Morgunblaðið - 11.11.2006, Side 44

Morgunblaðið - 11.11.2006, Side 44
44 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í DAG leggjum við þingmenn Samfylkingarinnar í Reykjavík störf okkar í dóm félaga og stuðn- ingsmanna flokksins. Prófkjör er haldið í Þróttarheim- ilinu í dag, laugardag, frá kl. 10.00 til 18.00. Þar geta þeir kosið sem eru skráðir fé- lagar eða undirrita á kjörstað stuðnings- yfirlýsingu við Sam- fylkinguna. Framlag mitt Alþingismenn verða auk almennra þing- starfa að velja sér málaflokka sem þeir þekkja ítarlega og starfa að. Í störfum mínum sem þingmaður hef ég einkum lagt mig eftir hinum flókna heimi almannatrygginga, velferðar- og heilbrigðiskerfis. Þau mál eru ein lykilstoða í stefnu jafnaðarmannaflokka og mikilvægt að þar sé staðinn vörður um hags- muni almennings. Flókin löggjöf er um þessa málaflokka, oft svo flókin að starfsfólk í kerfinu, hvað þá venjulegt fólk sem þarf á því að halda, á erfitt með að hafa yfirsýn og rata um völundarhús þess. Ég hef kappkostað að starfa að þessum málum á fjóra vegu: Á Al- þingi þar sem lögin eru sett, um- ræða fer fram um framkvæmd þeirra og miklu varðar að gæta þar hagsmuna not- enda kerfisins jafnt sem ríkisins. Í sam- ráði og fræðslu fyrir mikinn fjölda hags- munasamtaka not- enda. Í ráðgjöf við fólk sem ekki hefur getað fótað sig í kerf- inu af eigin rammleik og síðast en ekki síst með ötulli þátttöku í opinberri umræðu. Í öllu þessu byggi ég á langri reynslu sem segja má að sé nauð- synleg til að fá botn í þessa málaflokka, en ekki síður einlægri samúð með þeim fjöl- mörgu sem þurfa á aðstoð sam- félagsins að halda hvað þetta varð- ar. Setjum saman sigurstranglegan lista Kosningarnar í vor verða að leiða til ríkisstjórnarskipta. Sam- fylkingin gegnir þar lykilhlutverki. Ég vil biðja þá sem telja störf mín mikilvæg fyrir flokk eins og Sam- fylkinguna og það fólk sem hún vill standa vörð um að hugleiða hvort ekki skipti máli að áfram sé unnið ötullega og af þekkingu í þessum málaflokkum. Ég er tilbú- in til þess og sækist eftir því að halda áfram sæti mínu, 4. sæti á þinglista Samfylkingarinnar. Ef þú ert stuðningsmaður eða félagi í Samfylkingunni í Reykjavík hvet ég þig til að taka þátt í prófkjör- inu í dag og leggja þitt af mörkum til að setja saman sigurstrangleg- an lista fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Störf í dóm kjósenda Ásta R. Jóhannesdóttir fjallar um prófkjör og stefnumál »Ef þú ert stuðnings-maður eða félagi í Samfylkingunni í Reykjavík hvet ég þig til að taka þátt í prófkjör- inu í dag og leggja þitt af mörkum til að setja saman sigurstranglegan lista fyrir Alþingiskosn- ingarnar í vor. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Höfundur er þingmaður Reykvíkinga. INNFLYTJENDUM hefur fjölgað ört á Íslandi á und- anförnum árum í kjölfar vaxandi hnattvæðingar og staðbundinna vandamála víða í heiminum. Ís- lenskt samfélag hefur líkast til aldrei verið eins fjölbreytt í fé- lags- og menningarlegu tilliti en einmitt í dag. Margir hafa þær áhyggjur að vaxandi straumur út- lendinga til Íslands muni fyrr eða síðar leiða til aukinna af- brota. Vanda vegna afbrota, sem tengist hinum nýju íbúum, hefur þó enn ekki orðið vart nema að litlu leyti hér á landi. Hver er reynsla ann- arra þjóða sem hafa lengri