Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 56

Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 56
56 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórður MatthíasSigurjónsson fæddist á Foss- hólum í Holtum í Rangárvallasýslu 27. október 1941. Hann lést 3. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Arndís Eiríksdóttir, ljósmóðir og hús- freyja á Fosshólum, f. 28.2. 1906, d. 22.8. 1993 og Sigurjón Jónsson, bóndi á Fosshólum, f. 14.8. 1899, d. 9.10. 1960. Systkini Þórð- ar Matthíasar eru: María, f. 24.9. 1928, Sigurleif, f. 15.12. 1930, Eiríkur, f. 16.9 1934, d. 14.9. 1999, Tryggvi, f. 6.10. 1935, d. 16.12. 1969, Sigríður, f. 27.2. 1937, d. 29.7. 1986 og Sigrún, f. 1.4. 1943. Hinn 29. október 1966 kvæntist Þórður Matthías Vilborgu Gísla- dóttur frá Vindási í Landsveit, f. 26.6. 1947. Foreldrar hennar eru Guðmunda Anna Valmundsdóttir húsfreyja á Vindási, f. 6.10. 1925, nú búsett á Hellu, og Gísli Krist- jánsson bóndi á Vindási, f. 14.5. 1902, d. 15.9. 1973. Börn Þórðar Matthíasar og Vilborgar eru: 1) Jón blaðamaður, f. 14.7. 1966; 2) Guð- munda Anna þroskaþjálfi, f. 3.12. 1969, sambýlis- maður Sæmundur Kristinn Egilsson rafeindavirki f. 1962; og 3) Sigríður Arndís kennara- nemi, f. 3.12. 1977, gift Sigurði Sigurð- arsyni tamninga- manni f. 1969, sonur þeirra Sigurður Matthías, f. 2004. Dóttir Sigríðar frá fyrra sam- bandi er Vilborg María Ísleifs- dóttir, f. 1999. Börn Sigurðar frá fyrra sambandi eru Róbert, f. 1992 og Rakel Dóra, f. 1998. Þórður Matthías bjó alla tíð á Fosshólum. Árið 1966 tók hann ásamt eiginkonu sinni við búi for- eldra sinna en þau höfðu byggt nýbýlið Fosshóla úr Lýtingsstaða- landi. Hann vann ýmis störf með- fram búskapnum svo sem við sauðfjárslátrun og skólaakstur. Útför Þórðar Matthíasar verður gerð frá Marteinstungukirkju í Holtum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku hjartans pabbi minn. Síð- ustu dagar hafa verið þeir erfiðustu í lífi mínu. Ég trúi því varla ennþá að þú sért farinn, finnst eins og ég geti bráðum hringt í þig og spjallað, fengið góð ráð eða beðið þig að taka Vilborgu Maríu með heim úr skól- anum. En raunveruleikinn er ískaldur og það ert ekki þú sem ert að koma þegar heyrist í traktor úti eða útidyrnar opnast. Ég er samt svo óendanlega þakklát fyrir að hafa átt þig í tæp 29 ár. Besti pabbi í heimi. Þú varst kletturinn í lífi mínu, alltaf hægt að leita til þín hvar og hvenær sem var og vildir allt fyrir mig gera. Hjartað þitt var úr gulli þótt þú gætir stundum verið beittur og hefðir sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og værir ekkert að liggja á þeim. Þú varst prakkari í þér, við höfðum svipaðan húmor og gátum hlegið saman að svo mörgu. Þú kenndir mér svo margt, það er gott veganesti út í lífið að hafa feng- ið að stússast með þér í búskapnum og öllu sem honum fylgdi alveg frá því ég var smástelpa. Þú vildir hafa öll tæki í topplagi og lagðir á það mikla áherslu að fara gætilega í kringum þau. Það var svo gaman að fylgjast með þér þegar þú varst kominn á fullt í heyskapnum, þar naust þú þín í botn þótt dagarnir væru oft langir og strangir. Þú tal- aðir stundum um að þú hlytir að vera orðinn þúsund ára, værir bú- inn að upplifa alla heyskapartækni sem til hafi verið; slóst með orfi og ljá þegar þú varst ungur drengur, upplifðir