Morgunblaðið - 11.11.2006, Síða 39
sömu lögmálum og opnanlegu fög-
in á útigluggunum því þeir eru
ekki sjáanlegir. Rúðan virðist
ganga beint ofan í vegginn en við-
arlistarnir eru felldir inn í vegginn
hinum megin og hvítmálaðir.
Og framkvæmdir þeirra hjóna
halda áfram. Húsbóndinn er langt
kominn með múraðan pott úti í
garði sem ætlað er að ylja heim-
ilisfólki á sólríkum sumardögum
og fyrir dyrum stendur að end-
urbæta skrifstofuherbergi sem og
dyngju heimasætunnar. Þar ræður
bleiki liturinn ríkjum – enn sem
komið er. „Hún er nú orðin 12 ára
og vaxin upp úr þessu. Í staðinn
ætlum við að setja veggfóður úr
búðinni minni á hluta herberg-
isins,“ segir Elín og ber svartan
veggfóðursstranga með hvítu
mynstri sem minnir helst á trjá-
greinar við vegginn. „En kannski
verður hægt að blanda þessu að
einhverju leyti saman við það sem
fyrir er.“
Gestasnyrtingin Hillurnar og sturtuklefinn
eru múruð en húsbóndinn braut niður gólfflísar
sem hann svo notaði til að búa til mósaíkrönd á
hillukantinn. Samskonar rönd er á veggnum
uppi við loft. Á aðalsnyrtingunni er múrverkið
sömuleiðis í fyrirrúmi í innréttingum.
Endurnýjun „Þetta er gamli píanóstóllinn hennar
ömmu en ég saumaði áklæði utan um hann úr
gerviefni. Stundum set ég hann fyrir framan ar-
ininn sem passar vel við rolluna hennar Heklu
sem hangir þar fyrir ofan.“ Á borðinu og í ramma
undir speglinum eru strangar sem Elín óf.
Eldstæðið Kamínan og rörið upp úr henni er
múrað inn í vegginn og „arinhillan“ er steypt.
Þar fyrir ofan trónir málverk Heklu af íslenskri
rollu sem Elínu þykir ákaflega vænt um. Fyrir
framan eru púðar úr Sirku, verslun Elínar, svo
undirlagið sé mjúkt þegar orna á sér við eldinn.
ben@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 39
:
Skóverslun - Kringlunni
Sími 553 2888
Teg. 755737
St. 36-42
Litur Svart og brúnt
Verð 14.950,-
Teg. 75492
St. 36-42
Litur Svart og brúnt
og Camel
Verð 14.995,-
Teg. 75808
St. 35-42
Litur Grænt, svart og
brúnt
Verð 16.995,-
Teg. 75360
St. 35-42
Litur Svart og brúnt
Verð 22.950,-
Teg. 75091
St. 35-42
Litur Brúnt, grænt og
svart
Verð 24.950,-
Ný sending
Mikið úrval
Ath. nýtt kortatímabil