðuraðstæð-
ur undanfarið hjálpað til.
„Þetta var kannski bara heppni,“
sagði Dagfinnur kampakátur. „Það
snjóaði passlega blautu sem hægt
var að troða út og svo hlýnaði ekki
eins mikið og hafði verið spáð.“
Steinar Ingi Hafsteinsson frá Eski-
firði mætti og var meðal fyrstu
manna í lyftuna á þessum vetri.
„Færið er algjör snilld, þótt það líti
ekki út fyrir það. Það er bara verst
að litla systir mín getur ekki líka ver-
ið á skíðum af því að litla lyftan er
lokuð. Hún er bara fimm ára,“ sagði
Steinar Ingi þar sem hann stóð og
beið eftir að komast heim eftir vel
heppnaðan skíðadag. Byrjendalyft-
an var lokuð af því þar vantar snjó,
en það er óvananlegt að stóra lyftan
sé opnuð á undan þeirri litlu. „Vana-
lega hefur sú litla glamrað í 30 daga
áður en hægt hefur verið að taka þá
stóru í notkun,“ sagði Dagfinnur.
Ókeypis var í lyftuna og mættu um
30–40 manns til að skíða. Spurður
um framhaldið sagði Dagfinnur að
hann sæi bara frost og flott veður á
næstunni þannig að vonandi væri
hægt að hafa opið um næstu helgi, en
til að byrja með yrði lyftan bara opin
um helgar. Stutt er síðan ákveðið var
í bæjarráði Fjarðabyggðar að fjár-
festa í snjóframleiðslukerfi fyrir
skíðamiðstöðina þannig að það eru
spennandi tímar framundan hjá
skíðaiðkendum á svæðinu.
Skíðafærið í Oddsskarði
hefur verið hrein snilld
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Skíðafæri Steinar Ingi Hafsteinsson frá Eskifirði var meðal fyrstu manna í
lyftuna og var þrælánægður með fyrsta skíðadag vetrarins í Oddsskarði.
TILLÖGUR um uppbyggingarreiti í
miðbæ Akureyrar eru nú til sýnis í
Amtsbókasafninu. Tillögurnar voru
kynntar bæjarráði í vikunni en nú
gefst almenningi tækifæri til þess að
virða fyrir sér þessar nýju hug-
myndir um framtíð miðbæjarins.
Snemma árs samþykkti bæjarráð
að auglýsa eftir áhugasömun fjár-
festum og byggingaraðilum til að
byggja upp fimm skilgreinda reiti á
svæðinu. Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarfulltrúi, Pétur Bolli Jóhann-
esson, deildarstjóri umhverfisdeild-
ar, og Dan Jens Brynjarsson, sviðs-
stjóri stjórnsýslusviðs, voru skipuð í
valnefnd til að meta tillögurnar og
þau hafa nú lokið störfum.
Margar tillögur
Nefndinni þóttu álitlegastar til-
lögur frá PA byggingaverktökum
vegna Drottningarbrautarreits,
sunnan við Bautann og hvíta húsið
þar sem Ríkisútvarpið er til húsa og
ritstjórn Morgunblaðsins var til
skamms tíma, og frá Njarðarnesi
ehf. – sem er að fullu í eigu Spari-
sjóðs Norðlendinga – vegna Glerár-
götureits nyrðri. Það er svæðið þar
sem nú er bílastæði austan Spari-
sjóðsins.
Alls bárust upplýsingar frá þrett-
án aðilum. Eftir yfirferð valnefndar
var ákveðið að gefa ákveðnum aðil-
um kost á að koma með tillögur að
reitum, átta skiluðu þá tillögum og
tveir áðurnefndir reitir verða nú
skoðaðir nánar.
Sigrún Björk Jakobsdóttir leggur
áherslu á það, í samtali við Morgun-
blaðið, að ekki sé verið að úthluta
reitunum til framkvæmda heldur
verði gengið til viðræðna við þessa
aðila um deiliskipulag og það síðan
auglýst skv. venju.
