Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 30
|laugardagur|11. 11. 2006| mbl.is daglegtlíf Stólar eru að stækka og form þeirra að mýkjast samkvæmt línunum sem lagðar voru á hús- gagnasýningunni í Mílanó. » 36 hönnun Það verður spænskur svipur yf- ir brúðarkjólatískunni næsta ár- ið. Tjull, sjiffon og blúndur taka við af naumhyggjunni. » 34 tíska Stofubrúðkaup voru ákaflega íslenskt fyrirbæri og brúð- kaupsfagnaði fyrr á tímum stillt í hóf. » 36 sýning Það er notalegt um að litast í einbýlishúsi hjónanna Elínar Bjargar Ingólfsdóttur og Gunn- ars Berg Gunnarssonar. » 38 innlit Eva Hrönn Guðnadóttir tók svörtu bókina sína með sér hvert sem hún fór þegar hún dvaldi í Finnlandi. » 32 daglegt segja að á vissan hátt hafi þetta verið um- hverfisvænt en plast og ál þekktist ekki í þá daga.“ Egill Skallagrímsson hætti afgreiðslu hví- töls með þessum hætti ári eftir að fyrirtækið flutti höfuðstöðvar sínar upp á Grjótháls. „Við gátum ekki ábyrgst hreinlæti umbúðanna og létum því af þessari þjónustu að kröfu heil- brigðisyfirvalda. Nú höfum við hins vegar brugðist við kalli tímans og höfum hafið fram- leiðslu á hvítöli í 1,25 l plastflöskum. Fólk vill bæði minni pakkningar í dag, enda hafa fjöl- skyldur minnkað, og varan verður að vera fersk, sem hún verður ekki ef hún er geymd í marga daga í stórum ílátum.“ – En hver er munurinn á hvítöli, jólaöli og malti? Maltið er matarmest og sætast af þessum þremur drykkjum. Það er meira ölbragð af jólaölinu sem hefur verið á markaðnum und- anfarin tuttugu ár. Hvítölið, sem leysir jólaöl- ið nú af hólmi, er hins vegar er líkara maltinu en ekki eins sætt og seðjandi og mörgum finnst betra að drekka það með mat. Það er kælivara og hefur styttra geymsluþol en maltið. En svo hefur hver sitt bragðskyn og smekk,“ segir Lárus brosandi og vonar að hvítölið eigi eftir að vekja góðar minningar hjá eldri kynslóðum Íslendinga og búa til nýj- ar hjá þeim yngri. Ölið sopið Lárus Berg Sigurbergsson með glas af hvítölinu. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Hvítölsafgreiðsla Það er ótrúlegt að það séu ekki nema 30 ár síðan þessu mynd var tekin af Íslendingum sem biðu í langri röð með brúsa og fötur fyrir framan hvítölsafgreiðslu Egils Skallagrímssonar. Allt kapp var lagt á að fá hvítöl fyrir jólin. Í biðröðum eftir hvítöli Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Ígegnum lúguna á Ölgerð Egils Skalla-grímssonar á Rauðarárstíg afgreiddi„Jói í kuldanum“ hvern krókloppinnÍslendinginn á fætur öðrum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Þeir höfðu þá oft staðið klukkustundum saman í röð sem náði út á götu. Daníel stóð við dæluna og fyllti alls kyns ílát, kúta, brúsa og fötur – jafnvel bensínbrúsa Voru þetta krepputímar? Já og nei. Jólin voru á næsta leiti og eftir- spurn íslenskra heimila eftir hvítöli gífurleg! Lárus Berg Sigurbergsson, fram- kvæmdastjóri tæknisviðs, brosir margoft við upprifjunina, en hann hefur unnið í 28 ár hjá fyrirtækinu. „Ég man reyndar enn lengra aft- ur, þegar ég var strákur og ölið var afgreitt og selt á Frakkastígnum, í portinu á Frakka- stíg og Njálsgötu. Hvítölið var reyndar á þessum tíma framleitt allt árið en svona bið- raðir mynduðust ekki nema um jól og að litlu leyti fyrir páska.“ Lárus segir að yfirleitt hafi einn fjölskyldu- meðlimur verið sendur í leiðangurinn en ef röðin var mjög löng hafi þeir stundum skipst á að standa. „Og þótt maður væri króklopp- inn og krumpaður lét maður sig hafa það því annars yrðu jól án hvítölsins og það gat mað- ur ekki hugsað sér. Það gat samt komið fyrir, eftir að fólk var búið að standa í röð í tvö til þrjá tíma, að það fór tómhent heim. Ölið var þá einfaldlega búið því framleiðslugetan var takmörkuð. Þá hófst afgreiðslan ekki aftur fyrr en daginn eftir eða þann næsta og þá varð fólk bara að koma aftur.“ Umhverfisvænt en hreinlæti skorti Lárus segir að fólk hafi dregið fram alls kyns brúsa og ílát, sum misjafnlega hrein, enda hafi umræðan og þekkingin um mik- ilvægi hreinlætis ekki verið eins mikil þá og nú. ,,Þess eru jafnvel dæmi að menn hafi komið með bensínbrúsa,“ segir hann og hlær. „Á mörgum heimilum voru þó til sérstakir glerkútar eða glerflöskur sem voru í sér- stökum bastkörfum, sem eingöngu voru not- aðar undir hvítöl og ekkert annað. Það má Morgunblaðið/Eyþór Ölkarl Lárus Berg man tímanna tvenna. Lúguafreiðsla Jóhann og Daníel stóðu í ströngu í áfyllingunni. Margir með klósettfælni Nú hafa Bretar ákveðið að snúa vörn ísókn gegn því sem þeir kalla klósett-fælni og telst vera angi af sjúklegrikvíðaröskun. Talið er að í það minnsta fjórar milljónir Breta eigi við vandamálið að stríða og birtist klósettfælnin helst í ótta við að þurfa að hætta heilsunni ef skyndilega þarf að notast við al- menningssalerni. Forðast sumir þannig jafnvel að yfirgefa heimili sín af ótta við þetta. Sérstök samtök, sem stofnuð hafa verið til að taka á þessu vandamáli fólks, hafa gefið út sjálfs- hjálparbók og DVD-disk. Vægustu tilfelli klósett- fóbíu eru hræðsla við almenningssalerni, en þegar þessi þráhyggja er orðin áköf geta þolendur tekið upp á því að harðneita bráðnauðsynlegum læknis- fræðilegum prófunum svo sem eins og að láta af hendi þvagsýni. Sérfræðingar telja að mikill meirihluti þolenda viðurkenni ekki vandann, en fyrrnefnd samtök, National Phobics Society, gera sér vonir um að nýja herferðin nái að hreyfa við vandamálinu til að auð- velda þolendum að koma úr felum og leita hjálpar. heilsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.