Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Brynleifur Sig-mar Tobíasson fæddist í Geldinga- holti í Skagafirði 20. janúar 1937. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Skaga- fjarðar 2. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Tobías Sigurjónsson bóndi í Geldinga- holti, f. 10. október 1897, d. 23. ágúst 1973 og Kristín Gunnlaugsdóttir frá Ytri-Kotum í Norðurárdal, f. 7. september 1912, d. 9. febrúar 2002. Systkini Brynleifs eru Guð- mann, f. 29. apríl 1935, Jófríður, f. 4. september 1939, Sigurjón, f. 8. desember 1944, Gunnlaugur, f. 29. janúar 1950 og Hjördís Jón- ína, f. 10. desember 1956. Haustið 1973 hóf Brynleifur sambúð með eftirlifandi sambýlis- konu sinni Jónu Guðrúnu Gísla- dóttur, f. 18. september 1944 og bjuggu þau alltaf í Úthlíð í Varmahlíð. Börn þeirra er Edda, f. 22. júlí 1974, sambýlismaður Þorsteinn Hafþórsson, f. 29. september 1970 og Tobías Þórður, f. 25. júní 1979. Brynleifur nam bifvélavirkjun við Iðnskólann á Sauð- árkróki og lauk meistaraprófi það- an árið 1973. Hann starfaði hjá Bif- reiðaverkstæði Kaupfélags Skag- firðinga á Sauð- árkróki en árið 1970 flutti hann í Varmahlíð og vann þar við bifreiðaviðgerðir til ársins 1982. Eftir það vann hann hjá Hitaveitu Varmahlíðar og síðar hjá Skagafjarðarveitum. Hann var einn af stofnendum Flug- björgunarsveitarinnar í Varma- hlíð og starfaði með henni alla tíð. Brynleifur var með einkaflug- mannspróf og var mikill áhuga- maður um flug og stóð meðal ann- ars að því að koma upp og viðhalda flugvallaraðstöðu í Varmahlíð. Útför Brynleifs verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með þessum orðum langar mig að kveðja Binna föðurbróður minn. Það tekur mig sárt að kveðja þig, kæri frændi, og vita til þess að nú eru það einungis minningarnar um þig sem ég á, en þær eru margar og góðar og þær einar geta hjálpað til að lækna sorgina sem kemur upp þegar ást- vinur hverfur á braut. Það var stór biti að kyngja að fá þær fréttir að þú hefðir greinst með þann hræðilega sjúkdóm, krabbamein, og það væri ekkert hægt að gera fyrir þig. Svo gerðist allt mjög hratt og aðeins um tveimur vikum seinna fékk ég símtal frá Íslandi um að þú hefðir fengið hvíldina. Þar sem ég bý erlendis gafst mér ekki tækifæri til að kveðja þig nema með að senda þér kveðju í gegnum fjölskylduna og maður finnur fyrir því á svona stundu hvað það er erfitt að vera langt í burtu frá fólkinu sínu. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar hugurinn leitar til baka. Það er alltaf gott að koma í heimsókn í Úthlíðina og þegar maður kom þá varst þú oftar en ekki að brasa eitthvað í bílskúrnum. Ég minnist þess að mér þótti alltaf svo- lítið spennandi að koma í bílskúrinn þar sem oft var þar eitthvað spenn- andi að skoða og bílarnir sem þú áttir voru margir skemmtilega spes, ef svo má að orði komast. Svo varstu oft með smábúskap, til að mynda kan- ínur, hænur og kisur, sem gaman var að kíkja á. Það var líka oft glatt á hjalla þegar þið komuð í Holtið, og ekki má gleyma flugbjörgunarsveit- arferðalögunum eða þegar við hitt- umst í sundlauginni í Varmahlíð en þá urðu umræðurnar í heita pottin- um oft ansi fjörlegar. Á seinni árum hitti ég þig sjaldnar þar sem ég flutt- ist burtu, en oft rakst ég á þig í KS Varmó og náttúrlega í Holtinu og Út- hlíðinni. Maður minnist einnig skondinna atvika eins og til dæmis þegar ég rakst á þig einhverju sinni þar sem þú varst á rúntinum í hvíta bílnum þínum og Kristínu Björgu, dóttur minni, fannst þetta heldur betur spennandi bíll. Hún klifraði inn um gluggann til þín og var ekkert á því að koma til baka. Einnig rakst maður oft á þig í KS Varmahlíð þeg- ar maður var að fara í „Central park- ið“ (Miðgarð) á ball. Oftar en ekki sá maður þig glotta út í annað, til að mynda um eina verslunarmanna- helgina þegar við frænkurnar hittum þig klæddar regnslám og með kú- rekahatt. Og hugsandi um verslunar- mannahelgina þá áttum við nú marg- ar góðar stundir á Holtstock-hátíð- um, sem ég mun varðveita í