Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 11.11.2006, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 59 ✝ Jón Björnssonfæddist í Svína- dal í Skaftártungu 19. ágúst 1912. Hann lést á Klaust- urhólum á Kirkju- bæjarklaustri 20. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Björn Eiríks- son, f. í Hlíð í Grafarsókn í V- Skaft. 21. janúar 1861, d. 26. desem- ber 1922 og Vigdís Sæmundsdóttir, f. á Borgarfelli í Skaftártungu 22. ágúst 1872, d. 21. júlí 1955. Systk- ini Jóns eru: Valmundur, f. 2. nóvember 1897, d. 30. júlí 1898, Valmundur, f. í Svínadal 4. des- ember 1898, d. 19. júlí 1973, Eirík- ur, f. í Svínadal, 5. desember 1900, d. 18. september 1998, Kjartan, f. í Svínadal 11. desem- ber 1901, d. 30. júní 1997, Kristín, f. í Svínadal, 13. janúar 1903, d. 29. mars 1981, Sumarliði, f. í Svínadal, 7. febrúar 1906, d. 9. maí 1996, Sæmundur, f. í Svínadal, 21. febrú- ar 1907, d. 2. apríl 1999, Sveinn, f. í Svínadal 28. júní 1908, d. 24. ágúst 1993, Sigurjón, f. í Svínadal 9. septem- ber 1909, d. 26. apríl 1995, Þórunn, f. í Svínadal 15. ágúst 1911, Jón, f. í Svína- dal, 29. júní 1914, Sigurlaug, f. í Svínadal 11. maí 1919 og sam- feðra er Björn, f. í Svínadal 6. des- ember 1887, d. 14. maí 1984. Nonni bjó allan sinn aldur í Svínadal og stóð þar fyrir búi ásamt Eiríki bróður sínum. Síð- ustu tvö árin dvaldist hann á Klausturhólum á Kirkjubæjar- klaustri. Útför Jóns verður gerð frá Grafarkirkju í Skaftártungu í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú er vinnudeginum lokið hjá Nonna afabróður. Hann var langur og sleitulaus frá blautu barnsbeini. Mig langar að minnast örlítið þess tíma er ég átti ásamt Nonna. Nonni sá um allt sem sneri að dag- legu amstri við búskapinn og skepn- urnar í Svínadal. Þar var næmur maður á ferð sem umgekkst skepn- urnar af virðingu og áratuga langri reynslu. Í fyrstu skildi maður ekki allt verklag Nonna og hafði ekki þol- inmæði né þroska til þess. En með tímanum lærðist að allt hafði sinn til- gang. Þar gætti Nonni sérstaklega uppá að ekkert skorti. Hvorki skjól, vatn, haga né hey, eftir því sem við átti. Öll verk unnin af mikilli trú- mennsku og óeigingirni. Hann hafði gaman af öllum dýrum, jafnt húsdýr- um sem villtum. Hestarnir voru í uppáhaldi og aldrei voru þeir látnir standa úti í kalsaveðri eða rigningu í marga klukkutíma í senn. Svo var líka lagt á sig að heyja handa þeim með gamla laginu, elftingu. Slá með orfi og ljá inní lækjum, binda bagga með fléttuðum hrosshársreipum til að eiga konfekt handa hestunum fyr- ir veturinn. Þessi vinna hafði líka annan tilgang en sá var að sýna okk- ur krökkunum hvernig hlutirnir voru gerðir þegar hann var ungur. Með þessu lærðist manni að meta betur hlutina sem maður hafði og líka skilja betur hið endalausa brauðstrit á árum áður. Við alla þessa vinnu hafði Nonni stælst og þegar maður var lítill og sá hann af- klæðast ullarskyrtunni á heitustu dögum sumarsins þá átti maður þá ósk heitasta að verða einhvern tím- ann vöðvastæltur eins og Nonni. Ég á ekki von á því aftur að sjá sextugan mann klifra upp í 3–4 metra hæð í kaðli, snúa sér við hangandi á fót- unum og afklæðast yfirhöfninni. Það segir ýmislegt um atgervið. Aldrei líkaði honum misklíð manna á milli og tók á sig margan krókinn til að forðast slíkt. Eins mátti hann aldrei neitt aumt sjá og reyndi að gæta jafnræðis í alla staði. Nonna verður aldrei fullþakkað fyrir allt, t.d. erfiðu vetrarferðirnar í veg fyrir skólabílinn eða úr honum á árum áður og þannig mætti lengi telja. Eins allan áhugann á okkar högum þótt langt væri orðið á milli þess sem við hittumst. En það kom lítið að sök því ávallt tók hann upp þráðinn aftur þar sem frá var horfið síðast. Ég reikna með að þannig verði það líka þegar við hittumst næst. Takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Eiríkur Indriði og fjölskylda Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Mig langar til þess að minnast prúðmennisins