Ákveðið var að bíða með að ráð-
stafa öðrum reitum. Reyndar bárust
ekki tillögur um tvo af fimm, Sjall-
areit svokallaðan og blett við Torf-
unefið, en reitur númer tvö – bíla-
stæðið austan við Pedromyndir og
Alþýðuhúsið – bíður betri tíma.
Ánægð með viðtökurnar
„Niðurstaðan varð sú að ekki væri
gott að fara í framkvæmdir á öllum
reitunum á sama tíma og þess vegna
ákváðum við að bíða með þennan
reit,“ sagði Sigrún Björk. „Ég er
mjög ánægð með viðtökurnar; bæði
fjárfestar og byggingaverktakar,
alls átta aðilar, sýndu þessu áhuga.
Við renndum blint í sjóinn en ég er
ánægð með áhugann sem þessir að-
ilar sýndu á því að byggja upp í
miðbæ Akureyrar, bæði aðilar hér á
svæðinu og að sunnan.“
Sigrún segir erfitt að segja til um
hve langan tíma skipulagsvinnan
taki en hún geri sér þó vonir um að
framkvæmdir geti hafist eftir um
það til eitt og hálft ár.
Við mat nefndarinnar vó þyngst
fjárhagslegur og faglegur styrkur til
að ljúka uppbyggingu án óþarfra
tafa og að fyrirhuguð uppbygging
væri í samræmi við þá sýn sem fram
kemur í tillögu um endurskoðað að-
alskipulag, þ.e. eflingu miðbæjarins.
Tillögur að nýjum miðbæ
Í HNOTSKURN
»Tillögur bárust um upp-byggingu þriggja reita af
fimm í miðbæ Akureyrar, frá
alls þrettán aðilum.
»Framkvæmdir í mið-bænum gætu hafist eftir
um það bil eitt og hálft ár, að
mati formanns valnefndar-
innar.
Síkið Hugmynd Njarðarness um svæðið austan við Sparisjóðinn.
Ný byggð Séð yfir svokallaðan Glerárgötureit syðri, bílastæðið við Drottningarbrautina, undir brekkunni neðan við Sigurhæðir og Akureyrarkirkju.
FJÖLBREYTT
dagskrá verður á
morgun, sunnu-
dag, um Matt-
hías Jochumsson
á vegum Akur-
eyrarkirkju og
Amtsbókasafns-
ins. Annars veg-
ar verður mál-
þing á bóka-
safninu kl. 14.00 og hins vegar
Matthíasarvaka í kirkjunni kl.
20.30. Á málþinginu fjallar Helga
Kress um Matthías og skáldkon-
urnar, Jón Hjaltason fjallar um
blaðamanninn Matthías og Þórunn
Valdimarsdóttir kveður Matthías
að lokinni ritun ævisögunnar Upp á
Sigurhæðir.
Á Matthíasarvökunni í Akureyrar-
kirkju verða flutt lög og sálmar,
lesnar sögur Matthíasar og leikin
brot úr leikverkum hans. Meðal
þeirra sem koma fram eru Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona og Megas,
skáld og söngvari.
Búseti Benedikt Sigurðarson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri Bú-
seta hsf. á Akureyri frá 1. janúar
nk. Hann tekur við starfinu af
Heimi Ingimarssyni.
Skjaladagur Opinber skjalasöfn á
Norðurlöndum kynna starfsemi
sína annan hvern laugardag í
nóvember. Af því tilefni verða í dag
opnaðar sýningar bæði í anddyri
ráðhússins og í Héraðsskjalasafn-
inu.
KFUM & K Á morgun, kristniboðs-
daginn, verður Kristniboðsfélag
kvenna á Akureyri með kaffisölu í
húsakynnum KFUM og KFUK í
Sunnuhlíð. Kaffisalan er til
styrktar kristniboðsstarfinu í
Afríku og stendur hún frá kl. 14.30
til 17.00.
Eldsneyti Akureyrarbær og Olíufé-
lagið ehf. hafa samið um framleng-
ingu á samningi um eldsneytiskaup
til tveggja ára.
Jónas, Megas
og Matthías
Megas
AUSTURLAND