hjarta mér ásamt öðrum minningum. Alltaf var líka gott að leita til þín og oftar en ekki bjargaðir þú mér, til dæmis er ég þér mjög þákklát fyrir skutlið þegar ég var strandaglópur á Krókn- um einhverju sinni þegar barnapían hringdi í mig vegna þess að Kristín var orðin veik. Þá taldir þú ekki eftir þér að koma framanað í hundleiðin- legu veðri og bjarga okkur. Að lokum vil ég þakka þér allar stundirnar sem við áttum saman, minningin um góð- an frænda lifir. Mun ég meðal annars hugsa til þín á nýju ári þegar við eig- um aldarafmæli saman. Elsku Jóna, Edda, Steini, Tobías og aðrir aðstandendur, við fjölskyld- an sendum ykkur innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi guð styrkja ykk- ur í þessari sorg. Sigurlaug Dóra. Elsku Binni minn. Við kveðjum þig með trega. Ekki datt okkur í hug að þú færir svona fljótt frá okkur. Siggi keyrði þig til Akureyrar þar sem þú varst að fara í rannsóknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 19. október og þið áttuð svo gott spjall um lífsins gagn og nauð- synjar eins og svo oft áður við eld- húsborðið á Birkimelnum. Gamlir bílar voru oft umræðuefnið, þar lágu ykkar sameiginlegu áhugamál og margt var rætt yfir kaffibollanum sem allir fjölskyldumeðlimir gátu tekið þátt í. Þegar þú hringdir í mig á föstu- dagskvöldið fengum við fjölskyldan hnút í magann þegar kom í ljós að þú varst með æxli bæði í lungum og lif- ur. En trúin á að þú gætir unnið á þessum vágesti var enn til staðar þá. Við Siggi heimsóttum ykkur hjón- in á sjúkrahúsið á Sauðárkróki dag- inn áður en þú kvaddir þennan heim. Það er ómetanlegt að hafa fengið að hitta ykkur þennan dag og ekki spill- ir stórt bros sem við fengum frá þér. Þannig sjáum við þig í minningunni alla tíð. Kynni okkar hófust þegar Krist- ján fór að vinna hjá þér í unglinga- vinnunni 1998. Þið Kristján urðuð strax góðir vinir. Ég var nýflutt í Varmahlíð með börnin mín. Ef eitt- hvað kom upp á sem við gátum ekki leyst þá sagði Kristján: „Hringjum í Binna.“ Það hélst allar götur síðan. Við nutum oft aðstoðar þinnar, hvort heldur var að koma bílnum í gang eða við sátum föst í snjóskafli eða bara hvað sem við þurftum hjálp með. Þú varst líka góður áheyrandi og oft einskonar sálfræðingur á erfiðum stundum. Það var fastur liður þegar strákarnir komu í heimsókn norður að fara á rúntinn með þér til að spjalla í næði, oft var svo komið í kaffi til okkar á eftir í fjölskyldu- spjall. Við þökkum þér samfylgdina í gegnum súrt og sætt. Þú munt alltaf lifa í minningu fjölskyldunnar. Elsku Jóna, Edda og Tobías, við samhryggjumst ykkur innilega og biðjum Guð að vera með ykkur á þessari erfiðu stundu. Halldóra og Sigurður, Kristján og Bergný, Lilja og Elvar. Það er ekki langt síðan mamma hringdi í mig og sagði mér að Binni í Úthlíð hefði greinst með krabbamein og ætti ekki langt eftir, mér krossbrá að svona ungur maðurinn skyldi fá þennan úrskurð en fór svo að hugsa aðeins, Binni var eldri en mér fannst þó að hann væri alltof ungur til að fara strax. Í minni minningu var Binni alltaf eins, eltist aldrei. Hann var bara hluti af Varmahlíð, búinn að vera það síðan ég man eftir mér. Þegar maður hugsar til baka og velt- ir fyrir sér hvenær ég fór að upplifa Binna sem vin eins og hann var mér, þá kemst ég ekki til enda. Binni var alltaf vinur manns, sama hvort mað- ur var barn, unglingur eða fullorð- inn. Þegar ég var lítill og við Edda lékum okkur saman umgekkst ég Binna oft og alltaf spjallaði hann við mann eins og vitiborna manneskju, ekki barn. Þegar ég fór að nálgast unglingsárin vann ég oft fyrir Seylu- hrepp við hin ýmsu störf en Binni var allrahandamaður hjá Hreppnum í mörg ár. Við unnum því saman að sumum verkefnum og hann sá um að keyra mig um þorpið með sláttuorfið og sláttuvélar og þann búnað sem ég þurfti við mín verk. Eitt af þeim sumrum sem ég vann fyrir Hreppinn kom forseti Íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, í heimsókn í Skagafjörð og bjó í Varmahlíð á meðan. Við Binni vorum þann tíma fyrstir