Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 48
48 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur
nú ýtt úr vör þarfri umræðu um
erlent vinnuafl á Íslandi. Magnús
Þór Hafsteinsson, varaformaður
flokksins, skrifaði um það pistil á
heimasíðu sína 3. nóvember sl.
sem vakti athygli fjölmiðla. Magn-
ús Þór telur að málefni innflytj-
enda verði kosningamál í vor, vilji
fólk það, og segir að íslenskt al-
þýðufólk hafi áhyggjur af málinu
skv. viðtali við hann í fréttum
Sjónvarpsins 5. nóvember.
Magnús fer mikinn í umræðu
sinni um frjálst flæði vinnuafls
sem hann finnur flest til foráttu.
Meðal annars segir hann að erlent
vinnuafl hafi neikvæð áhrif á at-
vinnumöguleika Íslendinga. Sömu-
leiðis segir hann að erlent vinnu-
afl geti haft neikvæð áhrif á
launaþróun. Hann gengur jafnvel
svo langt að halda því fram að
ríkisstjórnin noti frjálst flæði
vinnuafls sem hagstjórnartæki til
að halda niðri verðbólgu. Hann
blandar einnig í málið umræðu um
tekjutengingar bóta öryrkja þó að
tengslin milli þess og frjáls flæðis
vinnuafls séu hreint ekki skýr.
Þessi umræða er óneitanlega
sérstök í ljósi þess ástands sem er
í þjóðfélaginu. Atvinnuleysi á
landinu öllu mældist einungis 1% í
september síðastliðnum skv. töl-
um Vinnumálastofnunar. Það var
1,4% í sama mánuði í fyrra og því
má ljóst vera að aukið frjálst flæði
vinnuafls hefur ekki aukið at-
vinnuleysi Íslendinga. Að sama
skapi verður að teljast undarlegt
að halda fram að Íslendingar séu
að missa vinnuna á kostnað út-
lendinga þegar skortur er á
starfsfólki í landinu. Samkvæmt
könnun Gallup frá því í september
telja 54% fyrirtækja að þau skorti
starfsfólk og er þörfin mest í
verslun, iðnaði og framleiðslu.
Ennfremur má benda á að launa-
vísitala skv. mælingum Hagstof-
unnar hækkaði um 4,4% frá byrj-
un maí til loka september á þessu
ári. Á þessu sama tímabili í fyrra
hækkaði hún um 2,1%. Það stenst
því ekki heldur skoðun að aukið
frjálst flæði vinnuafls hafi rýrt
kjörin í landinu.
Það er hins vegar áhyggjuefni
að erlendu verkafólki virðast oft
vera borguð lægri laun en samn-
ingar kveða á um. En það þýðir
ekki að kenna frjálsu flæði vinnu-
afls um það. Við ættum frekar að
líta í eigin barm. Verkalýðshreyf-
ingin og stjórnvöld verða að standa
saman að því að útrýma slíku úr
íslensku samfélagi. Við þurfum að
koma fram við alla sem hingað
koma til starfa af þeirri virðingu
sem við ætlumst til að okkur sjálf-
um sé sýnd.
Það er ekki svo að við fögnum
ekki umræðu um málefni erlends
verkafólks á Íslandi. Slík umræða
verður hins vegar að byggjast á
staðreyndum. Magnús Þór telur að
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn-
arflokkur, Vinstri-græn og Sam-
fylking hafi „klikkað“ þegar lög um
aukið frjálst flæði vinnuafls voru
samþykkt á Alþingi síðastliðið vor.
Tölur um atvinnuleysi, launahækk-
anir og áframhaldandi
skort á vinnuafli benda
ekki til þess að lagasetn-
ingin hafi haft slæmar af-
leiðingar hérlendis. Því
má spyrja á hverju klikk-
uðu flokkarnir?
Sjónarmið eins og
Magnús Þór heldur fram
eru vel þekkt úr stjórn-
málaumræðunni í mörg-
um Evrópulöndum.
Flokksforingjar eins og
Mogens Glistrup í Dan-
mörku, Jörg Haider í
Austurríki og Pim Fortu-
yn í Hollandi koma upp í
hugann í því sambandi.