allar tækniframfarirnar og varst svo kominn með flottustu nú- tímagræjur sem hægt var að fá – og fannst það hreint ekki leiðinlegt! Veiðivatnaferðirnar eru líka ógleymanlegar, þar varstu eins og kóngur í ríki þínu enda voru vötnin einn af þínum uppáhaldsstöðum. Dýravinur varstu mikill, sérstak- lega hélstu mikið upp á ketti og hunda og tókst þér rækilega að smita mig og börnin mín af þeim áhuga. Já, elsku börnin. Hvað þú hélst upp á þau og naust þess að hafa þau hjá ykkur mömmu. Þú tal- aðir svo oft um hvað ég væri rík að eiga þau. Ýmislegt var brallað, enda voru þau svo oft hjá ykkur í Foss- hólum. Stóru bláu augun hennar Vil- borgar Maríu eru núna full af sorg. Hún á erfitt með að skilja óréttlæti heimsins, að hún fái aldrei að sjá þig aftur. Vilborg var síðasta skóla- barnið sem þú keyrðir, þú tókst hana með þér heim á föstudaginn og talaðir sérstaklega um hvað þér fannst notalegt að hafa hana með. Sigurður Matthías skynjar þetta á sinn hátt. John Deere var með fyrstu orðunum sem hann lærði, þú kenndir honum þau og hafðir svo gaman af óbilandi áhuga hans á traktorum og tækjum. Pabbi. Það er óvenjulega kalt og nöturlegt í haustveðrinu. Tómleikinn og söknuðurinn nísta merg og bein. Ég veit að þú fylgist með okkur og veit líka að við hitt- umst aftur þegar sá tími kemur. En þangað til ætla ég að gera eins og þú gerðir; lifa lífinu lifandi með fjöl- skyldunni minni og öllu góða fólk- inu sem við eigum að og njóta þess í botn. Guð geymi þig elsku pabbi minn. Ég kveð þig eins og þú kvaddir alltaf í símann: Allt í lagi bless. Þín elskandi dóttir, Sigríður Arndís (Sigga). Sorg, söknuður og tómleiki hafa verið ríkjandi tilfinningar í hjarta mér síðan mamma hringdi í mig og sagði mér að þú værir dáinn elsku hjartans pabbi minn. Ég trúi því varla ennþá. Síðast þegar ég hitti þig varstu glaður og kátur og við vorum að halda upp á sextíu og fimm ára afmælið þitt og fjörutíu ára brúðkaupsafmælið ykkar mömmu. Það hvarflaði ekki að mér að þetta væru okkar síðustu sam- verustundir. Sem betur fer höfum við átt saman óteljandi góðar stund- ir sem gott er að minnast þegar þú ert horfinn. Þú lifðir lífinu lifandi og það var alltaf stutt í gráglettna húmorinn þinn og prakkaraskapinn. Þú varst óskaplega góður pabbi, góður vinur, ástríkur, traustur, ráðagóður og hjálpsamur. Hjartað var úr gulli og þú máttir ekkert aumt sjá. Þú varst stríðinn en gerð- ir samt líka manna mest grín að sjálfum þér – taldir að það væri betra að vera fyrri til þegar maður gerir einhver axarsköft sem hægt er að nota til að stríða manni. Ég man þegar þú varst að kenna mér að keyra traktor – þú kenndir mér að fara varlega og fara vel með tæk- in. Það voru bara gamlir karlar sem rykktu af stað – og auðvitað varð það til þess að maður reyndi eins og maður gat að taka mjúklega af stað – ekki vildi maður láta kalla sig gamlan karl! Við áttum líka margar góðar stundir saman við að vasast í kringum féð – það þurfti að girða, smala, rýja og alltaf varstu með það á hreinu hvernig þú vildir gera hlut- ina. Þú varst svo drífandi og vildir klára alla hluti – alveg sama hvað tautaði og raulaði. Ef eitthvað var bilað – sérstaklega vélar, traktorar og bílar – þá var það lagað strax enda hafðir þú öryggismálin alltaf á hreinu. Ef þú vissir af mér á léleg- um dekkjum og það var að koma vetur þá