sögu af straumi innflytjenda en við Íslendingar? Afbrot og minnihlutahópar Ef taka ætti saman reynslu ann- arra vestrænna þjóða og lýsa henni í stuttu máli er niðurstaðan skýr. Minnihlutahópar, hvort sem er eftir þjóðerni eða kynþætti, eru víðast hvar handteknir, dæmdir og fangelsaðir í ríkari mæli en aðrir hópar. Þetta er þó ekki algilt. Ind- verskir og pakistanskir innflytj- endur hafa t.d.verið með lægri tíðni glæpa í Englandi en hvítir íbúar landsins. Sömuleiðis hafa íbúar af asískum uppruna verið með lægri tíðni en aðrir í Banda- ríkjunum. Jafnframt hefur komið í ljós að minnihlutahópar hljóta að jafnaði þyngri dóma en aðrir fyrir sams konar brot. Margvísleg úr- ræði til að draga úr þyngd dóma hafa heldur ekki verið nýtt á sama hátt í málum innflytjenda og ger- ist með aðra í samfélaginu. Ýmsar vísbendingar sýna að fyrsta kyn- slóð innflytjenda hefur stundum ekki hærri tíðni glæpa en aðrir en áhættan vex með ann- arri kynslóð. Hvers vegna hefur þróunin verið svona óhagstæð innflytjendum? Minnihlutahópar með háa tíðni glæpa og fangelsana á Vest- urlöndum eru yfir höfuð lakar settir fé- lags- og efnahagslega en aðrir, ekki síst ólöglegir innflytj- endur. Rannsóknir sýna að eftir því sem staða fólks er bágbornari aukast líkurnar á margvíslegum afbrotum. Þegar samfélög ganga í gegnum kreppu eða efnahagslega lægð hefur það iðulega komið harðar niður á inn- flytjendum en öðrum. Hærri tíðni glæpa hjá annari kynslóð innflytj- enda hefur verið rakin til þess að sá hópur er stundum í hálfgerðu tómarúmi milli tveggja menning- arheima. Eiga hvorki heilt bak- land í menningu foreldranna né hins nýja lands og lenda því á milli og oft í kasti við lögin. Hérna er þó ekki um algilt samband að ræða. Varðandi mismunun í rétt- arkerfinu hefur því verið haldið fram að fordómar og staðalmyndir um atferli minnihlutahópa standi þeim stundum fyrir þrifum í sam- skiptum sínum við réttarvörslu- kerfið og aðra í samfélaginu. Er hærri tíðni afbrota innflytjenda náttúrulögmál? Er hægt að gera eitthvað til að draga úr afbrotum þeirra? Stefnumótun í málefnum inn- flytjenda Ýmislegt er hægt að gera til að draga úr vanda vegna afbrota inn- flytjenda. Dæmi eru um lönd sem markvisst hafa gert sér far um að opna leiðir fyrir innflytjendur sem í kjölfarið sýna lægri tíðni glæpa en gerist í öðrum löndum. Brýnt er að samfélagið allt sé tilbúið að opna dyr sínar um leið og veittur er nægilegur stuðningur til að að- lögun geti verið sem farsælust. Ekki bara fyrir fyrstu kynslóðina, heldur einnig þá næstu. Ef svo er aukast líkur á lægri tíðni glæpa. Einnig skiptir máli hver tilgangur flutningsins er, hvort um nauð- arflutninga er að ræða eða frjálst vinnuafl í leit að betri kjörum. Eftir því sem nauðungin er meiri og fyrri reynsla bitrari aukast lík- urnar á vandamálum í nýja sam- félaginu. Stefnumótun í málefnum inn- flytjenda verður að vera næm á ólíkan bakgrunn og tilgang þeirra með búsetu í nýja landinu. Mik- ilvægt er að forðast alhæfingar og staðalmyndir um minnihlutahópa og kynþætti, undantekningar eru fjölmargar og einstaklingar ólíkir. Reynsla annarra þjóða á hiklaust að vera vegvísir okkar Íslendinga í framtíðinni, í samfélagi sem örugglega verður menningarlega fjölbreyttara en það er í dag. Inn- flytjendur á Íslandi eru mann- auður en