Sumir þessara flokka
hafa stundum notið talsverðs
stuðnings. Þeir hafa gjarnan
byggt á einföldum málflutningi
sem oft kennir innflytjendum um
öll helstu vandamál viðkomandi
samfélaga og reynir að gera úr
þeim óvini. Ekki ætlum við að
halda því fram að Magnús Þór sé
orðinn svo langt leiddur þótt okk-
ur sýnist að hann sé að stíga spor
í þá átt. En eitt viljum við benda
honum á að lokum. Sjónarmið áð-
urnefndra flokka hafa verið kölluð
ýmsum nöfnum sem ekki verða
talin upp hér. Eitt er þó víst: Þau
eru sannarlega ekki frjálslynd á
neinn hátt.
SIGURÐUR EYÞÓRSSON,
SIGRÍÐUR ZOËGA
Berjavöllum 2, Hafnarfirði.
Ógn að utan?
Frá Sigurði Eyþórssyni og
Sigríði Zoëga:
Sigurður Eyþórsson og Sigríður Zoëga
Íslendingar leyfðu veiðar á örfáum
hvölum eftir 20 ára hlé að und-
angengnum vísindalegum rann-
sóknum og talningu á hvölum um
árabil. Rannsóknir staðfesta að hvöl-
um fer ört fjölgandi, þeir taka
ískyggilega stóran toll af hrörnandi
fiskistofnum og eiga ríkan þátt í því,
ásamt manninum, að útrýma öllu lífi
úr sjónum samkvæmt nýjustu frétt-
um af rannsóknum viðurkenndra
vísindamanna í öðrum löndum.
Íslendingar vita að fenginni
reynslu að fiskveiðistjórnun ber ár-
angur og fara eftir því. Þeir vita líka
að jafnvægi í lífkeðjunni er lífs-
nauðsyn öllu kviku, bæði á sjó og
landi, og strandríki sem Ísland hafa
bæði réttindi og skyldur til að stuðla
að slíkri þróun. Veiði fárra hvala er
þáttur í því ferli sem stjórnað verður
samkvæmt vísindalegum útreikn-
ingum.
Þessi rök ættu að vera öllum ljós,
ef ekki þá þarf að kynna það betur
meðal þjóða.
Stóra-Bretland, Ameríka og fleiri
stórveldi mótmæla veiðum, með hót-
unum, hávaða og látum.
Þjóðir, sem um áraraðir hafa og
eru að murka lífið úr börnum og sak-
lausum borgurum í hundraða- og
þúsundatali í Írak og Afganistan og
hreyfa hvorki legg né lið þótt Ísrael-
ar séu að fremja þjóðarmorð á Pal-
estínumönnum á hrottafenginn og
viðbjóðslegan hátt. Selja þeim jafn-
vel morðtólin til að fremja verkn-
aðinn.
Það kemur því úr hörðustu átt að
þessar sömu þjóðir skuli gráta kró-
kódílatárum yfir hvaladrápi Íslend-
inga og mega ekki vatni halda af
meðaumkun vegna mannúðlegrar
aflífunar villtra dýra, í jafn smáum
en fullkomlega löglegum og eðlileg-
um tilgangi.
Ég vil því segja við þetta ofur
brjóstgóða fólk: „Beindu geiri þínum
þangað, sem þörfin meiri fyrir er.“
GUÐRÍÐUR B.
HELGADÓTTIR
húsmóðir, Austurhlíð.
Hvalveiðar og barnadráp
Frá Guðríði B. Helgadóttur:
Fyrir eitthvað um tveimur vikum
birti ég í Morgunblaðinu grein-
arkorn þar sem ég lýsti ofsaakstri
á Amtmannsstígnum. Í framhaldi
af því skrifaði ég borgaryf-
irvöldum og bað um að hraða-
hindranir yrðu settar á Amt-
mannsstíginn til að gera hann
öruggan yfirferðar fyrir bæði lítið
fólk og stærra. Ég fékk strax góð
viðbrögð frá borgarfulltrúum
flestallra flokka og nú hafa um-
ræddar hindranir verið settar upp.
Og ég er ekki í vafa um að um-
ferðaröryggi í Þingholtunum mun
aukast.