hættir þú ekki fyrr en ég var komin á nagladekkin. Eitt helsta áhugamál þitt alla tíð voru Veiðivötn. Þú varst óþreytandi við að stuðla að uppbyggingu þar. Það var þér mikið hjartans mál að aðstaðan í Veiðivötnum yrði sem allra best og klakveiðin á haustin og fiskiræktin tækjust vel. Og þú tald- ir ekki eftir þér að keyra óteljandi ferðir með seiði til að sleppa í vötn- in. Þér leiddist heldur ekki að veiða stóra urriða í Litla sjó eða Hraun- vötnum og best var ef þeir komu á stöng þó að netaveiðin væri skemmtileg líka. Þú varst kominn af stað með að kanna hvort hægt væri að koma þeirri hugmynd þinni í framkvæmd að virkja fossinn úr Fossvatninu til þess að fá ljós og hita í húsin, þannig að ekki þyrfti lengur að notast við gas og kerta- ljós. Elsku hjartans pabbi minn. Þú kvaddir þennan heim á svipaðan hátt og þú varst vanur að kveðja þegar þú varst að flýta þér, stutt og laggott: allt í lagi bless. Ég kveð þig með ljóðlínum úr ljóði Davíðs Stef- ánssonar. Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. Ég sakna þín alveg óskaplega mikið. Þín dóttir, Anna. Knús og kossar voru ekki hluti af daglegum samskiptum okkar pabba. Hvorugur okkar er þannig gerður. Þau mörkuðust samt af mikilli vináttu og trausti sem fór vaxandi með árunum. Og þegar ég veiktist af „mínum“ MS sjúkdómi árið 1992 fann ég hvað gott er að eiga pabba eins og hann. Mann sem alltaf var til staðar, hvetjandi, traustur og hjálpsamur í alla staði. Við hittumst nokkrum sinnum í viku og töluðum enn oftar saman í síma – um alls konar málefni, oftast bara örstutt, eða þar til kom „allt í lagi, bless“ eins og systur mínar hafa lýst í greinum sínum. Og auð- vitað er það fyrir áhrif af góðu upp- eldi að ég er sjálfstæðismaður – eins og pabbi! Hann var sjálfstæð- ismaður alla tíð og oft í stjórn sjálf- stæðisfélagsins í héraðinu þótt langar fundarsetur hafi aldrei átt við hann, – hann var jú maður sem vildi drífa hlutina áfram. Og hann var jafn óþolinmóður og ég að bíða eftir lyfinu mínu, sem er „alveg að koma“. Og um það var talað í síð- asta samtalinu okkar. Ég vildi óska þess að lækning hefði verið fundin við hans veikindum, sem höfðu ágerst síðasta ár. Og að sjá á eftir góðum vini eins og pabba hverfa á braut svo snemma þykir mér erfitt. Erfiðast er það þó fyrir elsku mömmu sem sér á eftir ævifélag- anum trausta og góða. Þau voru samhent hjón sem máttu hvorugt af öðru sjá. Og hvort sem það orð er viðurkennt í málinu eður ei, þá skilja það allir þegar ég segi að við systkinin höfum átt miklu „for- eldraláni“ að fagna. Við teljumst fullmótuð öll, en það áttu samt eftir að koma svona 30 ár til viðbótar með þessum góða og skemmtilega vini. Takk fyrir allt í þessari törn, við sjáumst, pabbi minn! Þinn sonur, Jón Þórðarson. Sumarið 1969 lögðum við nokkur ungmenni úr Hrútafirðinum ásamt einni ungri stúlku úr Holtunum, Sigrúnu Ernu Sigurjónsdóttur, er þá vann á símstöðinni á Brú, í ferða- lag um Suðurland. Í þessari ferð var komið við á heimili hennar að Fosshólum í Holtum. Þarna hitti ég í fyrsta sinn Þórð Matthías Sigur- jónsson, Matta, sem síðar varð mágur minn. Sumarið eftir kom ég aftur að Fosshólum og nú til að stoppa og kynntist þá fólkinu á bænum. Á þessum sumardögum tókst vinátta með okkur Matta sem styrktist og þroskaðist með hverju árinu sem leið. Sumarið 1975 fórum