Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 32
hlutur með sögu 32 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Skissa frá Laugavegi Toppurinn á Laugavegi Vandaðar 2ja og 3ja herb. íbúðir í þessu nýja og glæsilega húsi við Laugaveg 86-94. SÖLUSÝNING Í DAG OG SUNNUDAG Íbúðirnar eru nú þegar fullbúnar og afhendast þær við kaupsamning. Svalir eru út af hverri íbúð og bílastæði fylgja hverri íbúð. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Íbúðirnar verða til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 13-15 og sunnudag frá kl. 14-16 Verið velkomin. Kaffi og konfekt á staðnum. TRAUSTUR VERKTAKI SALVÖR EHF. S. 864 8082 864 8083 Traustur byggingaraðili: Ístak hf. Eftir Lailu Pétursdóttur Eva Hrönn Guðnadóttirgrafískur hönnuður segirað uppáhaldshluturinnsinn sé skissubók sem hún bjó til þegar hún bjó í Finnlandi. Og fyrir utan kærastann og mynda- albúm myndi hún pottþétt reyna að bjarga skissubókinni úr eldsvoða ef svo bæri undir. Þegar Eva Hrönn var á öðru ári í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands ákvað hún að fara í hálft ár til Finnlands sem Erasmus- styrkþegi. „Í raun ætlaði ég aldrei til Finnlands. Ég ætlaði til heitu land- anna og verða brún – en nei – konan á alþjóðaskrifstofunni sagði mér að það væri ekki sniðugt. Ég ætti frek- ar að fara til Finnlands þar sem ég fengi miklu betri kennslu – og ég sé alls ekki eftir því,“ segir Eva Hrönn. Fljótlega eftir komuna til Finnlands keypti hún svarta skissubók og ætl- aði að nota undir glósur, en úr varð „bókin“ eins og Eva kallar hana. Bókina tók Eva með sér allt sem hún fór, límdi inn í hana fjöldann allan af miðum frá listasýningum, ferðalög- um og fleiru, teiknaði þar skissur af fólki sem hún fylgdist með í lestum og öðrum almenningssamgöngum, auk þess að hripa þar niður glósur úr skólanum og hugmyndir að hönn- un. „Ég dröslaðist með hana út um allt og var meira að segja með lím- stifti í töskunni til geta límt strax inn í hana allt það sem mér fannst þess vert að eiga. Í henni eru líka skissur sem ég notaði eftir að ég kom aftur heim til Íslands og fullt af hug- myndum að verkefni sem ég hef ekki enn komið í framkvæmd.“ Dansað uppi á dekki Ýmislegt blasir við þegar flett er í gegnum bókina og eiga teikning- arnar jafnt sem miðarnir skemmti- lega sögu á bak við sig. Þegar Eva flettir í gegnum bókina stoppar hún m.a. við skissu af bátsþilfari og fullt af vínflöskum sem eru teiknaðar þar hjá. „Ég skissaði þessa upp þegar mamma og pabbi komu í heimsókn til mín og við fórum með bát yfir til Tallinn. Við lögðum af stað klukkan hálfátta um morgun. Allir Finnarnir sem voru um borð þustu strax á bar- inn og helltu í sig og svo var farið að dansa gömlu dansana. Okkur fannst þetta hins vegar aðeins of snemmt, en þegar við tókum bátinn til baka ákváðum við að taka þátt í fjörinu og hver flaskan á fætur annarri var opnuð.“ Eva geymir líka eistneska pen- inga frá ferðinni í bókinni, sem og rússneskar rúblur og vegabréfsárit- un frá því hún heimsótti vini í Rúss- landi. „Áður en ég fór til Rússlands þurfti ég að redda mér vegabréfs- áritun og mér var sagt að það tæki rosalega langan tíma að fara í gegn- um rússneska sendiráðið. Í staðinn fór ég fjallabaksleið og á skelfilega skuggalegan bar til að nálgast árit- unina. Ég verð að viðurkenna að mér stóð ekki alveg á sama um að skilja peningana mína þar eftir en það reddaðist allt og ég náði að heimsækja vini minna.“ Eva tínir líka fram bréf sem hún ætlaði alltaf að senda ömmu sinni og snepil sem á að vera skólaskírteinið hennar. „Þetta er náttúrulega ég í hnotskurn; gleyma að senda bréf og ná aldrei að fara með miðann og gera hann að alvöru skólaskírteini,“ segir Eva skellihlæjandi. Minningar um góða dvöl Bókin endaði líka á að verða gestabók þar sem fjöldi fólks skrif- aði í hana í kveðjupartíi Evu, auk þess sem þar er að finna netföng og aðrar upplýsingar. Eva segist þá oft fletta í gegnum bókina góðu enda geymi hún skemmtilega hluti og við- haldi yndislegum minningum um frábæra dvöl. „Ég tók hana líka með til Barcelona en ég er tillögulega ný- flutt heim eftir tæplega eins og hálfs árs dvöl þar. Raunar ætlaði ég að búa til svona bók þar og keypti eina, en einhvern veginn komst það ekki lengra en það. Þetta er í raun og veru fyrsta og eina svokallaða dag- bókin sem mér hefur tekist að halda – mér tókst meira að segja aldrei að halda skóladagbók,“ segir Eva, sem bloggaði reyndar þegar hún var úti í Barcelona. Hún telur sig þó hafa bú- ið við bestu skilyrðin úti í Finnlandi til að búa til svona allsherjar bók. „Ég var ein þarna úti, á eigin vegum og hafði allan tímann fyrir sjálfan mig og bókina mína, en það er þó alltaf á stefnuskránni að gera svona bók aftur.“ Skissubókin í uppáhaldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Bókin Margar hugmyndir hafa verið hripaðar niður í svörtu bókina henn- ar Evu Hrannar Guðnadótturr og komist yfir á framkvæmdastigið. Þetta er í raun og veru fyrsta og eina svokallaða dagbókin sem mér hefur tekist að halda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.