Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 38

Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 38
Sófinn „Hér sit ég á morgnana með blaðið og kaffisopa,“ segir Elín. Hlíðarfjallið blasir við íallri sinni dýrð út umstofugluggann eins ogrisastórt málverk, punkturinn yfir i-ið í rými sem býður gesti opinn faðminn þegar gengið er inn. Svartur, hvítur og brúnir jarðarlitir blandast saman við hlyninn í innréttingunum og gefur heimilinu notalegt og stíl- hreint yfirbragð. Naumhyggja undanfarinna ára hefur ekki náð að skjóta rótum í húsi þeirra El- ínar og Gunnars því fallegir smá- munir fá að njóta sín á ýmsa vegu. Þó er engu ofaukið því hver hlutur er vandlega valinn. Húsið er hannað af Ágústi Haf- steinssyni hjá Teiknistofunni Form á Akureyri en þau hjón höfðu þó hönd í bagga, ekki síst hvað varð- ar múrverkið í húsinu. „Gunnar hlóð alla innveggi úr hleðslusteini sem framleiddur er í Mývatnssveit og múraði síðan yfir,“ upplýsir El- ín um leið og hún leiðir blaðamann og ljósmyndara um híbýlin. „Húsið er allt grófpússað að innan enda erum við mjög hrifin af þessari grófu áferð.“ Listaverk úr eigin smiðju Innréttingar á snyrtingunum tveimur eru einnig að miklu leyti múraðar sem og frítt standandi veggur sem skilur að eldhús og stofu. Kamína í stofunni er inn- múruð þannig að eldstæðið minnir meira á arin en viðarofn og sömu- leiðis eru allar gluggakistur í hús- inu steyptar. „Gluggarnir þykja svolítið sérstakir því utan frá er ekki hægt að sjá hvort fagið sé opnanlegt eða ekki,“ heldur Elín áfram. „Oftast eru þykkari póstar á gluggum sem eru opnanlegir en það er ekki hér.“ Íbúðin er í öll hvítmáluð en dökkgráar flísar á gólfum og svört húsgögn í stofunni mynda mótvægi við hvíta litinn. Engu að síður eru vistarverurnar hlýlegar enda eru skápar og innréttingar úr hlyni. Við þetta bætast svo hlýir jarð- arlitir í kókosmottum á gólfi sem og púðum og listaverkum sem mörg hver eru sprottin úr smiðju Elínar sjálfrar. „Ég hef óskaplega gaman að fal- legum munum og að leyfa þeim að njóta sín,“ segir hún en yfir tutt- ugu ár eru síðan hún tók að sér að sjá um útstillingar í Amaró-húsinu í göngugötunni. „Ég lenti nú í því fyrir hálfgerða tilviljun því ég fór á „Interrail“ þegar ég útskrifaðist sem stúdent og þegar ég kom til baka var búið að redda mér þess- ari vinnu. Það var svo gaman að ég dreif mig til Danmerkur í nám í gluggaútstillingum veturinn 1986– 1987. Síðan hef ég meira og minna unnið við þær.“ Fyrir þremur ár- um bætti hún svo við sig námi á listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og afrakstur þess er víða að sjá á heimilinu. M.a. má sjá lampa, áklæði, púða og inn- römmuð listaverk úr efnum, sem Elín hefur ýmist þrykkt á eða ofið. Um síðustu áramót keyptu Elín og Gunnar verslunina Sirku í Skipa- götu en þar selur Elín fjölbreytta nytja- og gjafavöru fyrir heimilið, í bland við íslenska textílhönnun. Margir munanna heima hjá Elínu eiga því eðlilega uppruna sinn þar. Gluggar felldir inn í vegg Sjónvarpsherbergið er milli svefnherbergisálmunnar og stofu- rýmisins og er lokað á milli með rennihurð. „Arkitektinn sá fyrir sér lágan vegg og opið á milli en ég vildi geta lokað sjónvarpið al- veg frá stofunni. Í staðinn settum við mjóa og lárétta glugga upp undir loft í sjónvarpsherberginu til að hleypa birtunni úr stofunni þar inn.“ Póstarnir í gluggunum fylgja Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stofan Hátt er til lofts og vítt til veggja. „Litavalið í húsinu réðst svolítið af húsgögnunum sem við áttum þegar við vorum að byggja,“ segir Elín. Borð- stofuborðið lét hún smíða eftir eigin hugmyndum og er hægt að stækka það fyrir allt að 14 manns. Sófaborðið er yfir 20 ára gamalt frá þeim tíma sem króm og gler var allsráðandi. „Meðan ég finn ekkert annað sem ég fell fyrir læt ég það duga enda hef ég gaman af því að blanda þessu svolítið saman.“ Múrverk og fallegir munir Fimm ár eru síðan hjónin Elín Björg Ingólfsdóttir útstillingahönnuður og Gunnar Berg Gunnarsson múrari fluttu inn í nýtt einbýlis- hús ásamt börnum sínum, Ingólfi og Katrínu. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir leit í heimsókn og þáði kaffibolla í hlýlegu umhverfi. Persónulegt „Við ætluðum að mála vegginn í eldhúsinu grænan og ég var búin að kaupa margar málningardósir til að prófa litinn en ekkert passaði. Að lokum múraði Gunnar yfir vegginn aftur en ég notaði málningarprufurnar í þetta verk.“ Lampinn er eftir Elínu. Hjónaherbergið Við létum sérsmíða höfuðgaflinn fyrir okkur og spónleggja úr hlyn í stíl við innréttingarnar í húsinu. Hann er skrúfaður á vegginn þannig að ef við fáum okkur hærra rúm er einfalt að skrúfa hann af og hækka.“ Lamparnir og púðar eru úr Sirku. lifun 38 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.