Varm- hlíðinga á fætur á hverjum morgni til að flagga fyrir henni á alla ljósa- staurana og seinastir í rúmið á kvöld- in því við tókum fánana líka niður. Ég man hvað mér fannst þetta mikið ævintýri á hverjum degi, að rúnta með Binna á gulu gröfunni hans og flagga. Binni var mjög handlaginn maður og ef eitthvað bilaði þá lagaði hann það, það var í raun sama hvað bilaði, Binni gat lagað allt, sama hvort það var segulbandstækið sem ég fékk í fermingargjöf og var farið að suða, sláttuorfið sem ég vann með í nokkur sumur eða Prikið hans. Prikið og Binni eru minning mín frá öllum 17. júní hátíðum í Varmahlíð, Binni kom fljúgandi og dreifði kara- mellum yfir svæðið og börnin hlupu á fullu að fanga þær. Eftir að ég flutti að heiman hitti ég Binna sjaldnar en ég held ég hafi aldrei komið norður án þess að hitta hann aðeins, annaðhvort stoppaði hann fyrir utan og spurði mann hvað væri að frétta eða að maður hitti hann niðri í Kaupfélagi og átti við hann stutt spjall um daginn og veg- inn og alltaf fylgdist hann með hvað ég var að bralla. Elsku Jóna, Edda og Tobías, ég sendi mínar bestu kveðjur og megi minningin um Binna milda sorgina og sefa söknuðinn. Rúnar Birgir Gíslason. Elsku Binni. Ég trúi varla að þú sért farinn. Finnst þetta svo óraun- verulegt og ósanngjarnt. Þú áttir að eiga mörg góð ár eftir og njóta efri áranna í að grúska í hinum furðuleg- ustu farartækjum sem þú kæmir höndum yfir. Við áttum líka eftir að fljúga meira saman þar sem þú varst búinn að endurnýja skírteinið þitt og báðir höfðum við yndi af öllu sem tengdist flugi. Það var okkar sameig- inlega áhugamál sem yfirleitt bar á góma í hvert skipti sem við spjöll- uðum saman. Það er sorgleg tilhugs- un að geta heldur aldrei hringt í þig aftur og sagt þér öll mín helstu vandamál sem mig langaði ekki að segja öðrum. Þú varst trúnaðarvinur minn, hlutlaus, jákvæður og traustur sem ég gat alltaf leitað til hvenær sem var ef mér leið illa. Ég var svekktur að hafa ekkert náð að hitta þig í haust og var farinn að hlakka til að sjá þig um jólin. En það verður víst ekki af því, kæri vinur. Það verð- ur skrítið að koma til mömmu um jól- in og hitta þig ekki. Held að ég muni ekki átta mig almennilega á því að þú sért farinn fyrr en þá og það er ekki gleðileg tilhugsun. Þú hefur gert svo ótal margt fyrir mig að ég stend í ævarandi þakkarskuld. Ég bið góðan Guð að geyma sál þína, og fjölskyldu þinni, sem þú elskaðir svo heitt, votta ég mína dýpstu samúð á þessari miklu sorg- arstundu. Gísli Sigurðsson. Fimmtudaginn 2. nóvember barst okkur sú sorgarfregn að vinnufélagi okkar hann Binni væri látinn. Þessi fregn kom eins og reiðarslag, það átti enginn von á því að veikindin tækju hann svo fljótt sem raun varð á. Binni var frábær vinnufélagi, hann vildi alltaf hafa reglu á öllu og þá sér- staklega í kringum vinnuborðið sitt og verkfærin áttu alltaf að vera á sín- um stað. Binni var okkar tryggasti maður í Varmahlíð, við gátum alltaf leitað til hans ef eitthvað var að heita- eða kaldavatninu þar. Húmorinn var til staðar hjá Binna og hafði hann oft á orði: „Það er best að við gömlu sjáum um þetta“. Þarna átti hann við sjálfan sig og góðan vinnufélaga. Við kveðjum Binna með miklum söknuði og þökkum honum allar góðu stundirnar. Megi Guð styrkja Jónu og fjöl- skyldu í sorginni. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (M.Jak.) Þínir, Vinnufélagar hjá Skagafjarðarveitum. Jæja Brynleifur minn, þá hefur þú yfirgefið okkur og við hugsum til þín með söknuð í hjarta. Við fréttum það um kvöldið að þú værir farinn og fundum strax til saknaðar. Það er erfitt að sætta sig við þetta um leið og það er auðvelt að minnast góðra stunda, því þær voru margar og á hverju strái. Í hvert skipti sem við hittum þig varstu hress og alltaf var stutt í húmorinn hjá þér til að kæta aðra. Þú varst stór partur af þessu frábæra andrúmslofti sem var í veit- unum þar sem við unnum saman og sjáum við nú eftir því að hafa ekki unnið þar lengur. Við vildum óska að við gætum hitt þig einu sinni enn til þess að þakka þér fyrir allt sem þú gafst frá þér, vinskap, hlýhug, velvild og svo margt margt fleira. Við vitum að þú ert kominn á betri stað núna og þú átt það svo sannarlega skilið, en samt er svo erfitt að sætta sig við veruleikann. Þú ert farinn og kemur ekki aftur. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Kolbeinn Helgi Gíslason, Ingvar Gýgjar Sigurðarson, Gunnar Davíð Jóhannesson. Kveðja frá Flugbjörgunar- sveitinni í Varmahlíð Í fámennri björgunarsveit er hver maður dýrmætur og þegar félagi hverfur frá er skarð fyrir skildi. Brynleifur Tobíasson var einn stofn- félaga Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð árið 1973 og starfaði með henni óslitið til dánardags. Áhuga hans á björgunarsveitarmálum má efalaust rekja til óbilandi áhuga hans á öllu sem tengdist flugi. Binni hafði þegar nokkra reynslu við stofnun sveitarinnar, því hann var fyrsti starfsmaður Brunavarna Skaga- fjarðar í Varmahlíð og umsjónar- maður tækja. Þrátt fyrir að hafa ver- ið í stjórn björgunarsveitarinnar í upphafi vildi hann miklu frekar stússa í vélum og tækjum enda lék flest í höndunum á honum. Hann tók að sér umsjón fjarskipta og þegar sveitinni óx fiskur um hrygg þá sá hann um snjóbíl sveitarinnar. Fátæk björgunarsveit á mikið undir því að félagarnir geti gert flest sjálfir og ekki þurfi að kaupa þjón- ustuna. Þar kom dugnaður og færni Binna sér vel því hann gat gert við betur en flestir aðrir, til marks um það má geta þess að vélsleði hans ár- gerð 1971 er enn við hestaheilsu þó að hann hafi ekki verið notaður við björgunarstörf um nokkra hríð. Binni var vakinn og sofinn yfir sveit- inni, allt frá því á fyrstu starfsárum hennar að selja samlokur til fjáröfl- unar fyrir hana til þess að semja við viðeigandi ráðuneyti og stofnanir um lítinn flugvöll í Vallhólmalandi sem nýtast mætti sveitinni. Hann var síð- an umsjónarmaður flugvallarins. Um næstu áramót hafði Binni áætlað að hætta störfum hjá sveitarfélaginu og njóta „stubbsins“ að loknum löngum vinnudegi. hann hafði nýver- ið endurnýjað gírókoptann sinn og ætlaði að gera flugvélina klára fyrir næsta vor. Það fer stundum öðruvísi en ætlað er „stubburinn“ varð eng- inn og brottförin ekki samkvæmt áætlun. Við félagar hans í Flugbjörg- unarsveitinni í Varmahlíð söknum góðs félaga hvers skarð verður ekki fyllt. Jónu, Tobíasi og Eddu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Félagar í Flugbjörgunar- sveitinni í Varmahlíð. Binni, ég man þegar við kynnt- umst í gegnum vinnuna, þá var ég gutti, svo þegar ég byrjaði í Flug- björgunarsveitinni í Varmahlíð urð- um við fljótlega mjög góðir vinir og minnist ég margra ánægjulegra stunda sem við áttum saman, þess hversu góður þú varst mér og traustsins sem myndaðist á milli okkar. Ég man þegar þú sýndir mér prikið og gömlu græjurnar í skúrn- um upp frá og hversu stoltur þú varst af þessum tækjum þínum. Í sumar fórum við saman í ferð sem er ógleymanleg og þá töluðum við um allt milli himins og jarðar. Mér finnst sárt að þurfa að kveðja þig, vinur minn, en síðast þegar ég talaði við þig í síma sagðist þú hafa þurft að fara til Akureyrar, það hefði komið svolítið uppá. Ég heyrði svo ekkert meira frá þér, en þú kvaddir þessa jörð nokkrum dögum seinna. Það er sárt til þess að hugsa að þú sem varst búinn að minnka mikið við þig vinn- una og áttir enn svo mörg áhugamál, sem þú ætlaðir að fara að sinna fyrir alvöru, skyldir ekki fá meiri tíma til þess. Ég sendi fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur. Þinn vinur, Helgi Sævar. Brynleifur Sigmar Tobíasson ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF JÓNSDÓTTIR (Olla), Löngubrekku 17, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánu- daginn 6. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 14. nóvember kl. 13.00. Björn Bjarnason, Jón Bjarnason, Hólmfríður Hafberg, Heiðrún Ólöf, Elín Björk, Sigríður Erla, Atli Þór, Alexandra Líf, Theodór Steinar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.