ekki byrði. Afbrot og innflytjendur á Íslandi Helgi Gunnlaugsson skrifar um innflytjendamál » Stefnumótun í mál-efnum innflytjenda verður að vera næm á ólíkan bakgrunn og til- gang þeirra með búsetu í nýja landinu. Helgi Gunnlaugsson Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. FÖSTUDAGINN 27. október birtist í Fréttablaðinu grein þar sem 10 frambjóð- endur til fjögurra efstu sæta í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins voru spurðir álits á ýmsum pólitískum málum. Hljómaði fyrsta spurningin svo: Var stuðningur ís- lenskra stjórnvalda við innrásina í Írak mistök? Allir frambjóðend- urnir svöruðu spurn- ingunni neitandi. Flestir þeirra, allir nema einn, rökstuddu afstöðu sína með því að skýla sér á bak við afsökun sem dregur réttlætingu sína af fá- fræði: að samkvæmt upplýsingunum sem lágu fyrir á þeim tíma hafi verið rétt að styðja innrásina. Stuðningsyfirlýsingin var því, í þeirra huga, aðeins óheppilegur misskilningur en ekki mistök. Séu orðin sett í samhengi við undirbúninginn á Írakstríðinu, byggist afsökunin á að á þeim tíma sem ákvörðunin var tekin hafi þótt réttlætanlegt að svipta Saddam Hússein völdum því upplýsingar staðfestu að einráðurinn hefði brotið íraskar reglur um vopna- eign sem settar voru af alþjóða- samfélagi háðu framfylgingar- skyldu refsingar reglubrota. Þetta voru þær forsendur sem notaðar voru til að réttlæta innrásina í Írak. Þrátt fyrir að samþykkt fyrir sviptingu fullveldis Íraks hafi ekki legið fyrir á öryggisráði SÞ. Afsökun þessi væri fullkomlega lögmæt byggðist hún ekki á hálf- sannleika. Upplýsingarnar sem lágu fyrir, áður en ráðist var á Írak, gáfu nefnilega ekki allar til kynna að íraska Baath-stjórnin byggi enn yfir efnavopn árið 2003. T.d. staðfesti eftirlitsstofnun SÞ með vopnaeign Íraka árið 2003, UNMOVIC, að Írak byggi ekki yf- ir gjöreyðingarvopnum lengur. Í framhaldi af afstöðu sjálfstæð- ismanna til stríðsþátttökunnar, ætti spurningin því að vera þessi: Hvers vegna kusu ráðamenn Ís- lands, sem ekki bjuggu yfir nein- um upplýsingum sjálfir, að sækja sér upplýsingar til Bandaríkja- stjórnar í vígahug, frekar en til hlutlausrar stofnunar sem var sér- fróð um vopnaeign Íraka? Voru það ekki mistök að treysta á rang- ar upplýsingar, í ljósi þess að rétt- ar og trúverðurgar upplýsingar um vopnaeign Íraka árið 2003 voru til staðar? Eini frambjóðandinn sem ekki huldi afstöðu sína á bak við rangar upplýsingar var Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Vil ég byrja á því að þakka honum fyrir hrein- skilnina. Afstöðu sína til stríðs- hvatningarinnar í Írak rökstuddi Björn með því að segja að „með aðild sinni að þeim ákvörðunum, sem teknar voru, skipuðu íslensk stjórnvöld sér í sveit með þeim ríkjum innan Nato, sem hafa verið nánustu samvinnuríki Íslands. Önnur afstaða hefði þýtt stefnu- breytingu og ekki er unnt að dæma hana frá stöðu mála um þessar mundir“. Skil ég ekki alveg hvers vegna Birni finnst ekki hægt að meta ákvörðun eftir afleiðingum hennar. Stefnubreyting, í ljósi mála um þessar mundir (óöld í Írak og vandræðalegur varn- arsamningur) hefði augljóslega verið skynsamleg ákvörðun. En hver er stefnan sem Björn vill byggja milliríkjasamskipti okkar á? Samkvæmt orðum dóms- málaráðherra ætti ut- anríkisstefna Íslands í mikilvægum