Jóns Björnssonar, föðurbróður míns, sem var sístarf- andi myrkranna á milli.Með enda- lausa fyrirhyggju fyrir öllu, smáu og stóru. Létt virtist honum að tileinka sér tæknina. Hann flutti sig auðveld- lega af hestasláttuvélinni yfir á trak- torana, einn af öðrum, með tilheyr- andi flóknari tækjum. Þar, sem annars staðar, var sama útsjónar- semi og gætni í umgengni við allar vélar. Kann ég honum eilífa þökk fyrir að kenna sonum mínum að um- gangast tækin. Gæfan fylgdi honum þar því aldrei varð slys þótt margir ungir væru í kringum hann um ára- bil. Þegar traktor kom á bæinn sat hann langtímum saman á gamla Far- mal A og plægði nýjar sléttur, sem urðu síðan stór og góð tún, enda varð aldrei heylaust á bænum. Hann var Bóndi með stórum staf. Einn af þeim sem kölluðust bústólpi áður fyrr og var árrisull mjög. Hann vann jörð móður sinnar og síðar föður míns en hann sá alla tíð um búið og voru af- köst hans og þrek með ólíkindum. Allt lék í höndum hans. Var hann smiður góður bæði á járn og tré. Hann var akkerið á heimilinu sem alltaf var treyst á og lengi var Svína- dalur skjól kynslóðanna. Hann átti góða hesta. Ber þar hæst í hugum okkar öðlingurinn Bleikur, ættaður frá Hemlu. Hagaspakan skeiðgamm sem var ljúfur við son minn ungan, hlýddi honum í einu og öllu og valdi færa leið fyrir þá en átti til að strjúka tauma úr höndum okkar fullorðinna þegar honum leiddist hófataðið frá hinum. Þá tók hann ógleymanlega skeiðroku og þýddi hinum þar ekki að etja kappi. En yfirferðarmestur hesta hans var Brúnn, geysilegur brokkari, sem virtist geta þanið sig endalaust enda voru þeir fljótir í för- um. Margir verðlaunahrútar urðu til í hjörðinni undir umsjá hans, einnig átti hann keppnisskeiðhest og prýddu verðlaunapeningarnir her- bergi hans. Hann fór vel með hest- ana og sá um að þeir stæðu ekki úti í hausthrökum heldur launaði þeim smalasprettina með húsaskjóli og góðri tuggu í stallinn. Hann sá um að allar skepnur hefðu það sem þær þurftu og að allt gengi vel fram að vori. Á besta aldri var hann glæsilega vaxinn og litu yngri sveinar upp til hans með aðdáun og áttu þá ósk heit- asta að öðlast slíkan „Tarsanvöxt“. Hann hafði fallega rithönd og þíða söngrödd sem hann sparaði svo að fáir vissu um. Hann var einstakt prúðmenni, kurteis og orðvar og vildi öllum vel en fastur fyrir svo að enginn óð ofan í hann með skóna. Ein meitluð setning dugði flestum. Eftir að foreldrar mínir féllu frá bjó hann einn áfram á bænum nokkur ár og naut aðstoðar góðra vina og frænda. En aldur og lúi sögðu til sín, skepnum fækkaði og er hann hafði látið þær allar flutti hann fljótlega að Klausturhólum. Þar undi hann sér vel enda er þar frábært starfsfólk sem fær alúðarþakkir fyrir hlýju og góða umönnun. Ég bið þess að eilíft ljós lýsi honum gegnum móðuna miklu og kveð hann með virðingu og þökk með orðum Bubba Morthens: „Svo vöknum við með sól að morgni“. Sigurdís Erla Eiríksdóttir. Jón Björnsson eða Nonni eins og hann var alltaf kallaður, frændi minn frá Svínadal, er látinn og mig langar að minnast hans með nokkrum orð- um. Annar eins dugnaðarforkur og þú, frændi minn, var held ég vandfund- inn og ekki vafðist fyrir þér verk- lagnin en það var eins og það væri al- veg sjálfsagt að smíða hvað sem var. Hvort heldur var úr járni eða tré en það vissu ekki margir hvað þú varst góður járnsmiður líka. Ég sem smá snáði, um 5 ára aldur, elti þig um allt eins og heimalningur og fékk að fylgja með í ýmsum verkum alveg þar til að ég fór að heiman, þá 15 ára. Alla tíð síðan hef ég búið að því sem ég lærði hjá þér og þú innrættir mér og fyrir það vil ég þakka að leiðarlok- um. Fyrirhyggja þín og umhyggja var einstök, bæði fyrir mönnum og málleysingjum, en þú sást um búið fyrir bróður þinn Eirík Björnsson, afa minn, áratugum saman af ein- stakri natni og dugnaði. Þótt þú eignaðist aldrei eigin börn eða fjöl- skyldu varstu fóstri og afi svo margra barna sem komu til sumar- dvalar, eða meðan skóli var í