Alla vega þakka ég snör hand-
tök!
ILLUGI JÖKULSSON
Ég þakka kærlega!
Frá Illuga Jökulssyni:
Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættumati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ekki
ábótavant.
Oddur Benediktsson: Áhættumati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ábóta-
vant.
www.mbl.is/profkjor
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson: „Betra, opnara og frjálsara samfélag.“
Stuðningsgrein við framboð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Bergur Ólafsson: „Steinunn er auðlind“. Stuðningsgrein vegna fram-
boðs Steinunnar Guðnadóttur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi.
Guðmundur Guðmundsson styður Steinunni Guðnadóttur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Ingibjörg Hinriksdóttir styður Kristrúnu Heimisdóttur í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
María Kristín Gylfadóttir: Kjósum hugrakka konu á þing! Stuðnings-
yfirlýsing við Steinunni Guðnadóttur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Suð-
vesturkjördæmi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
ÉG undirritaður skrifaði grein um
stækkun álversins í Straumsvík fyr-
ir u.þ.b. tveimur mánuðum síðan
sem ég kallaði „Manst þú eftir 30 ára
afmæli álversins í Straumsvík“. Til-
efnið var að Alcan í Straumsvík hafði
þá boðið bæjarbúum á stórtónleika
Björgvins Halldórssonar. Greinina
sendi ég til Morgunblaðsins og síðar
til bæjarblaðanna í Hafnarfirði þar
sem hún var birt. Í framhaldi skrif-
uðu bæði upplýsingafulltrúi Alcan
og undirritaður greinar um málið í
Fjarðarpóstinn þar sem frekari upp-
lýsingar um stækkunarmálið og þau
mál sem ég hafði fjallað um komu
fram. Meðal annars leiðrétti fjöl-
miðlafulltrúi upplýsingar mínar um
tekjur bæjarins af höfninni og
kynnti þá staðreynd að Alcan dælir
iðnaðarvatni upp úr borholum á eig-
in eignalóð og því er eðlilegt að þeir
greiði ekki Hafnarfjarðarbæ fyrir
það.
Þann 23. október sl. var stofn-
fundur Sólar í Straumi, þverpólitísks
áhugahóps um stækkunarmálið í
Straumsvík, og má segja að málið
hafi þá verið sett endanlega á dag-
skrá í bænum.
Það hefur því mikið vatn runnið til
sjávar í þessari umræðu í Hafn-
arfirði síðan greinin var skrifuð og
nýjar upplýsingar hafa komið fram.
Það kom mér því óþægilega á óvart
að sjá þessa gömlu grein birtast í
Morgunblaðinu 9. nóvember. Það
skrifast á minn reikning að hafa ekki
dregið greinina til baka hjá Morg-
unblaðinu, en það verður ekki aftur
tekið.
Ég hvet alla þá sem áhuga hafa á
stækkunarmálinu í Straumsvík til
þess að kynna sér málið á heimasíðu
Sólar í Straumi, www.solistraumi-
.org, en þar er að finna ítarlegar og
málefnalegar upplýsingar um málið.
Næsti fundur Sólar í Straumi um
stækkunarmálið verður þann 21.
nóvember nk.
PÉTUR ÓSKARSSON
rekstrarhagfræðingur og íbúi í
Áslandshverfi
Vegna greinar
um stækkun álvers
í Straumsvík
Frá Pétri Óskarssyni:
MORGUNBLAÐIÐ hefur tekið
í notkun nýtt móttökukerfi fyrir
aðsendar greinar.
Formið er að finna ofarlega á
forsíðu fréttavefjarins www.mbl.is
undir liðnum „Senda inn efni“.
Í fyrsta skipti sem formið er not-
að þarf notandinn að skrá sig inn í
kerfið með kennitölu, nafni og net-
fangi, sem fyllt er út í þar til gerða
reiti. Næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lyk-
ilorð og þá verður notandasvæðið
virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur þeirri
hámarkslengd sem gefin er upp
fyrir hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamleg-
ast beðnir að nota þetta kerfi. Nán-
ari upplýsingar eru gefnar í síma
569 1210.
Nýtt móttökukerfi
aðsendra greina