Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 66

Morgunblaðið - 11.11.2006, Page 66
|laugardagur|11. 11. 2006| mbl.is Staðurstund Í listapistli dagsins tekur Þor- móður Dagsson fyrir nokkra af þeim nýju rithöfundum sem gefa út efni fyrir jólin. » 68 af listum Tvær kvikmyndir voru frum- sýndar nú um helgina. Annars vegar kvikmyndin Flyboys og hins vegar Adrift. » 68 kvikmyndir Hljómsveitin Bob fær fjórar stjörnur hjá Helgu Þóreyju Jónsdóttur fyrir plötuna Dod- qoqpop. » 73 tónlist Mikið gengur á þessa dagana í lífi söngkonunnar Britney Spears og eiginmanns hennar, Kevins Federline. » 77 fólk Undanúrslit í afar spennandi pí- anókeppni fara fram í dag en það er Íslandsdeild EPTA sem stendur fyrir keppninni. » 68 píanó V erslunin Liborius er til húsa á Mýrargötu, gegnt Slippnum, í húsnæði er eitt sinn hýsti netagerð. Það eru Jón Sæmundur Auðarson, sem kenndur hefur verið við Dead, og Hrafnhildur Hómgeirsdóttir sem sjá um rekstur búðarinnar, en nafnið vísar til prússnesks ætt- arnafns sem amma Jóns bar. Jón lýsti því í viðtali við Morg- unblaðið í sumar að þegar innviðir búðarinnar voru hannaðir hefði verið gert ráð fyrir því að auðvelt yrði að rýma hana fyrir listrænar uppákomur, t.a.m. tónleika. Í dag hefst einmitt ný tónleika- röð í Liborius, en sérstakt svið var byggt í búðinni fyrir slíkt. Er það Daníel Ágúst sem ríður á vaðið ásamt rokksveit sinni en tónleik- arnir hefjast klukkan 18. Aðgangur er ókeypis. Rokkpúki „Okkur langaði til að spila fyrir það fólk sem fjárfesti ekki í Airwa- ves-armböndum,“ segir Daníel í samtali við blaðamann. „Nú fá okk- ar nánustu og fleiri tækifæri til að berja okkur augum.“ Daníel tróð nefnilega upp ásamt sveit sinni á liðinni Airwaves-hátíð í Hafnarhús- inu en sveitin er annars skipuð þeim Þorgeiri „Togga“ Guðmunds- syni, sem leikur á rafgítar; Borgari Magnasyni bassaleikara, Bjarna Gríms, sem lemur húðir, og Magn- úsi Ingibergssyni, sem leikur á hljómborð/píanó. Tilurð hljóm- sveitarinnar er tiltölulega einföld. „Ég var einfaldlega búinn að fá nóg af efninu á Swallowed a Star,“ útskýrir Daníel. „Mig var farið að þyrsta í hressilegra umhverfi, tón- listarlega séð.“ Swallowed a Star, sólóplata Daníels, kom út hérlendis síðasta haust en á alþjóðamarkaði kom hún út í febrúar, undir hatti One Little Indian. Platan sú inni- heldur dreymið og strengjabundið kammerpopp, skreytt raftöktum og -hljóðum, og fékk hún nánast undantekningarlaust lofsamlega dóma. „En nú er ég semsagt að fá útrás fyrir rokkpúkann í mér,“ heldur Daníel áfram en bandið setti hann saman í sumar. „Ég hef verið að semja jafnt og þétt undanfarin misseri, og var að semja allan þann tíma sem ég var að bisa við að koma þessari bless- uðu strengjaplötu á framfæri. Ég á nóg af lögum og því ákvað ég að hóa saman rokkbandi. Mig langaði til að athuga hvernig hljómsveit- arhljómur færi þessum lögum mín- um, mig langaði til að leggja þau í faðmlag heillar hljómsveitar í stað þess að vera að paufast sjálfur við að setja saman prufuupptökur.