Svína- dal, svo ekki sé nú talað um okkur sem vorum misserum og árum sam- an á heimilinu í Svínadal. Dreng- skapur, vinnusemi og heiðarleiki var það sem einkenndi allt þitt líf og ekk- ert aumt máttir þú sjá. Þegar árin færðust yfir og þrekið minnkaði hélstu samt áfram að hafa skepnur og stunda búskap á fæðingarstað þínum, með aðstoð frændfólks þíns í Múla, sem er næsti bær, og hafðir þú mikið yndi af öllu þessu fjár- og bústússi eða eins og þú sagðir einu sinni við mig „ég get ekki hugsað mér að setjast bara inn og bíða“. Nei, það var ekki þinn stíll að bíða. Þú varst alveg einstakur að hafa allt undirbúið og á réttum tíma þannig að allt gengi sem best og á sem styst- um tíma. Andleg heilsa þín var góð alveg til hins síðasta og hugsunin einkar skörp en þú gast fylgst með þínu fólki og hvað allir höfðu fyrir stafni án þess að rugla nokkru sam- an en þetta reynist nú mörgum þeim sem yngri eru alveg ómögulegt. Drottinn hefur nú kallað þig til sín eftir langan og strangan starfsdag og það er alveg víst að hafi hann vantað góðan fjár- og verkmann þá getur hann ekki fengið hann öllu betri. Ég vil þakka þér umhyggjuna og samfylgdina sem var mér alveg ómetanleg á þessum uppvaxtar- og mótunarárum mínum og ég á eftir að sakna þess að geta ekki komið við hjá þér lengur eða hringt í þig til að spjalla um alla skapaða hluti. Drottinn blessi minningu þína. Óskar Vignir. Sem afbragðs dreng við þekktum þig, og þökk og lotning vor og miklu fleiri, fjær og nær, þér fylgja hinstu spor. Þig faðmi liðinn friður guðs, og fái verðug laun þitt góða hjarta, glaða lund og göfugmennska í raun. Vér kveðjum þig með þungri sorg, og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. Guð blessi þig! Þú blóm fékkst grætt, og bjart um nafn þitt er. Og vertu um eilífð ætíð sæll! Vér aldrei gleymum þér. (Jón Trausti.) Takk frændi fyrir allt. Emil og fjölskylda. Jón Björnsson Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR PÁLSDÓTTUR, Lækjarsmára 6, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á deild 14G á Landspítalanum og Rósu Kristjánsdóttur djákna fyrir ómetanlegan stuðning og hlýju. Sigurður Pálsson, Þórunn Sigurðardóttir, Sigurður Knútsson, Páll Sigurðsson, Aldís Aðalbjarnardóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Tómas Erling Lindberg, Ásgeir Sigurðsson, Jóhanna G. Guðjónsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Halldór Ág. Morthens, Hildur Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Bróðir okkar, mágur og frændi, FRIÐRIK SIGTRYGGSON, Kríuhólum 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 9. nóvember. Útförin auglýst síðar. Valgerður, Þorbjörg, Helga, Kolbeinn, tengdafólk, systkinabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, BJARNEY RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Þrúðvangi, Vestmannaeyjum, lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmanna- eyjum fimmtudaginn 9. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Örn Aanes, Hólmfríður Sigurðardóttir, Ragnar Jóhannesson, Gerður Guðríður Sigurðardóttir, Ragnheiður Anna Georgsdóttir, Einar Þ. Waldorff, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, sambýlismaður, sonur og bróðir, EGILL SIGURÐUR ÞORKELSSON, lést fimmtudaginn 9. nóvember. Jarðarför auglýst síðar. Elinóra Inga Egilsdóttir, Pétur Laxdal Egilsson, Kristín Pétursdóttir, Þorkell Snævar Árnason, Rakel Egilsdóttir, Georg Þorkelsson, Elísabet I. Einarsdóttir, Árni Þorkelsson, Sigurður Þorkelsson og aðrir vandamenn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR BALDVINSSON veitingamaður í Mokka Kaffi, andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 9. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Guðný Guðjónsdóttir, Oddný Guðmundsdóttir, Gunnar R. Kristinsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Hannes Sigurðsson, Örn Guðmundarson, Rafael Varona, Stefán Arnar, Guðný, Hildur og Hugrún.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.