alþjóð- legum deilumálum, á borð við stríðsyfirlýs- ingar, að vera sú að Ísland eigi umhugs- unarlaust að skipa sér í sveit með þeim ríkj- um, sem í gegnum ár- in hafa verið helstu samvinnuríki þess inn- an Nato. Bandaríkin, helsta samvinnuríki Íslands innan Nato, stjórnar því sem sagt hvenær Ís- land lýsir yfir stríði gegn öðru ríki og hvenær ekki. Gildir einu á hvaða forsendum efnt er til stríðs og sama þótt að ríkið sem farið er í stríð gegn, ógni með engum hætti öryggi Íslands. Hvaða afleiðingar hefur þessi árásargjarna ósjálfstæðisstefna? Hún er ófriðarskapandi. Ekki að- eins gefur hún ljótum hryðju- verkamönnum ástæðu til að ráðast á landið. Heldur veikir hún á sama tíma fullveldi Íslands því öryggi okkar, vegna ofangreindrar hættu, þarf ávallt að vera háð því að er- lendar stríðsþotur vakti lofthelgi Íslands. Að auki getur ósjálfstæði Íslands í framtíðar deilumálum hvatt árásargjörn samvinnuríki okkar til að hefja nýjar styrjaldir, sem gætu sett heimsefnahaginn í enn meiri háska en hann er kom- inn í, eftir Íraksstríðið. Í ljósi þeirrar stefnu sem Björn Bjarnason lýsir og boðar er rétt að hann svari tveimur spurn- ingum. Hefur orðið stefnubreyting núna hjá íslenskum stjórnvöldum í ljósi þess að nánasta sam- vinnuríkið okkar hefur slitið ást- arsambandi við okkur og engar orrustuþotur eru hér lengur til að passa upp á okkur? Ef rökrétt stefna hefur verið mótuð hefur ís- lenska þjóðin þá ekki rétt á að vita hver opinber utanríkisstefna rík- isstjórnar sinnar sé þegar að hættulegum alþjóðlegum deilu- málum kemur? Með tilliti til þess að ákvarðanir sem hafa verið tekn- ar í leynimakki hafa aðeins reynst okkur óskynsamlegar. Að lokum vil ég varpa fram spurningu til allra sem ekki vilja viðurkenna að stuðningurinn við Íraksstríðið hafi verið mistök. Gef- um okkur að ákvörðun sé mistök ef afleiðingar hennar eru verri en hefði hún ekki verið tekin. Hvern- ig getur þá helsta afleiðing ákvörðunarinnar um að ráðast á Íraks, sem samkvæmt nýjustu töl- um óháðra fræðimanna er dauði um 655.000 einstaklinga, ekki ver- ið mistök? Mistök sjálfstæðismanna Ingólfur Shahin fjallar um afstöðu sjálfstæðismanna til Íraksstríðsins Ingólfur Shahin »Hvaða afleið-ingar hefur þessi árás- argjarna ósjálf- stæðisstefna? Hún er ófrið- arskapandi. Höfundur er blaða- og heimildamyndagerðarmaður. SAMKVÆMT nýrri skoð- anakönnun Fréttablaðsins hafa stjórnarflokkarnir aðeins 45,3% fylgi og myndu því missa meiri- hluta sinn ef kosið væri í dag. Samfylkingin er nærri kjörfylgi sínu með rúm 30%. En það eru ekki kannanir heldur kosningar sem úrslitum ráða og í dag leggjum við grunninn að 12. maí í vor. Í Þróttaraheimilinu gegnt Laugardalshöllinni geta í dag allir sem lýsa stuðningi við Samfylkinguna á staðnum tekið þátt í að velja framboðslista okkar í maí. Ég hvet þig til að taka þátt í sókn okkar, um leið og ég bið um stuðning þinn í 4. sæti. Saman skulum við leiða jöfnuð, stöðugleika og umhverf- isvernd til öndvegis við stjórn landsins. Helgi Hjörvar 12. maí Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar. Sagt var: Ísraelsmenn réðust á Palestínumenn og varð mannfall í liði beggja. RÉTT VÆRI: . . . í liði hvorratveggju. (Ath.: báðir er aðeins sagt um tvo, ekki tvenna.) Gætum tungunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.