við Sigrún kona mín og faðir minn í ferðalag suður í Holt og það stóð meira til. Þarna fórum við pabbi með Matta inn í Veiðivötn á Landmannaafrétti. Ekið var á tveimur Landrover- jeppum og vissulega fannst okkur norðanmönnum að leiðin væri löng og mikil eyðimörk yfir að fara. Þeg- ar komið var inn í vötn blasti við okkur nýr heimur. Sannkölluð vin. Veiðin var ekki sérlega mikil en ekki minnkaði álit mitt á Matta þeg- ar hann landaði átta punda urriða úr Arnarpolli eftir snarpa viður- eign. Mér varð það ljóst að þetta svæði átti þá þegar mikinn hug hans. Vissulega var á þessum árum langt á milli Hrútatungu og Foss- hóla og ferðir ekki tíðar en þó reyndum við að hittast einu sinni eða tvisvar á ári. Uppbygging var í fullum gangi. Nýtt og glæsilegt íbúðarhús var byggt, fjósið stækkað og endurbætt, mikið ræktað og það var alveg ljóst að Matti var mikil heyskapsmaður. En Matti var ekki einn, kona hans Vilborg Gísladóttir, stóð við hlið hans og bjó fjölskyld- unni fagurt og gott heimili, auk þess sem hún hefur lagt sitt til úti- verkanna. Fyrst voru þau með allstórt kúabú, nokkrar kindur og nautkálfa til uppeldis. Síðar hættu þau mjólk- urframleiðslu og sneru sér alfarið að kjötframleiðslu og þó nú á síð- ustu árum mest að heyskap og hey- sölu. Þá hafa þau bæði stundað nokkuð vinnu utan heimilis. Ég tók fljótt eftir áhuga Matta á því að hafa góðan vélakost á búinu. Hanna var vandlátur en vissulega taldi hann það sem hann var með á hverjum tíma það besta. Þegar við hittumst bar margt á góma. Rætt var um búskapinn, vélakostinn og Veiðivötnin og veiði- skapinn þar. Matti fór að sinna málum Veiði- vatna sífellt meira eftir því sem árin liðu. Hann átti margar ferðir inn eftir bæði við að veiða fisk í klak og flytja seiði o.fl. Hann var með hug- ann við allar endurbætur á svæðinu. Við Sigrún fórum með Matta og Vilborgu og fleira fólki í netaveiði haustið 2004. Þarna var Matti for- inginn og hrókur alls fagnaðar. Síðan fórum við Matti tveir sam- an inn í Veiðivötn snemma sumars 2005. Veður var gott og fiskurinn var við í Litlasjó um kvöldið. Við veiddum nokkra fiska, einnig ókum við um svæðið og nutum fegurð- arinnar, alsælir. Við vöknuðum snemma morguns og sáum að í suð- vesturloftið var farið að draga upp bliku. Matti átti flatt hey og okkur kom saman um að halda til byggða. Í þessari ferð rakti Matti fyrir mér ýmis áform um endurbætur á hús- um og allri aðstöðu á svæðinu sem þó er um margt til fyrirmyndar að mínum dómi. Sérstaklega ræddi hann um möguleika á að virkja foss- inn í kvíslinni sem rennur úr Litla- Fossvatni. Það væri svo nauðsyn- legt að fá rafmagn í húsin á svæð- inu. Verði þessi virkjun að veruleika þá væri vel til fundið að hún yrði kennd við hann. Báðir vor- um við staðráðnir í því að við þyrft- um að fara aftur saman til veiða, þó síðar yrði. Þessi ferð með Matta sem hefur verið ákaflega ljúf í minningunni er nú orðin ein af þeim dýrmætu stundum sem maður hefur átt en veit að ekki verður endurtekin. Það hefur alltaf verið einstaklega gott að koma að Fosshólum og hitta fjölskylduna, Matta, Vilborgu og börnin þeirra. Þar tók á móti manni vinátta, gleði og þó einkum alveg sérstök hlýja. Hrútatungufjölskyldan sendir Fosshólafjölskyldunni samúðar- kveðjur, megi góður Guð styrkja ykkur og styðja á þessum erfiðu dögum og um ókomna