“ Tímanlega Til stendur að koma lögunum á plast og gefa út. „Já já, þetta verður hljóðritað,“ segir Daníel. „Einhvern tíma á næstunni, ég veit samt ekki ná- kvæmlega hvenær. En vonandi bráðlega. Efnisskráin okkar er enn sem komið er í styttra lagi, kannski rétt rúmlega hálftími, þannig að ég hvet áhugasama til að vera tím- anlega í því.“ Morgunblaðið/Sverrir Rokkpúkinn Daníel Ágúst ásamt hljómsveit sinni sem skipuð er þeim Borgari Magnasyni, Magnúsi Ingibergssyni, Bjarna Gríms og Þorgeiri Guðmundssyni. Í faðmlagi hljómsveitar Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ hefði sennilega fáa sam- tímamenn Franz Liszts grunað að hann myndi seint á ævinni semja kaþólska messu. Liszt var á yngri árum tákn alls þess sem veraldlegt var. Hann var tónskáld og slíkur afburða píanóleikari að annað eins hafði ekki heyrst; vildi öðlast þá tæknilegu færni sem Paganini bjó yfir á fiðluna og sumir sögðu ætt- aða frá djöflinum. Hann lifði í vel- lystingum, frægur og farsæll og átti í ástarsamböndum við fagrar konur og efnaðar. Hann átti meira að segja í útistöðum við kaþólsku kirkjuna vegna þess að hann fékk ekki að kvænast konu sem hann elskaði vegna fortíðar hennar. Hafði sjálfur verið kvæntur áður. Þess konar líf var að baki þegar Franz Liszt, árið 1878, byrjaði að semja messuna Missa Choralis. Dómkórinn flytur þetta fallega verk í Hallgrímskirkju á loka- tónleikum Tónlistardaga kirkj- unnar á morgun kl. 17. Það er vel við hæfi að auk messunnar syngur kórinn mótettur eftir Palestrina og Bruckner. Kórinn er fjölmenn- ari en vanalega á þessum tón- leikum, enda þarf stóran kór til að koma öllum blæbrigðum Franz Liszts til skila. Auk 80 kórsöngv- ara verða fimm einsöngvarar: Marta Guðrún Halldórsdóttir, Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Bergþór Pálsson og Davíð Ólafsson. Orgelleikari er Lenka Mátéová og stjórnandi Mar- teinn H. Friðriksson dómorganisti. Það verður hins vegar fyr- irmynd Liszts og um leið aðdá- andi, Ludwig van Beethoven, sem verður í sviðsljósinu á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaða- kirkju annað kvöld kl. 20, en líka ástmögur guðanna, Wolfgang Moz- art. Cuvilliés-kvartettinn frá München er gestur klúbbsins að þessu sinni, auk Sigurðar I. Snorrasonar klarinettuleikara, sem leikur með þessum aufúsu- gestum í klarinettukvintett Moz- arts. Verk Beethovens er kvartett opus 127, saminn fyrir rússneska prinsinn Nikulás Galitzin gegn þóknun sem Beethoven mátti sjálf- ur ákveða. Ekki ólíkt Liszt var Beethoven upptekinn af messu- skrifum á þeim tíma er hann átti að vera að ljúka kvartettinum, og stóð tæpt að hann næði að ljúka honum fyrir tilgreindan frumflutn- ingsdag. Það var Missa solemnis sem tafði, en einnig níunda sin- fónían. Samvinna Cuvilliés-kvartettsins, sem áður hét Sinnhofer-kvart- ettinn, og Kammermúsíkklúbbsins stendur á gömlum merg, og eru þetta 17. tónleikar hans með klúbbnum frá 1977. Liszt, Beethoven og messurnar Aufúsugestir Cuvilliés hefur áður leikið Klarinettukvintett Mozart með Sigurði I. Snorrasyni og leikur nú í 17. sinn í Kammermúsíkklúbbnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.