tíð. Gunnar Sæmundsson. Góður granni er fallinn frá. Matt- hías í Fosshólum kemur ekki lengur á hlaðið. Hans er saknað í Holt- unum. Við reyndum það eins og fleiri að það var gott að eiga Matt- hías að nágranna þegar við fluttum í Holtin. Það voru ekki liðnir nema fáeinir dagar vorið 2000 frá því að við tókum að sýsla við bústörf á jörð okkar að kynni okkar Matthíasar hófust. Við þurftum að fá aðstoð við jarðvinnslu og var bent á að tala við hann. Aðstoðin var auðfengin og þannig var það æ síðan. Það var sama hvort það heyskapurinn, að gefa hrossunum eða plægja. Þar áttum við Matthías að. Þegar kom að því að huga að kaupum á drátt- arvél var það Matthías sem réð ferðinni. Skilaboðin og leiðbeining- arnar voru eins og jafnan skýrar og ákveðnar. Hann hringdi. Var stadd- ur á Selfossi. Ef það á kaupa trak- tor þá er þetta vélin. Sú varð líka niðurstaðan. Oft var setið að spjalli í eldhúsinu og oftar en ekki bar Veiðivötn á góma. Matthías var mikill áhuga- maður um ræktun og nýtingu veið- innar þar. Og það var rætt um nýj- ar og stærri vélar til að sinna heyskapnum hjá honum. En hann var líka iðinn við að hvetja aðra til frekari verka. Þannig var síðasta samtalið við Matthías. Þar voru lögð á ráðin um endurræktun túna hjá okkur að vori. En þau samtöl verða ekki fleiri. Eftir stöndum við sem erum í þakkarskuld við hann og kveðjum hann í dag. Við vottum Vilborgu og börnum samúð við frá- fall hans. Ragnhildur og Tryggvi, Syðri-Rauðalæk Hvenær sem kallið kemur kaupir sig enginn frí, þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (Hallgrímur Pétursson) Hlátur og grátur. Þar er stutt á milli. Það fengum við nokkrir vinir þínir að upplifa síðast liðið föstu- dagskvöld. Við ætluðum að eiga skemmtilegt kvöld saman, starfs- fólk leikskólans ásamt mökum. Kvöldið rétt að byrja. Vorum að borða góðan mat og segja sögur. Svo ætluðum við að hafa það nota- legt og gista á hóteli. En þú fékkst allt annað hótel en þú valdir. Elsku Matti, það er ótrúlegt að þú skulir vera farinn frá okkur svona fyrir- varalaust. Matti var góður og kær fjölskylduvinur og félagi sem við munum sárt sakna. Vinátta og traust einkenndi alla tíð okkar sam- band. Við nutum þess í ríkum mæli að ávallt var hægt að reiða sig á Matta. Hann var úrræðagóður, snjall og ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd. Stutt var í glettni og gamansemi hjá honum og hann sá tíðum spaugilegar hliðar á hinum ýmsu dægurmálum. Sérstaklega viljum við minnast á okkar stóra sameiginlega áhuga- mál, en það var uppbygging og starfsemi Veiðifélags Landmanna- afréttar. Margar ferðir höfum við farið saman til að sækja heim Veiði- vötn, þessa náttúruperlu sem þú hafðir svo ofarlega í huga. Alltaf að velta fyrir þér hvað og hvernig hægt væri að gera betur. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Elsku Matti, við þökkum þér fyr- ir allar góðu stundirnar sem við átt- um með þér. Þín mun verða sárt saknað. Um leið biðjum við góðan Guð að styrkja og hugga þína ynd- islegu fjölskyldu. Guð geymi þig. Sigrún Björk og Valtýr. Þórður Matthías Sigurjónsson Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ég mun sakna þín, heimsins besti afi. Ég mundi gera hvað sem er til að fá þig aft- ur. Ég mun aldrei gleyma þér. Bless. Vilborg María. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.